Morgunblaðið - 22.10.1970, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.10.1970, Qupperneq 13
MOROUNTBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976 13 Heildarendurskoðun fer fram á skattkerfinu Alþingi verður kynnt virðisaukaskattkerfið í vetur — Síðari hluti fjárlaga ræðu Magnúsar Jónssonar I gær birtist í Maðinu fyrri hluti fjárlagfaræðn Magnúsar ðónssonar fjármálaráðherra. Hér á eftir fer síðari hluti ræð- unnar, þar sem ráðherra f jallar m.a. um framkvæmdaáætlun rík isins á næsta ári, skattamál og skattrannsóknir, sparnað og hag ræðingn í ríkisrekstrinnm o.fl. Á öðmm stað í blaðinu er svo greint frá ræðtim talsmanna hinna stjórnmálaflokkanna i út- varpsumræðunni um f járlögin. Úlgjöld vegna toll- og skatt- heimtu aukast um 30,7 millj. kr. Er það nær eingöngu vegna eðli iegra launahækkana og framlög til lífeyrissjóða og vegna eftir- iauna hæikkana um 11,6 millj. 1 fjárveitingum til fjármálaráðu- neytisins er að finna sérstaka fjárveitingu, 150 millj. kr., til þess að mæta áætluðum verðlags uppbótum á laun i desember og á næsta ári. Hefur þessum upp- bótum ekki verið skipt niður á einstakar stofnanir, þar eð gert var ráð fyrir, að væntanlegar efnahagsráðstafanir kynnu að hafa áhrif á þessar greiðslur. Þ»á er á vegum fjármálaráðuneyt isins tekinn inn nýr útgjaldalið- ur, að fjárhæð 30 miilj. kr., til þess að mæta kostnaði við lög- boðna aðstoð ríkissjóðs í sam- bandi við kaup hinna nýju tog- ara og var sú aðstoð ákveðin með sérstökum lögum á síðasta Alþingi. Er hér um að ræða um það bil helming umræddrar að- stoðar, en gera má ráð fyrir, að greiðslur skiptist á næstu tvö ár. Þá hækka vaxtaútgjöld ríkis- sjóðs um 26,5 milij. kr. og lagt er til að hækka framiag til Ríkisábyrgðasjóðs um 15 millj. kr., sem er þó mun minni fjár- hæð en stjóm sjóðsins telur nauðsynlegt að fá til ráðstöfun- ar á næsta ári. Tekin er upp 4,7 millj. kr. fjárveiting til að standa straum af kostnaði við hina nýju fram- kvæmdadeild Innkaupastofnun- ar ríkisins, skv. lögum um skip- an opinberra framkvæmda, sem samþykkt voru á síðasta þingi. Sú deild mun taka til starfa nú í haust og bind ég miklar vonir við að þetta nýja skipulag verði til þess í senn að tryggja mun betri undirbúning opinberra framkvæmda, áður en í þær er ráðizt, og jafnframt betri hag- nýtingu fjárveitinga til hinna ýmsu framkvæmda, þegar komið er á framkvæmdastig, en löggjöf þessi felur í sér mörg eftirtekt- arverð nýmæli. Hér er ekki nema að mjög litlu leyti um út- gjaldaaukningu að ræða fyrir rikissjóð, því að samhliða verð- ur byggingaeftirlit húsameistara embættisins og byggingadeild menntamálaráðuneytisins lagðar niður. Raunhæft mat á verðgildi fasteigna Fasteignamatinu er nú ioksins iokið. Hefur það reynzt miklum mun dýrara en gert var ráð fyr- ir, en þess ber að gæta, sem sið- ar mun verða gerð grein fyrir hér á Alþingi, að fasteignamat með þessum hætti hefur aldrei áður verið framkvæmt hér á laiidi og skapaat nú algerlega ný skilyrði til þess að fylgjast með raunverulegu verðgildi fast eigna, sem hefur þýðingu fyrir margvislega starfsemi og stofn- anir í þjóðfélaginu. Eigi þessi mikla vinna, sem unnin hefur verið í sambandi við fasteigna- matið hins vegar að skila raun- hæfum árangri ber brýna nauð- syn til að fasteignamatinu verði haldið við með árlegri gagna- söfnun um nývirki og breyting- ar og þvi er enn gert ráð fyrir töluverðri fjárveitingu ti'l fast- eignamatsins, og unnið er nú að undirbúningi löggjaíar um fram- búðarskipulag fasteignamatsins og verður frumvarp um það efni lagt fyrir þetta þing, en fast- eignamatið sjálft mun taka gildi um næstu áramót. 1 sambandi við gildistöku hins nýja mats, þarf að endurskoða margvislega lög- gjöf, sem miðast við fasteigna- mat. Sýnir það gleggst nauðsyn slikrar endurskoðunar, að heild- arverðmæti fasteigna í landinu mun hækka úr 4.6 milljörðum i 76.2 milljarða. Eru þá ekki með- taldar stórvirkjanir og mann- virkjagerð í Straumsvik þannig að heildarniðurstaðan mun vera nálægt 80 milljörðum. Aðstoð til stjórn- málaflokka í athugun Lækkað er framlag til endur- nýjunar ríkisbifreiða um 1 millj. kr. vegna endurskipulagningar bifreiðamála, sem gerð mun verða grein fyrir á öðrum stað og framlag til kaupa á dagblöð- um er lækkað um 2,9 millj. kr., sem er sú hækkun, sem Alþingi ákvað á þessu framlagi á síðasta þingi. Hef ég margoft lýst þeirri skoðun mdnni, að aðstoð við dag blöð eða blaðaútgáfu yfir höfuð með þessum hætti sé óviðunandi, og verði Alþingi að gera sér grein fyrir í heild, hversu aðstoð til stjórnmálaflokkanna skuli hagað. Hefur það mál verið sér stakri athugun nú milli þinga og má vafalaust vænta þess, að til- lögur um það efni komi til at- hugunar áður en endanlega verði gengið frá fjárlögum. Hækkað framlag til F erðamálas jóðs Kostnaður við vegagerðir greiðist allur af hinum sérstöku tekjum vegasjóðs, sem áætlað er að muni hækka á næsta ári um 20.3 m. kr., að undanteknum af- borgunum lána, sem ríkissjóður tók á sig á síðasta ári og munu á næsta ári nema um 14 m. kr. auk afborgana af lánum vegna Kísilvegar, sem að ölliu leyti hefur verið kostaður af ríkissjóði. Framlög til flugmála hækka allverulega eða um 15 millj. kr. og er hér senn um að ræða hækkanir vegna endur greiðslna á lánum og einnig all- veruleg hækkun á framkvæmda fé, en framkvæmdafé vegna flug mála hefur jafnan hækkað mun minna en fjárveitingar til ann- arra þátta samgöngubóta, vega- gerða og hafnargerða. Framlag til byggingar veðurstofu hækk- ar um 5,0 millj. kr., en sú bygg- ingarframkvæmd er nú að hefj- ast og hækka þarf endur- greiðslu á landshafnalánum um 4,5 millj. kr. Þá er lagt til að hækka rikisframlag til Ferða- málasjóðs úr 1 millj. í 5 millj. kr. Þessi sjóður er mjög févana, en hefur hins vegar mjög vax- andi hlutverki að gegna með aukinni ferðamannaþjónustu, en ferðamannaþjónusta er nú að verða veigamikill liður í gjald- eyrisöflun þjóðarinnar og á von andi eítir að verða enn þyngri á metunum á komandi árum, ef unnt reynist að koma i veg fyr- ir óhæfilegar verðlagshækkanir, sem hætta er við að hrekji ferðamenn á braut írá Islandi. Rétt er að vekja athygli á þvi, að þrátt fyrir miklar kostnaðar- hækksmir er ekki gert ráð fyrir hækkun reksturshalla Skipaút- gerðar ríkisins. Jafnframt má geta þess, að sameiginleg út- gerðarstjóm allra rikisskipa hef ir gefið góða raun. Ríkisframlag til iðnlánasjóðs hækkað Lagt er til að hækka framlag iðnlánasjóðs um 5 millj. kr. og verður þá ríkisframlag til sjóðs- ins alls 15 millj. kr. á ári. Þótt Norræni Iðnþróunarsjóðurinn hafi stórkostlega bætt aðstöðu til eflingar íslenzkum iðnaði, þá hefur Iðnlánasjóður miklu og vaxandi hlutverki að gegna. Iðn lánasjóðsgjaldið er aðaltekju- stofn sjóðsins og fer það gjald ðlagnús Jónsson. hækkandi, en ekki er óeðlilegt að ríkisframlagið hækki einnig nokkuð. Orku- og rafvæðingarmál Á síðustu árum hefur verið unnið markvist að athugun á margvíslegum náttúruauðlindum landsins og hugsanlegri hagnýt- ingu íslenzkra jarðefna og orku- linda til eflingar nýjum atvinnu greinum i landinu. Einn mikil- vægur þáttur þessa viðfangsefn is er að láta fram fara heildar- könnun á nýtanlegum jarðefn- um í landinu. Hefur náðst um það samkomulag við Iðnþróunar- stofnun Sameinuðu þjóðanna í Vín, UNIDO, að stofnunin að- stoði við slíka athugun og hefir þegar samþykkt að veita íslandi tækniaðstoð í þessu sambandi er nema mun um 50 millj. kr. ís- lendingar þurfa þó sjálfir eðli- lega að greiða nokkurn hluta kostnaðarins og er lagt til að verja 6 millj. kr. til greiðslu á mótframlagi íslands. Á síðast liðnu ári ákvað ríkis- stjórnin að beita sér fyrir því, að lokið yrði á árinu 1971 raf- væðingu strjálbýlisins að því marki, að þá væri lokið lagn- ingu allra lína, þar sem vega- lengd milli býla er ekki yfir 1,5 km. á býli. Var í ár aflað 15 millj. kr. innan framkvæmdaáætl unar til viðbótar fjárveitingum í fjárlögum, til þess að þoka þessu verkefni áleiðis, og hefur nú það vel miðað á þessu ári, að ekki mun reynast þörf á sér- stakri lánsfjáröflun á næsta ári, en fjárveiting í fjárlögum er hins vegar hækkuð, vegna sveitarafvæðingarinnar um 4.9 millj. kr. og á fjárlagaupphæð- in að nægja til að ljúka um- ræddu verki. Spáð 5% vexti þjóðartekna Niðurgreiðslur á vöruverði eru í fjárlagafrumvarpinu áætl- aðar 577 millj. kr. og er í þeirri áætlun miðað við, að niður- greiðslur verði hinar sömu og nú eru. 1 heimildargrein fjárlagafrum- varpsins eru fáir nýjir liðir. Má nefna, að í samráði við undir- efnd fjárveitingamefndar er leitað heimildar til að kaupa hús næði fyrir fastáíulltrúa Islands hjá EFTA í Genf. Þykir það hag kvæmara heldur en greiða þá geysilegu húsaleigu, sem er þar í borg. 1 fyrra var skipt á hús- næði fyrir sendiherrann í Paris og spöruðust um 30 millj. kr. á þeim húsaskiptum. Er lagt tii að nota hluta af þvi fé til húsa- kaupanna í Genf. Heildartekjur á rekstrar- reikningi eru áætlaðar 10.593.0 millj. kr., en voru 8.397 millj. kr. í f járlögum 1970 og nemur hækk unin þvi 2.196.0 millj. kr. eða 26.2%. Af þessari fjárhæð nema tekjustofnar, sem varið er til sér stakra þarfa 1.999.8 millj. kr. og hækka þær tekjur um 250.2 millj. kr. Eiginlegar tekjur rík- issjóðs hækka þvi um 1.945.8 miiij. kr. Við áætlun hinna ýimsu tekjustofna er stuðst við þjóð- hagsspá Efnahagsstofunarinnar fyrir árið 1971, en í henni er gert ráð fyrir 5% vexti þjóðar- framleiðslu og þjóðartekna á þvi ári og 5—6% aukningu vöruút- flutnings, en vegna þeirrar miiklu aukningar rauntekna ein- staklinga, sem varð við kjara- samningana í vor er vöxtur einkaneyzlu og verðmætaráðstöf unar almennt áætiaður nokkuð meiri en þetta eða 7—8%, og mið ast aukning einkaneyzluút- gjalda í tekjuáætluninni al- mennt við þetta. Verði hins veg- ar gerðar ráðstafanir til þess að draga úr veltuaukningunni, get- ur það haft lækkunaráhrif á tekjur ríkissjóðs, en sem aftur drégur úr útgjaldaþörfinni. Engin ný skattheimta Eignarskattar eru miðaðir við óbreytt fasteignamat, þ.e.a.s. nífalt gamla matið svo sem nú er gert. Hins vegar er ljóst, að hækkun fasteignamatsins verður miklum mun meiri og eru laga- ákvæðin um eignarskatt ein þeirra mörgu laga, sem þarf að endurskoða í sambandi við gild- istöku hins nýja mats. Hækkun tekjuskatts er áætluð 290 millj. kr. og miðast sú áætlun við 21% meðalhækkun kauptaxta frá árs meðaltali 1969 til ársmeðaltals 1970, og ennfremur við nokkuð betra atvinnuástand og fólks- fjölgun, þannig að skatttekjur eru taldar muni hækka um alls 27% í áætluninni og er þá gert ráð fyrir að skattvísitala hækki með eðlilegum hætti. Áætlað er, að innflutníngsgjöld hækki um 587 millj. kr. og er þá gert ráð fyrir að almennur vöruinnflutn ingur aukist um 10% á næsta ári. Langmest verður hækkun á söluskatti, sem talinn er muni hækka um 851 millj. kr., sem í senn stafar af veltuaukningu og þeirri hækkun söluskattsins úr 7.5% í 11%, sem lögfest var snemma á þessu árd og mun nú gilda allt árið 1971. Rekstrar- hagnaður Áfengis- og tóbaks- verzlunar ríikisins er áætlaður vaxa um 114 millj. kr. og þó ekki gert ráð fyrir hækkun á verði áfengis og tóbaks. Launa- skattur, sem rennur til húsnæðis mála, hækkar um 79 milljónir. Hér hafa verið nefnddr aðal- tekjustofnar ríkissjóðs og áatæð- ur raktar fyrir orsökum tekju- aukningar af þeirn, en aðrir tekjustofnar hækka einnig flest ir nokkuð, en þeir hafa allir miklum mun minni þýðingu fyr- ir afkomu rikissjóðs. Kjarni máls ins er sá, sem skiptir höfuðmáli, að ekki er gert ráð fyrir neinni nýrri skattheimtu af þjóðfélags borgurunum á næsta ári, heldur er hér aðeins um tekjuauka að ræða vegna aukinna viðskipta- veltu annars vegar og almennra tekna borgaranna hins vegar. Rekstrarafgangur rikissjóðs skv. fjárlagafrv. er 553 millj. kr., en þegar frá er dreginn halli á lánahreyfingum verður greiðsluafgangur samtals 313.4 millj. kr. Er það töluvert hærri greiðsluafgangur, en hefir verið á fjárlagafrv. áður, en gefur því miður ekki raunhæfa mynd af afkomuhorfum vegna ýmissa út- gjalda, sem enn hefir ekki verið ætlað fyrir, en sem ég hefi drep ið á, auk þess sem ekki hefir verið gert ráð fyrir neinum út- gjöldum vegna efnahagsráðstaf- ana. 567 millj. kr. til ríkisframkvæmda Svo sem undanfarin tvö ár fylgir nú með fjárlagafrumvarp inu sem fylgiskjal drög að fram kvæmdaáætlun ríkisins fyrir ár- ið 1971. En samkvæmt þeirri áætlun er af ýmsum ástæðum gert ráð fyrir að fjármagna með lánsfé vissar rikisframkvæmdir eða framkvæmdir, sem rikið, eðli málsins samkvæmt, hefir for- göngu um að afla fjár til. Þessi drög að framkvæmdaáætlun eru aðeins birt til þess, að Alþingi gefist, við meðferð fjárlaga, kostur á að sjá þau viðfangs- efni, sem rikisstjómin telur óum flýjanlegt að sinna, auk þeirra sem gerð er tillaga um i fjár- lögum, en hins vegar ekki ætlazt til neinnar formlegrar ákvörð- unar í þessu efni fyrr en í byrj- un næsta árs, þegar að venju mun verða leitað heimildar Al- þingis til fjáröflunar vegna framkvæmdaáætlunarinnar og fjármálaráðherra gefur Alþingi hið árlega yfirlit um þróun og horfur efnahagsmála og fram- kvæmda i landinu almennt. Sum ar þær framkvæmdir, sem hér er gert ráð fyrir að afla fjár til, þurfa líka nánari athugunar við og kann því að vera að fjár- veitingar til ýmissa liða verði nokkuð aðrar að lokum en hér er gert ráð fyrir. Hins vegar vantar um 70 millj. kr. til þess að endar náist saman í áætlun- inni og má því gera ráð fyrir, að annað hvort verði að taka sum- ar þessar framkvæmdir í fjár- lög sem beinar fjárveitingar eða að öðrum kosti draga úr fram- kvæmdum. Framkvæmdaáætlunin gerir ráð fyrir heildarframkvæmdum að fjárhæð 567.4 millj. kr. og er þá meðtalin lagning hraðbrauta 196 millj. kr., sem fjármagnaðar munu verða með láni frá Alþjóðabankanum, sem er þegar tryggt, en eðlilegt þykir að taka þessar framkvæmdir með i framkvæmdaáætlunina, þar sem þær eru fjármagnaðar með sér- stöku ríkisláni. Aðrar fram- kvæmdir nema samtals 339.6 millj. kr., en við bætist fjárþörf vegna framkvæmda á yfirstand- andi ári 31.8 millj. kr., þannig að samtals þarf að afia fjár til fyrirhugaðra framkvæmda að upphæð 371.4 millj, kr. Svo sem undanfarandi ár er gert ráð fyr ir að fjármagna framkvæmda áætlunina eftir tveimur leiðum, annars vegar með sölu spariskír teina og endursölu innleystra spariskírteina og hins vegar með PL-480 láni frá Bandarikjunum, sem þó er enn töluverð óvissa um á næsta ári. Er fjáröflun, eftir þessum tveimur leiðum, ráð gerð samtals 300 millj. kr. og vantar því rúmar 70 millj. kr. svo sem áður er nefnt til þess að endar tekna og gjalda i fram kvæmdaáætlun náist saman. Er það litið eitt hærri fjárhæð en SÍÐARI HLUTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.