Morgunblaðið - 29.07.1970, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1970
„Hatrömm
borgara-
styrjöld”
á skátamótinu aö Hreöavatni
Á skátamótinu sjást stundum langar raSir af skátum, en það er yfirleitt ekkert til að gera veð-
ur út af, því þá er annað hvort verið að ganga fylktu liði á varðeld eða einhverja hátíðarsam-
komu, og eins getur verið um danskennslu að ræða. En þessi röð er öllu alvarlegri, því í
henni standa skátar, sem eru að bíða eftir símasambandi til ýmissa staða á landinu, en hafa
þurft að bíða lengi, þar sem sú eina lína, sem skátarnir hafa tí| umráða, annar ekki allt af
öllum þeim símtölum, sem beðið er um. Og raunar er ekki rétt að segja að skátarnir hafi lín-
una til umráða, því hún á einnig að nægja Hótel Bifröst og Hreðavatnsskála, og þegar verst
er, annar hún ekki einu sinni simtölum til og frá þessum tveimur stöðum. Svo að það er ekki
nema von að skátamir þurfi að bíða í löngum röðum, en vonandi verður bætt úr þessu vand-
ræðaástandi hið snarasta.
Við höfðum samband við Reyni Aðalsteinsson, póstmálastjóra mótsins, og inntum hann
eftir þessum vandræðum. Hann kvað þetta að vonum hagalegt fyrir mótsgesti og einnig móts-
stjórn, og vissi hann tii þess að matarpantanir fyrir landsmótið hafi orðið að dragast fram á
allra síðustu stund vegna sambandsleysis. Hins vegar sagði Reynir, að póstþjónustan gengi mjög
vel og mun betur en á landsmótunum 1962 og 1966, en þá sá hann einnig um þessi mál. Hann
sagði, að allir skátar á mótinu væru skyldaðir til að senda minnst eitt bréf eða kort heim til
sín, og væri því mjög mikið að gera hjá póstþjónustunni, en þar g'engi allt að óskuin og salan
mikil.
í GÆR var mikið líf og fjör
á skátamótinu að Hreðavatni.
Um morguninn voru allir
vaktir á slaginu átta með
lúðrablæstri, og eftir morgun-
þvottinn var framreiddur
morgunverður, reykt síld, te
og brauð. Að minnsta kosti
stóð það á matseðlinum, en
við sáum yfirleitt kakó í glös
unum og ost á brauðinu. En
bað fór að minnsta kosti al-
veg nógu hratt í skátamagana.
Síðan var tjaldbúðaskoðun,
og fánahylling, en síðan hófust
leikir og störf dagsins. íþrótt-
ir, gönguferðir, könnunarferð-
ir, bílferðir, þrautir og
keppni, og einnig gátu menn
setzt á skólabekk og lært
þjóðdansa, ensku, leyniletur,
jafnvægisgöngu, líflínuköst
og hjálp í viðlögum. Var þátt-
takan góð í öllum greinum
dagsins. og engan sáum við
aðgerðarlausan, en hins vegar
virtust allir áhyggjulausir,
og það var indælt .
Hádegisverðinum var frest-
að til kvölds. þar sem kjöt-
farsið í kjötbollurnar var
gaddfrosið og þiðnaði hægt.
En í staðinn var kvöldmatur-
inn, skyr og brauð, borðaður
í sumum búðum en hádegis-
grauturinn, hrísgrjónavelling-
ur, í öðrum.
Eftir hódegi var svo leikj-
um og
haldið.
í gærkvöldi
skátastörfum fram
var haldinr
næturleikur, geysihörð og
grimmdarleg borgarastyrjöld
milli hallarbúa og þorpsbúa.
Þorp-búarnir í sex þorpum
vildu gera uppreisn og berj-
ast gegn kúgun aðalsins, sem
Þessir snaggaralegu strákar smíðuðu tjaldið sitt sjálfir úr trönuspírum og plastdúki. Þeir geta
sofið í því fimm talsins og að sögn er það svo haganlega smíðað, að þeir sólbrenna í því frá
klukkan sex á morgnana. Þeir kalla sig Hvolpa og eru i skátafélaginu Dalbúum frá Reykjavík.
bjó í fjórum höllum. En þar
sem þorpsbúarnir voru ekki
mjög margir, var það aug-
ljóst að þeir yrðu að berja á
hallarbúum í sameiningu. For
ingjar þorpanna áttu því að
reyna að ná sambandi hvor
við annan áður en þeir gætu
ráðizt á hallirnar. Hið sama
urðu hallarbúar reyndar a<5
gera lí'ka til að eiga einhvern
möguleika á að verja sig og
sína. Baráttan var geysihörð
og þegar síðast fréttist var
ómögulegt að sjá hvor aðilinn
færi með sigur af hólmi.
í dag er dagskráin með
sama sniði og í gær, nema
hvað skipt hefur verið um
rétti á matseðlinum og í stað
næturleiksins eru varðeldar
hjá hverju félagi fyrir sig.
Veðrið í gær var sæmilegt,
skýjað og hálfkalt og lá við
rigninigu. Engin teljandi ó-
höpp hafa orðið á mótinu, að-
eins þessi venjulegu smáslys;
nokkrir hnífsskurðir og skein-
ur, einistaka snúinm fótur og
togmaðuir, en ekkert, sem orð
er á geramdi. Hefuir gæzlu-
stjóri mótsins, Magnús Jón,s-
son, sagt, að adlt ganigi eins og
bezt vetrður á kosið og von-
andi verðuir það þan.nig líka
það sem eftir er mótsins.
— s.h.
— Svipazt
Framhald af bls. 28
Þorvaldsson, flugmaður, er
staðsettur á Egilsstöðum með
flugvél sína, Cessna-180, sem
hann hefur í leiguflugi, fer
með fólk niðuir á firðina og í
sjúkraflug til Reykjavíkur.
Hann hóf sig nú á loft með
Hákon inman borðs, auik blaða
manns Mbi., sem þama var
staddur. Flogið var sem lieið
liggur upp Eyvindarda!, sem
er þröngur dalur, og fylgt
símalínunni, Þegar upp úr hon
um kom á heiðina, tók að
heyrast sagt í flngvélinini:
— Þarna eru spor yfir skafl.
Hér hafa þeir farið um. Og
hér hjá sæluhúsi á heiðinni
var snúið við niður dalinn
aftur. Og þama voru kapp-
arnir, 12 tímum eftir að þeir
lögðu af stað. Stóðu 1 ánni og
virtust vera að fá sér vatn.
Þeir veifuðu fluigvélimni og
var sýnilega ekkert að þeim.
Þeir áttu meira að segja frem
ur stuitt eftir ofan að vegi,
siem kemur úr Mjóafirði og
liggur þarna niður að Egils-
stöðum. Sennilega höfðu þeir
lagt sig einihvern tíma nætur,
kanmski í sæluhúsinu.
LEIGUFLUG Á FIRÐINA
Þarna hafði þessi litla flug-
vél Leyst á 20 mínútum verk,
sem hefði kostað mikla fyrir-
höfn leitarfólks og göngu.
Gunnar flugmaður sagði
fréttamanni blaðsins að hanm
flygi mest niður á firðina frá
Egilsstöðum, en þar eru víð-
ast litlir flugvellir, eins og í
Borgarfirði, Vopniafirði, Nes-
kaupstað, Reyðarfirði, Fá-
skrúðsfirði, í Eydölum í Breið
dal og á Djúpavogi. Þar sem
flugvélin kostar 3500 kr. á
klukkutímann og á þeim
klukkutíma kernst hún 150
mílria hringferil frá Egils-
stöðum og getuir tekið fjóra
farþega, þá sé þetta ódýrara
en leigja bíl, einikum ef farið
er til Vopnafjarðair, í Brsiðdal
og til Norðfjarðar. En nauð-
synlegt sé að hafa gott um-
boðsmiannakerfi á fjörðunum,
til að geta tekið farþega til
baka. Leigjandi flugvélarinm-
ar hefur ráðstöfunarrétt á
henni til baka.
En Gu.nnar sagði, að Aust-
firðingar færu sér hægt og
væru dálítið tregir til að nota
slíkt leiguflug. Sumir væru
hræddir. Ekki eru það þó aí'l-
ir, því síðdegis átti Gunmar
að fljúga til Þórshafmar með
barn, sem foreldrarnir vildu
láta skíra þar. Ætlaði hamn
að bíða meðan barnið yrði
skírt og korna með fjöliskyld-
una til baka um kvöldið.
í vetur er svo flugvélin
notuð ti] póstflugs á af-
skekkta staði, farið einu sinni
í viku með póst til Raufar-
hafnar, Þórshafnar, Vopnia-
fjarðar óg til Breiðdalsvíkur.