Morgunblaðið - 13.10.1970, Síða 24

Morgunblaðið - 13.10.1970, Síða 24
24 MORGTINBLAÐH), ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÖBER 1970 Cadilac árgerð 1962 til sýnis og sölu. Mjög fallegur bíll. Sýningarsalurinn SVEINN EGILSSON. Stórt fyrirtæki í Miðbænum vill ráða skrsistoiustúlku nú þegar. Verzlunarskóla- eða hliðstæð menntun æskileg. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsókn merkt: „Stundvís — 4343" sendist afgr. Mbl. fyrir 15. október. Auglýsing um endurgreiðslu hluta leyfisgjalds af bifreiðum. Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að endurgreiða bifreiðaeig- endum hluta leyfisgjalds (gjalds af fob-verði bifreiða). sem innheimt var af innfluttum bifreiðum á tímabilinu 12. nóv. 1968 til 12. des. 1969, ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt: 1. Viðkomandi bifreið hafi verið tollafgreidd á verði, sem svarar til þeirrar gengisskráningar, er tók gildi 12. nóv. 1968. 2. Bifreið sú, sem beiðst er endurgreiðslu af. hafi verið skráð í eigu upphafslegs kaupanda eða innflytjanda hinn 12. des. 1969 Hafi bifreið verið seld fyrir þann tfma verður því ekki um endurgreiðslu að ræða. Umsóknir um endurgreiðslu skulu bornar fram i tvíriti á sérstökum eyðublöðum, sem ráðuneytið hefur látið gera og fæst hjá tollstjóranum í Reykjavík, bifreiðainnflytjendum og Félagi íslenzkra bifreiðaeigenda. Umséknir skulu sendar Fjármálaráðuneytinu, Arnarhvoli og verða að hafa borizt fyrir 1. des. 1970 ella verða þær ekki teknar til greina. Að þeim tíma liðnum verður unnið úr fullgildum umsókn- um og endurgreiðslur sendar hlutaðeigandi aðilum, enda upp- fyfíi þeir þau skilyrði, sem að framan greinir. Fjármálaráðuneytið, 12. október 1970. CHLORIDE RAFGEYMAR HÍNÍR VÍÐURKENDU RAFGEYMAR ERU FÁANLEGÍR Í ÖLLUM KAUPFELÖGUM OG BÍFREIÐAVÖRUVERZLUNUM. Sendisveinn Óskum að ráða sendisvein allan daginn í vetur. OLÍUFÉLAGIÐ HF. Sími 24380. Skrifstofuhúsnæbi óskast til leigu Viljum taka á leigu allt að 300 ferm. skrif- stofuhúsnæði á góðum stað í Reykjavík. Húsnæðið þarf að vera fullfrágengið og inn- réttað, og leigjast nú þegar eða 1. janúar 1971. Upplýsingar í síma 38291. Bindindisfélag ökumanna efnir til góð- aksturs í Reykjavík sunnudaginn 25. októ- ber. Ýmsar skemmtilegar þrautir við hæfi allra ökumanna. Væntanlegir þátttakendur hafi samband við skrifstofu Bindindisfélags ökumanna, síma 17718 eða Ábyrgð h.f., síma 17455 eigi síðar en fimmtudaginn 22. október n.k. Bindindisfélag ökumanna. Listaskólinn Myndsýn NÁMSKEIÐ I TEIKNUN OG MÁLUN. FRÁ 1. OKT. — 20. JAN. Getum enn bætt við nokkrum nemendum í eftirtalda flokka: 4—6 ára mánudaga og fimmtudaga kl. 10.30—12.00 6—8 ára mánudaga og fimmtudaga kl. 13.30—15.00 8—12 ára mánudaga og fimmtudaga kl. 15.30—17.00 12—15 ára mánudaga og fimmtudaga kl. 17 30—19 00 Innritun í skrifstofu skólans Skipholti 21 kl. 5—7, sími 20333. — Minning Framhald af bls. 23 Júlíus var um langan tíma sig- maður og íyglingur þeirra Kolls víkinga ásamt Jóni mági sínum, er farið var á Bjarg. Er aðstæður leyfðu hélt Júlí- us frá annríki hversdagsleikans til Hvitárbakka til að afla sér menntunar og víðsýni. Þar iagði hann grundvöllinn að því starfi, sem vafalaust veitti honum hvað mesta ánægju og var hon- um hjartfólgnast á lífsleiðinni, en um áratugaskeið var hann kennari i sveit sinni og mun m.a. hafa leyst kennaraskort á drengjaheimilinu í Breiðavik íyr ir fáum árum. Júlíus kvæntist árið 1924 eft- irlifandi konu sinni Dagbjörtu Torfadóttur frá Kollsvik. Bjuggu þau um tíma á Grund- um og Mel í Kollsvik en síðan 1939 hafa þau búið í Efri-Tungu i Örlygshöfn. Börn þeirra eru: Kristján sjó- maður á Patreksfirði kvæntur Önnu Einarsdóttur, Friðgeir húsasmíðameistari, Hvoli, Ölfusi, kvæntur Jórunni Gottskálksdótt ur, Marínó ýtustjóri, Efri- Tungu, Halldór, bóndi í Efri- Tungu og Ásgerður Emma ljós- móðir. Auk þess að ala upp sín eigin börn, hafa þau jafnan haft í heimili sinu ýmist til sumardval- ar eða um lengri tíma börn og unglinga, er notið hafa ástríkis þeirra og umhyggju. Veit ég að ég má fyrir munn þeirra flytja þakkir og kveðjur, enda , er ég sjálfur og tvö böm okkar hjóna i þeim hópi. Júlíus hafði um nokkurra ára skeið kennt hjartasjúkdóms, er hindraði að hann gæti tekið þátt i daglegum störfum og mun hon um ekki hafa fallið það létt. Hann tók þátt í bændaför til Norðurlanda fyrir nokkrum ár- um. Naut hann fararinnar í rík um mæli, og svo vel hafði Hvít árbakkadvölin reynzt honium fyr ir hálfri öld, að auðvelt átti hann með samræður við stéttar- bræður sína þar. Við ferðaiok í Oslo fékk hann hjartaáfail og varð að dvelja um hrið á sjúkra- húsi ytra. Upp frá því mun hann litt hafa mátt á sig reyna ef, ekki átti út af að bregða. Hann lézt á Landspítalanum 9. október s.l. stundu áður en fram kvæma skyldi aðgerð, er vonir stóðu til að bætt gæti liðan hans. Er ég sem barn handlék ljóða- bók þá, er getið var í upphafi skorti mig skilning á merkingu hinna tilvitnuðu Ijóðlína. Fátt hefir betur opnað augu mín fyr- ir sannleiksgildi þeirra, en kynni min af heimilinu að Efri- Tungu. Megi það verða ykkur, ást- vinum hans, huggun í harmi, að í anda þessara orða var líf hans og starf. Gunnar B. Gtiðmundsson. Minningarathöfn um Július fer fram frá Laugarneskirkju í dag, þriðjudaginn 13. október kl. 2.00 e.h. S. Helgason hf. LEGSTEINAR MARGAR GERDIR SÍMI 36177

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.