Morgunblaðið - 27.09.1970, Qupperneq 7
MORGUMBLABI©, SUNNUDAGUR 27. SEPT. 1970
7
ÁRNAÐ IIEILLA
Rögnvaldur Guðbrandsson,
starfsmaður Slippfélags Reykja-
vilkur er sjötugur í dag. Hann
verður að heiman i dag.
Guðmundur Pálsson verzlunar
maður, Hraunbraut 37 Kópavogi
verður 70 ára á morgun, mánu-
daginn 28. september. Hann verð
ur staddur að Freyjugötu 27 á
afmælisdaginn eftir kl. 8 siðd.
DAGBÓK
Ávöxtur andans (Krists) er: Kærleikur, gleði friður, lang-
lyndi, gæzka, góðvild, trúmennska, hógværð, bindindi. (Gal. 5.22).
1 dag er simnudagur 27. september og er það 270. dagur ársins
1970. Eftir lifa 95 dagar. 18. sunnudagur eftir Trinitatis. Tungl
f jærst jörðu. Árdegisháflæði kl. 4.49 (tír íslands almanakinu)
AA- samtökin.
viðtalstími er í Tjarnargötu 3c a'la virka daga frá kl. 6—7 e.h. Simi
'-6373.
Almrannar upplýsingar iim læknisþjónustu i borginnl eru getfnar
símsvara Læknaíéiags Reykjavíkur, sima 18888. Lækningastofur ctru
lokaðar á laugardögum yfir sumarmánuðina. Tekið verður á móti
beiðnum um lyfseðla og þess háttar oð Gcjðastræti 13. sími 16195,
frá kl. 9-11 á laugardagsmorgnuru
Tannlæknavaktin
er í Heilsuverndarstöðinni, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. 5—6.
Næturiæknir í Keflavík
27.9. Arnbjörn Ólafsson.
28.9 Guðjón Klemenzson.
Ráðgjafaþjónusta
Geðverndarfélagsins
þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að
Veltusundi 3, sími 12139. Þjón-
ustan er ókeypis og öllum heim-
il.
Læknisþjónusta á stofu á laugar-
dögum sumarið 1970.
Sumarmámuðina (júní-júlí-ágúst-
sept.) eru læknastofur í Reykja-
vík lokaðar á laugaxdögum, nema
iæknastofan í Garðastræti 14, sem
er oplin alia laugardaga í sumar
kl. 9—11 fyrir hádegi, sími 16195.
Vitjanabeiðnir hjá læknavaktinni
sími 21230, fyrir kvöld- nætur- og
helgidagabeiðnir.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74,
er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl.
1,30—4. Aðgangur ókeypis.
Húsöndin í hættu
Húsönd (Myndin búknuð af listakonunni Barböru Árnason)
Kafl'i úr greinargerð náttúrufræðinganna Arnþórs Garðars-
sonar og Jóns B. Sigurðssonar með frumvarpi til laga um
takrriarkaða friðun Mývatnssvæðisins.
Þann 22.8. voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni ungfrú Arnþrúður
Stefánsdóttir og Kristján Birgis
son. Heimili þeirra er að Nýbýia
vegi 42.
Studio Guðmundar Garðastr. 2.
Spakmæli dagsins
— Ummæli mín við alla, sem
byggja, eru þessi, að eigandinn
ætti að vera prýði hússins, en
ekki húsið prýði eigandans.
— Cicero.
VÍSUKORM
Við lestur ljóða
Þegar sveipar sorti grund,
sölnar hugans akur:
kveikir von, og léttir lund,
ijóða-fákur vakur.
St.D.
GAMALT
OG
GOTT
Leggr er kominn á loðna skó
írá Lambárvöllum;
grasið grær yfir öllum.
Ut allar kempur á víðan völl;
ekki veit ég vænna fólk
en vér erum öll
í grænum kyrtli, hringahöll.
Húsöndin (Bucephala is-
landica) er ein þriggja fugla-
tegunda norður-amerískra,
sem hér hafa numið land, en
eru ekki til annars staðar í
Evrópu. Útbreiðslusvæði hús-
andar er annars mjög tak
markað og er hún utan ís-
lands þekkt sem varpfugl í
Klettafjöllum, frá Alaska til
Norður-Kaliforníu. Einnig er
talið, að eitthvað af húsönd
verpi í Labrador og á Vestur-
Grænlandi, en þó er óvist, að
hún sé reglulegur varpfugl á
þessum stöðum. Hér á landi
verpir húsönd aðeins við Mý-
vatn og næsta nágrenni þess.
Fullorðnar húsendur virðast
vera algerir staðfuglar, sem
eru á fersku vatni á veturna,
bæði á Mývatni og Laxá og á
Suðurlandi. Sennilegt er, að
ungfuglar á fyrsta vetri leggi
leið sína til austurhluta Norð
ur-Ameriku og haf i þar vetrar
dvöl, því að mjög lítið sézt
hérlendis af fuglum á þessu
aldursstigi á veturna. Óvíst er
um stofnstærð húsandar utan
Islands, en gera má ráð fyrir,
að íslenzki stofninn sé álitleg
ur hluti alls húsandarstofns-
ins. Islenzki húsandarstofn-
inn telur alls um 1000 pör
(fullorðnir varpfuglar), og
verpa nær allir þessir, fuglar
við Mývatn og ofanverða
Laxá. Þar með er þó aðeins
hálf saga sögð, því að nær
allir kvenfuglar, sem verpa
við Mývatn, fara niður á efsta
hluta Laxár með ungana fljót
lega eftir að þeir koma úr
eggi. Auk þess eru nær allar
fullorðnar húsendur á þessum
sömu slóðum á meðan á fjaðra
felli stendur (3—400 húsend-
ur fella á Mývatni). í júlí og
ágúst eru því ca. 90% af
íslenzka húsandarstofninum
saman komin á litlum hluta
Laxár, frá Haganesi niður
undir Hofsstaði. Ástæðunnar
fyrir þessu er sennilega að
leita í óvenjulegum fæðuskil-
yrðum i þessum hluta árinn-
ar. Þar er sérstaklega um að
ræða lirfur og púpur bitmýs
(Simuliidae), en aðalfæða hús
andar er einmitt ýmsar skor-
dýralirfur, sem hún nær í á
vatnsbotninum, svo sem bit-
mý, vorflugur (Trichoptera)
og rykmý (Chironomidae).
Islenzki húsandarstofninn er
þvi sérstaklega viðkvæmur
fyrir breytingum á botndýra
lífi í efri hluta Laxár. Hætt
er við stórfækkun eða útrým-
ingu húsandarinnar hér á
landi ef fæðuskilyrði í þess-
um hluta árinnar breytast til
hins verra, vegna þess að hús
endurnar yrðu þá að leita á
önnur mið í Mývatni, þar sem
þær lentu óhjákvæmilega í
samkeppni um fæðu við þann
mikla fjölda annarra anda,
sem þar er að jafnaði. Ann-
ars staðar á landinu virðast
fæðuskilyrði fyrir þessa teg-
und afar takmörkuð.
MESSUR I DAG
SJÁ DAGBÓK í GÆR
Hafnarfjarðarkirkja Valur Óskarsson, kennari
ávarpar börnin.
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Garðar Þorsteinsson.
RÁÐSKONA ÓSKAST STRAX UNG HJÓN
á hekn'Mi í Vestmamnaeyjum. Uppl. milli kil. 6 og 8 á kvöld- in í síma 98-1541. mjög vel menntuð, vilija taika kjörbarn, nýfætt. Uppt. í síma 2096, Keflavík.
HEILSUVERND Námslkeið « tauga og vöðva- slökun, öndunar- og léttum þjálfurvaræfingum, fyriir konur og kante, hefjast í ibyrjun okt. Simi 12240. Vignir Andrésson VÉLRITUNARSTÚLKA óslkast 15—25 Wst. á viku. Starfsr. nauðsynl. Góð vinniu- ski'lyrði. Tillb. með uippfýs., m.: „Islenzk véliritun 4895" sendist Mbl. fyrir 1. október.
TAUNUS 20 M HARÐTOPP SENDILL
Til ®ötu Taunus 20 M, Harð- .topp. Rauður og svart'ur — sjálfskiptuir. Til sýnis að Laugateig 52. Simi 34608. óskast — piltur eða stúlika — frá og með 1. o'któber n, k, lceland Review, Laugavegi 18 A, sími 18960.
LAGERMAÐUR óskast í vöruafgreiðslu okik- ar. Uppl. á sikrifstofumni. Páfl Þorgeirsson & Co., Ármúla 27. TIL LEIGU 3ja herbergja nisíbúð í Aust- urbæ, ti'l leigu. Tiliboð send- ist afgr. Mbl. fyrir 29. sept. merkt: „1. október 4433",-
TIL LEIGU Ný gtæsileg 3ja herb. íbúð i Árbæjarhverfi leigist með teppum, gluggatjöldu'm, ís- skáp og fl. Eittihvað af hús- gögmum getur fylgt ef viili Uppl. í síma 83239. FÓTAAÐGERÐIR fyrir karla og konur. Teik á móti pöntunum eftir ki 14.00. Kem liíka i heimaihús ef óskað er. — Betty Hermannsson, Laugaimesv. 74, 2. h. Simi 34323. St'rætisv. 4, 8 og 9.
LE5IÐ JVlorfltinWnbiÍí DflGLEGR HÚSRÁÐENDUR Látið Ok'kur leigja húsnæði yðar, yður að kostnaða'rlausu, þanm'ig komist þér hjá óþarfa ónæði. ibúðaleigan. Skólavörðust. 46 Sími 17175.
SölumaBur óskast
Traust fasteignaskrifstofa óskar að ráða sölumann nú þegar.
Starfsreynsla á sviði sölumennsku (einhvers konar) æskileg.
Einungis reglusamur maður með bilpróf kemur til greina.
Tilboð merkt: „Strax — 4897" sendist Mbl.
Verzlun til sölu
Vefnaðarvöruverzlun í fjölmennu hverfi i Austurborginni til
sölu af sérstökum ástæðum.
Verzlunin er í fullum gangi. Tilvalið fyrir hjón eða 2 konur.
Þeir, sem vilja sinna þessu, leggi nöfn sín á afgreiðslu blaðs-
ins fyrir 5 okt. nk. merkt: „Góður staður — 4588".
Röskur sendisveinn
óskast hálfan eða allan daginn i vetur.
ALAFOSS, Bankastræti 6,
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Tónlistarskóli
H afnarfjarðar
Skólinn tekur til starfa 1. október nk.
Innritun daglega í skrifstofu skólans, Vesturgötu 4,
frá kl 13—15 og 17—19.
Kennslugreinar: píanó, strokhljóðfæri, orgel, flauta, klarinett,
saxófónn, gitar, trompet, trommur (trommusett), tónfræði
og tónlistarsaga.
Skólagjöld: Fuilt nám: kr. 6400,— fyrir veturinn.
Hálft nám: kr. 3400,— fyrir veturinn.
Músikföndur (6—8 ára barna): mánaðargjald kr. 400,—.
Lúðrakennsla (hópkennsla): mánaðargjald kr. 400,00.
Fyrri helmingur skólagjalds greiðist við innritun.
SKÓLASTJÓRI.