Morgunblaðið - 08.03.1970, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.03.1970, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGU'R 8. MARZ 1970 19 — Upptök Framhald af bls. 10 reglurnar heimtuðu að mennta- menn úr þeirra hópi yrðu viður kenndir kennarar þar við há- skólann. Páfi studdi betlimunk- ana, svo að þeirra menn fengu kennararéttindi. Markmið háskólanna var að vera eins konar lýðveldi lærðra manna, ríki í ríkinu, með sjálf- stæði bæði gagnvart kirkju, rík- isvaldi og öðrum veraldlegum yf irvöldum. Aftur og aftur urðu árekstrar við þessar stofnanir, þegar háskólar héldu fram sjálf stæði sínu, eða ef ríki, kirkja eða borgarstjórnir seildust til áhrifa innan háskólanna. m. Nýjum stofnunum var einatt bætt við háskólana, einkum til framhaldsnáms og sérnáms. Árið 1253 stofnaði Robert de Sor- bonne framhaldsdeild í guðtfræði við Svartaskóla slík deild nefn ist collegium. Og sú deild sem de Sorbonne stofnaðí varð svo fræg að allur háskólinn var síðar við hana kenndur. Guðfræði og heim speki miðalda náðu hámarki þró unar finnar einmitt við þessa deild. Sú deild sem fékkst við frjáls ar listir, var stærst allra, því að gegn um hana urðu allir að ganga áður en þeir fengu inn- göngu í hinar æðri deildir, guð- fræði, lögfræði og læknisfræði. En rektor deilda hinna frjálsu lista var um leið rektor háskól- ans alls, og þess vegna varð hún ghrifamesta deildin, þó að hún veitti aðallega undirstöðu. menntun. Á fjögra alda tímaskeiði. frá 1100 til um 1500, urðu margir frægustu háskólar Evrópu til. Á Ítalíu urðu þeir 23, þeirra á meðal Rologna, Salerno, Neap- el, Siena, Veróna, Piza og Flor ens. í Frakklandi urðu þeir 20, þeirra á meðal París, Montpelli er, Toulouse, Grenlope og Bord eaux. — f Stóra-Bretlandi urðu háskólar 6, þ.e. í Oxford, Cam- bridge, Dublin, St. Andrews, Glasgow og Aberdeen. — Á Spáni og í Portugal urðu há- skólar 15, þeirra á meðal Sala- manea, Sevilla, Toledo, Valencia og Lissabon. í þýzka ríkinu og á Niðurlönd um urðu háskólar 21, þeirra á meðal Wien, Prag, Heidelberg, Erfurt, Leipzig, Louvain, Greifs wald, Basel, Tubingen, Witten- berg og Breslau. í Austur-Evrópu voru á þessu tímabili stofnaðir fjórir háskól- ar, á Norðurlöndum tveir, Upp sala 1477 og Kaupmannahöfn .1479. Helztu heimildarrit: Grue-Sörensen: Opdragelsens historie I—III. Gyldendal 1969. Martin S. Allwood: Universiteten i en ny várld K.F.B. Stockholm 1944. í þess- arri bók segir einnig hvernig byltingin eyðilagði franska há- skóla. Jóhann Hannesson. Flugfélagið býður tíðustu og fljótustu ferðirnar með þotuflugi til Evrópulanda og nú fara í hönd hin vinsælu vorfargjöld Flugfélagsins. Við bjóðum yður 25% afslátt af venjulegum fargjöldum til helztu borga Evrópu í vor með fullkomnasta farkosti nútímans. Það borgar sig að fljúga með Flugfélaginu. Hvergi ódýrari fargjöld. FLUCFÉLACISLANDS ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI Forstööukonu vantar fyrir veitingastofu í Reykjavík Upplýsingar í síma 83732 r dag kl. 2—4 Keflavík Viljum ráða nokkra verkamenn. — Einnig mann í sorphreinsun. Upplýsingar i síma 1552. Ahaldahús Keflavíkurbæjar. Ragnar Björnsson ORGELTONLEIKAR í Dómkirkjunni sunnudaginn 8. marz klukkan 5. Aðgöngumiðar við innganginn. ÁVALLT ERU BEZTAR NÝJAR UMBUDIR — NÝIR UMBOÐSMENN HEILDSÖLUBIRGÐIR: I. KONRÁÐSSON & HAFSTEIN HVERFISGÖTU 14 — SÍMI 11325. H E K L U niðursuðuvörur HEKLU TEG: FISKIBOLLUR FISKBÚÐINGUR GR. BAUNIR BL. GRÆNMETI RAUÐRÓFUR GULRÆTUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.