Morgunblaðið - 01.05.1970, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.05.1970, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1970 5 Fyllsta öryggi hér — að mati bandarísks flugumferðarsérfræðings MEÐ þeim endurbótum á vinnu- aðferðum og búnaði í sambandi við flugumferðarstjóm á íslandi, sem unnið hefur verið að í vet- ur, verður emn hægt að anna þeirri væntanlegu sumarum- ferð, sem fer um íslenzka út- hafsflugstjómarsvæðið, þannig að fyllsta öryggis verði gætt. Kemur þetta fram í fréttatil- kynningu sem Mbl. barst frá flugmálastjóra og fer hún hér á eftir: Að beiðni flujgmálastjóra dvaldi hér á landi dagana 2.—6. marz sl. mr. F. J. Howland, að- stoðarframkvæmdastjóri flug- umferðardeildar bandarísku flug málastjórnarin nar, tii að kynma sér mál-efni flugumferðarstjórn- arinnar íslenzku, einkum vegna tilmæla flugumferðarstjóra hér um aukinn tækjabúnað og stað- hæfingar þeirra um skort á ör- yggi- I skýrslu, sem hann gerði að lokinni dvöl sinni, segir, að hann hafi ekki orðið var við, að ör- yggisleysi ríki hér í málum þess um, Hann bendir hins vegar á, að þegar tímabundin sumaraukn inig verði í flugumferð yfir Norð ur-Atlantshafið, geti flugum- ferðarstjórar í úthafsflugstjórn lent í erfiðri aðstöðu, þar eð þeir hafi ekki tækifæri til að takmarka þá urnferð, og geti starfsálag því orðið niikið. Starfs skilyrði megi bæta ^ceð auknu starfsliði og breyt'um vakta- tíma yfir sumarmán'lð-ina, en aukin áherzla lögð á þjálfun yf- ir vetrartímann. Hann telur að langdræg rat- sjá geti komið að miklu gagni og stuðlað að auknu öryggi, þeg ar úthafsfluigumferðin er í há- marki. Með þeim endurbótum á vinnuaðferðum og búnaði, sem unnið hefur verið að í vetur og nú eru að koma til fram- kvæmda, verður enn hægt að anna þeirri væntanlegu sumar- umferð, sem fer um íslenzka út- hafsfiugstjórnarsvæðið, þannig að fyllsta öryggis verði gætt. Ábyggilegan birgðavörð vantar í Leikhúskjallarann sem fyrst. Mest kvöldvinna. Upplýsingar í síma 19636 og hjá framkvæmdastjóra á staðnum. Hainorfjörður - basar Sjálfstœðiskvennafélagið Vorboði heldur basar i Sjálfstœðishúsinu laugardaginn 2. maí kl, 3,30 Margt góðra muna Basarnefnd Lögregluþjónn Staða lögregluþjóns í Vopnafirði er laus til umsóknar, Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. Nánari upplýsingar hjá undirrituðum. SVEITARSTJÓRI. NEDRI-BÆR sendir íslenzkum verkalýð til lands og sjávar árnaðaróskir í tilefni 1. maí. í alfaraleið ,utan við ys og þys umferðarinnar. Njótið ljúffengra SMÁRÉTTA í hinum vistlegu húsakynnum okkar. Réttur dagsins: STROKANOFF. N EDRI-BÆR SÍÐUMÚLA 24 SÍMI 83150. Athugasemd um flugöryggis málin BLAÐINU hefur borizt eftir- farandi frá Félagi ísl. flugum- ferðarstjóra: Vegnia yfirlýsiingar fluigmiála- stjóina, vill Félag íslenzkna fluig- wmtferðarstjóina tafca það fnaim, að félagið teluir að nangtúlkaðiair eéu niðuingtöðiuir úr skýrslu Mr. Howland’s um fluigöryggismiálin. í>ar siem nefnd akýnsla var atf- hent félaginu, 9em tnúinaðainmál, er félagið ekki í aðstöðu til að birta hinar réttu niðurstöður, stöður, þráitt fyrir óskir þar að lútandi. Vélapakkningar Bedford 4-6 cyl. dísil 57, 64. Buick V 6 cyl. Chevrolet 6-8, '54—'68. Dodge '46—'59, 6 cyl. Dodge Dart '60—'68. Fiat flestar gerðir. Ford Cortina '63—'68. Ford D-800 '65—'67. Ford 6—8 cyl. '52—'68. G.M.C. Gaz '69. Hillman Imp. '64—'65. Moskwitch 407—408. Opel '55—'66. Rambler '56—'68. Renault flestar gerðir Rover, bensín, disil. Skoda 1000 MB og 1200. Simca '57—'64. Singer Commer '64—’68. faunus 12 M, 17 M '63—'68. Trader 4—6 cyl. '57—'65. Volga. Vauxhall 4—6 cyl. '63—'65. Willys '46—'68. Þ. Jónsson & Co. Skeifan 17. Símar 84515 og 84516. ÁLAFOSS KYNNIR ULLARGÓLFTEPPI OG ULLARMERKIÐ Þetta er merki fyrir hreina, nýja ull.Við framleiðum eingöngu gólfteppi úr ull.1 Meira að segja úr íslenzkri ull. Og fulltrúar The International Wool Sekretariat hafa komið til okkar í verksmiðjuna. Rannsakað ullina. Rannsakað teppin og heimilað okkur að merkja gólfteppin hinu alþjóðlega gæðamerki, Ullarmerkinu: Eftirlíkingar eru margar. Þær heita ýmsum, fínurn erlendum nöfnum, en hafa eitt íslenzkt samheiti: gerviefni. Engin framleiðandi kallar þau ull. Ekki einu sinni ullarlíki. Það yrði aldrei þolað. Ull vex ekki á efnarannsóknarstofum. Hún vex á sauðkindinni. Kaupið örugga gæðavöru. Kaupið Álafoss gólfteppi! ÁLAFOSS ÞINGHOLTSSTRÆTI 2, REYKJAVÍK, SÍMI 13404 umboðsmenn um allt land 8.4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.