Morgunblaðið - 20.02.1971, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1971
ísaf jörður:
Forseti bæjarstjórnar
segir af sér
FORSETI bspjarstjörnar fsafjarð
ar, Björgvin Sighvatsson, hefur
sagt af sér störfum sem forseti
bæjarstjórnarinnar, að því er
skýrt er frá í Alþýðublaðinu í
gær. Mbl. leitsiði frétta um þetta
mái hjá Högna Þörðarsyni bæj
arfulltrúa á ísafirði, en hann
hafði þá ekkert um það heyrt,
né heldur tveir fréttaritarar Mbi.
á staðnum. Högni sagðist hafa
setið bæjaráðsfund hinn 17.
febrúar og liafi þá ekkert verið
á þetta minnzt. Afsagnarbréf
Björgvins, sem Alþýðublaðið
birti er og dagsett þennan sama
dag.
Högni Þórðarson lýsti undrun
sinni á þessu máli — fulltrúum
í bæjarstjóm væri ekki tilkynnt
um afsögnina áður en bréfið
væri birt opinberlega, en hér
væri þó um sýnilega uppgjöf að
ræða og aðeins staðfesting á því,
sem áður hafi verið fullyrt um
að meirihluti vinstri flokkanna
hefði hlaupið frá vandanum og
þeirri ringulreið, sem hann hefði
stefnt bæjarfélaginu í. Afsagn-
arbréf Björgvins Sighvatssonar
fer hér á eftir:
„Isafirði, 17. febrúar 1971.
Til Bæjarstjórnar
Isafjarðarkaupstaðar,
ísafirði.
Ég hefi orðið þess greinilega
var síðustu vikumar, að ýmsir
bæjarbúar á'líta, að forseti bæj-
arstjórnarinnar hafi eða geti haft
meiri áhrif og afskipti af stjórn
Kjarnakljúfur
Vestur-Evrópu
Genf, 19. febrúar. NTB.
TÍU Evrópulönd komust í dag
að samkomulagi um að byggja
í sameiningu risavaxinn kjarna-
kljúf, þar sem m.a. verður beitt
geysilegri orku til þess að
kljúfa rafeindir og aðra slíkar
frumagnir. Með þessari fram-
kvæmd er vonazt til þess, að
Vestur-Evrópa verði á forystu-
sviði á vettvangi kjameðlisfræð
innar um langa framtíð.
Bygging fyrirhugaðs kjarna-
kljúfs hefur verið í deiglunni
árum saman vegna deilna um
kostnaðinn af henni og hvar
kjarnakljúfurinn skuli vera.
Málið var á dagskrá Kjamorku
rannsóknarstofnunar Evrópu
(CERN) í dag og gaf brezki
fulltrúinn, Sir Brian Flowers,
þar bindandi loforð um þátt-
töku í framkvæmdinni. Sir
Brian sagði eftir fundinn í dag,
að Bretar hefðu tekið ákvörðun
um að taka þátt í byggingu
kjarnakljúfsins, eftir að Sví-
þjóð, Noregur og Holland höfðu
lýst yfir þátttöku sinni.
Kjarnakljúfurinn verður reist
ur í grennd við borgina Genf í
Sviss.
Blaðaskákin
TA - TR
SVART. Taflfélag Reykjavíkur,
Jón Kristinsson og
Stefán Þormar Guðmundsson
og framkvæmdum bæjarfélags-
ins en aðrir bæjarfulltrúar.
Þrátt fyrir það, að þessi skoð-
un ýmsra bæjarbúa er á mis-
skilningi byggð og á sér auk
þess alls enga stoð í reynd, tek
ég visst tiillit til hennar, og vil
ég því ekki að nauðsynjalausu
vera talinn meðábyrgur fyrir
því, sem síðustu vikurnar og nú
er að gerast í hagsmuna- og
framfaramálum bæjarfélagsins.
Með tilvísan til framanritaðs
vil ég jafnframt mjög ákveðið
árétta þá afstöðu mína og láta
hana koma sem greinilegast
fram, að ég vi'l ekki, hvorki beint
eða óbeint, vera bendlaður við
þá vafasömu og stefnulausu
framvindu bæjarmálanna, sem
átt hefir sér stað allt frá þeim
tíma á sl. hausti, að ábyrg sam-
staða vinstri flokkanna um
stjórn bæjarmálefna Isafjarðar
rofnaði.
Af framangreindum ástæðum
tilkynni ég hér með háttvirtri
bæjarstjórn Isafjarðarkaupstað-
ar eftirfarandi:
Frá og með 20. þ.m. segi ég
af mér sem forseti bæjarstjórn-
arinnar og mun ég því ekki
gegna forsetastarfinu það sem
eftir er af kjörtíma mínum, þótt
ég að sjálfsögðu mæti áfram á
fundum bæjarstjómarinnar.
Ég óska þess ákveðið, að þetta
bréf mitt verði inníært orðrétt í
fundargerðarbók bæjarráðs.
Virðingarfylist,
Björgvin Sighvatsson.“
abcdefgh
HVÍTT: Skákfélag Akureyrar,
Guðmundur Búason og
Hreinn Hrafnsson
18. Rd4xRe6
Skerðing á list-
frelsi McCartneys
— fái hann ekki sagt skilið
við hina Bítlana
London, 19. febrúar — NTB
1 DAG var lesin upp yfirlýs-
ing frá Paul McCartney í
hæstarétti í Bretlandi, þar
sem sagði, að svo lengi sem
hann væri neyddur til þess að
vera í félagi við hina Bítlana
þrjá, væri mikil hætta á
skerðingu listræns ferils sins.
Það var lögfræðingur Mc
Cartneys, David Hirst, sem ias
þessa yfirlýsingu upp, er þing-
að var í máli þvi, sem nú fer
fram til þess að leysa upp
hljómplötufyrirtæki það, er
Bítlamir eru sjáifir aðilar að
og hefur gefið út piötur
þeirra.
Hver af Bíthmum á 5% í
hljómplöt'utfyri'rtækiirau, eirt um
boðsfélag þeirra, Apþle Corps
Ltd., sem einsnig er stefnt að
því að leysa upp, á 80%.
inigi þeim, sem gerður hefði
David Hirst sagði eninifrem- verið meg Bittaum. Nú væri
ur. að McCartney liti svo á, ixiargt fyrir hendi, er benti til
að eigmir hljómplötufyrirtæk- að ekki væri n6g m ;
isins væru í hættu og að for- sjóði tii þesis að greiða slcaitt-
stjóri þesis, Bandar-i'kjamaður- slculdir- Bítlainna hveris um sig.
inn Kleiin, hefði á sér svo t>;i Væri svo langt um liðiið,
slæmt orðspor, að McOartney siða81 Fiítlarnir hefðu siungið
gæti eklki treysit homum. jj*, á hljómplötu saman, að
Klein hefði verið gerður að grundvöQllurinn fyrir hljóm-
forstjóra hljómpilötuifyrirtæk- plötufyrirtækinu væri fyrir
isins árið 1969, þrátt fyrir það löngu failllinn brott.
að McCartney hefði verið þvi Máli þessu er haldið áfram
eindregið mótfaiHinn, og sú og er búizt við, að það muni
ráðstöfun verið and-stæð samn taka sex daga.
Kyndilmessa
Ljóðabók eftir Vilhorgu
Dagb j artsdóttur
Paul McCartney með dóttur
sinnL
HELGAFELL hefur sent á
markað ljóðabók eftir Vilborgu
Dagbjartsdóttur, er nefnist
Kyndilmessa. Þetta er fimmta
bók Vilborgar, sem er Seyð-
firðingur að uppruna, en þar
eystra er kyndilmessa mikill
dagur. Bókinni er skipt í 4
kafla: Kyndilmessu, ^jcamm-
degisljóð, Önnur ljóð og loks
Þýdd ljóð. Bókin er 70 blaðsíð-
ur.
Á baki bókarkápu segir Vil-
borg Dagbjartsdóttir um • heiti
bókarinnar: „Heima á Hjalla á
Vestdalseyri er kyndilmessa sól-
arhátíð og þann dag drukkið
sólarkaffi, því blessuð sólin
sneri aftur eftir langa fjarveru.
Hún kom fyrst að Fossi, sem
stóð ,,hænu'ííeti“ ofar í hlíðinni,
en daginn eftir, á sjálfa kyndil-
messu, skein sólin nákvæmlega
tvær mínútur á húsið heima. Þá
stóð fjölskyldan á tröppunum
böðuð í sólskini, en síðan var
opið hús og V estdaLseyrinigar
fengu kaffi og sólarlummur."
Bókin er prentuð í Víkings-
prenti, en bókarkápu gerði
Erna Ragnarsdóttir.
Kosið í Iðju í dag
í DAG hefst stjórnarkjör í
Iðju, félagi verksmiðjufólks í
Reykjavík, og lýkur því á
morgun. Fer kosningin fram í
skrifstofu Iðju, Skólavörðu-
stíg 16, og stendur kosningin
frá kl. 10—19 í dag, en kl.
10—21 á morgun, sunnudag.
B-listinn í Iðju er borinn
fram af stjórn og trúnaðar-
manna ráði félagsins og er
kosningaskrifstofa hans í
Skipholti 19 (Röðli), símar
20895, 20916, 25980 og 25981.
B-listann skipa eftirtaldir að-
ilar:
Formaður Runólfur Pétursson,
Iðju, varaformaður Guftmiu'nóur
Þ. Jóusson, Opal, ritari Bjami
Jakobsson, Axminsiter, gjaldíkjeri
Gísili Svanbergssan, Ölgerðin,
meðstjórnendur Krisrtán Hjörvar,
Sildarrétitir, Ragnheiður Sigurð-
ardóttir, leðurverfkst. Víðimel og
Klara Georgsdófttir, Borgarþvotta
húsi. Varastjóm: Guðmundiur
Guðni Gu ðmundsson, Víðí,
Sfteiini S. Þorsteinsson, ísaga,
Herberg Kristjánsson, Áiafossi.
Endurakoðendur: Jón Bjömsson,
Vifilfeili, Gunnllaugur Einarsson,
Haimpiðjunni. Varaendurskoð-
andi: Ólaifur Páhnason, Hamp-
iðjunni.
Framhald á bls. 20
Fiskifélag Islands
60 ára
ÞENNAN dag fyrir 60 árum
var Fiskifélag Islands stofnað
eftir alllangan aðdraganda. Til-
gangur félagsins var orðaður
svo við stofnun þess, að það
ætti að styðja og efla allt það,
er verða mætti tii framfara og
endurbóta í fiskveiðum íslend-
inga.
Fyrstu stjórnina skipuðu for-
seti Hannes Hafliðason, skip-
stjóri, varaforseti Tryggvi
Gunnarsson og aðrir í stjóm
Magnús Magnússon, Geir Sig-
urðsson, Matthias Þórðarson og
Jón Magnússon, allt landskunn-
ir menn. Núverandi stjóm skipa:
forseti og jafnframt fiskimála-
stjóri Már Elísson, hagfræðing-
ur, varafiskimálastjóri Þorsteinn
Bílvelta í
Ártúnsbrekku
FULLORÐIN kona og 10 ára
sonur hennar sluppu að mestu
ómeidd, þegar bfll, sem konan ók,
lenti út af veginum í Ártúns-
brekku í gær. Bíliinn valt niður
7—8 nietra iiáan kant og stór-
skemmdist. Konan hlaut skrámu
á fæti og drengurinn meiddist
einnig á fæti, en þó ekki alvar-
lega.
Óhappij varð, þegar konian
hugðist dnaiga úr ferð bilsins nið-
ur brekkuna, sem var flughál.
Rann billili'nn þá bemt til vinstri
út af veginum og vaílt svo niður
vegkantinn, eins og áður segir.
Gíslason, skipstjóri og aðrir £
aðalstjórn Margeir Jónsson,
Einar Guðfinnsson, Ingvar Vil-
hjálmsson og Emil Jónsson.
Erindreki Sam-
einuðu Bíblíufé-
laganna á
ferð hér
UM ÞESSA helgi kemur í heim-
só'kn hingað til Hins ísl. Biblíu-
félags, erindreki Sameinuðu Bibl
íulféliaganina, sr. Svenre Smaa-
dahl, seim áður hefur kornið hér
tvívegis — 1968 og 1969 —■ til
viðræðna við stjóm Bibiíufélags-
ins og til að kynna hér starf-
semi Sameinuðu Bibliufélaganna.
— Að þessu sinni mun hann
halda fyrirlestur í Félagi guð-
fræðinema í Háskóla Islands,
hitta að máli ianda sína —
nionslku stúdenitana — sem hér
stunda háskólanám, prédika við
guðsþjónustu í Dómkirkjunni á
sunnudagtsmorgun kl. 11, sitja
fund stjórnar Hins ísL Biblíufé-
lags í Biskupsgarði síðdegis á
sunnudag og tala um kvöldið kl.
20.30 á almennri samkomu á veg
um Biblíufélagsins i húsi KFUM
og K, Amtmannsstig 2 B, um
starfsemi biblíufélaganna að út-
breiðslu Biblíunnar í Austur-Evr
ópu-löndunum. Hann heldur aft-
ur utan á mánudagsmorgun 22.
þ.m.
Bíllinn eftir veltuna.
Skólaútvarp
NORRÆNA húsið genigst fyrir
kynniinigu á skólaútvairpi á Norð-
uirlönduim í Norrænia húsiiniu
siamniudaigimn 21. febrúar JcL
20.30.
Guðbjartur Gummairsison benin.-
airi, sem hefur kymnt sér niotlkum
fj öilmiðiiuiraartækni 1 skóluan er-
iendis, og þá sérstaklega skóla-
sjónivarp, miun ræða um kemmsiiu-
tækni aiknennt og fn'aimifcíðantiorf-
ur í þeiim efniuim.
Einmig verðUT sýind stutt kvilk-
mynd.
Sýnirag á bókuim og öðnu efm
í saimbaindi við skólaú tvarp í
Danmörku, Fiinnlliaindi, Nonegi og
Svíþjóð hefur verið sett uipp í
anddyri Norræna hússiino. Suim
ir bækil kmgarwna einu einmilg æitlað-
iir tifl. dneifinigaT meðal gesáa.