Morgunblaðið - 29.07.1970, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1970
Meistaramótið:
íþróttafólkið í
- o g af rekin batna í samræmi við það
betri æfingu en áður
5009 metra hlaupið nýlega hafið. Sigfús Jónsson hefur forystuna, en hann sigraði í hlaupinu á
sínum bezta tíma. Þá kemur Halldór Guðbjörnsson er hætti er tveir hringir voru eftir. Bak við
Halldór eru Ágúst Ásgeirsson, ÍR, og Steinþór Jóhannesson, UMSK, þá kemur Jóhann Garðars-
son, Á, og Gunnar Kristjánsson Á.
UM HELGINA fór fram aðal-
hluti Meistaramóts íslands í
frjálsum íþróttum á Uaugardals-
vellinum í Reykjavík. Þegar á
heildina er litið verður að segja
að mótið hafi verið ágætlega
heppnað og borið vitni um þá
framför, sem hérlendis er nú
loksáns að verða á þessu sviði
íþrótta. I 24 greinum af 30 náð-
ist t.d. betri árangur en á meist-
aramótinu í fyrra og segir það
sína sögu, og í einstökum grein-
um náðist betri árangur en á
meistaramótum í allmörg ár, t.d.
í spretthlaupunum og boðhlaup-
unum. Ánægjulegt er einnig, að
unga fólkið er í stöðugri fram-
för og bætir sig með hverju móti
— bendir það til þess að það
leggi rækt við æfingarnar og ef
svo er þarf engu að kvíða, því
efniviðurinn er fyrir hendi, nú
sem oftast áður.
KR-ingar sáu um framkvæmd
mótsins og fórst það ágætlega úr
hendi, og það sem meira var,
áhorfendur, sem voru að vísu
Páll Eiriksson, KR, — miklar
farir í spjótkastinu.
heldur fáir, fengu stöðugar frétt
ir af því seim var að gerast á vell
inum. Allt virðist vera á réttri
leið.
Og þó? Eitt var mjög miður á
þessu móti og hefur reyndar ver
ið á frjálsíþróttamótum hérlend-
is. Er það hvað mikil forföll
verða í einstökum greinum frá
skráðri þátttöiku. Það veldur
óneitanlega vonbrigðum þegar
maður er með lista yfir 11 þátt-
takendur í einni hlaupagrein, að
sjá aðeins fjóra hlaupa. A þessu
þarf nauðsynlega að verða breyt
irag og því fyrr því betra. Kepp-
endur verða að gera það upp við
sig áður en tií ikeppninnar kem-
ur í hvaða greinum þeir ætla að
keppa og skrá sig samkvæmt því.
Svo sem við sögðum frá í Mbl.
í gær var eitt Íslandsmet sett á
mótinu og var það í 4x100 metra
tooðhlaupi kvenna, þar sem sveit
UMSK hljóp á 52,2 sek. Eftirtal-
in meistaramótsmet voru sett:
100 metra hlaup kvenna: Krist
ín Jónsdóttir, UMSK, 12,7 sek.
(Hástökk kvenna: Anna Lilja
Gunnarsdóttir, Á, 1,54 metr.
Kringlukast: Erlendur Valdi-
marsson, ÍR, 52,54 metr.
Sleggjukast: Erlendur Valdi-
roarsson, ÍR, 54,14 metr.
200 metra hlaup kvenna: Krist
ín Jónsdóttir, UMSK, 27,0 sek.
Verður þá vilkið að keppnis-
greinunum:
400 METRA GRINDAHLAUP
í fyrstu grein mótsins sigraði
Trausti Sveinbjörnsson, UMSK,
með miklum yfirburðum og náði
eínum bezta tíma 55,7 sek. og fer
nú að styttast i fslandsmetið 54,6
sek. hjá honum. Haukur Sveins-
son, KR, byrjaði hlaupið vel, en
á þriðju og fjórðu grind hitti
hann mjög illa og datt og meiddi
sig nokkuð. Var hann þar með
úr leik, en annar varð Guðmund
ur ólafsson, ÍR, á 62,0 sek.
hástökk
Svo sem vænta mátti sigraðd
Jón Þ. Ólafsson, ÍR, með yfir-
burðum í hástökkinu og stökk
2,03 metra. Sýnir það að Jón er
nú í betra formi en oft áður og
ekki er ólíklegt að hann geti
bætt árangur sinn við hagstæð
skilyrði síðar í sumar. Elías
Svednsson, ÍR, varð annar með
1,90 metra. Reyndi hann síðan að
bæta drengjamet sitt og stökkva
1,96 metra, en það tókst ekki að
þessu sinni. í þriðja sæti var svo
fslandsmethafinn í kringlukasti,
Erlendur Valdimarsson, sem náði
nú sínum bezta árangri í há-
stökki og stökk 1,90 metra. Geri
aðrir kringlukastarar betur!
Fjórði varð Stefán Hallgrímsson,
UÍA, stökk 1,80, 5. Jóhann Jóraas
son, IJMISE, 1,75, 6. Hafsteinn
Jóhannesson, UMSK, 1,75 og 7.
Karl West, UMSK, 1,70.
KÚLUVARP
Guðmundur Hermannsson sigr
aði með ótrúlegum yfirburðum i
kúluvarpinu, og var þó ekki ná-
lægt sínu bezta. Kastaði 17,35 m.
Við verðlaunaafhendinguna var
Guðmundi afhent fögur stytta —
gjöf frá KR-ingum fyrir 30 ára
keppnisferil. Annar í kúluvarp-
inu varð Ari Stefánsson, HSS,
sem kastaði 14,07 metra, þriðji
Hreinn Halldórsson, HSS, sem
kastaði 13,81 metra. 4. Ólafur
Unnsteinsson, HSK, með 12,75
metra.
LANGSTÖKK
Keppni í langstökki var mjög
tvísýn og árangur góður á okkar
mælikvarða. í fimmtu umferð tók
Guðmundur Jónsson, HSK, afger
andi forystu og stökk 6,99 metra
sem er bezti árangur ársins. Ólaf
ur Guðmundsson, KR, varð ann-
ar með 6,88 metra og Valbjöm
Þorláksson, Á, þriðji með 6,86
metra. Fjórði varð svo Friðrik
Þór Óskarsson ÍR, sem stökk 6,81
metra og munaðd því ekki nema
7 sm. á öðrum og fjórða manni.
Fimmti varð Páll Ólafsson, USV
H, stÖkk 6, 49 metra og hafði
hann hvað skemimtilegastan
stökkstíl keppenda. 6. Stefán
Hallgrímsson, UÍA, 6.45. 7. Bjarni
Guðmundsson, KR, 6,06 metra.
800 METRA HLAUP
í 800 metra hlaupinu tók Hall-
dór Guðbjörnsson, KR, þegar for
ystu og fór nokkuð geyst. Fylgdi
Sigvaldi Júlíusson, UMSE, hon-
um lengi vel eftir, en varð að
gefa svolítið eftir í síðari hringn
um. Si-gvaldi er bráðefnilegur
hlaupari og í stöðugri framför.
Tími Halldórs var 1:56,1 mín.,
sem er bezti tími hérlendis í ár,
Sigvaldi hljóp á 2:00,8 mín.,
þrdðji varð Helgi Sigurjónsson,
UMSK, á 2:07,7 mín. og fjórði
Böðvar Sigurjónsson, UMSK, á
2:08,3 mín.
100 METRA HLAUP
KV'ENNA
Skemmtilegasta keppni fyrri
dag mótsins var 100 metra hlaup
kvenna og í úrslitahlaupinu var
baráttan milli Kristínar Jónsdótt
ur, UMSK, og Ingunnar Ednars-
dóttur, ÍBA, geysihörð. Ingunn
var á undan mestan hluta hlaups
ins en Kristín sýndi mikla keppn
ishörku og tókst að fara framúr
á síðustu metrunum. Timi henn-
ar var 12,7 sek. Aðeins 1/10 úr
sek. lakara en íslandsmet henn-
ar, Ingunn hljóp á 12,8 sek., og
þriðja varð Jensey Sigurðardótt
ir, UMSK, á 13,0 sek., en hún er
mjög efnilegur hlaupari.
KCLUVARP KVENNA
í kúluvarpi kvenna varði
Bmelía Baldursdóttir, UÍMSE, ís-
landsmeistaratitil sinn og kast-
aði 2 sm lengra en í fyrra 10,36
metra, sem er ágætt afrek á okk-
ar mælikvarða. í öðru sæti varð
Alda Helgadóttir, UMSK, með
9,89 metra og þriðja varð Gunn-
þórunn Geirsdóttir, UMSK, með
9,44 metra. Báðar eru þessar
stúlkur bráðefnilegar og geta
bætt sig verulega með meiri æf-
ingu.
200 METRA HLAUP
Bjarni Stefánsson, KR, hafði
mikla yfirburði í 200 metra hlaup
inu og var hann búinn að ná
keppinautum sínum áður en á
beinu brautina kom. Tíminn 21,7
sek. er hans bezti, en meðvindur
mun hafa verið aðeins of mikill.
Keppni um annað sætið varð
harðari, en Trausti Sveinbjörns-
son hljóp ágætlega síðari hluta
hlaupsins og fékk tímann 23,3
sek. Vilmundur Vilhjálmsson,
KR, varð þriðji á 23,9 sek., en
hann er efni í mjög góðan sprett
hlaupara. 4. örn Petersen, KR,
24,4 se(k., 5. Sigurður Geirsson,
KR, 24,8 sek Báðir eran í drengja
flokki.
HASTÖKK KVENNA
íslandsmethafinn, Anna Lilja
Gunnarsdóttir, Á, sigraði örugg-
lega í hástökkinu og setti nýtt
meistaramótsmet 1,54 metra.
Reyndi hún næst við fslandsmet
ið, en tókst ekki að slá það að
þessu sinni. f öðru sæti varð Sig
ríður Jónsdóttir, HSK, stökk
1,40 metra og sömu hæð stökk
einnig Kristín Björnsdóttir, UM
SK, sem varð þriðja.
SPJÓTKAST
í fyrstu umferð spjótkastsins
tók Ólafur Unnsteinsson, HSK,
forystu með 50,60 metra kasti, en
í þriðju umferð náði Páll Eiríks
son, KR, sigurkasti keppninnar
59,00 metr. Páll er á réttri leið
spjótkastinu og 60 metra kast er
áreiðanlega stutt undan hjá hon
um. f öðru sæti varð svo lands-
liðsmaðurinn Sigmundur Her
mannsson, ÍR, með 55,54 m og
þriðji varð Finnbjörn Finnbjörns
son, ÍR, með 52,10 metra, 4. Val-
björn Þorláksson, Á, 51,50 metr.,
5. Elías Sveinsson, ÍR, 51,15 m.,
6. ólafur Unnisteinsson, HSK,
50,60 metr.
5000 M'ETRA HLAUP
Sjö keppendur hófu keppni í
5 km hlaupinu og leiddi Jón Sig-
urðsson, HSK, hlaupið fyrstu
hringina en þá tóku þeir Hall-
dór Guðbjörnsson, KR, og Sig-
fús Jónsson, ÍR, við og fylgdust
þeir að hring eftir hring. Þegar
aðeins 3 Ihringir voru eátir dróst
Halldór verulega aftur úr og
hætti síðan hlaupinu.
Sigfús sigraði á sínum bezta
tíma 15:42,2 mín., og tekur haran
stöðugum framförum. Jón H. Sig
urðsson varð annar á 16:11,6
min„ og Ágúst Ásgeirsson, ÍR,
þriðji á sínum bezta tíma 16:52,4
mín., en sama má segja um Ágúst
og Sigfús að framfarirnar eru
augljósar. í hlaupinu tóku tveir
sundmenn frá Ármanini þátt og
stóðu sig báðir með sóma. Jó-
hann Garðarsson varð fjórði á
17:09,4 mín., sem er ágætt hjá al-
gjörum nýliða og Gunnar
Kristjánsson hljóp á 18:05,6 mín.
4x100 METRA BOÐHLAUP
Fyrirfram var talið að sveit
KR myndi vinna léttan sigur í
4x100 metra hlaupinu, en svo
reyndist þó ekki vera. Sveit HS
K, veitti óvænta og harða keppmi
og var ekkert nema geysigóður
sprettur Bjama Stefánssonar,
sem færði KR gullverðlaunin.
Tími KR var 43,4 sek., sem er
bezti tími sem náðst hefur hér í
boðhlaupi um nokkurt skeið, en
tími HSK var 44,8 sek., sem er
nýtt Skarphéðinsmet. í sigursveit
KR voru auk Bjarna þeir Einar
Gíslason, Ólafur Guðmundsson
og Haukur Sveinsson, en í sveit
HSK voru bræðurnir Guðmund-
ur og Sigurður Jónssynjr, Sævar
Larsen og Marinó Einartsson.
í þriðja sæti í boðhlaupinu
varð svo drengjasveit KR sem
hljóp og skipti afbragðsvel og
setti nýtt drengjamet 46,0 se(k.
Sveitina skipuð-u: örn Petersen,
Vilmundur Vilhjálmsson, Sigurð
ur Geirsson og Borgþór Magnús
son, Sveit ÍR varð í fjórða sæti
og sveit UMSK í fimmta.
110 METRA GRINDAHLAUP
Sex keppendur voru í 110
metra grindahlaupinu og framan
af var mjög jöfn keppni milli Val
bjöms og Borgþórs, en um mitt
hlaupið náði Valbjöm forystu og
sigraði örugglega, á 15,2 sek. sem
er mun betri tími en honum
nægði til sigurs á meistaramót-
inu í fyrra. Borgþór hljóp á 15,4
sek. Þriðji varð Stefán Hallgríms
son, UfA, á 16,1 sek. og fannst
manni tímamunurinn á honum og
Borgþóri óeðlilega mikill. 4.
Hróðmar Helgason, Á, 16,6 sek.,
Halldór Guðbjörnsson, KR, sigraði í 800 og 1500 metra hlanp-
um, en Sigvaidi Júlíusson, UMSE, bráðefnilegur hiaupari veitti
honum nokkra keppni.