Morgunblaðið - 08.03.1970, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.03.1970, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ H970 Skátakaffi Við minnum á kaffidag skátanna að Hallveigarstöðum í dag. Hefst klukkan 2.30. GOTT KAFFI. — GÓÐAR KÖKUR. HAPPDRÆTTI. Laus íbúð hjá B.S.F.R. I byggingu okkar í Breiðholtshverfi er nú laus 4ra herb. íbúð. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, Laugavegi 103, sími 18795. Byggingarsamvinnúfélag Reykjavíkur. Fermingarkápur Nýtt úrval af fermingarkápum stuttum og síðum. Einnig nýtt iirval af frúarkápum. kápudeild — Skólavörðustíg 22 B. Húnvetningar Árshátíð Húnvetningafélagsins í Reykjavík verður haldin að Hótel Borg, laugardaginn 14. marz n.k. og hefst með borðhaldi klukkan 19, stundvíslega. DAGSKRÁ: 1. Ávarp formanns, Friðriks Karlssonar, 2. Raeða, Páll V. G. Kolka. 4. Kórsöngur, karlakór félagsins. 4. Frumort Ijóð, Magnús Jónsson frá Barði. 5. Skemmtiþáttur, Karl Einarsson. Aðgöngumiðar seldir og borð tekin frá, fimmtudaginn 12. marz, í húsi félagsins. að Laufásvegi 25, Þingholtsstrætis- megin, sími 12259. Veizlustjóri verður Páll S. Pálsson hrl. GÓÐA SKEMMTUN! Stjóm og skemmtinefnd. Karlmannaföt Stakar buxur T erylenefrakkar Nýkomnar einlitar karlmannapeys ur, síðar nœrbuxur og ermabolir Ódýrar köflóttar vinnuskyrtur með brjóstvösum M/ÐSTÖÐ/N Bankastræti 9. Kvenfélagið Hlíf á ísafirði átti 60 ára afmæli í gær, en það var stofnað 6, marz 1910 og vorn stofnendur 30. Nú eru fé- lagskonur um 100 og minntust þær afmælisins með hófi. Kvenfélagið Hlíf var stofnað í þeim tilgangi að hlynna að öldruðu fólki í bænum og gleðja það. Hefur allt frá upphafi ver- ið haldin árleg skemmtun fyrir aldraða og aðra gesti og var 60. skemmtunin haldin 22. febrúar s.l. Var eins og áður mjög vand Stjórn kvenfélagsins Hlífar; fremri röð frá v: Sigríður Sig- urðardóttir, ritari, Ragnhildur Helgadóttir, formaður, Sigríð- ur Sörensen, meðstjómandi. Aft ari röð: Margrét Jónsdóttir, með stjómandi, Bjamey Ólafsdóttir, gjaldkeri. Kvenfélagið Hlíf á ísafirði 60 ára að til veitinga og skemmtiatriða og önnuðust félagskonur allt sjálfar. Formaður skemmtinefnd ar er Guðiún Eyþórsdóttir. Þá hefur verið stofnaður húsmuna- sjóður innan félagsins og er hann orðinn talsvert öflugur, en honum á að verja til kaupa á húsgögnum í setustofu nýja elliheimilisins á ísafirði. Hefur félagið áður gefið gjafir til elli- heimilisins og ásamt kvenfélag- inu Ósk á ísafirði hefur það gef ið til annarrar góðgerðarstarf- semi, svo sem kirkju og sjúkra- húss. Fjáröflunardagur Hlífar er sumardagurinn fyrsti og þá hef ur félagið merkjasölu, kaffisölu og heldur skemmtun fyrir börn. Einnig er fjár aflað á ýmsan annan hátt. Síðustu 6 árin hefur Hlíf haft álfadans í samvinnu við skáta- félögin í bænum og hefur kven- félagið gefið alla búninga. Þá hafði félagið þjóðbúningasýn- ingu á 100 ára afmæli ísafjarðar kaupstaðar og stóð Ragnhildur Helgadóttir núverandi formaður Hlífar fyrir sýningunni. Þar sýndu félagskonur m.a. þjóð- dansa, klæddar þjóðbúningum. Sitthvað fleira þjóðlegt hefur félagið haft á dagskrá. Innan félagsins starfar kór, Hlífarkór inn og hefur hann sungið við ýmis tækifæri hjá félaginu, sjúkrahúsinu og elliheimilinu undir stjórn Guðrúnar Eyþórs- dóttur. Fyrstu stjórn Hlífar, sem kos in var 1910 skipuðu: Sigríður Lúðvíksdóttir, formaður, Re- bekka Jónsdóttir, varaformaður, Guðríður Árnadóttir, Margrét Sveinsdóttir og Hólmfríður Árnadóttir. Núverandi stjórn skipa: Ragnhildur Helgadóttir, formað ur, Bjarney Ólafsdóttir, gjald- kerL Sigríður Sigurðardóttir, rit- ari, Sigríður Sörensen og Mar- grét Jónasdóttir. Bifreiðastjórafélagið Sleipnir Aðalfundur Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 9. marz 1970, að Freyjugötu 27, Reykjavík, og hefst kl. 21.00. DAGSK.RÁ: 1. Reikningar 1966—1969. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Lífeyrissjóður. 4. Samningar. 5. Önnur mál. Áríðandi að félagar mæti vel og stundvíslega. STJÓRNIN. ÓDÝRUSTU CÓLFTEPPIN — MIÐAD VIÐ VERD Veljum íslenzkt ★ ISLENZK ULL ★ NYLON EVLAN ★ KING CORTELLE NÝ TÆKNI SKAPAR: AUKINN HRAÐA — AUKIN AFKÖST MEIRI GÆÐI — BETRA VERÐ AFGREIÐUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA. KOMIÐ VIÐ f KJÖRGARÐI. tlltima HVERGI MEIRA ÚRVAL AF HÚSGAGNAÁKLÆÐUM. SfMI 22206 (3 LfNUR)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.