Morgunblaðið - 21.08.1970, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1970
11
I garðinum er þægilegt horn í skjóli með grjóthleðslu og miklu af blómum.
boga. Laugin er ekki eintómur
lúxus. 1 hana er nýtt afrennslis-
vatnið frá hitakerfi hússins. Og
þarna er lika komin vatnsþró
fyrir gróðrarstöðina. Það er hag
kvæmt, fyrir utan það hve nota-
legt er að geta synt þegar vinnu
lýkur.
Njáll segir okkur, að gróður-
húsin þurfi endurbóta við. Þau
hafi verið byggð af vanefnum í
upphafi. Hann þyrfti að fá sjálf
vökvun og sjálfvirkni í hitakerf
ið. En það kostar 100 þúsund kr.
á hús. En ekki gat hann beðið
með að byggja íbúðarhúsið, seg-
ir hann. Þau hjónin bjuggu
fyrstu árin í alls ófullnægjandi
húsnæði.
— Skattamálin eru ekki I nógu
góðu lagi, til að maður geti end-
urnýjað, segir hann. Við afskrif
um húsin á 9 árum og þau sem
kostuðu 200 þúsund þá, mundu
nú kosta 800 þúsund. Þetta kem-
ur svo illa niður. Nettótekjurnar
eru svo skattlagðar, að ekki er
hægt að taka af þeim til við-
halds og endurnýjunar, vilji mað
ur vera sæmilega heiðarlegur.
Ef ég nú laga gróðurhúsin fyrir
200 þúsund krónur, af þvi afkom
an er góð í ár, þá verð ég að fá
að afskrifa þau strax. Ég er
ekki að biðja um að gefa mér
neitt, og ég er á móti því að alls
sé krafizt af ríkinu. En mögu-
leikar verða þó að vera tiL
Ástandið hefur þó lagazt, og
lánamálin eru komin í mun betra
horf. í ráuninni ágætt síðan stofn
lánasjóður var stofnaður. Við
borgum í hann sjálfir og njótum
lika góðs af því. Lán eru auðvit
að erfið, en það er lika verið að
nota þau til að byggja upp. Og
hver á að borga það nema mað-
ur sjálfur. Siðgæðisvitundin er
ekki upp á marga fiska hér hjá
okkur. Við viljum allt fá, en eng
inn vill láta neitt í staðinn,
bara krefjast.
Og hvernig gengur garð-
yrkjan? — Enginn kvart-
ar yfir henni, eins og gengið hef
ur undanfarið, svarar Njáli. 1
fyrra var slæmt sumar, en í heild
gengur vel. Það sést á þeim, sem
eru nýbyrjaðir. Þeir blómstra. Á
árunum 1960—62 áttum við i erf-
iðleikum. Þá seldist grænmeti
svo illa. Nú orðið notar fólk það
miklu meira. Auðvitað getur orð
ið of mikil framleiðsla í einu og
afgangur eyðileggist. Það ger-
ist t.d. venjulega í júlí, þegar
allir koma með of mikið á mark-
aðinn. í okkar grein hefur tíðar
farið svo mikil áhrif á það
hvenær varan er tilbúin á mark
aðinn. En það er engin ástæða til
að kvarta.
Við göngum um garðinn. Þar
sjást engir kalblettir eða órækt-
arblettir. Njáll segir okkur, að
hann noti vélar eins lítið og
mögulegt er í garðinum. Aðeins
í stærstu verkin. Annars vill
hann ekki traktora þar inn til
að pressa saman jarðveginn, svo
að hann hætti að vera gljúpur.
1 garðinum vinna þau hjónin
sjálf, með eigin höndum. Garð-
yrkja þarfnast gætni og mjúkra
handtaka.
Áður en við förum, litum við
inn í skrifstofu Njáls. Þar er mik
ið af bókum um heimspekileg
viðfangsefni. Auðséð er, að hann
les mikið og veltir fyrir sér
Vandamálum mannsins. Hann seg
ist lesa mikið í metaphysik um
þessar mundir og ætla að fara
að taka upp aftur yoga, sem
hann kynntist og stundaði á Sin
um tíma I Ameríku. Því miður
höfum við ekki tíma til að ræða
það að sinni. Það verðum við að
gera i næstu heimsókn.
— E. P.
Cítroen D 19
Árgerðin 1965 og 1966 í góðu standi til sýnis og sölu
é Citroen-verkstæðinu, Dugguvogi 17.
Laus staða
Rafmagns- eða vélaverkfræðingur óskast til starfa strax.
Rafmagns- eða vélatæknifræðingar koma einnig til greina.
Upplýsingar um starfið eru gefnar í síma 17400.
ORKUST OFNUNIN.
Spónaplötur
hörplötur — hamplötur, margar þykktir.
PLÖTURNAR fást hjá T. Á. J.
Timburverzlun Arna Jónssonar & Co. hf.
Laugavegi 148. — Sími 11333.
Ritarastarf
Ríkisstofnun óskar að ráða til sin vanan vélritara.
Enskukunnátta er nauðsynleg.
Eiginhandarumsóknir merktar: „Ríkið — 4572" óskast sendar
Morgunblaðinu með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, eigi síðar en 26. ágúst.
Laxveiðimenn
Nokkur veiðileyfi til sölu í Selá, Vopnafirði,
Upplýsingar hjá Herði Óskarssyni, sími:
33752, og hjá Gísla Ásmundssyni í símum
30909 og 40536.
VEIÐIKLÚBBURINN
STRENGUR
NÝTT NÝTT NÝTT
MALLORCA MEÐ
3 DÁGA VIÐ-
DVÖL í LONDON
BROTTFÖR 22. SEPT.
Vegna mikillar eftirspuma höfum við ákveðið, að bæta við
áætlun okkar, einni Mallorca-ferð með viðdvöl í London 3
daga. í þessari ferð er hægt að vetja um dvöl f sömu hótelum
á Mallorca og hinum venjulegu Mallorca-ferðum Sunnu.
Fólki er ráðlagt að panta far sem fyrst.
. -M —I...——i—,- | IIIHIHlllll
ÖDÝRAR
VIKUFERÐIR
TIL MALLORCA
BROTTFARARDAGAR 25. ÁGUST
1. SEPT. OG 8. SEPT. VERÐ KR. 9,800,00
Vegna hagkvæmra samninga okkar við nýtt „tourist class”
hótel á Mallorca, getum við boðið Mallorca-ferðir með viku-
dvöl á hagkvæmara verði en áður hefur þekkzt. Ö1I herbergi
með steypubaði. Tvær sundlaugar og skemmtilegir veitinga-
salir. Innifalið i verði flugferðir, hótei og 3 máftíðir á dag.
5 DAGA FERÐ
Á EVRÓPUMÓT
ÍSLENZKRA
HESTAMANNA
í RÍNARLÖNDUMl
BROTTFÖR 4. SEPT. VERÐ 10.600.00
Evrópumót verður haldið í fyrsta sinn í Rinarlöndum í byrjun
september.
Koma þangað hundruðir manna víðs vegar úr Evrópu með ís-
lenzka hesta, sem sýna þar listir sínar og taka þátt í keppni.
Eru hestar sendir frá Islandi til þátttöku í keppni þessari. Til að
gefa sem flestum tækifæri til að heimsækja Rinarlönd í nokkra
daga, efnir Sunna til ódýrar ferðar þangað í þessu tilefni.
Fararstjórar verða Sveinbjöm Dagfinnsson, form. Fáks, og
Gunnar Eyjólfsson, leikari.
MALLORCA
LONDON
Þægilegt dagflug alla þriðjudaga, beint til Palma á 5 klukku-
stundum með skrúfuþotu.
Þér veljið um dvöl á 1. flokks hótelum eða i nýtízku íbúðum
Hægt að velja um dvöl í 1—4 vikur. Tveggja daga viðkoma
í London í flestum ferðum.
|25°Jo tjölskylduafslátfur og sérafsláttur \
fyrir starfsmannahópa og félög,
samkvœmt samningum SUNNU við
hótel á Mallorca. Athugið að þegar er
upppantað í 3 ferðir og fá pláss
í öllum hinum
xerðaskrifstofa bankastræti 7
simar 16400 12070
NVTT nýtt nýtt