Morgunblaðið - 27.09.1970, Page 3
MORGUNBIJVÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPT. 1970
3
Framkak íslenzkra
ballettdansara
— sýna m.a. Svanavatnið
og Hnotubrj ótinn
ÞEGAR við litum inn í Þjóð-
leikhúsið síðdeRÍs í fyrradag
liðu ballettdansarar þar um
fjalir. Ballettflokkur Félags
islenzkra listdansara var að
æfa af kappi fyrir frumsýn-
inguna, sem verður n.k. mánu
dagskvöld í Þjóðleikhúsinu og
hefst kl. 20.
Á sviðinu gekk viðfangsefn
ið ákveðið og eðlilega, en
baka til var ys og þys, enda
unnið að fleiri verkefnum.
Það eru engin smámál, sem
eru tekin fyrir hjá þessum ný
stofnaða ballettflokki, því
verkefnin eru II. þáttur
Svanavatnsins við tónlist
Tchaikovskys, Dauðinn og
unga stúlkan við tónlist
Schuberts og kóreografía eftir
Alexander Bennett. Þá er Pas
Deux úr Hnotubrjótnum við
tónlist eftir Tchaikovsky og
fjórða verkefnið er Facade
við tónlist Williams Walton.
Ballettmeistari er hinn við-
kunni dansari Alexander
Bennett, en hann kom hingað
til lands um miðjan ágúst á
vegum flokksins.
II. þáttur Svanavatnsins
fjallar um Sigfried prins á
svanaveiðum, en um miðnætti
sér bann einm svaninn breyt-
ast í fallega etúlku. Stúlkan
Odetta er undir illum álögum
og aðteins frá miðnætti til dög-
uniar getur hún kastað álaga-
hamnum. Ef einhver játar
henni ást sína losnar hún úr
álögunum og það gerdr prins-
inn einmitt og lofar að giftast
henni, en við sólarupprás,
Úr „Facade'
Tvær ballerínur í dulargervi.
verður Odetta að mæta álög-
um sínum.
Kóneograifían Dauðiinn og
irnga stúllkan f jaillar um unga
stúl'ku í blómia lífsins þar sem
hún mætir örlögium sinum í
liki dauðans.
PaiS Deux úr Hnotulbrjótn-
um er fallegur sígiHduir dans
um ást og aðdiáun milli Hniotu
brjótsprinsins og BlómaáJfs-
ins og siðasta verkefnið á dag
skránni, Faoade er góðlátlegt
grín um vinsæla dansa.
Framhald á bls. 25
V
:
Dansandi
tízkusýning
Á fimmtudagskvöld var haldinn
mikill fagnaður á Hótel Sögu, en
þar bauð fyrirtækið Hoechst
Danmark A/S í samvinnu við
Hampiðjuna og umboðsmenn
sína hér, H. Ólafsson og Bern-
höft, nokkur hundruð körlum og
konum til matarveizlu og tízku-
sýningar. Voru þetta læknar,
verksmiðjueigendur, forstjórar o.
fl., allt viðskiptavinir Hoechst
íyrirtækisins danska, en það er
dótturfyrirtæki Farbwerke Hoe-
chst AG í Þýzkalandi. Þetta stóra
fyrirtæki framleiðir og selur alls
kyns efni, allt frá þræði í
kvæmiskjóla upp í lyf. Hér á
Islandi á það víða hagsmuna að
gæta, t.d. í sambandi við sölu á
hráefni til netagerðar og plast-
röraframleiðslu — og veizlan í
fyrrakvöld var haldin til að safna
saman sem flestum viðskipta-
vinanna og skemmta þeim í von
um áframhaldandi góð og aukin
viðskipti.
Enginn vafi er á að veizlugest
ir skemmtu sér vel, enda margt
gert til að gleðja auga þeirra
meðan setið var yfir mat og
drykk. Islenzkar sýningastúlkur
og ein dönsk svifu um sali í fjöl
breytilegum klæðnaði, framleidd
um úr Trevira-þræði, sem verk-
smiðjúmar stóru framleiða.
Hreyfðu þær sig eftir hljómsveit
arleiknum „í stil“ við fötin, döns
uðu t.d. rússneska dansa, þegar
þær sýndu „kósakkatízkuna" og
hreyfðu sig að hætti austur-
lenzkra dansmeyja þegar þær
sýndu sumarklæðnað, síðbuxur
og stuttar blússur. Kynnirinn á
tízkusýningunni var Nelly Jane,
bráðskemmtileg dönsk stúlka og
var henni ýmislegt til lista lagt
því auk þess að kynna fötin sagði
hún skrýtlur, söng og dansaði.
Undir lok þessa fagnaðar kom
svo hin aldna danska söngkona,
Lulu Ziegler og skemmti gest-
um.
Fagnaður sem þessi kostar
skildinginn, en er þó lítið brot af
veltu þessara stóru verksmiðja,
en hún nemur um 11 milljörð-
um þýzkra marka þetta árið. Ver
fyrirtækið árlega um 200 milljón-
um marka til uppfinninga í sam-
bandi við efnaframleiðsluna.
Á meðfylgjandi myndum eru
nokkur sýnishorn frá tízkusýn-
ingunni, en lengst til vinstri er
Nelly Jane að kynna.
Ljósm. Mbl. Ól.K.M.
WTSÝNARFERÐ: ÚDÝR EN 1. FLOKKS
ÞOTUFLUG ER ÞÆGILEGRA
\ í i- f' < t ■( \i.>« t
COSTA DEL SOL er eini staður Evrópu, þar sem við eigum víst sumar
og sól í október — sólardagar að jafnaði 27, hiti 20—25° C.
Úrvalshótel og nýtízkuíbúðir með öllum þægindum, öll gisting með
einkabaði og svölum, sundlaugar og bezta baðströnd Evrópu í nokkurra
skrefa fjatlægð. Gnægð skemmtistaða og verzlana, úrval skemmtilegra
kynnisferða. Öll sæti hafa selzt upp í sumar, fá sæti eftir 9. október
3 vikur um London á heimleið.
IT-ferðir einstaklinga:
Allir farsefflar og hótel á lægsta verffi.
Ferffaþjónustan sem þér getiff trcyst.
Enginn baffstaffur álfunnar getur nú keppt
viff COSTA DEL SOL. Miðjarffarhafsströnd
Andalúsíu, meff bezta loftslag Evrópu, náttúru-
fegurð, sem óvíffa á sinn líka, heztu hótel Spán-
ar, ódýrt og fjölbreytt skemmtanalíf og verzl-
anir og fjölda merkisstaffa á næsta leiti, s. s.
GRANADA, NERJA, SEVILLA CORDOVA,
MALAGA og örstutt er yfir sundiff til MAR-
OKKO f AFRÍKU.
320—350 sólardagar á ári á Costa Del Sol.
320 - 350 SÓLARDACAR Á ÁRI Á COSTA DEL SOL
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17. Sími 20100.