Morgunblaðið - 02.11.1969, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.11.1969, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NOVEMBER 1969 Djilas um Nýju vinstristefnuna: Flíkin er gömul, hugsjónin óframkvæmanleg Eftirfarandi grein eftir júgó- slavneska rithöfundinn Milov- an Djilas birtist nýlega í Inter- national Herald Tribune, og birtist hér eilítið stytt. Djilas hefur sem kunnugt er margsinn is setið í fangelsum í heima- Iandi sínu fyrir skrif sín um kommúnisma allt frá 1956. Hann býr nú í Belgrad, og þar er þessi grein rituð. Enginn varð sérlega undr andi á því að uppreisn yngri kynslóðarinnar á árinu 1968, aem fór eins og elduir um siiniu um háskóla Evrópu og Am eríku, hefði í för með sér and- spyrnu og áhyggjur meðal þeirira, sem gæta eiga þess að röð og regla sé á þjóðfélaginu, svo og meðal þeinra manna, sem boða þá kenningu að breyting- ar eigi að verða með umbótum en ekki byltingu. Ekki kom það heldur á óvart að meirihluti hinna opinberu kommúnistaflokka var andsnú- inn þessari uppreisn. Það litla, sem er atf Maorxismia meðal hinna ungu uppreisnarmanna er laust við hin Moskvu- kenndu, skrifstofubáknslegu og jafruvel Leninistísku „frávilk“, En þetta er aðeins aukaástæða til andstöðu kommúnista við skoðanir og aðferðir hinna ó- ánægðu í hópi unga fólksins. Meginástæðuna er að finna í þeirri staðreynd, að kommún- istaflokkar Austur-Evrópu eru bólverk þjóðfélagsskipulags skriffinnskunnar og einhyggj- unnar og flokkarnir á Vestur- löndum, — einkum í Frakk landi og á ftalíu (hinir bveir einiu, sem nokkra þýðimgu hafa), sem ekki geta lengur af- neitað trúflokkseðh síniu, telja að breytingum verði því aðeins á komið að þeim takist að teragj- ast hinni tæknilegu framfara- þróun í löndum sínum. AÐRIR FAGNA Uppreisniinni vair hins vegar fagnað af Trotskýsinnum, Maó sinnum og Castro-sinn- um, stjórnleysiskommúnistum, vonsviknum Stalínistum og alls kornair mencnita — og setuistotfu- byltingarmönnum. Þeir vermdu sig snemma við byltingareldana enda þótt þeir hefðu ekki næg- an vind til þess að halda þeim lifandi. Þeir létu blekkjast af þeirri kredduitirú að „kapítal- isminin" væri orðinin þrumgiinin byltingarstraumum og neituðu með öllu að gera sér grein fyr- ir því, að beiting valds og einkaréttinda í „sósíalisman- um“ haifði gert þeirra eigin byltingu að engu. Og á meðan stjórnmálamenn og hugsuðir voru önnum kafn- ir við að ráða fram úr vanda- málum, sem sköpuðust af ó kyrrð í háskólum og á götum- um, flýttu þeir, sem lifað höfðu af fyrri byltingar. sér að smjaðra fyrir hiniuim umgu upp- reisnarmönnum og reyna að verða eins konar samnefnari þeirra. Á annan hátt hefðu mál in ekki getað æxlazt. Á sama hátt og hljóð í skóginum vek- u-r athygli veiðimammsinis, veld- ur tilhugsunin ein um byltingu ánægjutilfinningu með gamia byltingarmanninum, en einnig kvíða um að hann kunni að missa af byltingarjámbraut- inni, sem flytja á hann til valda, á vit mannúðar, friðar og jafnréttis. TRÚIN Á MANNÚÐINA Hin nýja bylting hinna ungu er hin fyrsta, sem ekk'. átti upp haf sitt í heilabúi einhvers snillings, ellegar einhverri mið- stjórn, heldur í andstöðunni við skriffinnsku og neytenda- efnishyggju, andstöðu við hugs anlega kjarnorkustyrjöld og þá staðreynd, að ekki hefur tekizt að finna lausnir á hug- myndafræðlegum, þjóðlegum og siðferðislegum vandamálum né heldur kynþáttavandamál um. Upphaf hreyfingarinnar verð ur ekki rakið til stjómmála heldur fremur til meginneglu utainigarðstrúarininair og trúar á mannúðina meðal hinna ungu. Utangarðsstefna í klæðaburði, siðgæði og hefðan varð tákn mótmælaforms gegin ríkjandi opinbeirum skoðunuim. En þessi tegund mótmæla átti ekki langa lífdaga, því að hugmynda fræðin hélt innreið sína í hreyf inguna. Þrábt fyrtr þá Staðreynid, að utangarðsandi sá, og trú á mannúðina sé hvað mest skap- andi afl hinna óskipulögðu mót mæla hinna ungu í dag, reyn- ist barátta ungra menntamanna fyrir því að gera þau að veru- leika vera götótt og skamm- vinn. Þegar þessar óskipulögðu hreyfingair verða að huigmyndia- fræði'legum- og stjómmálaleg- um hreyfinigum, hafla þær tiiL— hneigingu til þess að glata upp- runalegum eiginleikum sínium og stefnumiðum. Sé hreyfing gerð að hálfgild- ings stofnun verður tilhneiging til varúðar, hrossakaupa, og kreddukenninga. Þetta er ein- mitt það, sem gerðist varðandi unga fólkið er leiðtogarnir tóku að fella hugsjcnastefnu- miðin í fast mót. Það, sem meira máli skiptir, er að hinni nýju kynslóð byltingarmanna tókst ekki að koma sér upp neinum nýjum áætlunum, sem gætu á áhrifamikinn hátt tekizt á við vandamál nútímaheimsins, held- ur tóku þeir upp byltingar- stefnumið og hugsjónir liðins tíma þess í stað. Það er mjög miður að hinum ungu uppreisnarmönnum á Vest urlöndum hefur verið valið heit ið „Nýja vinsbristefnan", því það nafn inniber að þeir hafi komið í stað „Gömlu vinstri- stefnunnar" og hinnar mis- heppnuðu hugmyndafræði henn ar, með ný og áþreifanleg stefnu mið. En þetta er einmitt það, sem þeim mistókst að gena. Nýja Milovan Djilas vinstristefnan hefur ekki kom- ið fraim með neitt nýtt; hún hef- ur aðeins lofað að vera trúrri en sú fyrri við hima gömlu hug sjón. Og sú hugsjón, fullkomið (kommúniskt, stjórnleysingja) þjóðfélag, er óbneytt. Enda þótt því verði ekki neit að, að hin Nýja vinstristefna vakti margar blundandi samvizk ur og olli gerjun varðandi ým- is þjóðfélagsmál innan hinnar gömlu þjóðfélagsbyggingar (Vi- etnam-styrjöldin, sambúð kyn- þátta, endurskipulagningu há- skóla), er andi Nýju vinstri- stefnunnar gamall. Hann snýst við nýjum vandamálum með ó- starfhæfri hugmyndafræði, sem er arfleifð liðins tima. Þessd mikilvæga spurning um hugmyndafræði verður á engan veg auðveldlega leyst. Þeir, sem halda því fram, að veik- leiki Nýju vinstristefnunnar stafi af skorti á ,heilbrigðri“ hugmyndafræði, hafa á röngu að standa. Engum hefur nokkru sinni tekizt að „byggja upp“ hugsjón. Hugsjón eða hugmynda fræði er endanleg niðurstaða margra þátta sem að lokum renna saman í einn í hugar- heimi einhvers snillings. Hún er sérstaklega óframkvæmanleg í heimi, sem daglega breytist á svo fjölbreyttan og stórbrot- inn hátt að orð fá ekki lýst. Það er ekki lengur hægt að skýra nútíma þjóðfélag — frem ur en manninn og efnið — með skilgreiningurrí 18. og 19. aldar, né heldur með einföldum eftir- öpunum þeirra. Hið sama á við um uppreisn hinna ungu, sem s'.aifar aif kj arnorkuöldiinini og vandamálum líðandi stundar og ekki er hægt að fella að hug- myndum og hugmyndafræði 19. aldarinnar. Ef mögulegt væri að vekja þá Marx og Bakunin upp frá daiuðiuim nú, er ljóst að hvor- ugur þeirra ynði Marxisti eða stjórnieysinigi. Þjóðffélaigsbreyt- inig er skapandi rás, ekki etftir- líkinig. Það hefur verið sagt um Bandaríkin að „nútímakynslóð ungs fólks í háskólum okkar er hin bezt upplýsta, gáfaðasta og hugsjónafyllsta sem þetta land hefur nokkru sinni átt.“ Hið sama á við um unga, evr- ópska menntamenn, bæði í „kapítalískum“ og „sósíalískum" löndum. En þegar rætt er um hina ungu uppreisnarmenn, er ekki hægt að komast hjá því að koma auga á hinar ófrjóu kreddukenningar, sem þeir íþyngja sér með, og hindra þannig fæðingu líklegra, nýrra hugmynda og áætlana. MISMUNANDI UPPTÖK Erfiðleikar þeir, sem hinir ungu uppreisnarmenn eiga í varðandi að uppfylla stefnumið sín, eru enn flæktir af þeirri staðreynd að hin gamla hug- myndafræði er jafnan túlkuð á ýmsan hátt, og fer þar eftir hvert landið er og hversu stjórn in þar er. f hinum svonefndu neyzluþjóðfélögum Vestur- landa er ekki beinlínis hægt að segja að hinir ungu uppeisnar menn verði upprifnir yfir hin- um „hugsjónalegri“ kreddu- kenningum og Útópíudraumum, þar sem fólkið er ekki lengur kúgað af hungri, atvinnuleysi eða ein ok um e i rusf lokkskerfis. í Júgóslavíu voru einnig kreddu hópar „húmanískra“ Marxista og jafnréttisprédikara, samhliða þeim, sem kröfðust betri fram- leiðsluþátta og aukins stjóm- legs frelsis. En í Austur-Evrópu almennt birtust mótmæli ungra manna, ef þau leyfðust á annað borð (í Tékikósilóvakíu, Póllamdi, með al sovézkra menntamanna, og í Júgóslavíu) fyrst og fremst í kröfum um aukið freisi og lýð- ræði. Ungt fólk í þessum lönd- um var að leita þess. sem jafn- ingjar þess á Vesturlöndum tóku sem sjálfsögðum hlut. Það er því engin tilviljun að Rudi Dutschke, hinn slótt- ugi endurreisnarmaður „hins ó- spillta" Marxisma, var litinn h<xnniaiugia af stúden tuim í Prag; að Daniel Cohn-Bendit minnist ekki einu orði á atburðina í Tékkóslóvakíu í bók sinni „Hinn úrelti kommúnismi", og að leiðtogi tékkóslóvakískra stúdenta, Kavan, sagði: „Fyrir okkur eru það hin sígildu, al- mennu borgararéttindi, sem hafa úrslitaþýðingu. í sósíölsku þjóðfélagi er málfrelsi, prent- frelsi, fundafrelsi og samtaka- frelsi nauðsynlegt af fólkið á yfirleitt nokkur völd að hafa. „Ég hefi oft sagt vinum á Vesturlöndum að við séum að- eins að berjast fyrir smáborg- aralegum og lýðræðislegum rétt induim. En einihvern vegtnm er það svo, að ég á erfitt með að greiina á milli kapítalísks frels- is og sósíalsks frelsis'. En enda þótit stefimuimiðiin séu ólík í Austri og Vestri, stafa mótmæli hinna ungu í heimin- um frá einum samnefnara: Nýrri og víðtækari þekkingu og fram- förum í menntamálum sem á sín um tíma hljóta að verða til þess að hiniir ungu komast í tæri við tæknii og efnahagsmál. Það er kaldhæðnislegt að hinum ungu skuli ekki hafa tekizt að beita þekkingu sinni á þann hátt, sem þjóðfélagið krefst. Tæknibyltingin hefur orðið svo Skyndileg, fjöldi mienmtaimiaininia hefur aukizt svo gífurlega að hvorki menntamennirnir né þjóð félag það, sem þeir eiga að leggja til, hafa getað vanizt breytingunni né skilið hvort annað. NÝ TEGUND VERKAMANNA Þessir grundvallarþættir þjóð félagsins — verkamern, stéttir, eignir — hafa einnig þróazt og breytzt svo mjög, að þeir verða ekki lengur skilgreindir á hinn hefðbundna hátt. Enda þótt eng ir möguleikar séu á því, að hversdagsstritið hverfi, er aug ljóst að störfum þeim í iðnaði, sem unnin eru með höndunum, fer stöðugt fækkandi. Verka- mannastéttin hefur að miklu Framhaid á bls. 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.