Morgunblaðið - 02.11.1969, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1969
Minning:
Júlíus Sveinsson
Á MORGUN verður gerð frá
Foasvogskirkju útför Júlíusar
Sveinssonar, trésmiðs, er andað-
ist 26. október á 80. aldursári.
Júlíus var borinn og barnfædd
ur Reykvíkingur. Hann fæddist
16. ágúst 1890 að Smiðjustíg 11
ojg ólst þar upp í fríðum og fjöl-
mennum systkinahópi. Foreldrar
hans voru hjónin Sigríður Rögn
valdsdóttir, f. að Eystri-Reyni á
Akranesi 1857, og Sveinn Ólafs-
son, f. að Stokkseyrarseli 1843.
Þau eignuðust 8 börn. Elzt þeirra
var Rögnvaldur, sem lézt 1907,
aðeins 23ja ára gamall. Var hann
listfengur málari, sem numið
t
Litli drengurinn okkar
Þorvaldur
anda'ðist á Landakotsspítala
laugardaginn 25. okt. Jarðar-
förin hefur farið fram.
Soffía Grímsdóttir
Eiríkur Þorvaldsson.
t
Hjartkær eiginmaður minn
Einar Dyrset
andaðist að kvöldi 31. okt.
Vilborg Dyrset.
t
Otför mannsins míns
Tryggva Samúelssonar
fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 4. nóv. kl. 13.30.
Sigríður Jónsdóttir
frá Broddanesi.
hafði iðn sína í Kaupmannahöfn
og Stokkhólmi. Næstelzt var
Anna Guðný, sem dó tveggja
ára, en skarð hennar fyllti brátt
önnur Anna Guðný. Hún giftist
Þorláki Ófeigssyni, bygginga-
meistara, en á heimili þeirra bjó
síðar Sigríður, móðir hennar, til
dauðadags 1935, en Sveinn lézt
1911. Anna Guðný lézt 1957, en
Þorlákur þrem árum áður. Næst
ur var Júlíus, sem nú hefur lok
ið langri ævigöngu. Þá Sumarliði,
sem tvítugur hélt vestur um haf
og var vel metinn fasteignasali í
þrjá áratugi í Long Beach, þar
sem hann lézt 1961. Ekkja hans.
Ólöf, er fædd vestra, en báðir for
eldrar hennar voru íslenzkir.
Yngst þeirra systkina var Emilía,
sem lézt aðeins 14 ára gömul, en
eftir lifa Karólína, sem gift er
Ásgeiri Ásgeirssyni, fyrrverandi
skrifstofustjóra og Guðrún, gift
Bergi Sturlaugssyni, húsgagna-
bólstrara.
12. febrúar 1916 gekk Júlíus að
eiga Ingunni Magnúsdóttur,
glæsilega og góða konu. Hún lézt
fyrir aldur fram 1937. Þau
bjuggu lengst af að Bergþóru-
götu 6B. Börn þeirra voru 6, en
3 þeirra eru látin. Sveinn, þeirra
ymgstur, lézt á 1. ári, Magnús
tvítugur 1946, en Ásgeir, auglýs
ingateiknari, nær fimmtugur
1965. Hin eru: SigríðUr, búsett í
Suður-Afríku, gift Tom Robson,
Ársæll, kvæntur Þuríði Bjarna-
dóttur og Sigrún, gift Þóroddi
Jónssyni, stórkaupmanni, Barna-
börn þeirra Ingunnar og Júlíusar
eru 17.
Þá ber og þess að geta, að í um
25 ár átti Júlíus heimili með Guð
rúmu Sigurðardóttur frá Bjáim-
holti í Holtum, hinni miestu mynd
ar- og sæmdarkonu. Var hún þá
orðin ekkja með tvö böm. Þær
mæðgur, Guðrún og Hulda,
t
Hjartkær systir mín og móð-
ursysitir okkar
Ólafía Jónsdóttir
hjúkrunarkona,
andaðisit íöstudagirm 31. okt.
í Laindakotsspítala.
Ragnar Þ. Jónsson
Unnur Guðbergsdóttir
Sigurjón Guðbergsson.
t Mágur mirm og föðurbróðir, Jóhann Þorsteinsson Ránargötu 5A, verður jarðsuniginn þriðjudag inn 4. nóvember kl. 13.30 frá Dámkirkjunni. — Blóm og kransar virusamlega afþakk- aðir. Hrefna Jónsdóttir Kristján Tómasson. t Faðir okkar Júlíus Sveinsson verður jarðsungirun frá Foss- vogskirkju mánudaginn 3. nóv. kl. 13.30. Ársæll Júlíusson Sigrún Júlíusdóttir.
t Friðrik Finnbogason t Þökkum af alhug fyrir samúð
Sunnubraut 18, Keflavík, og vinarhug við andlát okk- ar elskulega eiginmanns, föð-
verður jarðsunginn frá Kefla- víkurkirkju mánudaginn 3. ur, tengdaföður og afa
névember kl. 2 e.h. Þórunn Þorbergsdóttir Bergsveins Jónssonar.
María Friðriksdóttir Guðrún Jóhannsdóttir
Þorsteinn Friðriksson Guðbjörg Bergsveinsdóttir
Aðalheiður Friðriksdóttir Halldór Þórhallsson
Sigurlaug Friðriksdóttir Ingibjörg Bergsveinsdóttir
Jóhann Friðriksson Magnús Erlendsson
Aníta Friðriksdóttir Steinunn Jónsdóttir
Halldór Friðriksson Arilíus Harðarson
Bjarni Friðriksson Dóróthea Friðríksdóttir Þorbergur Friðriksson Guðmunda Friðriksdóttir og barnabörn.
sýndu Júlíusi til hinztu stundár
frábæra alúð og ræktarsemi.
Mestan hluta starfsævi sinnar
stundaði Júlíus trésmíðsu, og oft
ast hinar vandasamari, enda þótt
hann yrði fyrr á árum stundum
að taka hverri þeirri vinnu, sem
bauðst. En 1925 réðst hann til
Áhaldahúss bæjarsins, og má
segja, að hann hafi staðið þar við
hefilbekkinn í um 35 ár. Hann
var með afbrigðum hagur smið-
ur og vandvirkur.
Heimilislífið að Smiðjustíg 11,
þar sem Júlíus og systkini hans
ólust upp, var til fyrirmyndar að
ástríki og umhyggju, glaðværð
og góðlyndi. Auður og auðna
heimilistfólksinis bjó i því sjálfu.
Hughreysti og stilling voru til
svara, ef sorg eða áhyggjur
knúðu dyra. Því fór einnig svo,
að góðvild, trygglyndi og
geðprýði urðu þeir mannkostir,
sem þau systkini öll áttu í rík-
um mæli alla ævi síðan og ekki
eitt fremur en annað. Ástríki
þeirra í milli var og slíkt, að
aldrei bar skugga á, og yngri kyn
slóðin naut þess öll frá öllum
jafnt, svo sem unnt var.
Júlíus var mjög bókhneigður
maður, og honum tókst þrátt
fyrir takmörkuð efni að afla sér
mikils safns bóka og tímarita.
Minni hans og greind gerði hann
að sikemmtilega fróðum manni,
enda var hann gæddur ríkri
kímnigáfu. Samvistir við hann
voru jafnan gleðistundir, og hinn
sérkennilegi og hrífandi hlátur
hans mun hljóma í hugum okk-
ar, sem þekktum hann bezt, þeg-
ar við minnumst liðinna sam-
verustunda, og því muinum við
njóta þeirra um ókomin ár, en
jafnframt minnast þeirra með
meiri trega.
Einn var sá háttur í fari Júlí-
usar, sem gerði hann að méiri og
betri manni í mínum augum en
flesta aðra, og það var, hve um-
talsgóður hann var um aðra
menn, en heyrnardaufur á last-
yrði. Hann var vel hagorður og
orti mikið um tíma, en aldrei
voru það gkammarvísur eða ljótt
orðbragð, einis og lengi var mjög
í hávegum haft hér á landi. Ham
ingjuóska- og heillakvæði léku
honum aftur á móti á tungu.
Júlíus dvaldi einu sinni erlend
is og þá í tvö ár samfleytt. Fór
hann með Elleffsen, hvalveiðaút
gerðarmanni, til Suður-Afríku.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
María Ólöl Bjarnadóttir
frá Alviðru, Dýrafirði,
andaðisit að Sólvamgi, Hafnar-
fir'ðd, 29. okt. Jarðsett verður
máwudaginn 3. nóvember kl.
3 frá Fossvogsikirkju.
Börn og tengdabörn.
t
Hjartans þakkir til allra, sem
auðsýndu okkur vináttu og
samúð við andlát og jarðarför
okkar hiartfólgimi móður,
tengdamóðuir, ömmu og lang-
ömmu,
Ástríðar Björnsdóttur,
Laugavegi 46B.
Sérstakar þakkir viljum við
færa lækmum og hjúkrunar-
liði Borgarsjúkrahússinis fyrir
frábæra hjúkruin og umönn-
un. — Guð blessi ykkur öll.
Sigrún Eyþórsdóttir
Ólafur Ólafsson
Margrét Eyþórsdóttir
Gunnar Jónsson
Áslaug Eyþórsdóttir
Eiríkur Agústsson
Ingibjörg Eyþórsdóttir
Leifur Jónsson
Sveinbjörg Eyþórsdóttir
Borgþór ÞórhalLsson
Björn Eyþórsson
Torfev Steinsdóttir
barnaböm og barna-
barnaböm.
Fjölskylda hans bjó þá enn að
Smiðjustíg 11. Þangað sendi hann
mörg bréf í bundnu og óbundnu
máli, sem lýstu heimþrá hans og
tryggð. Mörgum áratuguim seinna
tók hann að fá falleg bréf og
hlýjar kveðjur frá Suður-Afríku,
og þau hafa ekki síðux yljað hon
um um hjartarætur en hans eig
in bréf móður hans forðum. Nú
komu bréfin frá Sigríði, dóttur
hans, sem sannaði enn, að rækt-
arsemi spyr ekki um fjarlægðir.
Ég veit vel, hve mikils hann mat
hugulsemi hennar, og því vil ég
sérstaklega minnast hennar hér
í visisu um þakklæti hans.
Júlíus Sveinsson var ekki að-
eins góður frændi, heldur og
hinn bezti og hollasti vinur minn.
Það er með djúpum trega, en
einnig ríku þakklæti, sem ég
fylgi honum síðasta spölinn.
Sveinn Ásgeirsson.
Hjartans þaikkir til allra, er
sýndu mér vináttu og tryggð
á 75 ára afmæli míruu 18.
október sL Guð bleissi ykkur
ölL
Böðvar Grímsson.
Innilega þakkarkveðju sendi
sendi ég öllum þeim, sem
sýndu mér me'ð margvísilieg-
um hætti vináttu á sextugs-
afmæii miniu.
Tryggvi Tryggvason.
Innilega þakka ég góðar ósk-
ir, gjafir og alla viinsemd mér
sýnda á 70 ára afmæli mínu,
26. oktöber.
Stefán J. Guðmundsson
Hveragerði.
Hjartanlegustu þakkir send-
um við ættingjum og vinium,
sem sýndu oktour vinóttu og
hlýhug með gjöfum og heill'a-
óskum á gullbrúðkaupsdegi
okkar þ. 24. okt. sl.
Ásta Eiríksdóttir og
Valdimar Sv. Stefánsson,
Leifsgötu 11.
Lokuð vegna jarðnrfarar
mánudaginn 3. nóvember kl. 1—3.
Heildverzlun Þóroddar E. Jónssonar.
Hef opnað
lækningastofu i læknastöðinni að Klapparstíg 26.
Viðtalstími eftir samkomulagi. Sími 11228.
ÓLAFUR ÖRN ARNARSON, læknir.
Kvenfélag Háteigssóknar
Basarinn verður á morgun kl. 2 í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu (gengið inn frá
Ingólfsstræti).
Til sölu verður prjónlespúðar, svæfilver
í úrvali, einnig kökur og margt fleira.
Verzlið þar sem ódýrast er
og úrvalið er mest
Stækkanlegir sófar frá kr. 6.650.00.
Svefnbekkir með endagöflum og sængurfatageymslu frá
kr 5.450.00.
Hjónabekkir frá kr. 7.200,00.
SVEFNBEKKJA
I
Laufásvegi 4, sími 13492. (Ath. Við erum rétt við miðbæinn).