Morgunblaðið - 30.05.1970, Side 10
10
MORGUNíBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ H970
Lagið var auðvitað tekið á
kvöldvökunni og þar var sungið
af hjartans list með
gítarundirspili.
„Við
erum öll
samtaka
um að gera aðstöðuna góða.64
Það var glatt á hjalla hjá
unga fólkinu að Kolviðarhóli,
þegar við komum þar einn
laugardaginn fyrir skömmu, en
þar voru um 70 nemendur úr
Vogaskóla með kennurum sín-
um að ditta að einu og öðru á
jörðinni, en Vogaskóli hyggst
koma þarna upp nokkurs konar
s|kó3ia»eli þar sem nemendur
geta farið til starfs og leiks.
Síðasta mánuðinn hafa um 400
nemendur úr Vogaskóla gist
Kolviðarhól, unnið þar og
skemmt sér.
Við röbbuðum stuttlega við
Helga Þorláksson skólastjóra
Vogaskóla um hugmyndina að
skólaseli og sagðist hann hafa
verið s.l. ár að svipast um eftir
slíkri aðstöðu.
í fyrra kom Kolviðarhóll
fyrst til greina og ræddi hann
við Kolviðarhólsnefnd um mál-
ið og tók hún vel í það að
Vogaskóli gengi inn í samning
við Reykjavíkurborg um um-
ráðarétt yfir Kolviðarhóli, en
Reykjavíkurborg á landið og
staðinn.
Markmiðið sagði Helgi vera
það að nemendur gaetu ver-
ið við hvers konar kynningu
og nám í starfi og leik á stað
fjarri kaupstaðarþysmum og
kynnast þannig friðsæld og feg-
urð íslenzkrar náttúru.
Töluvert þarf að gera fyrir
Kolviðarhól til þess að vel sé
en húsnæðið er vel nothæft
eins og er fyrir útilegubúið
fólk. Sæluhús, sem nú er hrun
ið var byggt þarna árið 1844, en
Vogaskólanemar ætla m.a. að
byggja UPP gamla Sæluhúsið
úr grjótinu, sem nú er í hrúgu
í rústum þess.
Gistihúsið Kolviðarhóll var
byggt 1877, en það hús sem nú
er þar var byggt um 1930 og
var mikið til þess vandað.
Siðan 21. april hafa um 400
nemendur farið þarna upp eft-
ir og gist þar, unnið að hreins-
un og lagfæringu, farið í fjall
göngur, náttúruskoðunarferðir
og haldið kvöldvökur með
kennurum sínum. Áhugi nem-
endanna fyrir þessu starfi er
geysilega mikill og allir vi'lja
leggja hönd á plóginn til þess
að gera húsið og aðstöðuna sem
bezta. f>að þarf að bæta húsið
sjálft, hlaða upp Sæluhúsið,
grjótgarða, vörður, rækta
landið, gera íþróttasvæði og
margt fleira og sagðist Helgi
hafa lagt áherzlu á að þarna
ynnu nemendur og kennarar
saman að eins mörgu og unnt
væri. í fyrra var hafiat handa
af nemendum Vogaskóla við að
hreinsa til á svæðinu og stöð-
ugt miðar því í áttina til þess
að gera staðinn vistlegan og
nýta þá miklu möguleika sem
þarna eru til fjölþætts félags-
starfs.
Helgi sagði að margir aðilar
hefðu lofað gjöfum í selið, en
helzt væru vandræði með að-
stoð handverksmanna til þess
að ditta að ýmsu. Helgi sagði
að borgin hefði tekið vel í að
aðstoða í þessu efni, en hann
sagðist álíta að fyrst og fremst
ætti þetta að byggjast á vinnu
nemendanna sjálfra og áhuga-
semi þeirra og ef til vill yrði
hægt að reka þarna vinnu-
skóla í einhverri mynd. Benti
hann á að jafnframt því
að stunda þama vinnu myndu
þau læra að búa sig til fjalla,
jafnvel vera gestgjafar þeim
sem kæmu í heimsókn og
til tals hefði komið að hafa
þarna helgarmót af ýmsu taigi.
Helgi sagði það áformað á
komandi vetri að fara með nem
endahópa að Kolviðarhóli og
dvelja þar, en stunda jafnframt
venjulegt nám, slíkt hefði ver
ið reynt s.l. vetur og hefði gef
izt mjög vel, því bnaikkaTnir
kepptust við að ljúka við verk
efni sín til þess að geta síðan
notið þess sem umhverfið hef-
ur upp á að bjóða.
Helgi gat þess að lokum að
Skólafólkið situr þarna í rústum gamla sæluhússins, en þau höfðu unnið við hreinsun á rústunum um daginn og síðar er ráðgert
að hlaða sæluhúsið upp í uppr unalegri mynd þess úr sama grjótinu og áður mótaði veggi þess. (Ujósm. MM. Árni Jolhnsen)