Morgunblaðið - 23.11.1969, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓV. 1069
Aldarminning:
Prófessor Sigurður Magnússon
Prófessor Sigurður Magnússon
fyrrum yfirlæknir á Vífilsstöðum
var sonur merkis hjónanna
Magnúsar prests Jónssonar í
Laufási og konu hans Vilborgar
Sigurðardóttur. Jón Magnússon
fyrrum forsætisráðherra var
bróðir hans. Systur hans voru:
Ingibjörg kona Björns prests í
Laufási og Sigrfður, sem í ára-
tugi var hjúkrunarkona í Vífils
staðahæli. Þar kynntist ég henni
og dáði hana mjög vegna fá-
dæma ósérplægni og stakrar um
hyggju hennar fyrir sjúklingum
sínum.
Próf. Sigurður lauk embættis-
prófi við Hafnarháskóla. Að því
loknu var hann 1 áir kennari við
læknaskólann, en fór þá aftur
utan og vann síðan 4ár í sjúkra
húsum í Danmörku Danir voru
þá, eins og raunar siðan, í röð
fremstu þjóða í menningar og
heilbrigðismálum. Það sýndi sig
meðal annars í því, að berkla-
dauði var hvergi lægri en þar.
Próf. Sigurður var því óvenju
vel menmtaður og æfður læknir
að lokinni döl sinni í Danmörku
Áíslandi voru heilbrigðismál
og öll afkoma miklu lakari en í
nágrannalöndunum. Berklaveik-
in hafði allt frá landnámstíð bor
izt hingað öðru hverju, en strjál
býlið og litlar samgöngur dregið
úr útbreiðslu hennar. Alls konar
óáran hafði um aldir þjakað þjóð
ina. A síðari hluta 19. aldar er
einokun að fullu aflétt og stjóm
arskrármálið eins og kunnugt er
til lykta leitt.
Viðskipti og fiskveiðar aukast.
Smábændur, hjú og framgjamir
unglingar una ekki lengur glað-
ir við sitt. Fjöldi fólks flytur bú-
ferlum til Ameríku og fólk
streymir úr sveitum f kaupstaði
og sjávarþorp. Hin mikla mann-
fjölgun á þessum stöðum hafði
eðlilega í föir með sér stopula
atvinnu, ófullkomið húsnæði,
hörgul á mjólkuirmat og fleiri
nauðsynjum. Þetta skaðaði ákjós
anlegustu skilyrði fyrir berkla-
veikina, enda breiddist hún svo
ört út fyrir og eftir síðustu alda-
mót, að til stórvandræða horfði.
Sjúkrahús vom fá og fullsetin.
Víða urðu því fárveikir smitandi
sjúklingar að hýrast í heimahús-
um. Auðvitað reyndu læknar
eftir föngum að hjálpa þessu
fólki og kenna því sóttvamir.
Guðmundur Bjömsson land-
læknir, próf. Sigurður Magnús-
son, og fleiri læknar skrifuðu
fjölda blaðagreina og ritlinga um
sóttvarnir, einkenni og meðferð
berkla. Danskir Oddfellowar
höfðu reist og gefið landinu Laug
amesspítala. Guðmundur Björns
son flutti erindi á fundi Odd-
fellowa í Reykjavík og lýsti því
hvemsu brýn nauðsyn væri að
reisa berklahæli hér á landi. í
þessum félagsskap voru margir
helztu framámenn þjóðarinnar.
Undirtektir voru góðar og sam-
þykktu Oddfellowar að beita sér
fyrir stofnun heilsuhælisfélags.
Áirið 1906 var félagið stofnað
með þátttöku áhugamanna um
allt land og vaar því líkt í snið-
um og SÍBS er nú. f maí 1909
er hornsteinn lagður að Vífils-
staðahæli og í september næsta
ár tekur það til starfa.Sökum
hæfileika sinna, áhuga á berkla
vömum og langrar vinnu í dönsk
um sjúkrahúsum og berkladeild-
um, var próf. Sigurður Magnús-
son sjálfkjörinn yfirlæknir hæl-
isins. Við mikla erfiðleika var
að etja Heilsuhælisfélagið artn-
aðist rekstur hælisins fyrstu ár-
in. Félagið var févana og því ó-
hægt um allar framkvæmdir og
umbætur. Hælið rúmaði 70—80
sjúklinga, það reyndist allt of
lítið, jafnvel þó að sumir sjúkl-
ingar reyndu með ýmsu móti að
hliðra sér hjá að fara í hæli og
aðrir vildu fara þaðan of
snemma. Stafaði þetta meðfram
af því, að sjúklingar áttu að
greiða dvalarkostnaðinn sjálfir,
en viðkomandi sveit ef þeir gátu
það ekki. Hvorugur þótti kostur
inn góður. Yfirlæknirinn mun í
fyrstu hafa verið að mestu eini
læknir hælisins.
Sigurður Magnnssou
prófessor.
Með tilliti til sjúklingafjöld-
ans og heilsufars þeirra, er auð-
sætt, að yfirlæknisstarfið hefur
verið sérlega erfitt og tímafrekt
Próf. Sigurður reyndist þó öll-
um þessum vanda vaxinn.
Ríkið tók eftir fá ár við
rekstri hælisins, þó að útlát
þess væru naum, var það til bóta.
Sjúklingum í hælinu var smám
saman fjölgað með því, að flytja
starfsfólk úr hælinu. Árið 1921
voru samin ný berklavarnarlög,
sem voru að mörgu leyti mjög til
fyrirmyndar. Þar var meðal ann
ars ákvæði að berklasjúklingar
skyldu njóta ókeypis sjúkrahúss
og hælisvistar svo lengi sem
þurfa þætti. Lög þessi voru sam
in að fengnum tillögum milli-
þinganefndar. f henni áttu sæti
próf. Sigurður Magnússon, próf.
Guðmundur Magnússon, og
Magnús Pétursson, bæjarlæknir
Heilsuihælin eru uipprunnin í
Þýzkalandi. Meðferð sjúklinga í
Vífilsstaðabæli var sniðin eftir
þeim reglum, sem bezt höfðu
reynzt í Danmörku og Þýzka-
landi. Allmargir sjúklingar komu
fyrstu áratugina í Vífilsstaði úr
þröngum og loftlitlum íbúðum.
Sumir þeirra höfðu haft óhent-
ugt fæði og voru örmagna af
þreytu og áhyggjum. Ef veiki
þeirra var ekki á slæmu stigi,
var oft furðulegt hvað heilsa
þeirra batnaði fljótt og vel við
vel skipulagða hvíld, kjamgóða
fæðu, góða loftræstingu og aðra
heilsurækt. Á öðru ári hælisins
hóf próf. Sigurður tilraunir með
loftbrjóstmeðferð. Aðgerð þessi
var þá að byrja að ryðja sér til
rúms Hún er fólgin í því að
dæla lofti utan um lunga, til þess
að þrýsta saman skemmdum í því
og hvíla það.
Uoftbrjóstmeðferðin vair síðan
notuð við alla smitandi sjúklinga
þar sem tiltök þótti að koma
henni við. Arið 1938 siðasta árið,
sem próf. Sigurður starfaði á Víf
ilsstöðum, útskrifuðust þaðan
125 sjúklingar, þar af höfðu 51
fengið loftbrjóstmeðferð. Allir
voru þessir sjúklingar smitandi
fyriir aðgerð og enginn sjúkling
Ur var sendur smitandi af hæl-
inu, nema til aðgerðar á öðmm
sjúkrahúsum. Búast má þó við,
að einhverjum þessara sjúklinga
hafi hiekkzt á síðar, en fullvíst
eir, að langflestir þeirra fengu
fullan bata, enda margir þeirra
enn á lífi og vinnandi. Árið 1916
voru röntgentæki sett upp í hæl
inu. Þau voru ómissandi, til þess
að gera sér fulla grein fyrir út-
breiðslu veikinnar og til að fylgj
ast með loftbrjósti, svo að loftið
yrði hvorki of né van. Árið 1916
voru ljósböð Níelsar Finsen tek-
in í notkun í hælinu. Þ?.u voru
óheppileg við lungnaberklum, en
urðu uppistaðan í meðferð berkla
£ kirtlum, liðum og beinum, þó
að oft þyrfti að gera skurðað-
gerðir jafnhliða. Ríkt var geng-
ið eftir, að sjúklingar lærðu
ýmsar varúðarreglur í umgengni
sinni við heilbrigða. Enginn vafi
er á því, að margir þeima fluttu
heim með sér heilsusamlegar negl
ur, setn þeir höfðu lært í hæl-
inu.
Próf. Sigurður hafði glöggt
auga fyrir umhverfi hælisins.
Framhald á bls. ZS
tr
3
o
0c
&
o
3
C3
WJk
Madurinn frá KUBA?
Nei, þessi maður hér að ofan er fra Kúbu, eins og á Havana vindlinum og öðru má sjá. Þér haldið kannske, að
maðurinn frá KUBA sé eitthvað svipaður þessum náunga, en því fer þó víðs fjarri. KUBA verksmiðjurnar
(KUBA-Imperial GmbH.) eru nefnilega í Vestur-Þýzkalandi og hafa verið þar síðastliðna hálfa öld, þannig,
að Castro kemst trúlegá ekki með krumlurnar í þau mál á næstunni. KUBA verksmiðjumar eru m. ö. o.
meðal elztu og reyndustu verksmiðja í Evrópu, hvað varðar framleiðslu sjónvarps- og útvarpstækja, og með
því, að KUBA-Imperial GmbH. er nú í eigu General Electric samsteypunnar í Bandaríkjunum, má segja,
að í KUBA fari saman það bezta frá Vestur-Þýzkalandi og Bandaríkjunum á þessu sviði. KUBA vörumerkið
er því trygging yðar fyrir afburða góðri, vandaðri og fullkominni vöru. Kaupið KUBA, það borgar sig.
3JA ARA ABYRGÐ
EINKAUMBOÐ FYRIR KUBA SJÓNVARPS- OG ÚTVARPSTÆKI
Laugaveg 1Q - Slml 10102 - Reyklavfk
Umboðsmenn um land allt.