Morgunblaðið - 30.05.1970, Page 14

Morgunblaðið - 30.05.1970, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1070 UM 1. Karl B. Guðmundsson 2. Kristinn B. Michelsen 3. Siffurgeir Sigurðsson HVAÐ ER KOSIÐ1 SELTJARNARNESHREPPI? Morgunblaðið hafði samband við þá Snæbjöm Ásigeirsson, for mann Sjálfstæðisfélags Seltirn- inga og Sigurgeir Sigurðsson, sveitarstjóra, sem skipar bar- áttusæti D-listans, og innti þá frétta af kosningabaráttunni. Kosningabarátta D-listans á Seltjarnarnesi hefur beinzt að því, að halda þeim meirihluta, sem við unnum 1962. Hrepps- búar sýndu það aftur 1966, að þeir vildu trúa okkur fyrir áframhaldandi stjóm Seltjarn- arneshrepps og er það á grund velli þeirrar traustsyfirlýsingar, að við gerum okkur vonir um að fá að nýju umboð Seltirn- inga næstu fjögur ár. Koma ekki hitaveitumál til að móta næsta kjörtímabil? Að sjálfsögðu verður hita- veitumálið okkar stærsta mál, þótt aðrar framkvæmdir komi þar einnig við sögu t.d. bygg- ing gagnfræðaskóla, sem við komum til með að hraða. Síð- asti áfangi íþrótta- og félags- miðstöðvar, þ.e sundlaug, verð- ur á dagskrá, þegar lokið er byggingu gagnfræðaskólans. Hefur hlaupið hiti í Seltirn- inga út af skipun skólanefndar- formanns? Það er óhætt að segja, að Sel tirningum hafi sárnað, að vera ekki taldir færir um að ráða skólamálum sínum sjálfir. Ráð- herra hefur að okkar dómi framið hér lögleysu, þar sem fræðslulögin frá 29. apríl 1946 nr. 34 segja í 26. gr. „Kjörtíma- bil skólanefnda og fræðsluráða skal vera hið sama og sveitar- stjóma og um kjörgengi skulu sömu reglur gilda.“ Þarna er löggjafinn greinilega að koma í veg fyrir að aðrir en þeir, sem hafa til að bera þekkingu á mál efnum sveitarfélagsins, séu látn ir fjalla um málefni þess. Athyglisvert er að bera sam- an skipunarbréf skólanefndar- formannsins, sem skipaður er út þetta kjörtímabil nefndarinnar, eða til 1. júní n.k., við ummæli menntamálaráðherra, sem greini lega hefur, ef dæma má af við- tali við Alþýðublaðið, hugsað sér annan og lengri tíma, en í viðtalinu kemur fram, að að alstarf skólanefndarformanns hefjist í september n.k. Stuðningsfólk D-liistans vill ítreka að með mótmælum þess- um er ekki verið að draga hæfi leika konunnar, sem ráðherra valdi í embætti þetta, í efa, en við viljum, að farið sé að lög- um í þessu máli, sem öðrum og Seltirningar séu ekki snið- gengnir. Við höfum heyrt talað um Sel tjarnarneshrepp, sem skilvísan viðskiptaaðila, en í blaði vinstri manna er látið að öðru liggja; hvað viljið þið segja um þessa ásökun? Það er alltaf alvarleg ásök- un að væna einhvern um óreiðu, hvort það er í peninga- málum eða öðru. H-listamenn hafa nú kosið að reyna að gera fjármálastjórn Seltjarnarneshrepps tortryggi- lega, bæði í augum almennings og einnig hjá þeim lánastofnun- um, sem sýnt hafa hreppnum mikið traust undanfarin ár og aldrei þurft að kvarta yfir van skilum. Seltjarnarneshreppur, sem og önnur sveitarfélög þarf að sjálfsögðu á lánum að halda til framkvæmda sinna, - því meiri, sem meira er gert. Því verður ekki trúað (svo tekið sé dæmi) að fyrirframgreiðslur í formi tryggingarvíxla til Orkustofn- unar ríkisins til að ábyrgjast greiðslu á borholukostnaði hita veituholu sem boruð var í janúar á þessu ári, teljist í aug um Seltirninga til óreiðuskulda, en þessi upphæð — 2,5 milljón- ir króna er innifalin í þeim skuldum Seltjarnarneshrepps, sem talað er um. í hita kosningabaráttu mega aðilar ekki ganga svo langt að það beinlínis skaði sveitarfélag okkar, sem við skulum ætla að allir aðilar vilji þó vinna sem mest gagn. Skrif þau um óreiðu skuldir Seltjarnarneshrepps, sem birtust í kosningablaði H- manna, eru því miður ekki til þess fallin að auka lánstraust Seltjarnarneshrepps, sem hing- að til hefur verið mjög gott. Til fróðleiks má geta þess, að þeir tveir menn, sem nú skipa efstu sæti H-listans hafa und- anfarin ár verið skoðunarmenn hreppsreikninga, en ekki séð ástæðu til athugasemda um fjár mál hreppsins. Vilt þú ekki, Snæbjörn, ljúka þessu með nokkrum orð- um? Fyrir siðustu sveitarstjómar kosningar 1966 voru H-lista- menn svo öruggir með sigur sinn, að þeir höfðu, þrátt fyrir yfirlýsingar um að þeir styðdu Sigurgeir Sigurðsson, sem sveit- arstjóra, þegar gert ráðstafan- ir til ráðningar framsókn- armanns í starfið. Seltirn- ingar sáu í gegnum blekkingu þeirra og studdu D-listann og sveitarstjóra sinn. Sá áróður H-listamanna um að D-listinn sé öruggur með sig ur, hlýtur að teljast vafasam- ur, ef höfð er í huga sigur- vissa þessara aðila 1966. Seltirningar munu því n.k. sunnudag sýna vilja sinn í verki og sameinast um D-list- ann, — Lista framfara í Sel- t j arnarneshr eppi. Keflavík — Keflavík Skrifstofa flokksins er opin í Sjálfsfœðishúsinu að Hafnargötu 46 frá klukkan 10 SÍMAR: Upplýsingar 2021 l -'4 f Bílar 2797 ! ! } Utankjörstaðaatkvœða- greiðsla 2798 Starfsfólk er beðið oð mœta á skritstofuna klukkan 6 á laugardag Flóðin vaxa í Rúmeníu 900.000 hektarar undir vatni Vín, 27. maí, AP. UM 900.000 hektarar lands liggja nú undir vatni í Rúmeníu, og Dóná, sem enn er í örum vexti, ógnar nú víðáttumiklum svæðum til viðbótar, að því er rúmenska fréttastofan Agerpres skýrði frá í dag. í fréttatilkynninigumni var flóð- umiuim á ræktuðu laradi í suðaust- urhluta landsins lýst sem „skeltfi- legu fyrirbrigði“ og var gefið í skyn, að frekari feikniairflóð séu í vændum og kunni þaiu að eyði- ieggja iandbúnaðarfraTnleiðslu lamdsins. „Umfang eyðileggingariininar varður æ ógnarlegra með hverj- um degimum, sem liður“. Ageirpres Skýrði svo frá, að gífurlag vinna færi nú fram við byggingu flóðgarða og í hjálpar- starfsemi á því 1000 km langa belti, sem Dóná reniniur um í Rúimieníu, svo og á breiðu ós- hólmasvæði fljótsins. Fréttastofan sagði, að ekki virt ist vera von á neinni rénun flóð- anna á næstuoni. Hvers vegna ég kýs D-listann Ég styð Geir Hallgrímsson, borgarstjóra, og Birgi ísleif Gunnarsson ásamt hinum borg- arfulltrúum Sjálfstæðisflokksins vegna þess, að þeir hafa rækt störf sín í þágu borgarinnar eins og bezt verður á kosið. Engum dettur í hug að ráða t.d. skip- stjóra, sem ekki hefur sýnt hæfni í starfi og hefur enga reynslu á sínu sviði. Borgarstjóra hefur tek izt ásamt sínum mönnum að rækja starf sitt af dugnaði og sam vizkusemi. Þess vegna kýs ég ekki aðra borgarstjórn, sem hef- ur enga reynslu og fimnst fráleitt að gera slíkt þegar kostur er á borgarstjórn undir jafn góðri for- ystu og verið hefur. Karl G. Þorleifsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.