Morgunblaðið - 20.02.1971, Síða 24

Morgunblaðið - 20.02.1971, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1971 • • 18 • • ið fróðlegt að vita, hve mörg eru eftir i henni . . . Hann tók að telja hylkin og lagði þau á dragkistuna eitt og eitt. — Þrjátíu og fjögur, sagði hann, er hann hafði lokið taln- ingunni, — það væri rétt að fara með þau til Lydenbridge og láta Newsham líta á þau. Hann snarstanzaði, er hann kom auga á pappírsmiða á botn- inum á öskjunni. Hann athugaði hann vandlega stundarkorn gekk siðan til Jimmy og rétti honum blaðið. — Lítið þér á þetta, sagði hann. Jimmy gerði það. Á mið- ann var ritað með sterklegri karimannshönd: ,,good sport, Ben“. 5. kafli Jimmy rétti miðann að Apple yard, sem stakk honum i veskið CORTINA1971 ^HR.HRISTJÁNSSÖNHi SúDOBLANDSBgAUT 2 S>V i b) 00 sitt. — Þú segist ekki vita, hver sendi Caleb þessi skot, Horn- ing? sagði hann kæruleysislega. — Nei, ég er hræddur um, að ég viti það ekki, svaraði Horn- ing, — en ég man þegar þau komu. Það var eitt föstudags- kvöld, að bílstjórinn kom með böggul til hr. Calebs og sagði að flutningsgjaldið væri þrjú pens. Ég náði í peningana og þegar Caleb kom inn að borða, fékk ég honum böggulinn. Hann opn- aði hann að mér ásjáandi, og þetta var askja með Nimrod-skot hylkjum. Þetta hýtur að vera sama askjan, ef mér ekki skjátl- ast. —Sagði Caleb nokkuð, þeg ar hann sá, hvað var í böggl- inum? —Nei, hann sagði nú ekki margt. Sagðist bara ekki hafa pantað þau, en hr. Newsman hlyti að hafa sent honum þau til reynslu. Og sagðist ætla að reyna að geyma þau þangað tii akurhænutíminn hæfist. — Manstu hvernig böggullinn var áritaður? — Að því er ég bezt man var böggullinn í umbúðapappír og krossbundinn og heimilisfangið skrifað á hann: „Hr. Caeib Glapthorne, Farningcoteklaustri. — Heldurðu að þú gætir fundið þessar umbúðir? — Ég er hræddur um ekki. Það er sjálfsagt búið að brenna þeim fyrir löngu. — Jæja, það gerir nú ekkert til. En geturðu sagt okkur, hvar Benjamín er staddur núna? — Hann er sjálfsagt um borð i skipinu sínu. En hvar það kann að vera statt hef ég enga hugmynd um. — Kannski hr. Símon viti það? — Það þætti mér óliklegt, svaraði Horning. — Hr. Símon hefur lítinn áhuga á slíku. En ég er hér um bil viss um, að ungfrú Joyce mundi vita það, ef þér vilduð spyrja hana. — Er hún hérna enn? spurði Appleyard. — Nei. Hún lagði af stað héð- an þegar ég fór að koma herra Símoni í rúmið um klukkan níu í gærkvöld. Appleyard sneri sér að Jimmy. — Jæja, það er nú víst ekki miklu meira hér að gera, sagði hann. — Við skulum fara aftur að turninum, aka hér um, taka hina byssuna og skotin og fara svo aftur til Lyndenbridge. Þeir gerðu svo. En þegar þeir sátu í bílnum á leiðinni til lög- relgustöðvarinnar, veik Jimmy aftur talinu að skotunum. — Þetta pappírsblað gæti haft þýðingu, sagði hann. — En svo er annað eftirtektarvert. Þér tölduð skotin og þau voru þrjá- tíu og fjögur. Og á undan vor- um við búnir að finna sex not- uð skothylki í móanum. Það eru fjörutíu. Þar við bætast þau sem voru í tösku Calebs og eitt, sem Newsham dró út úr vinstra hlaupinu, það eru fjöru- tíu oig níu. Þá er aðeins ógerð grein fyrir einu skoti af þeim fimmtíu, sem i öskjunni voru. Þá er það rökrétt að halda, að það fimmtugasta hafi sprengt byssuna. — Við skulum heyra álit Newsham á þessum þrjátíu og fjórum skotum, sagði Apple- yard. — Við förum framhjá hon um á leiðinni á lögreglustöðina, og skulum skilja eftir skotin og hina byssuna hjá honum. En í bili stendur málið eins og hér segir: Caleb fær senda öskju með skotum í frá bróður sínum, sem lætur miða fylgja, þar sem honum er óskað „good sport“ — góðrar veiði. Og þar sem þessi skot eru betri tegundar en þau venjulegu, geymir Caleb sér þau til akurhænuveiðanna. Þann 1. september tekur hann sextán þeirra úr öskjunni og læt ur þau í töskuna sína. Skýtur sex þeirra og nær í tvær akur hænur og eina kanínu. En þegar hann hleypir því sjöunda af, springur byssan og ríður hon- um að fullu. Eruð þér á sama máli, það sem komið er? — Já, fullkomlega, svaraði Jimmy. — Þetta liggur í augum uppi. — Rétt. En nú skulum við ganga feti lengra. Kunnáttu- maður á borð við Newsham, segir okkur að þessi sprenging hafi ekki getað orðið fyrir til- viljun. Við erum á einu máli um, Aðeiits f y r i r eiginm e n n ‘xbjjs BJBq npSuijji •jsuSSnjo ja qecl '0SS8C J13 JRqijo uuiuiis >m»sy •i§0p Rjpijs uinssa^ r ntq jj0qq0 g-e as jS3n -jq oas ‘muuious nSqu BJotysitqnSpj qia punq -UIRS RJRq QB UIUQJ0A QIA IAC[ ‘BJUBCl So (pjOAq I 08 S2 'R m uuruiis QIA uinj0 qia) jr -qqo pj §np i jbSoíJ BfSuijq qr 3ic[ qia uinfQtq ‘qij nqæj i nss0c[ uinúu qia qb qs jSSnjo qb oAg íij uuRq uinnq qta ua ‘QiQ.ioq b uuijbui uaq JiujiuuauiutSia qr ns ja uipuAui -Snn 'uutjBuisiSapisq gaui pj uindjBfq 3o rnn -uuouiuiSia uiuqoS uinqq qoui Qq i qta uinSuoS ssac[ iuj0|ij j — 'uuunSRpnuoq ja uuSjoui y Hrúturinn, 21. marz — 19. april. Nú er allra veðra von og eins gott að þú takir á honum stóra þínum. Nautið, 20. apríl — 20. mai. Nú gefst þér langþráð tækifæri til að létta þér upp. Tvíburarnir, 21. niaí — 20. júní. Sjálfsagt aS gera ekki ráð fyrir hinu versta. Krabbinn, 21. júní — 22. júli. Reyndu að heimsækja ættingja sem þú hefur ekki séð lengi. Þeir munu gleðjast við komu þíha. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Eítir að skyldustörfum er lokið i dag væri þjóðráð að bjóða nokkrum vildarmönnum heim með kvöldinu. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. I»ú hefur verið mikið á flandri undanfarið og ættir að nota daginn til að hvíiast vel. Vogin, 23. september — 22. október. thugaðu vel þíin mál í dag og fram eftir kvöldi. Hafðu sam- ráð við þá sem þú treystir. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvembev. l>ú ert að hugleiða einhver viðskipti, en skalt ekki flana að neinu. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Pú átt dálítið erfitt um vik. Gróðavonir geta orðið tvisýnar. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Kannaður ástæður fyrir ágreiningi við vin þinn og reyndu að meta þær hlutlægt. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Þú ert að vísu ekki sem bezt fyrirkallaður, en ekki livað sízt fyrir þá sök skaltu létta þér upp. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Áætlanir þínar eru vafasamar og geta komið þér i koll fyrr en varir. að jafnvel þótt Caleb hafi vilj- að fremja sjálfsmorð, þá hefði hann ekki farið svona að því. Við erum því neyddir til að halda, að einhver annar maður hafi viljað hann feigan og kom- ið því til leiðar, að byssan sprakk. Lengra getum við vist ekki farið í taili. Nú voru þeir komnir í útjað- ar Lydenbridge, og skömmu seinna staðnæmdist Appleyard hjá Newsham. Hann afhenti þar byssuna og skotin og síðan óku þeir áfram til lögreglustöðvar- innar, og komu þangað samtím- is Darlington lækni, sem sagð- ist hafa komið þarna við á heim leið frá líkhúsinu. — Það er viðvikjandi Caleb Glapthorne, sagði hann, er þeir voru setztir inni í skrif- stofunni. — Líkskoðarinn bað mig og einn starfsbróður minn að fremja rannsókn á líkinu, og við vorum rétt að ljúka við það. Þér viljið sjálfsagt heyra, að hvaða niðurstöðu við höfum kom izt. — Þetta er fallega gert af yð- ur, læknir, sagði Appleyard. Vit anlega langar okkur til að heyra, hvað þér hafið að segja okkur. — Þér viljið nú sjálfsagt heyra öll smáatriði. 1 stuttu máli og á venjulegu máli sagt, þá teljum við, að maðurinn hafi dáið af áfalli hægra megin á höfðinu. — Getið þér gefið okkur nokkra bendingu um hvenær þetta hafi orðið? -— Já, ég hef enga ástæðu til að breyta upphaflegu áliti minu um það, sem sé, að þetta hafi gerzt milli klukkan hálfþrjú og þrjú síðdegis í gær. — Rétt hjá staðnum þar sem líkið fannst, að því talið er, tók um við upp byssuna hans með sprungið hlaupið. Og að yðar áliti eru meiðslin þannig, að þau hljóta að stafa frá spreng- ingu, þegar hleypt var úr byss unni? Darlington læknir brosti. —- Stendur heima. Gætu þessi meiðsli stafað af nokkrum öðrum orsökum? sagði Appleyard. — Að sjálfsögðu gæti það ver ið, en byssan sem fannst þarna hjá, eins og hún var útleikin, útilokar, að mér finnst, slíkan möguleika, finnst yður ekki ? — Jú, það virðist svo. En mig langar samt að koma með þessa spurningu, læknir: Gæti sárið stafað — ekki frá sprenging- unni á byssunni, heldur af því að byssuhlaupi hafi verið haldið upp að höfðinu og síðan hleypt af ? — Að hann hafi verið skot- inn, eigið þér við? sagði lækn- irinn. — Ég hafði nú ekki lát- ið mér detta sá möguleiki i hug, sem við hefðum áreiðanlega gert, hefði hann verið drepinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.