Morgunblaðið - 19.08.1969, Side 4
4
MORGUN'BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 106»
1-44-44
Hverfisrötu 1*3.
Simt eftir lokun 311CC.
ÍWAGIMÚSAR
*K1 ?H OLTI21 ->»M AR 21190
eftir lokun *lmi 40381
BÍLALEIGAN FALI1Rhf
car rental service ©
22-0-22*
RAUDARÁRSTÍG 31
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
bílaleigan
AKBBA VT
car rental service
8-23-47
8endum
Hf Útboð &Saminingar
Tilboðaöflun — samningsgerð.
Sóleyjargotu 17 — sími 13583.
VANDERVELL
Véíaíegur
Bedford 4-6 cyl. dísil 57, 64.
Buick V 6 cyl.
Chevrolet 6-8, '54—'68.
Dodge '46—'59, 6 cyl.
Dodge Dart '60—'68.
Fiat flestar gerðir.
Ford Cortina '63—'68.
Ford D-800 '65—'67.
Ford 6—8 cyl. '52—'68.
G.M.C.
Gaz '69.
Hillman Imp. '64—'65.
Moskwitch 407—408.
Opel '55—'66.
Rambler '56—'68.
Renault flestar gerðir.
Rover, bensín, dísil.
Skoda 1000 MB og 1200.
Simca '57—'64.
Singer Commer '64—'68.
faunus 12 M, 17 M '63—'68.
Trader 4—6 cyl. '57—'65.
Volga.
Vauxhall 4—6 cyl. '63—'65.
Willys '46—'68.
Þ. Jdnsson & Ca.
Simi 84515 og 84516.
Sksifan 17.
0 Fyrirspum til afneitara
og óvina kristindóms-
ins
Ofangreinda fyrirsögn setur
Sæmundur G. Jóhannesson á Ak-
ureyri bréfi sínu og skrifar síð-
an:
„Áður en ég ber fram spum-
ingu mina, vil ég segja stutta
sögu. Hún er æviágrip manns, er
á efri árum var af sumum tal-
inn mesti maður í Michiganríki í
Vesturheimi. Hann hét Mel Trott
er.
Mel var vínmaður mikill fram-
an af ævL Kvöld nokkurt, er
hann kom heim, sagði konan
hans við hann: „Litla barnið er
veikt og deyr, fái það ekki lyf.
Farðu í lyfjabúðina með þessi
25 sent og kauptu lyf.“ Þetta var
aleiga konunnar í peningum. Mel
fór og keypti sér viskí, varð full
ur og lá í göturæsinu, en barnið
dó. Góðir grannar skutu saman
fé og keyptu líkklæði á barnið
og hvíta fallega skó. Þegar Mel
kom heim, stal hann skónum af
líki bamsins síns, fór með þá
næsta morgun og seldi þá til að
geta aflað sér ofurlitils áfengis.
Engum manni datt í hug, að slík
ur maður æ’.ti sér nokkrar við-
reisnar von.
Þegar Páll postuli kom til Kor
intuborgar til þess að boða þar
kristni „ásetti ég mér að
vita ekkert á meðal yðar nema
Jesúm Krist og hann krossfest-
an“, segir hann. Siðferðisástand
Korintumanna var slíkt, að hann
vissi, að ekkert, nema kraftur
guðs í boðskapnum um Jesúm
Krist og friðþæging hans, gat orð
ið sUkum mönnum að gagnL Ár-
angurinn? Páll lýsir honum með
þessum orðum: „Villizt ekki!
Hvorki munu saurlífismenn né
skurðgoðadýrkendur, né hórkarl-
ar, né mannbleyður, né mannhór-
ar, né þjófar, né ásælnir, né
drykkjumenn guðsríki erfa. Og
þetta voruð þér ,sumir yðar. En
þér létuð þvost, þér eruð helgað-
ir, þér eruð réttlættir fyrir nafn
drottins Jesú Krists og fyrir
Anda vors Guðs.“ (1 Kor. 6.9. —
11.).
Mel Trotter fékk að heyra.
íerðaskrifstofa bankastræti 7 símar 16400 12070
Almenn
ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta Sunnu um ollan heim fyrir hÓRa, fyrirtæki og einstaklinga er
viðurkennd of þeim fjöl.mörgu- er reynt hafo. Reynið Telex ferðoþjónustu
okkar. Aldrei dýrori en oft ódýrari en annors stoðar.
lKntmti.il
ferðirnar sem fóikið velar
Höfum til sölu
4ra-5 herbergja íbúð
innst við Kleppsveg (Sæviðarsundshverfi). íbúðin er um 120
ferm að stærð, tvö svefnherbergi og samliggjandi borðstofa,
stofa og húsbóndaherbergi. Þvottahús á hæðinni og lítil
geymsla, ennfremur geymslurými í kjallara. í stofu er arinn
og veggir viðarklæddir. Harðviðarinnréttingar og flísalagt bað.
Tvennar svalir. Gólf teppalögð að mestu. Leikvellir og leik-
skóli í næsta nágrenni svo og verzlunarmiðstöð. Verð 1500
þúsund krónur. Hagstæð lán áhvílandí.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17, 3 haeð.
Shrtar 16870 & 24645.
Kvöldsímar 30587 & 18396.
S.
ELDTRAUSTIR
SKJALASKÁPAR
3ja og 4ra skúffu.
SÆNSK
GÆÐAVARA
E.TH.MATHIESEN H.F.
SUÐURGT. 23 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 50152
eins og Korintumenn, um mátt
Drottins Jesú Krists til að fyrir-
gefa, frelsa og lyfta mönnum
upp úr synd og löstum. Hann tók
á mótt, veitti viðtöku, Jesú sem
drottni sínum og frelsara, er svo
fúslega vildi bjarga honum, og
Mel Trotter varð nýr maður, end
urfæddur maður. Hann stofnaði
björgunarstarf í Grand Rap-
ids og sá þar þúsundir manna
öðlast nýtt líf frá Kristi, svo að
þeir urðu nýir menn, umbreytt-
ir menn, eins og hann var orðinn
sjálfur.
SHk gerbreyting manna gerist
enn í dag víðs vegar um heim-
imi , þegar þeir veita viðtöku
Jesú Kristi sem frelsara sínum og
DrottnL Menn frelsast frá valdi
alls konar lasta, áfengis og eit-
urlyf ja fyrir Kraft Krists.
Nú kemur fyrirspurnin: Hvar
eru menn að frelsast frá löstum,
áfengi og eiturlyfjanautn fyrir
kraft vantrúar, guðleysis, anda-
trúar eða guðspeki? .Vinsamleg-
ast fræðið mig um það.
Sæmundur G. Jóhannesson."
0 Smáþjófapakkið
í Reykjavík
Selma Júlinsdóttir skrifar:
Kæri Velvakandi!
Eins og svo margir aðrir Leita
ég til þín í vandræðum mínum
og hugarangrL Það, sem hrjáir
mig svo mjög, eru „hjólkoppa-
þjófar“. Það eru víst orðnir
býsna margir Reykvíkingar, sem
hafa komizt í kynni við starf-
semi þeirra. Aðfaranótt fimmtu-
dags síðastiiðins var í þriðja sinn
stolið hjólkoppunum af bifreið
okkar, þar sem hún stóð fyrir
utan heimili okkar.
Það er ekki fjárhagstjónið, sem
veldur mér sárasta hugarangr
inu, þótt aldrei sé það gott, þar
sem þetta er fremur dýr vara,
heldur er það reiði og örvænt-
ing yfir, að í minni fallegu borg
skuli þrífast svo vel alls konar
þjófnaður. Við opnum ekki svo
dagblað, að þar sé ekki getið um
innbrot í verzlanir, fyrirtæki,
íbúðarhús eða bifreiðir. Smá-
þjófnaðir, eins og að útvarpstæki
séu tekin úr bifreiðum éða ann-
að, sem þeim tilheyrir, eru svo
algengir, að fólki finnst ekki
taka því að nefna svoleiðis smá-
muni. En Reykvíkingar góðir er
það ekki einmitt átumeinið, sem
er að verða ískyggilega hættu-
| |Woremil»laí>iþ]
Bezta auglýsingablaöiö
legt? Ef okkur finnst þetta ekki
til að nefna eða óskapast yfir
svæfist þá ekkl hjá þeírrf kyn-
slóð sem nú er að alasl upp, virð
ingin fyrir eignarrétti annarra?
Kemst það þá ekki inn í vitund
þeirra ,að það sé allt í lagi að
taka það, sem aðrir eiga, ef það
er ekki því verðmætara.
Mér persónulega finnst þessi
þjófnaðaralda hér í Reykjavík
setja mjög stóran blett á okk-
ar annars svo vinalegu og fal-
legu borg. Við yrðum fljót tíl nú
á okkar tímum að standa saman
í að útrýma ófögnuði eins og
rottugangL ef það væru nagdýr á
borð við þær ,sem nöguðu og or-
sökuðu tjón á verðmætum okkar
í eins stórum stíl og þessir þjóf-
ar gera ,Ég fæ sams konar við-
bjóð i mig að verða vör við
vegsummerki þeirra, eins og að
rotta hefði komizt í eigur mín-
ar. Kæru meðborgarar, gætum við
nú ekki vaknað upp úr þessu
sinnuleysi okkar og snúið bökum
saman og barizt hetjulega við að
uppræta þessa ógeðslegu starf-
semi Ef allir leggjast á eitt með
að fordæma hátt og í hljóði all-
an þjófnað, og ef við verðum
vör við grunsamlega sölu á ým-
iss konar varningi, þá verð-
um við að NENNA að gefa rann
sóknarlögreglunni vísbendingu
um það. Það tekur svolítið af
tíma okkar þá stundina, en gæti
komið í veg fyrir að við sjálf
verðum næsta fórnarlamb.
Selma JúlÍusdóttirV
Q „Auðheyrt, hvaðan
þetta kemur“
H.J.Þ. skrifar:
Þulir ísl. Ríkisútvarpsins eru
orðnir langþreyttir á hótanatil-
kynningum um lokun vegna ó-
greiddra símareikninga , sölu
skatts, og boðun nauðungarupp-
boða, þar sem þolendur eru ræki
lega nafngreindir. — Það er raun
ar auðheyrt á framburði og mál-
fari sumra þeirra.
En þjóðin ,sem stendur undir
starfi og rekstri þessa fjölmiðl-
unartækis, sem á sér sennilega
fáa Hka í veröld, er orðin miklu
þreyttari á þessum „steinum fyr-
ir brauð".
Eitt sinn fyrir nokkrum árum,
þegar farþegaskipið Gullfoss var
á heimleið með glaðan hóp inn
anborðs og var komið rétt norð
ur fyrir strendur Skotlands,
heyrðist allt í einu í heimalands
útvarpinu. — Það fyrsta, sem
hljómaði um sali skipsins var:
„Þeir, sem enn ekki hafa greitt
söluskatt, mega búast við lokun
án frekari viðvarana" o.s.frv. —
Þá varð einum farþega að orði:
„Það er auðheyrt, hvaðan þetta
kemur.“
Menn setti hljóða um stund.
HJ.Þ.“
TJFIIffllAT
Hver er Diplomat?
Kynnist Diplomat
Reykið Diplomat
Verið Diplomat
SA RETTI
SKANDINAVISK TOBAKSKOMPAGNI
1035