Morgunblaðið - 08.03.1970, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.03.1970, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1(970 25 „Bitlarnir eru dauðir, lifi lifi Bítlarnir," sagði John Lennon, setti lappirnar upp á borð og hámaði í sig súkku- laði. Hann talaði um þá eins og þeir væru liðnir undir lok. Það má til sanns vegar færa, þvi að Bítlarnir 1970 eru mjcg frábrugðniir því, sem þeir voru í upphafi. I heil fjögur ár komst ekki hnífurinn þeirra á milli. Og ef þeir sjást saman í dag, er það aðeins örsjaldan á fund- um í ,,Apple“, en þeim fer fækkandi. Skrifstofuhúsnæð- ið kostaði hálfa milljón sterl ings punda og er í Saviel Row í London. Starf Lennons þar, snertir aðallega friðarherferð hans og þau uppátæki sem þau hjónin Yoko og hann fást við. Þau eru óaðskiljanleg. Koma þau sair.an á skrifstofuna í hvíta Rolls royce bílnum hans úr höllinni þeirra í Ascot, og sitja hlið við hlið við skrifborðið, eiga saman viðtöl við blöðin og fara síð- an heim í Rollsinum á kvöld- in. Lennon hefur komizt oftar í blöðin undanfarna mánuði, en allir hinir bítlarnir til sam ans. Sýningu á litmyndum af Lennon og konu hans í ást- arsenum heima hjá sér, var lokað af Scotland Yard. Hann gekk jafnvel fram af rangeygðustu Lundúnabúum með 12 mínútna kvikmynd, sem hann kallaði sjálfsmynd og var lítið annað, en lang- dregin klámmynd af honum sjálfum. Segir hann, að allt, sem hann aöhefst, sé framið til framdráttar friði í heiminum. Yoko segist álíta að hann »é betri er. Picasso. „Segðu ekki þetta“ sagði John við konu sína, „þá halda þeir að ég sé monthani". Áhrif Yoko á John le.vna sér ekki. Hann segir, að hún hafi opnað sál aína, hvatt sig til dáða. Er þau létu klippa sig í Danmörku, sagði hann, að sér hefði verið umhugað um það um skeið. Hinir bítlarn- ir eru enn með lúfuna og skeggið, og virðast láta frið- arhjal Johns sem vind um eyrun bjóta. Hann segist ekki vita, hvað friðarherferð- in hafi kostað fram að þessu, en starfsmaður hjá Apple segir, að auglýsingaherferð, sem nýlega var gerð, hafi kostað 30.000 sterlingspund. ★ ☆ izEfoleíti rnoYfjwTkaffÍrui — Mér er sama, hverju ég eyði. Ég treysti Guði tíl að sjá um það, og á hæfileika okkar til að græða peninga, sagði hann. Til allrar ham- ingju virðist svo, sem gróða- hæfileikar þeirra séu tak- markalausir. Afrakstur fyrir sölu á hljómplötum þeirra einn, er milljón sterlings- pund arlega, og allar virðast þær fljúga efst á vinsælda listainn. Þeir léku síðast inn á „Abbey road“, og næst leika þeir „Let it be“, eftir Lenn- on sjálfan. Þessi lög eru úr næsta albúminu þeirra „Get back“, sem reyndar var leik- ið inn á plötur í janúar í fyrra, en verður ekki sett á markaðmn fyrr en í vor. Bítl arnir virðast hafa lært margt af lífinu, m.a. það að vera sjaldgæfir, bæði fyrir sjálfa sig og aðra. Þrasið milli Lennons og McCartneys varð svo slæmt á tímabili, að Ringó Starr fór úr hljómsveitinni. Þá fór George Harrison að kvarta undan því að ekki væru tek- in nógu mörg af lögunum hans í albúminu. Núna gera bæði Ringó og George sín eigin aibúm, og Ringó er á góðum framavegi í kvik- myndum, sem hann ætlar að hafa tii vara. Hann lék ný- lega með Peter Sellers í „The Magic Christian“. Ef tii vill er ekki meiri samgangur milli Bítlanna, vegna þess, að þeir hafa kvænzt konum, sem eru af ólíku bergi brotnar. Mau- reen, kona Ringós er vin- kona hans frá Liverpool, Patti, fvæg fyrirsæta í Lond- on giftist George, Linda East man, ljósmyndari í New York, Paul, og um Yoko þarf ekki að fjölyrða. Er hægt að ímynda sér ólíkara? Tónlistarsmekkurinn hef- ur líka breytzt hjá þeim. Ringó heldur upp á gömul lög, eins og Night and Day eftir Porreison, elskar gítar- tónlistina (hann hafði áhuga fyrir sítamum áður vegna indverskrar tónlistar). Hann fór með annarri hljómsveit í hljómieikaför um jólin, og skemmti sér alveg konung- lega. Lennon hefur undanfar ið leikið irin á plötur með hljómsveitinni Plastic Ono. Um síðasta lagið sitt „Karma í hvelli", sagði hann: „Ég samdi þáð við morgunverðar borðið í Ascot, lék það inn um kvöldið, og viku seinna var platan komin á markað- inn. „Give Peace a Chance“ var sungið í friðargöngunni í Washington. Ég hefði sungið þar með þeim, ef ég hefði fengið vegabréfsáritun, sagði hann. Starfsmenn Apple segj ast ekki geta fengið áritun- ina vegna dóms fyrir eitur- lyfjaneyzlu. John segist hitta George og Ringo oftar en Paul. Þeir tveir hafa alltaf bar- izt um forystusætið meðal Bítlanna. Paul virðist ekki hafa miklar mætur á fárán- legu athæfi Johns. Paul kemur sjaldan í skrif stofuna. Hann vinnur að stofnun hljómsveitar, sem nefnist „Badfinger“, eða „Illiputi“, og er að semja mörg lög. Hann klæðist lítt áberandi fínum svörtum föt- um, og sést oft er hann kem- ur til að sækja Heather, stjúpdóttur sína, sex ára gamla úr skólanum í St. Johns Wood. Skólasútlkurnar eru hrifn- ar af honum, og hann á í vök að verjast þar sem þær eru. Þótt blöðin séu oft og ein- att illviljuð gagnvart þeim, er unga fóikið milli 13 ára og tvítugs þeim tryggt, og ef þeir héldu hljómleika, er al- veg öruggt, að uppselt yrði, hversu stór, sem salurinn eða leikvangurinn yrði. Mikið af því fylgi, sem þeir áttu að fagna áður, fellur nú keppinautum þeirra, Rolling Stones í skaut. Þeir halda ennþá stóra hljómleika (menn muna ennþá eftir San Francisco), og Bítlaunnend- urnir þyrpast unnvörpum á Rolling Stones skemmtanir. Plötur Bítlanna seljast miklu betur en plötur allra annarra, °g gagnrýnendur halda því fram, að Lennon og McCart- ney muni lengi halda áfram að semja tónlist, sem ungvið- ið hafj áhuga á. Spurmngin er bara: Kæra þeir sig um að halda áfram að vera Bítlar? — Mér er ómögulegt að hugsa mér sjálfan mig í Bítla gervi, brítugan: sagði Lenn- on 1964. Hann hefur frest til 9. oktáber til að sanna þetta. Afvinna óskast Maður um fertugt óskar eftir starfi. Hefur góða reynslu í sölumennsku og einnig í viðgerðum á heimilistaekjum. Ensku- og dönskukunnétta. Margt kemur til greina. Tilboð sendist blaðinu merkt: „Sölumaður — 2779". Atvinna Viijum ráða karlmann til afgreiðslustarfa í verzlun okkar. — Vinnutími frá kl. 1—6 e.h. Upplýsingar í verzluninni frá kl. 9—12 f.h. 9. marz og næstu daga. — Kristján Siggeirsson h.f.. Laugavegi 13. □ Gimli 5970397=8 I.O.O.F. 3 = 151398 = FI. I.O.O.F. 10 = 151398'4 = Minningarspjöld Blindravinafélagsins, Sjúkra- hússsjoðs Iðnaðarmannafélags Selfoss, Helgu ívarsdóttur, Vorsabæ, Skátatúnsheimilisins Fjórðungssjúkrahússins Akur eyri, Maríu Jónsdóttur, flug- freyju, Kapellusjóðs Kirkju- bæjarklausturs, Styrktarfélags Vangerinna, Sálarrannsóknarfé lags íslands S.Í.B.S., Borgar- neskirkju, Krabbameinsfélags íslands, Barnaspítalasjóðs Hringsins, Slysavarnarfélags íslands og Rauða krossins, fást í Minningabúðinni, Lauga vegi 56. Sími 26725. Skiðadeíld KR Farið verður í skálann í dag laugardag og á morgun sunnudag frá Umferðarmið- stöðinni kl. 2 og 10 fh. Gott skíðafæri, lyfta í gangL Veit- ingar í skálanum. Yngri flokkar munið æfing- una á sunnudag. Stjórnin. Kvenfélag Grensássóknar heldur fund mánudaginn 9. marz kl. 8.30 i Safnaðarheim- ilinu Miðbæ. Upplestur séra Sveinn Vík- ingur. Kvenféiag Bústaðasóknar Skemmtifundur verður mánu daginn 9. marz kl. 8.30 í Rétta rholtsskóla. Eldri konur í sókninni og mæður félagskvenna boðnar á fundinum. Stjórnin. Kristniboðssambandið Samkoma verður í Kefiavík- urkirkju sunnudaginn 8. marz kl. 4.30. Gunnar Sigurjónsson guðfræð ingur talar. Aliir hjartanlega velkomnir. Kristniboðssambandið. Kristniboðsfélag karla Fundur verður í Betaníu Laufásveg 13 mánudagskvöld- ið 9. marz fcl. 8.30. Bjarni Eyjólfsson hefur bibliulestur. Allir karlmenn yngri og eldri velkomnir, — Stjórnin. Heimatrúboðið Almenn samkoma í kvöid af Óðinsgötu 6A kl. 20.30. Allir velkomnir. Islenzka dýrasafnið er opið á sunnudögum frá 2—5 í Miðbæjarskólanum. Munið frímerkjasöfnun G.l. Skrifstofan Veltusundi 3. Póst hólf 1308 Reykjavík. Styrkið geðverndarmálin. I.O.G.T. St. Víkingur, fundur annað kvöid, mánudag kl. 8.30 e.h. 1 Templarahöllinni. Bamastúkan Æskan Félagar muaið fundinn í dag kl. 2. — Gæzlumenn. Æskulýðsstarf Neskirkju Fundu* fyrir stúlkur og pilta 13—17 ára í félagsheimilinu mánudag kl. 8.30. Opið hús frá kl. 8. Séra Frank M. Halldórsson. Slysavarnardeildin Hramnprýði Hafnarfirði heldur fund þriðjudaginn 10. marz kl. 8.30 í Skiphól. Til skemmtunar: Upplestur, leik- ir og harmoníkuleikur. Rút- ur Hannesson. Stjómin. Tónaibær — Tónabær Félagsstarf etdri borgara Á mánudaginn hefst félags- vist kl. 1.30 e.h. og teikning og maiun ki. 2.00 e.h. Á mánudaginn er „opíð hús“. Félag anstfirskra kvenna heldur aðalfund fimmtudag- inn 12. marz kl. 8.30 að Hverf isgötu 21. Stjómin. Hörgshiíð 18 Almenn samkoma í kvöld kl. 8. — KVARTANIR HÆTTA Á NÆSTA LEITI —•>— eftir John Saunders og Alden McWilliams I JU5T 5TOPPED \ HMPH-VOU'RE IN TO WATCH THE ) GOING TO BE DUKE GO THPÍOUGH ) DI3APPOINTED, HIS DRILL/ DAN/SOMETHING ^ 15 WRONG WITH NOBLE...VERy WRONG/ VirícéhK THERE/ 5EE WHAT Hey, þjálfari, sérðu hver skreið undir grindverkið? Þú ert of seinn, Raven, við erum þegar búnir að fá strák til að ná i boltann út fyrir. Mjög fytvdið. (2. mynd) Þú lítur vel út Danny, viltu máta gamla búninginn þinn? Nei, takk þjálfari. (3. mynd). Ég kom bara við til að horfa á Duke æfa sig. Þú verður fyrir vonbrigð- um Dan. Það er eitthvað að Noble, eitt- hvað alvarlegt. SÉRÐU hvað ég mcina?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.