Morgunblaðið - 09.10.1969, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1009
21
- UNGT FÓLK
Framhald af bls. 19
suimarbúðanna í Vatnasíkógi. Var
okkur nú boðið upp á kaffi og
kökur, eins og Skógarmanna er
von og vísa, og þá það ráð tekið
að spjalla við nokkra stráka um
dvölina að lokinni hressingu.
„Ég hef alls staðar reynt að
komast í blöðin, en ég er bara
alltaf á bak við. Blaðamennirnir
taka bara viðtöl við aðalkallana.
— Einiu sinni var tekin mynd af
mér og systur minni, þegar hún
reiddi mig niður Laugaveginn.
En ég var á bak við, svo það sást
bara í fæturna á mér. Ég vil
sjást aliur!“ — í>etta hafði Heligi
Sveinbjömsson 11 ára, að segja.
Að sögn var hann aðalkarlinn,
og þar sem „blaðamenn taka bara
viðtöl við aðalkallana", fórum
vdð fram á ferðalýsingu. — „Ég
fór bara að heiman í leigubíl og
niður á Amtmannsstíg, og svo í
rúhunni upp í Vatnaskóg. Þegar
við komum, þurftum við að
hlusta á reglurnar, og svo fór
ég á kanó. Svo þegar kvöldvak-
an var búin, fórum við strákarn
ir inn í herbergi, og þar voru
sagðar draugasögur. En ég varð
svolítið hræddur og gat ekki sofn
að. Næsta dag fórum við í bát
ana, svo í fótbolta og miklu
fleira, og nú man ég ekki meira“.
Við sneruim okkur þá að Lúðvík
Hjalta Jónssyni, tíu ára gömlum
félaga Helga, sem sat þarna hjá
okkur í grasinu.
„Ég hef aldrei lent í svoleiðis
að komast í blöðin, en ég sást
einu sinni í sjónvarpinu. Ég hef
nú ekki frá miklu _að segja. Ég
var hérna í fyrra líka, en ég man
ekkert, ég var bara héma“.
— Eins og gefur að skilja, er
okkur ofarlega í huga hávaðinn
og lætin frá því að miðdegissop-
inn var drukkinn. Sterkust verð
ur lýsingin frá einum úr hópi
dvalargesta, og Lúðvík segir frá:
„Fyrst eru ofboðsleg læti, en
svo berja foringjarnir í trommur
á veggnum, og þá þagna allir.
Síðan eru lesnar borðbænir, en
svo borðum við. Þegar við erum
búnir að borða, erum við látnir
þvo upp, hreinsa borðin og sópa.
Þetta er ofsa gaman. Við Helgi
höfum komið okkur svo vel við
ráðskonurnar, að við fáum allt-
af aukabita, þegar við erum bún
ir að þvo upp: soðinn túmat og
svoleiðis. En hann var svo vond
ur síðast, að við þurftum að
hlaupa út í skála til að henda
honum. Og nú hef ég ekki meira
að segja, því að ég er að fara í
fótbolta".
Með þessum orðum kveðjum
við sumarbúðir K.F.U.M. í Vatna
skógi og vonum, að grein þessi
hafi getað frætt lesendur a ð
noklknu um starfsemi og gildi
sumarbúða fyrir ungt fólk.
I. S. — G. S.
Vélritunarstúlka óskost
Vélritunarstúlka óskast ^ daginn (milli kl. 1—5) til starfa á
lögmannsskrifstofu. Haldgóð vélritunar- og íslenzkukunnátta
nauðsynleg.
Upplýsingar um merintun, aldur, starfsreynslu, heimilisfang og
símanúmer óskast sent afgr. blaðsins fyrir 14. október n.k.,
merkt: „Lögmannsskrifstofa — 3786".
Einbýlishús í Túnunum
Til sölu einbýlishús í Túnunum. Á haeðinni 2 stofur, svefn-
herb., eldhús, bað, skáli og anddyri. í kjallara geymslur,
þvottaherb. og 4 svefnherb. sem mætti hafa sem íbúð. Bílskúr.
SKIP OG FASTEIGNIR
Skúlagtöu 63.
Sími 21735, eftir lokun 36329.
Hestnmannaiélngið Andvari
Garða- og Bessastaðahreppi.
Framhaldsaðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn
16. október kl. 20.30 að Bala, Álftanesi.
Dagskrá fundarins:
1. Reikningar félagsins lagðir fram.
2. Teknar ákvarðanir varðandi aðstöðu félagsins
að Bala.
Þeir félagar, sem hug hafa á því að hafa hesta sína að Bala
í vetur, eru sérstaklega hvattir til að koma á fundinn.
Vinningsnúmerið í happdrætti féiagsins reyndist vera nr. 1116.
STJÓRNIN.
Nýslátrað nautgripakjöt
allar tegundir, heildsala smásala
Kaupfélagið Þór, Hellu, sími 99-5831
AÐALFUNDUR
Vorðor F.U.S. Akureyri
Vörður F.U.S, boðar til aðalfundar föstudaginn
10. október kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu ( litla sal).
Dagskrá: Lagabreytingar.
Vehjuleg aðalfundarstörf.
Félagar eru hvattir til þess að f jölmenna.
STJÓRNIN.
Knattspyrnufélagið ÞRÓTTUR
1949 — 1969.
AFMÆLISFAGNAÐUR
VERÐUR HALDINN AÐ HÓTEL SÖGU (ÁTTHAGASAL) LAUGAR-
DAGINN 11. OKTÓBER.
DAGSKRÁ:
STJÓRNIN TEKUR Á MÓTI HÁTÍÐARGESTUM
KLUKKAN 19.
SAMEIGINLEGT BORÐHALD KL. 19.30.
DANS O. FL., O. FL.
ÞRÓTTARAR FJÖLMENNIÐ OG MÆTIÐ STUNDVÍSLEGA.
STJÓRNIN.
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR
Dr. Bjarni Helgason
heldur fund í Tjarnarbúð, niðri í kvöld 9. október kl. 20.30.
Dagskrá: Kjör uppstillinganefndar, sem gera skal tillögu um
stjórn til næsta árs.
„ER HÆGT AÐ BÚA BETUR í LANDINU?“
Erindi ásamt litskuggamyndum, sem dr. Bjarni Helgason, jarð-
vegsfræðingur flytur.
STJÓRNIN.