Morgunblaðið - 21.08.1970, Page 19
MORG-UNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1970
19
EÞar héldust í hendur stjórnlagni
húsfreyjunnar, prúðmennska og
þolgæði Hjörleifs og hjálpfýsi
bamanna, ekki sízt dætra þeirra
tveggja, sem lærðu ungar að taka
til höndum við heknilisverk í
veiikindum móður sinnar.
Lítið atvi'k sýnir, hve Þóru var
annt um húsfreyjuheiður sinn.
Einhvern tíma á sunnudegi vor-
um við hjónin á göngu í góðu
veðri, komum við í bakaríinu og
keyptuim brauð með eftirmiðdags
ikaffinu. Allt í einu dettur okkur
í hug að skreppa austur í Slkál-
holt, færa Þóru brauðið og
drekka kaffi þar í staðinn fyrir
að fara heim. Okkur var tekið
með fögnuði að vanda. Eins og
ævinlega stóð einmitt þannig á,
að Þóra ætlaði að fara að hella
upp á könnuna, þegar okkur bar
að garði. En ég gleymi ekki, hve
henni brá, þegar við réttum fram
kökupoikann. Hún reiddist eikki,
af því að hún var óhvikull vinur
vina sinna og vissi, að okkur
gekk ekki nema gott til. En hún
bað Okkur um að gera sér þetta
aldrei framar. Og það var ekki
hætt við, að við gerðum það!
Faðir minn, Sigurður Jóhanns-
son, var hálfbróðir Þóru. Hann
ólst upp hjá föðurforeldrum sín-
um, og höfðu þau systkini því
lítt saman að sælda í uppvextin-
um, enda aldursmunur allmikill.
Samt var alltaf kært með þeim,
og er ekki á hann hallað, þótt
sagt sé, að það var Þóra í S/kál-
holti, sem vakti yfir, að ekki
rofnuðu tengslin við stóra bróður
og fjölskyldu hans. Hún átti í
mjög ríkum mæli þessa heil-
brigðu, sterku tilfinningu fyrir
omilkilvægri innri samheldni ætt-
menna. Atvikin höguðu því svo
að við systkin fjögur dvöldumst
öll í Vestmannaeyjum lengur eða
sikemur. Rælktarsemi Þóru við
okkur, bróðurbörn sín, var ein-
stök. í Slkálíholti var okkur alltaf
tekið eins og við ættum þar
heima; mátti þó sýnast sem Þóru
væri það nægilegt verkefni að
sinna sinni stóru fjölskyldu.
Elzt bama þeirra Þóru og
Hjörleifs er Sveinn, skipstjóri og
útgerðarmaður í Vestmannaeyj-
um, .landskunnur atoriku- og afla
maður. Hann er kvæntur Aðal-
heiði Péturssdóttur frá Ólafsfirði,
og eiga þau 5 börn. Næst er
Amna, gift Sigmundi Lárussyni,
múrarameistara í Reyikjavík.
Þau eiga 5 böm. Þá er Friðrik
Ágúst sjómaður í Vestmanna-
eyjum, kvæntur Önnu Oddgeirs
úr Eyjum. Þeim hefur orðið 6
bama auðið, og eru fiimm á lífi.
Yngst er Guðbjörg, gift Agli
Kristjánssyni, trésmíðameistara í
Vestmannaeyjum. Af 5 bömum
þeirra eru fjögur á lífi. Bama-
barnabörn Þóru og Hjörleifs eru
orðin tvö.
Það mátti finna, að Þóru var
þessi stóri hópur einkar kær.
Hkkert var þeim hjónum sjálf-
sagðara en leysa frumbýlisvanda
afkamenda sinna, ef á þurfti að
halda. Sum af börnunum hófu
búskap í Skálholti, og nú síðast
hefur sonardóttir þeirra átt þar
heima um skeið með manni sín-
um og barni. Þannig hafa fjórar
kynslóðir átt sér hæli í S’kálholti
á þeim 44 árum, sem Þóra og
Hjörleifur réðu þar ihúsum sam-
an.
Skáilholt er skemmtilega dular
fullt hús og kann ég af því all-
magnaða sögu, frá því fyrir þar
vistardaga Þóru og Hjörleifs. En
bað hélt sinni dul áfram, og
veit ég margfaldar sönnur á,
að sumir gestir gerðu þar jaifn
skilmerkileg boð á undan sér og
þau voru torskýranleg. Hygg ég,
að húsfreyjunni hafi komið fátt
á óvart.
í júnímánuði síðastliðnum kom
hún hingað suður til að ganga
undir hættulegan holskurð. Dag-
ana sem hún beið eftir sjúkra-
hússvist notaði hún, þótt sárlas-
in væri, til að heimsækja ætt-
ingja sína og nánustu vini, eins
og hún hefði hugboð um, að at-
vikin kynnu að banna fundi við
þá að legu lbkinni. Hérna á stiga-
pallinum kvaddi hún okkur
heimafóilkið, brosandi, hlý og
hugprúð, glöð yfir að hafa gengið
úr skugga um, að okkur liði öll-
um vel. Frændræknin entist
henni til hinztu stundar.
E. B.
Beyki krossviður
5 millimetra.
JÓN LOFTSSON HF.,
Hringbraut 121,
sími 10600.
Verzlunar- eða skrifstofuhúsnæði
óskast í eða við Miðbæinn, um 30—70 fm að stærð.
Upplýsingar í síma 26793 i kvöld og næstu kvöld.
Rafvirki
Opinber stofnun óskar að ráða rafvirkja.
Nauðsynlegt er, að viðkomandi hafi bifreið til umráða.
Reglusemi áskilin. Laun samkvæmt kjarasamriingi.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun, fyrri vinnu-
veitendur, ásamt mynd, sendist Morgunblaðinu fyrir
5. september nk., merktar: „Rafvirki — 4570".
Uppboð
Á opinberu uppboði, sem fram fer í bifreiðaskemmy F.l.B.
á Hvaleyrarholti við Hafnarfjörð í dag, föstudaginn 21. ágúst
klukkan 5 síðdegis, verða meðal uppboðsmuna, bifreiðar, ís-
skápar, borðstofuhúsgögn og fatnaður. Ennfremur rauðmaga-
net, þvottavél, setustofuhúsgögn, sjónvarpstæki, samlagninga-
vél, búðarvog og áleggsskurðarvél.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu,
Steingrímur Gautur Kristjánsson, ftr.
INNANHUSS PLASTMALNING
VABl
VARANLEG VIOARVÖR^ MARGIR LITIR
ALHLIOA TRELIM
PEGRIÐ VERNDIÐ
VEL HIRT EIGN ER
VERÐMÆTARI
NOTIÐ HINAR LANDSÞEKKTU MALNINGARV ÖRUR OKKAR, SEM VIÐ BJÓÐUM NU I STÆRRA
ÚRVALI EN NOKKRU SINNI FYRR. — VALIN EFNI — VANDADAR VÖRUR.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT