Morgunblaðið - 01.04.1970, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.04.1970, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1970 Þóra Jónsdótti HINN 24. marz sl. andaðist á Landakotsspítala í Reykjavík, >óra Jónsdóttir, Öldugötu 22A, Hafnarfirði. f dag verða jarðneskar leifar hennar fluttar upp Öldugötuna, þar sem hún átti svo mörg spor- in. Þar sem sú gata endar, er hinzti hvílustaður Hafnfirðinga. Þóra var innfæddur Hafnfirð- ingur, fædd 25. nóvember 1894. Faðir hennar var Jón Vigfússon úr Árnessýslu, hagleiksmaður á tré og járn og eftirsóttur til starfa á sjó og landi. Móðir henn- ar var Kristín Þorsteinsdóttir frá Hamarskoti í Hafnarfirði, og stendur sá ættbogi djúpum rót- um meðal Fjarðarbúa. Þegar Þóra var 14 ára, hlaut faðir hennar hina votu gröf. Þótt ekki væri beinlínis um ómegð að ræða, þar sem Þóra átti eng- in systkini, þá unntu þær mæðg ur sér enn færri hvíldarstunda frá vinnunni, eftir þetta áfall. Gullið úr greipum Ægis beið vaskra vinnuhanda hafnfirzkra kvenna. Einn „gullleitarmann- anna“ var bóndasonur frá Þor- bergsstöðum í Dalasýslu, Krist- ján Benediktsson. Þau Þóra felldu hugi saman og stofnuðu heimili í Hafnarfirði um 1930. Sú ráðstöfun varð haldgóð og heilladrjúg, því hugur húsmóð- urinnar snerist fyrst og fremst um velferð heimilisins. Hún fór sjaldan „af bæ“, nema þegar hún stöku sinnum lagði til við mann sinn að nú skyldu þau fara á fund í Kvæðamannafélagi Hafnarfjarðar, en þeim félags- skap unni hún. Þau hjón eignuðust tvö börn, sem nú eru bæði gift og búsett í Hafnarfirði og opnum örmum tók Þóra stjúpdóttur sinni og ömmubörnunum. En nú eru dökkbrúnu augun hennar ömmu lokuð. Munið þið hvað þvotturinn hennar var drifhvítur og falleg- ur? Þannig vildi hún líka hafa lífsferil og hugarheim sinn og ástvina sinna. Hún er farin frá okkur. Hún er komin til guðs. ÁSTVINAKVEÐJA Þú ljóðelsk varst, því langar okkur til við lífs og samverunnar þáttaskil, í Ijóði færa þér af hjarta þökk er þín við skilnað minnumst hugaklökk. Ég kveð þig, ástkær eiginkona mín, og eins þig, móðir, kveðja börnin þín og ömmu kveðja ömmubörnin hljóð, ömmuna sem var þeim mild og góð. Allt hið mikla er okkur þakka ber alheimsföður biðjum launa þér. Að sjálfsögðu við lífs vors lokablund á landi handan þráum endurfund. M. og J. Brúðarkjjólar, hvítir og Ijósbláir, stuttir og síðir. Brúðarslör, hvít og Ijósblá. KJÓLASTOFAN, Vesturgötu 52. GJALDÞROT Með því að mikil brögð eru að því, að aðilar, sem eru undir gjald- þrotaskiptum, halda áfram að eiga alls konar viðskipti við almenn- ing, sem eigi er kunnugt um, að um þrotamenn er að ræða, þá mun skrifstofa mín hér eftir birta í Morgunblaðinu allar auglýsingar Lög- birtingablaðsins um gjaldþrotaúrskurði, sem kveðnir eru upp að kröfu skrifstofu minnar. Málflutningsskrifstofa Bjarna Beinteinssonar hdl., Tjarnargötu 22, Reykjavík. T 0 Y 0 T A-eigendur athugið Nýkomnir effirtaldir varahlutir: Kúplingsdiskar í CROWN CORONA COROLLA LANDCRUSER Kúplingsdælur — — — Kúplingslegur — — — — Handbremsubarkar — — — — Þurrkublöð — — — Miðstýrisarmar Cut-out — — — Kúplingspressur — — Kveikjupartar — — — — TOYOT A-varahlutaumboðið ht. Sími 3-0-6-9-0 Sanitashúsinu, Köllunarklettsveg. PiE RPONT Ú IR 1 7 '""Jtk MODEL 1970 * Margar nýjar gerðir at dömu- og herraúrum HELGI SIGURÐSSON SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3 >ss;S3íÉl f gódar fermingargjafi frá Kodak Þrjór nýjar Instamatic myndavéiar, sem allar nota flashkubba og hin auðveldu Kodak-filmuhylki. Kodak INSTAMATIC 33 Kr. 969- Kodak INSTAMATIC 133 Kr. 1.554- Kodak INSTAMATIC 233 Kr. 2.418- Allar vélarnar eru fóanlegar í gjafakössum. HANS PETERSEN? SÍMI 20313 — BANKASTRÆTI 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.