Morgunblaðið - 08.03.1970, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1970
22-0-22*
RAUDARÁRSTÍG 31
WUBBIR
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiferöabifreið-VW 5 rranna-VWsvefnvagn
VW9manna-Landro»er 7manna
GÚSTAF A. SVEINSSON
hæsta rétta rlögmaður
Laufásvegi 8. — Skni 11171.
Til sölu
Voh/o Amazon árg. '66.
Voh/o Amazon áng. '65.
Voh/o Amazon áfg. '63.
Volvo Amazon station árg.
'64.
544 árg. '62.
544 áng. '61.
544 árg. '60.
Singer Vogoe árg. '67.
Opel Record, 4na dyra, árg.
'65.
Cortma 2ja dyna, áng. '64.
Toyota Cnown árg. '67.
Toyota Corona station, árg.
'66.
Fiat 124 árg. '67.
Vauxhalil Victor station, árg.
'69. ekioo 2000 kim.
Benz 220 SB, áng. '65.
Scout áng. '67.
Jeepster áng. '67.
Bronco áng. '66.
Rambter Classic, árg. '63.
Tökum notaöa bíla í umtooðs
SöKi.
VELTIR HF.
SUÐURLANDSBRAUT 16 9B 35200 I
Einangrun
Góð plasteirvangrun heur hita-
leiðnistaðal 0,028 til 0,030
Kcal/mh. °C, sem er verulega
minni hialeiöni, en fiest önn-
ur einangrunarefni hafa þar á
meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega eng
an raka eða vatn í sig. Vatns-
draegni margra annarra einangr-
unarefna gerir það, ef svo ber
undir, að mjög lélegri oinangrun.
Vér höfum fyrstir allra, hér á
landi, framieiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og fram-
leiðum góða vöru með hag-
stæðu verði.
REYPLAST H.F.
Ármúla 26 — Simi 20978.
0 Leiklistarlíf á Akur-
eyri enn
S. P. skrifar:
„Það vekur furðu mína, kæri
Velvakandi, að þér skulið birta
hvert bréfið á fætur öðru frá
þeim, sem vilja afsaka leiksýn-
ingar núverandi valdhafa í Leik-
félagi Akureyrar. Þeirri stað-
reynd verður ekki breytt, hvað
sem liður bréfasendingum til yð-
ar, að þessir menn hafa orðið
sjálfum sér og okkur Akureyr-
ingum til skammar, með því að
úthrópa klögumál sín, vegna eðli
lega lélegrar aðsóknar, út um
landsbyggðina alla, og með dyggi
legri aðstoð Velvakanda Morgun-
blaðsins, sem maður bjóst nú
ekki beinr við, satt að segja.
0 Þjást Akureyringar af
menningarskorti?
Það hefur áreiðanlega komið
fyrir alls staðar á íslandi, að sjón
leikasýningar séu illa sóttar. En
það heíur hvergi komið fyrir,
fyrr en núna, að aðstandendur
sýningar kæri væntanlegt „públ-
ikum“. sem ekki kom, fyrir allri
þjóðinni og ásaki það um mennt-
unarskort, menningarleysi og of
lítinn áhuga á hinni göfugu leik-
list. Geta ekki aðrar orsakir leg-
ið að baki lélegri aðsókn? Við-
brögð rauðu varðliðanna tveggja,
þegar fólk borgar ekki I kassann
þeirra, eru þau að fá öll blöð,
hljóðvarp og sjónvarp i lið með
sér til þess að skýra fámennið
á sýningunum með menntunar-
skorti Akureyringa! Léleg skýr-
ing það, en upplýsandi fyrir sál-
arástand leikbræðranna.
• „Hagræðing"
Að auki má minna á, að þótt
leyfilegt geti verið að hagræða
leiksýningum lítillega, með tilliti
til sýningargetu, þá er ekki leyfi
legt að fella svo mikið úr eða
breyta, að merking leikritsins
breytist. Annars eftirlæt ég það
erfingjum Davíðs heitins Stefáns
sonar að skera úr úr þvl, hvort
nauðsyn er að höfða mál vegna
afskræmingarinnar á Gullna
hliðinu, en samkvæmt blaðaskrif
um eru þeir nú að hugleiða það.
— Gullna hliðið er annars fyrsta
„stykki“ rauðálfanna, sem vel
gengur. — En það er ekki þeim
að þakka, heldur höfumdi.
0 Sumir geta ekki barizt,
nema hafa merki
Ég býsc við því, að „Norðling-
ur“ sé maður til þesis að svara
fyrir sig, en einhver aðdáandi
leikbræðra fann að því, að hann
hefði gagnrýnt skreytingu á hliði
Himnaríkis í Gullna hliðinu.
Þessi skreyting var hringmerki,
sem var upphaflega andstöðu-
merki þeirra, sem eru á móti
beitingu kjarnorkuvopna, — og
tel ég mig í þeirra hópi eins og
ég vona að allar sæmilegar mann
eskjur séu, en hins vegar er langt
siðan kommúnistar einokuðu
merkið og hreyfimguna, með þeim
afleiðingum, að hreyfing sú, sem
merkið notaði fyrst, hefur fyrir
löngu lognazt út af, því að eng-
inn andlega frjáls og heiðarleg-
ur maður getur átt samstöðu með
kommúnistum í baráttumálum
sfnum. Hitler prédikaði frið, hélt
frægar íriðarræður og stofnaði
alþjóðlega friðarhreyfingu undir
merki sínu (hakakrossinum lítið
eitt breyttum). Sem betur fer,
eyðilagði hanin þó ekki málstað
friðarins með gervistuðningi sín-
um, og eins mun okkur hinum
fara: við erum áfram á móti beit
ingu kjarnorkuvopna, þótt komm
únistar hafi reynt að skemma
málstað okkar með þvf að þykj-
ast vera með og vin.na sér þann-
ig lýðhylIL
Læt ég svo útrætt um þetta
mál, en vona, að Velvakandi
birti ekki endalaust bréf frá
þröngum og ofstækisfullum að-
dáendahópi leikbræðranna, sem
hér eru staddir um stundarsak-
ir.
S. P.“
^ Velvakandi gerir
hreint fyrir sínum
dyrum — stendur í
stórhreingerningiun
— Velvakandi veit ekki betur
en hann hafi birt bréf í þessum
dálkum nokkurn veginn jafnt frá
báðum aðiljum. Hafi annar aðil-
inn fengið birt eitt eða tvö bréf
fram yfir hinn, stafar það ein-
ungis af tilviljun. — Við athug-
un í bréfabunka Velvakanda kem
ur einnig í ljós, að fjögur bréf
um þetta mál eru ekki birtingar-
hæf vegna stóryrða, og skiptast
þau jafnt milli deiluaðila: tvö
gegn tveimur. Sá er þó munur
á, að bréfin, sem gagnrýna leik-
endurna, eru bæði frá Akureyri,
en hin, sem hæla þeim, eru frá
Reykjavík. — Svo eru hér nokk-
ur birtingarhæf bréf frá báðum
stöðum.
0 Einn Tékkinn enn
Enn berst Velvakanda bréf frá
Tékkóslóvakíu, og veit hann ekki
gerla, hvað veldur vinsældum
hans austur og suður þar. I>essi
vill komast í samband við íslend
inga, og segist hafa áhuga á frí-
merkjasöfnun og bréfaskiptum
almennt. Hann kvaðst geta skrif
að á ensku, frönsku, þýzku og
rússnesku, auk móðurmáls síns.
Nafn hans og heimilisfang er:
Milos Plachý,
s. Michelská 1181,
Praha 4,
Czechoslovakia
(Tékkóslóvakía).
§ Samanburður á
kristnihaldi vestan
Atlantshafs og hér
í miðju þess
„Útlend í Ameríku" skrifar eft
irfarandi bréf, og hefur hún sett
því fyrirsögnina „Trú af íslenzkri
ætt“.
„Þið eruð ekki kristánnar trú-
ar“, sagði útlendi maðurinn minn
eftir að hafa búið á íslandi í
niokkur ár. „Þið lifið I hjátrú,
heitið á lifandi sem dauða og al-
ið börnin upp við sögur af Grýlu,
tröllum, draugum, fylgjum og
jólaketti, svo að ég ekki minnist
á andalæknana ykkar“. Hann
hafði orðið mikið hissa, þegar
gömul vinkona mln kom til okk-
ar, þegar ég hafði legið í rúm-
inu um tíma, og fullvissaði mig
um, að ég yrði fljótt heil, hún
hafði farið til andalæknis fyrir
mig.
„Guð er kærleikur“. „Jesús
frelsar“. Þetta stóð með stóru
svörtu letri á oftast rauðum tré-
spjöidum meðfram þjóðvegunum
hér í Amerlku þegar ég kom
hingað fyrst fyrir yfir tuttugu
árum slðan. Ég hló, Ameríkanar
voru skrítnir.
Árin liðu hjá okkur 1 notalegu
trúarsleni.
Fyrir nokkrum árum byrjaði
ég að fara mánaðarlega á lút-
herska kvennafundi. Við lesum
heima, það sem okkur er sett
fyrir í biblítmni. Umræðum
stjórnar svo greind og merkileg
kona, vel kristin. Nýt ég þess-
ara funda. En ég fann þar mína
vantrú betur en áður og ef ég
lagði tii umræðna, ráku hinar
stundum upp stór augu. T.d. þeg
ar ég spurði, hvort ekki mætti
kenna börnum um hefnd Guðs
og helvíti.
„Nei, Guð er kærleikur", var
svarið. Þeirra grundvallarkenn-
ing er að elska Guð og náung-
ann, svo að Jesús hafi dáið og
risið fyrir okkur öll og þar fyr-
ir öðlumst við fyrirgefningu synd
anna og eilíft líf.
Guðsótti þekktist ekki. Ég man,
þegar ég var innan við fermingu
Iangaði mig að stela kerti I gam
alli Austurstrætisbúð, ég átti
ekki tíu aura. En ég þorði það
ekki, þvi að Guð mundi sjá mig.
Þegar ég spurði núna ameríska
telpu á sama aldri, hvort nokk-
urn tima hvarflaði að henni að
stela, svaraði hún:
„Nei, það er rangt að stela.
Ég mundi særa (,,hurt“) Guð og
þann, sem ég stæli frá, og sjálfa
mig“.
Samt hafði mér aldrei dottið I
hug, að ég hugsaði verulega öðru
vísi en aðrar funidarkonur, fyrr
en ég las nóvember hefti ensku-
mælandi timaritsins „65°“.
Þar skrrfar m.a. ritstjórinn og
útlendingurinn Amalía Líndal:
„ As everyone knows Christian-
ity rrever really took in Iceland
--------“ (Eins og allir vita festi
kristin trú aldrei verulega ræt-
ur á tslandi — — ), og prestur-
inn cg útlendingurinn Robert
Jack: „ You will find much
religion among Icelanders, but
less belief that Christ died for
sinners —“. (Það fyrirfinnst mik
il trú meðal tslendinga, en trúin
á að Kristur hafi dáið fyrir synd-
ara er veikari).
Ég er þessum útlendingum þakk
Iát. Þeir hafa opnað augu mín
og sýnt mér fram á, hvers vegna
kristnar konur I Ameríku reka
upp stór augu. þegar þær skynja
mína trú, ættaða frá tslandi.
Útlend 1 Ameriku“.
Bólstrarar
LEÐURLíKIÐ VINSÆLA.
og
nýkomíð í miklu litaúrvali.
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jónsson & Co. hf.
Sími 24-333
Háseta vantar
á mb. Hauk, sem fer á þorskanetaveiðar.
Upplýsingar um borð í bátnum. sem liggur við Grandagarð,
eða í síma 40548. eftir klukkan 8 á kvöldin.
Hafnarfjörður
Til sölu eru 2ja, 3ja, 4ra og 6 herb. íbúðir í fjölbýlishúsi, sem
verið er að hefja byggingu á við Hjallabraut.
Ibúðirnar verða seldar tilbúnar undir tréverk og málningu og
sameign fullfrágengin.
Byggjendur Stefán Rafn og Jónas Hallgrímsson.
Glæsilegar teikningar.
Munið umsóknarfrest til Húsnæðismálastjómar fyrir 15. marz.
Hrafnkell Asgeirsson hdL,
Strandgötu 1, HafnarfirtJi.
Sími 50318.
Verzlunin Rósa er flutt í
Þingholtsstrœti 3
Rýmingarsala byrjar á mánudag.
Blússur, peysur og margt fleira.
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin. Sími 19940.
Takið eftir
Get tekið að mér að leggja terasso (marmarasteypu) í sumar,
ef þið hafið samband við mig fljótlega.
VILHELM JÓNSSON,
heimilisfang: 6150 úrsla, Noregi.