Morgunblaðið - 20.02.1971, Side 1
28 SÍÐUR
42. tbl. 58. árg.
LAUGARDAGUR 20. FEBRUAR 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Harka færist 1 launa-
baráttuna í Svíþjóð
— foringjar í hernum settir í verkbann
Enn er klakabundin grnnd og ljó sgeislar sólarinnar stirna á svell-
um. En með hverjum degi hækkar sólin á himni og eftir rúma
þrjá mámiði verða skrautblóm sir larsins komin í þá reiti á Aust-
urvelli, sem á myndinni eru þaktir klaka. (Ljóson. Mbl. Ól.K.M.)
Stokkhðlmi, 19. febr., NTB, AP.
SÍÐARI hliita dagsins í dag,
voru þeir um 43 þúsund í Sví-
þjóð, sem ekki mættu til vinnu,
annað hvort vegna þess að þeir
voru í verkfalli eða vegna þess
að verkbann stjórnarinnar náði
til þeirra. Baráttan virðist stöð-
ugt harðna, og í skeyti frá NTB
segir að mikill f jöldi háttsettra
foringja í hernum, hafi verið
settir í verkbann, þar sem þeir
tilhéyri Samtökum rikisstarfs-
manna.
Öll kennsla í æðri skólum Svi
þjóðar liggur niðri, þar sem verk
bannið nær til um 25 þúsund
kennara, og um 700 þúsundnem
endur eru því kennaraiausir.
Átökin hófust 5. febrúar síðast-
liðinn, þegar Samband háskóla-
menntaðra manna og Samtök
ríkisstarfsmanna hófu verkföll
til að knýja fram 22 prósent kaup
hækkun. Ríkisstjórnin hafði þá
þegar boðað að hún myndi gripa
til gagnaðgerða og m.a. beita
verkbönnum. Hefur svo hvað
rekið annað, starfshópar hafa
farið í verkföll, ríkisstjóniin sett
verkbönn, aðrir starfshópar hafa
farið í hálfgerð samúðarverkföll
Stórorrusta á Ho Chi
Minh-stígnum í Laos
Mikið mannfall á báða bóga
IÞyrlum mætt með geysilegri
loftvarnaskothríð
Saigon, 19. febr. — AP
FYRSTA stórorrustan milli lier
sveita Norður-Vietnams og Suður
Vietnams í Laos, hófst í dag með
harðri árás Norður-Vietnama á
stórskotaliðssveit S-Vietnams, um
20 km fyrir innan landamærin.
N-Vietnamar beittu sprengju-
vörpum, eldflaugum, fallbyssum,
þungum vélbyssum og handvopn
um í árásinni, og er mannfall S-
Vietnama sagt mikið.
Loftvarnaskothríð var svo hörð
að bandarískar þyrlur sem komu
til að sækja særða, urðu frá að
hverfa, og kom það á óvart
hversu öflugar loftvarnasveitir
N-Vietnama hafa á þessu svæði.
Árásarþyrlur gerðu harðar árásir
á stöðvar N-Vietnama, og var
mætt með mikílli skothríð.
Talið er það sé heilt herfylki
N-Vietnama sem gerir þessa á-
rás, og að annað herfylki sé á
ieiðinni til aðstoðar. Má því bú-
ast við miklum og hörðum átök-
um á þessum slóðum næstu daga
því að mikiii áherzla verður lögð
á að rjúifa umsátrið uim stórákota
liðssveitina.
Þetta er fyrsta stórorrustan
sem slegið hefur í, síðan hersveit
ir S-Vietnams sóttu inn í Laos,
í tilraun til að loka Ho Chi Minh
stígnum svonefnda en um hann
flytja N-Vietnamar innrásarsveit
ir sinar og hergögn, til annarra
landa í Indó Kína. Víða hefur
slegið í harða bardaga, en þeir
hafa jafnan verið skammvinnir,
og mannfall ekki mikið.
Ho Chi Minh-stígurinn, getur
varla talizt réttnefni því hér er
ekki um að ræða neinn þröngan
götuslóða, heldur er hann sums
staðar allt að 30 km breiður. —
Talið er að N-Vietnam hafi yfir
að ráða um 12000 stórum trukk
um til vöruflutninga, og fær
landið um 350 nýja á mánuði,
frá Rússlandi. Um 2000 þess-
ara trukka eru jafnan við flutn-
inga á hersveitum og hergögnum
i Laos.
Lunokhod
Tilmæli Sovétstjórnarinnar: j StftllZftr
Bannið heimsþing
Gyðinga í Belgíu
Moskvu, 19. febrúar. NTB.
ÞAÐ varð kunnugt af hálfu Sov
étstjómarinnar í dag, að hún
hefði farið þess á leit við belgisk
stjómarvöld, að þau létu leggja
bann við þvi, að heimsþing Gyð-
inga yrði haldið í Brussel. Sam-
timis var lýst yfir óánægju njeð,
að belgísk stjómarvöld liefðu
ekki orðið við þessum tilmælum.
í stjórnaryfiriýsimgu, sem birt
vair ®f fréttastofumni TASS,
sagði, að það vekti undrun, að
belgiska stjórnin hefði ekki þrátt
fyrir ti’lmæli gert neitt til þess
að koma í veg fyrir þetta heims-
þinig Gyðinga, sem greiniliega
yrði fjandsamQiegt Sovétríkjun-
usm.
Þessi afstaða Belgíu væri í and
stöðu vsið þann ahda, sem mótaði
samskipti BeJgíiu og Sovétríkj-
arnnia g væri eininig í andstöðu
við þá viðleitni, sem bæði þessi
ríki hefðu laigt af mörkum til
þess að efla gagnkvæmt traust
og vináttu sin í milli á uindam-
fönnium árum.
Moskvu, 19. febr. NTB
* RtJSSNEKI tunglbíllinn Lun-
I okhod hefur nú lokið hlut
) verki sínu að sögn Tass frétta
l stofunnar. Ýniis vísindatæki
hans starfa þó ennþá, og i
I verður haft samband við liann
| áfram um óákveðinn tíma.
Lunokhod lenti á tunglinu
1 nieð Lúnu 17, hinn 17. nóvem
sl. og hefur síðan ekið vítt
I og breytt um tunglið, og alls
Iagt að baki rúma fimm km.
Honum var f jarstýrt frá jörðu
I á ökuferðunum, og eru sovézk
ir visindamenn að sögn mjög
I ánægðir með árangurinn.
vegna þess, og rikisstjórnin hef-
ur svarað með ehn frekari verk-
bönnum.
Á bíaðamarmafunduim hafa að
vonum verið bornar fram sakir
og gagnsakir. Karl-Lennar
Oggla, formaður samninganefnd-
ar ríkisstjórnarinnar, sagði t.d.
að eini tilgangurinn með verk-
bönnunum væri sá að koma sem
fyrst hreyfingu á samningavið-
ræðumar, og að verkfallsfólkið,
sem berðist fyrir hagsmunum
hálaunamanna, hefði valdið
miklu raski á þjóðlífinu, og gæti
orðið til þess að þúsundir ann-
arra misstu atvinnuna.
Bertil Östergren, formaður
samninganefndar háskólamanna,
segir að samtök hans geti hald-
ið út verkfall a.m.k. til fyrsta
apríl. Hann kvaðst vona að deil
an leystist fyrir þann tíma, en
kvað það komið undir afstöðu
vinnuveitenda. Östergren sagði
og að það væri einstök hræsni,
þegar stjórnmálamenn og aðrir
leiðtogar, sem hefðu 100 þúsund
sænskar krónur i árslaun réð-
ust með skömmum á fólk sem
hefði frá 30 til 60 þúsund króna
árslaun, og kölluðu kjarabaráttu
þess baráttu fyrir hagsmunum
hálaunamanna. 1 gær (fimmtu-
dag) var haldinn samningafund-
ur, en enginn árangur varð á
honuim og annar hafur ekki ver-
ið boðaður.
Sovézkur vísinda-
maður horfinn
Vann við kjarnorkurann-
sóknir í Sviss
Gemlf, 19. ífiebr. — NTB.
SVISSNESKA lögreglan leitar nú
sovézks kjarneðlisfræðings, sem
er horfinn ásamt konu sinni og
tveimur börnum þeirra.
Lögreglan i Genf fékk fyrir
tveimur dögum tilmæli frá sov
ézka sendiráðinu í Genf þess efn
is, að hafin yrði leit að vísinda-
manninum, dr. A. Vaghin. Hafði
hann starfað við aðalstöðvar
Kjarnorkumálastofnunar Evrópu
(CERN) í eitt ár á vegum
sovézku kjarneðlisstofnunarinn-
ar í Serpukhov, sem er fyrir sunn
an Moskvu.
Talsmaður CERN hefur skýrt
svo frá, að Vaghin hafi farið i
mánaðarfrí fyrir fimm vikum, en
síðan ekki látið heyra frá sér.
CERN og kjarneðlisstofnunin í
Serpukhov hafa gert með sér
samkomulag um, að CERN
smíði tæki fyrir sovézku kjarn-
eðlisstofnunina gegn því, að vest
ur evrópskum vísindamönnum
gefist kostur á að gera vísindatil
raunir i Serpukhov.
Svissnesk stjórnvöld segjast
ekkert um Vaghin vita. Kunnugt
er þó, að hann hafði vegabréfs-
áritun til Frakklands, sem var
í gildi til 10. marz og benti tals
maður svissnesku lögreglunnar
á, að það væri aðeins tveggja
mínútna akstur frá aðalstöðvum
CERN til frönsku landamær-
Lockheed vonast til
samkomulags um
rekstur RollsRoyce
London, 19. febrúar, AP.
LOCKHEED-flugvélaverksmiðj-
urnar bandarísku ætla að biðja
þau flugfélög sem pantað höfðu
Tristar-þotur þeirra, að bíða
nokkrar vikur og sjá til hvort
ekkl verði hægt að komast að
samkomulagi um að framleiða
þotuhreyfla fyrir vélina. Það
vom brezku Rolls Royce verk-
smiðjurnar sem liöfðu fengið
það verkefni, en þær eru nú
gjaldþrota — meðal annars
vegna þess hve kostnaður við
hreyfilinn fór langt fram úr á-
ætlun — og brezka ríkisstjórn-
in hefur þjóðnýtt þær að hluta.
Lockheed á í eigin fjárhags-
vandræðum vegna þess að síð-
ustu þrjú stóru verkefnin sem
félagið fékk frá varnarmálaráðu
neytinu bandaríska fóru langt
fram úr kostnaðaráætlun, og tap
verksmiðjunnar nemur mörg
humdruð milljóniuim dollara.
Lockheed hafði vonað að Trist
ar-þotan gæti rétt fjárhaginn
við, og það var þvi mikið áfall
þegar tilkynnt var um gjaldþrot
Roils Royce. Var þegar sagt upp
þúsundum starfsmanna, þvíljóst
var að ef ekki tækist að fá þotu
hreyfilinn, og það á rétutm tima
væri fyrirtækið orðið gjaldþrota.
Miklar samningaviðræður hafa
átt sér stað síðan tilkynnt var
um gjaldþrot Rolls Royce, milli
brezkra og bandariskra aðila.
Sagði talsmaður Lockheed í dag,
að hann væri mjög vongóður um
að samkomulag næðist um áfram
haldandi framleiðslu Rolls Royce
á hreyflinum. Hreyfill þessi er
kallaður RB211, og er sagður
tæknilegt meistaraverk, eini gah
inn sé hversu langt kostnaður
hafi farið fram úr áætlun.
Handtekinn
fyrir morð
Dallas, Texas, 19. febrúar
AP.
MEIRA en 60 lögregluþjónar
gerðu í dag atlögu að Adolpho
Guzman í íbúð einni í Dallas i
Texas og handtóku, en hann er
ákærður um að hafa skotíð
þrjá lögregluþjóna í Vestur-
Dallas sl. mánudagskvöld.