Morgunblaðið - 22.10.1970, Síða 19

Morgunblaðið - 22.10.1970, Síða 19
MORGUNBLAÐEÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1970 19 Skattrannsóknir athuguðu 220 mál ! Framhald af blaðsíðu 14 fjár verður að minnsta kosti að vera með þeim hætti, að við för- um ekki með það af meira gá- leysi en eigin fjármuni. þingi, en sú tillaga náði ekki endanlegri afgreiðslu þingsins og hefur tillagan nú aftur verið lögð fram á þessu þingi og vænti ég þess, að Alþingi láti í ljós ein hvern vilja í málinu. Varðandi staðgreiðslukerfið er raunar um tvær meginstefnur að ræða. Ann ars vegar þá, sem felst í nefnd- arálitinu að reyna að aðlaga staðgreiðslukerfið núverandi skattkerfi í grundvallaratriðum óbreyttu, en hin aðferðin er sú, að leitast við að aðlaga skatt- kerfið að staðgreiðslukerfinu á þann hátt að staðgreiðslukerfið verði sem virkast og ekk'i óvið- ráðanlega flókið og umfangs mikið. Er ég persónulega þeirr- ar skoðunar, að kanna eigi alvar lega, hvort síðari leiðin sé fær, að breyta sjálfu skattkerfinu, áður en sú leið verður ákveðin, að innleiða staðgreiðslukerfið á grundvelli núverandi skattkerf- is, sem ég er hræddur um, að leiði til margvíslegra vandræða. Siðustu árin hafa ekki verið gerðar neinar stórvægilegar breytingar á hinni almennu skattalöggjöf, og hefi ég í fjár- lagaræðum áður tekið fram, að orsökin væri sú, að gera mætti ráð fyrir þvi, að einmitt stað- greiðslukerfið myndi leiða til veigamikilla breytinga á gild- andi skattkerfi, og væri því nauðsynlegt að sjá, hverjar þær breytingar yrðu, áður en hafizt yrði handa um almennar breyt- ingar á skattalögum. Það er hins vegar ljóst, að reynslan hefir sýnt, að sanngjamt er og nauð- synlegt að gera ýmsar breyting- ar á skattalögunum, varðandi skattgreiðslur einstaklinga, enda þótt það sé ótvírætt, að beinir skattar til ríkisins séu ekki háir hér á landi miðað við flest önn- ur nálæg lönd, enda tekjuskatt- ur og eignaskattur til ríkissjóðs hér aðeins um 10% af heildar- tekjum ríkissjóðs, sem er mun minna en í öðrum nálægum lönd um. Þótt ég sé því ekki þeirrar skoðunar, að tiltækilegt muni þykja að lækka almennt beina skatta, breytir það ekki því, að ýmissa iagfæringa er þörf á skattalögum. Þar sem augljóst er, að staðgreiðslukerfinu seinkar, þá var því ákveðið á s.l vori að fela skattamálanefndinni, sem sérstaklega starfaði að visu að skattamálum félaga, að taka til heildarathugunar nauðsynlegar lagfæringar, einnig á skatt greiðslum einstaklinga og þá m. a. hafa til hliðsjónar þær ábend ingar, sem fram hafa komið á A1 þingi í tillöguformi síðustu þing. Var ætlazt til, að þessum athug- unum yrði lokið svo snemma, að unnt yrði að leggja tillögur þess ar fyrir yfirstandandi Alþingi. Þá var einnig ætlunin að endur flytja aftur á þessu þingi frum- varp það um skattamál félaga, sem lagt var fram á siðasta þingi, en með þeim lagfæringum og end urbótum, sem síðar hafa verið á þvi gerðar, en þær breytingar varðandi skattamál atvinnufyrir tækja byggjast á þeirri megin- forsendu, að islenzkur atvinnu- rekstur vcrði skattalega séð ekki verr settur í samkeppni en atvinnurekstur annarra EFTA- landa. Þar sem um var að ræða veigamiklar breytingar frá gild- andi skattalögum, var talið nauð synlegt að sýna þetta frumvarp í lok siðasta Alþingis, án þess að þá væri hægt að vænta end- anlegrar afgreiðslu, enda fram tekið, að ýmsir þættir málsins væru ekki enn endanlega skoð- aðir ofan i kjölinn. Var því að- eins lögfest á síðasta þingi á- kvæði um fyrningar, sem tók gildi við skattlagningu í ár. Féll ust allir flokkar jafnframt á þau tilmæli mín, að skipuð yrði sér- stök milliþinganefnd fulltrúa allra flokka úr fjárhagsnefnd um Alþingis, sem ynni nánar að athugun málsins milli þinga og fengi til athugunar jafnóðum framhaldstillögur embættis- mannanefndarinnar, sem vann að undirbúningi málsins. Hér er um mikið verkefni að ræða, sem enn er ekki endanlega lokið, en stefna verður að, að fái lokaaf- greiðslu, áður en þessu þingi lýk ur. Um 500 bókhaldsskoðanir Vegna hækkunar söluskatts fyrr á þessu ári bar brýna nauð syn til að taka til rækilegrar endurskoðunar allt eftirlit með álagningu og innheimtu sölu- skatts. Hefir það mál allt verið í rækilegri athugun á undan- förnum mánuðum og var skatt- rannsóknastjóra falið að hafa yfirumsjón með innheimtukerf- inu um landið allt. Með ströng- um fyrirmælum ráðuneytisins til innheimtumanna um land allt varðandi skil á söluskatti má telja, að innheimta sé komin i mjög viðunandi horf víðast hvar. En hins vegar er ljóst, að aukins eftirlits er þörf, svo að þessi mikli skattstofn skili séi með eðlilegum hætti, sem er að sjálfsögðu höfuðnauðsyn. Hefur því nýlega verið sett mjög itar- leg reglugerð, þar sem kveðið er á um ýmis atriði til þess að auð- velda eftirlit með innheimtu skattsins og jafnframt er i und- irbúningi að setja sérþjálfaða menn í söluskatti á ýmsar stærstu skattstofurnar. Þá koma hér að haldi hin nýju bókhalds- lög, en yfirumsjón með fram- kvæmd þeirra er einmitt einnig í höndum skattrannsóknastjóra og hefir verið lögð rík áherzla á, að fá góða samvinnu við at- vinnurekendur um bókhaldslög- in og gera þeim grein fyrir gildi þeirra, ekki hvað sízt fyrir at- vinnureksturinn sjálfan og má kvæmni í rekstri Áfengis- og tóbaksverzlunar rikisins, enda hefir því alloft verið varpað fram í umræðum um verð- lagsmál, að reksturskostnað- ur þessa ríkisfyrirtækis sýndi, að ekki væri hægt að gera ráð fyrir að almennur verzlunar- rekstur í landinu gæti búið við þá álagningú, sem honum væri skammtaður. Þó að vísu þær ásakanir hafi ekki nema að tak- mörkuðu leyti verið réttar, þá var sýnt að með ýmsum aðgerð- um mátti auka hagkvæmni í rekstri þessa stóra fyrirtækis og hafa margvíslegar umbætur nú verið gerðar í góðri samvinnu milli ráðuneytisins og forstjóra fyrirtækisins. Skulu þær skipu- lagsbreytingar ekki raktar hér I einstökum atriðum, en mikilvæg- ast var að tryggja fyrirtækinu viðhlitandi húsnæði við skap- legu verði og var í því skyni á s.l. ári fest kaup á húseign fyrir áfengisdeild fyrirtækisins, og tók deildin til starfa i því húsnæði í síðastliðnum júlímán- uði, en áður hafði starfsemi þess arar deildar verið á fjórum stöð um í Reykjavík. Er áætlað, að með þessari ráðstöfun verði hægt að fækka starfsliði fyrir- tækisins um a.m.k. 20 manns og árlegur launasparnaður ætti að geta orðið yfir 4 millj. kr. Húsa- kaupin sjálf voru mjög hag- kvæm og spara fyrirtækinu tugi milljóna, miðað við þá nýbygg- ingu, sem ætlunin var að reisa yfir starfsemi Áfengis- og tóba ksverzl unarinnar. Um alllangt skeið hefir verið veitt sérstök fjárveiting í fjár- lögum til þess að byggja nýtt þvottahús fyrir rikisspítalana. Ákveðið hefur nú verið að falla frá þessarri nýbyggingu, þar eð tókst að festa kaup á hentugu húsnæði og má fullyrða áð sú ráðstöfun hafi sparað mjög verulegar fjárhæðir og geri auð ið að starfrækja þessa nauðsyn- legu þjónustu á mun hagkvæm- ari hátt en áður. Hlunnindi misnotuð Ég hefi oft áður í fjárlaga- ræðum vikið að nauðsyn ýtrustu hagsýni í meðferð ríkisfjár jafn- hliða mikilvægi þess að breyta viðhorfi borgaranna til ríkis- sjóðs og ríkisfjármuna yfirleitt. Þó margt hafi verið gert til úr- bóta i ríkiskerfinu þá er vitan- lega enn margt, sem má betur fara og má aldrei slaka á við- leitni í þá átt. Þvi miður er tor- velt að breyta viðhorfi almenn- ings til opinberra fjármuna, þótt vissulega beri að viðurkenna, að þar séu ekki allir undir sömu sök seldir, en fórnarlund gagn- vart þjóðfélaginu held ég að sé ákaflega takmörkuð. Allir þekkja viðhorfið til skattfram- tala, þótt verulega hafi á unnizt vegna aukins eftirlits. Yfirleitt á öllu að bjarga með framlögum úr ríkissjóði, en hver vill taka afleiðingunum með nýjum skatta álögum. Mikilvæg hlunnindi alltof oft misnotuð. Nýjustu dæmi þess efu atvinnuleysisbæt- urnar. Fötluðu fólki er veitt að stoð til að eignast bíl vegna vinnu sinnar. Hvað er ekki hægt að benda á mörg dæmi misnotk- unar? Enn er mönnum vafalaust í minni ótrúleg misnotkun í sam- bandi við niðurgreiðslu á verði neyzlufisks og tartafina, og þá ekki síður smáfiskuppbæturnar. Allar áttu þessar greiðslur út af yfrir sig rétt á sér en reyndust óihæfar vegna grófrar misnotk- unar. Svona mætti lengi halda áfram að nefna opinbera fjár- hagsaðstoð, sem er meira og minna misnotuð og leiðir þá til ranglætis í stað þess réttlætis, sem aðstoðinni er ætlað að stuðla að. Viðhorf til opinbers Starfsmat í undirbúningi Þá þykir mér rétt að víkja nokkrum orðum að kjaramálum opinberra starfsmanna. Sam- komulag varð um það milli ríkis stjórnarinnar og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja fyrir tveimur árum siðan, að reynt skyldi að byggja kjarasamninga á svoköliuðu kerfisbundnu starfsmati. Unnið hefir verið svo að segja látlaust síðan að undirbúningi þessa starfsmats, en þetta viðfangsefni reyndist miklum mun erfiðara og flókn- ara en menn höfðu í upp- hafi gert sér grein fyrir. Átti kjarasamningum raunverulega að vera lokið um siðustu ára- mót, en þá var starfsmatinu það skammt komið, að samkomulag varð um það að halda því áfram og fresta endanlegri samnings- gerð þar til um næstu áramót. Er þetta mál því að komast á lokastig og skal ég ekki gera einstök atriði að umtalsefni, en komið hefur glöggt í ljós, að skipulegt starfsmat er ekkert sjálfgefið kerfi, heldur getur þar margt upp komið, sem orkar tvimælis, en segja má að grundvallaratriði sé þó að gera sér grein fyrir því, hvað menn telja rétt að launamismunur sé mikiil í starfskerfinu, en hann er nú mun minni hér en í flest- um eða öllum nálægum löndum, og hafa afleiðingar orðið þær, að mjög erfitt er að fá menn í topp stöður. Mikil óánægja hefur ris- ið meðal háskólamenntaðra manna og jafnvel ýmsir starfs- hópar, svo sem læknar og verk- fræðingar hafa í rauninni brot- izt undan launakerfi ríkisins. Hitt verður jafnframt að hafa i huga, að veruleg tregða er hér- lendis á að hafa mjög mikinn launamismun, þannig að hér er vissulega vandratað meðalhófið. Þá er því heldur ekki að leyna að mikil óánægja er með núver- andi skipan samningsréttarmál- anna, einkum meðal háskóla- manna, sem flestir hverjir hafa sagt skilið við Bandalag starfs- manna ríkis og bæja og myndað sín sérstöku samtök, sem krefj- ast samningsréttar. Mun niður- staða samninga nú vafalaust hafa veruleg áhrif í þá átt, hvort hægt verður að ná sam- komulagi um samningsaðildina. En almennt er það um starfsmat- ið að segja, að það er engum efa bundið, að það væri til mik- ilia bóta, ef hægt væri að fá sam komulag um starfsmat, sem til frambúðar væri hægt að leggja til grundvallar við hlutföll í launum opinberra starfsmanna og gæti það orðið öðrum starfs- hópum i þjóðfélaginu til eftir- breytni. Lögin um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna hafa verið í endurskoðun. Er þeirri endurskoðun nú lokið og málið til athugunar hjá rikis- stjórninni og má vænta þess, að frumvarp um þetta efni verði iagt fyrir yfirstandandi þing. Athuganir á skattakerfinu Víðtækar athuganir fara nú fram á öllu skattkerfinu. Stað- greiðslukerfisnefndin, sem Al- þingi kaus samkvæmt þingsálykt un, sem rikisstjórnin lagði fyrir Alþingi 1967, lauk störfum á s.l. ári og skilaði mjög ítarlegu nefndaráliti. Kom það glöggt í ljós, að málið var miklum mun flóknara heldur en margir höfðu gert sér i hugarlund, og taldi ég þá rétt að leita enn viijayfirlýs- ingar Alþingis um það, hvort haldið skyldi áfram undirbún ingi að því að innleiða stað- greiðslukerfið og þá með hverj- um hætti. Var því þingsályktun- artillaga lögð fram á síðasta Nýkomiö midi-kjólar, maxi-kjolar, midi-pus, maxi-pils, regnkápur, regnfrakkar. Landsins mesta og bezta úrval af peysum. POP-HÚSIÐ, Grettisgötu 46. VOY

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.