Morgunblaðið - 01.05.1970, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.05.1970, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1070 GEORGES SIMENON: EINKENNILEGUR ARFUR um frænda þínum. Við Gerardine frænka þín höfum því ákveðið Hann stóð upp og sló öskuna niður í aringlóðina. — Við höfum ákveðið að sker ast í leikinn, áður en frekari skaði er orðinn. Það þolir eraga bið. Og eini kosturinn við þessa giftinigu þínia er sá, að hann opn- ar smugu til þess. Það er siður, að ung hjón fari í ferðalag um tíma. Þið getið verið eins lengi burtu og nauðsynlegt er, og þeg ar þið loksins komið aftur, verð ur búið af afgreiða mál þessa kvenmanns og elskhuga hennar, fyrir fullt og allt. Gerardine gat alveg lesið svar Gilles í augum hans og greip fram í: — Vertu ekki of fljótur á þér að svara, Gilles. Þetta er miklu alvarlegra mál en þér dettur í hug. Gefðu þér góðan umhugsunartíma. — Ég er búinn að hugsa mig um. Hér verð ég kyrr. Plantel leit á meðráðamann sinn, eins og hann vildi segja: — Hvað sagði ég þér? En svo hélt hann áfram, eins og sá, sem vegur hvert orð vand lega: — Sjáðu nú til, ungi maður. Hlustaðu nú vandlega á mig. Ég er nú ekki vanur að hafa hót- amir í fraimimii. Ég var mieira 'ein fús til að hjálpa þér til aðhefja lífsstarf þitt — vegna hans Mau voisin, vinar míns. En í stað þess að þiggja þá hjálp, hefur þú frá fyrsta fari, snúið við henni baki. Ég veit nú ekki, hvort það er er ómissandi í hverju samkvæmi, við sjónvarpið — eða hvar sem er í glöðum hópi SNACK fæst 1 sex ljúffengum tegundum Whistles biigles <BQW$ ílílíi DaisYs fizzaSpns NATHAN & OLSEN HF. þetta snögga og óvænta ríki- dæmi, sem hefur stigið þér til höfuðs, en vissulega virðist þú ætla að fara þínu fram án þess að hlusta á hollráð annarra. Gilles var þegar staðinn upp og hafði tekið frakkann sinn, sem hafði hangið á stól: — Ég ætla ekkert að fara að höifða til tilfmininiga þinmia, enda þótt þú fáir síðar að sjá, hve ósanngjörn og móðgandi framkoma þín hefur verið. En það sem ég ætla að segja, er þetta: Hér erum við nokkrir, sem vorum vinir Octave Mauvoisin, og við erum samtaka um að varð veita minningu hans, jafnvelþótt það kosti það að verða andvígir erfingja hans. Við höfum boðið þér hjálp okkar og bjóðum enn. Þú afþakkar hana. Gott og vel! Tíminn mun sýna, hvorir eru sterkari. — Gilles! sagði Gerardine og gerði nú lokatilraunina. — Þú verður að hlusta á hann hr. Plamitel. . . Ég bið þig þess. . . Þú ættir ekki að þrjózkast í af- stöðu, sem getur aðeins . . — Láttu hann eiga sig, Ger- ardine Það er hann sem kemur skaíðanidi til okkar. áður em lamigt um líður. XXXVI Gilles var kominn í frakkann og hafði gripið hattinn sinn. Með venjulegum skjálfta á neðri vörinni, spurði hann einbeitt- lega: — Er það þá ekki fleira, sem þið þurfið að segja við mig? — Nei, þetta er allt og sumt. En þegar Gilles var kominn út að dyrum, gat Plantel ekki stillt OSTA ÆVéttw/S 2 eggjarauður Va lítri rjóml (má vera mjólk) 75 g rifinn oslur, Sveiíser eða Maribo 8alt, pipar 2 eggjahvítur 4 hveitibrauðssneiðar, ristaðar 1 dl hvítvín (má sleppa) Ofnhiti: 180° C Tíml: 20—30 mínútur Smyrjið eldfast mót. Raðið smurðum, 3 ristuðum hveitibrauðsneiðum I mótið. ? Sláið saman eggjarauðum og rjóma, J kryddið með salti og pipar og bætið rifnum ostinum f. Stifþeytið eggjahvíturnar og btandið þeim gætilega saman við. Hellið sós- unni yfir brauðið, stráið dálitlum rifn- um ostl yfir og bakíð Ijósbrúnt Ef vill má hella 1 dl af hvítvínl yfir brauðið, áður en sósan er látin á. Þessl réttur er góður með ó kvöld- verðarborðið, eða sem sjálfstæð mál- tíð, þá gjarnan með hráu grænmetis- ASKUR V. BÝÐUR YÐUR GI jÓÐARST. GRÍSAKÓTELETT lJR GRILIAÐA KJÚKIJNGA ROAST BEEF GI .ÖÐARSTEIKT LAMB HAM BORGARA DJÚPSTEIKTAN FISK />u Óurluiu Itbra ut sími 38550 r sig um að senda honum skilnað- arskot: — Þú hagar þér eins og skóla strákur, hr. Mauvoisin. Þegar Gilles kom heirn, voru fallaskipti og báitarnir á ytri höfninni snerust fyrir akkerun- um, hægt og hægt. Það var far- ið að hvessa og þegar hann þreif aði eftir lyklinum sínum, fékk hann hverja regngusuna á fæt- ur annarri, framan í sig, og hann var orðinn gagndrepa. Hann hleypti brúnum. Því að þetta regn, sem lamdi kinnam- ar á honum skildi eftir eitthvert kjánabragð í munninum, og vatnið, sem rann niður eftir háls inum á honum, vakti hjá honum endurminningu. En hvaðan var sú endurminning? Einhvers stað ar frá Mið-Evrópu eða Norður- löndum? En hvaðan var hún? Hann var enn að velta þessu fyrir sér, er hann lokaði hurð- inni vandlega, þurrkaði af fót- unum á sér og lagði af stað upp stigann. Það var all'taf hálfgerð myglulykt í þessum stiga. Hann var ekki alveg kominn upp á stigagatið á fyrstu hæð, þegar hann heyrði rödd Alice, og án þess að láta sér detta í hug, að hann væri að hlera, snarstanz- aði hann. — Já . . . já . . . Hvað? . Nei, það er fremur gaman að því Hvað segirðu elskan? . . . Nei, nei, ég lofaði aldrei neinu í þá átt . . . Þú veizt, að ég gerði það ekki . . . Gilles? . . Já, hann er indæll . . . Já, þú mundir hlæja, ef þú sæir mig. Ég er enn náttfötum og slopp . . . Hvað? . . . Já . . Það er rétt Heilsaðu þeim frá mér Hvað? Fara í bíó með þér á sunnudag? . . Nei, það kem- ur nú ekki til mála . . . Gilles fannst tími til kominn að gefa eitthvert hljóð frá sér. Hún heyrði það og lauk samtal- inu: — Bless í bili, elskan. Égheld, að hann sé að koma. Hún lagði frá sér símann og hljóp á móti honum, og það næsta sem hann vissi, hafði hún 1-agt armana um háls honum. — Það var ein af stelpunum, sem hringdi til mín, útskýrði hún, dálítið vandræðaleg, en það kom honum til að gruna, að það hefði verið hún, sem hringdi, til þess að frétta af fé- lögimum í skrifsttofunni. Vonandi engar slæmar fréttir? — Nei, engar slæmar, sem bet ur fer. En þú ert alveg renn- votur! Komdu og farðu úr. Marta! Búðu til súkkulaði strax! Bollapörin stóðu þegar á hjólaborðinu, og nokkrar kökur. Hann tók eftiir því, að ýmislegt þarna inni hafði verið fært til, og á borðinu voru tyrkneskar sígarettur, sem höfðu efcki ver- ið þar þegar hann fór. Kannsfci hafði hún sent Mörtu út til að kaupa þær. — Þér er sama þó ég reyki, er það ekki? — Vitanlega, elskan. — Jafnvel þó að þær séu dýrar? Þú skilur, þessar kost- uðu tuttuigu og tvo franka pakk- inn. Hún var svo húsmóðurleg, að hann fann til ofurlítililar iðrun ar. Iðlrunar vegna þes.s, að hann væri ekki nógu góður við hana eða sýndi henni, hve hamingju- samur hann væri. Og veigna þess ara duldu grunsemda sinna. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Þú kynnist fólk, sem þig hefur lengi iangaó til að hitta. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní. i Þetta verður spennandi dagur. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Gleymdu um sinn þvl, sem þú hefur upplifaS, og reyndu aS hugsa um eitthvaS, sem þér þykir skemmtilegra. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Þú skemmtir þér dável I dag. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. ÞaS vcrSur meira að gera í dag, en þú væntir. Vogin, 23. september — 22. október. Haltu upp á daginn með því að kalla á vini þína heim til þin. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Þú mátt ómögulega gera daginn að markaSstorgi. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Þér verður allt í einu langþráð leið opin. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Nú er mál aS kynna sér starfið, og allt, sem að þvi lýtur. Hrúturinn, 21. marz — 19. april. Farðu varlega í umferðinni f dag. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Þú hefur mikinn áhuga fyrir fólki, sem þú hittir í dag. Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz. Allir hvetja þig til að gera betur grein fyrir fyrirætlunum þínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.