Morgunblaðið - 24.03.1971, Blaðsíða 4
4
RAUÐARARSTIG 31!
HVERFISGÖTU 103
VW Set)diferfebifreiJ-VW 5 menre-VW svefiwegn
VW 9marma-Landrover 7manna
HTIA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sím/14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
JOHNS - VlWVIllf
glerullareinangrunin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrunina
með álpappímum, enda eitt
bezta einangrunarefnið og
jafnframt það langódýrasta.
Þér greiðið áfika fyrir 4" J-M
glerull og 3" frauðplasteinangr-
un og fáið auk þess álpappir
með. Jafnvel flugfragt borgar
sig. Sendum um land allt —
Jón Loftsson hf.
J '
Blaðburðarfólk
óskast
í eftirfalin hverfi ..
Skerjafjörður,
sunnan flugvallar
Talið við afgreiðsl-
una í síma 10100
MORGUfíBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1971
0 Er tóbaksbann rétta
leiðin?
Jón Vigfússon frá Brúnum
skrifar:
Kæri Velvakandi!
Ég er nú máski farinn áð
þreyta þig, en ætla nú samt
ennþá einu sinni að trejrsta á
gestrisni þína.
Það er þá fyrst tóbaksfrum-
varpið á alþlngi.
Eru menn búnir að gleyma
áfengisbanninu sæla? Væri
ekki meira vit í að vinna að
útrýmingu sígarettureykinga ’ á
annan hátt? Ég hefi heyrt, að
vinnuflokkar í Reykjavík og
máski víðár hafi myndað sam-
tök um að hætta við að
reykja sígarettur. Ég held, að
allir geti verið sammála um,
að bönn verka ekki vel á fs-
lendinga, og aðrar leiðir eru
færar.
0 Hlutverk móðurinnar í
þjóðfélaginu
Svo var það húsmæðrastarf-
ið utan húss, og það að láta
börnin eiga sig, máski á barna
heimilum, eða ef þau eru orð-
in stálpuð, þá láta götuna sjá
um uppeldið. Ég á 4 ára
barnabam, sem var hálfan
mánuð á barnaleikvelli, og
þegar hann kom heim, notaði
hann stærstu blótsyrði máls-
ins, sem hann hafði aldrei
heyrt, meðan hann var heima,
og þegar mamma hans tók við
honum aftur, var hún fljót að
láta hann hætta að brúka þessi
ljótu orð, sem hann hafði lært
þessa daga, þegar hann var að
heiman.
í Morgunbl. fl. 9. ’70 er
grein í Velvakanda, sem ég
hafði ánægju af að lesa. Hún
er rituð af Þorbjörgu Daníels-
dóttur. Það er kona, sem veit,
hvað móðurhlutverkið er.
Skyldi ekki vera minna um
afbrot unglinga, ef móðirin
skildi það, að það er hún, sem
getur alið upp þjóðina? Geti
hún ekki fylgzt með börnum
sínum frá því fyrst og þar til
þau eru orðin stálpuð, þá er
hún ekki fær um að eiga börn,
og ef eiginmaðurinn getur ekki
séð fyrir heimilinu, án þess að
konan vinni úti og láti börnin
eiga sig, þá á hann ekki að
stofna heimili.
Ég tala af reynslu, því að
ég eignaðist sex börn með
minni konu, og það var hún,
sem ól þau upp, enda hafa þau
öll reynzt svo vel, að ég get
ekki óskað betra. Ég veit vel,
að það eru gjörðar miklu meiri
kröfur nú en þá, er mín börn
ólust upp, en konan mín vissi,
hvað hún gat leyft sér, — og
að láta börnin fara út á göt-
una gat ekki komið til mála.
Hún vissi, hvaða skyldu hún
hafði við börriih og þjóðina,
og hún brást ekki þeirri
skyldu.
Ætli það, væri ekki minna
um afbrot unglinga, ef mæð-
urnar hugsuðu um skyldur sín-
ar gagnvart uppeldi þeirra?
Ég ætla að endurtaka þakk-
læti mitt til þessarar.. konu,
sem ég minntist á áður, því að
hún skilur, hvaða skyldur
hvíla á móðurinni, og hvaða
vald móðirin hefir í þjóðfélag-
inu, ef hún aðeins vill nota
það.
Jón Vigfússon,
frá Brúnum."
Dagskrá
miðvikudaginn 24. marz kl. 21.00.
Pólska litmyndin ALLT ER FALT frumsýnd hér á landi.
Leikstjóri Aridrzej Wajda.
Kvikmynd sem hlotið hefur frábæra dóma erlendis.
Sýnd aðeins einu sinni.
TIL SÖLU
Um 180 ferm., mjög falleg sérhæð í nýlegu húsi á bezta stað
í borginni, bílskúr. Mikið útsýni. íbúð í sérflokkt.
150 ferm., mjög góð sérhæð m/bílskúr á Seltjarnamesi.
Efri hæð og ris á góðum stað nálægt Miðborginni, 2 íbúðir.
150 ferm. einbýlishús í Smáíbúðahverfi, bílskúr.
Góð 120 ferm. sérhæð í Austurborginni.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu minni, ekki í síma.
KRISTINN EINARSSON, hrl.,
Búnaðarbankahúsinu v/H!emm.
0 „Húsmóðirin inn á
heimilið, en ekki út
af því“
„Kæri Velvakandi!
Ég er ein af þeim konum,
sem enn hef trú á þessari að
því er virðist úreltu og gamal-
dags skoðun, að konan eigi
heima innan veggja heimilis-
ins á meðan hennar er þörf
þar. Nú virðist hins vegar
vera í tízku að vinna utan
þess, jafnvel þótt konan hafi
frjálsan vilja til að velja og
hafna húsmóðurhlutverkinu.
En úr því að hún er gift og
orðin móðir tel ég ekki að nein
hreyfing, hvort sem kölluð er
„Rauðsokkur“ eða eitthvað
annað, geti breytt því; ég tel
því að það sé að berja hausn-
um við steininn að ætla að
neita að ala upp börnin, sem
við érum þó búnar að koma
inn í þennan heim, og því
hlutverki, sem við höfum þar
með valið okkur. Úrlausnin
yerður aldrei að henda þeim
inn á eirihverjar stofnanir,
sem þjóðfélagið sjái um. Nei,
það á að vera neyðarúrræði,
að konan þurfi að láta opin-
berár stofnanir ala upp börn
sín. Ég tel brýna nauðsyn fyr-
ir húsmæður, sem vinna að
sínu heimili, og vilja ekki
þurfa að vinna utan þess, að
þær fái vinnu sína viður-
kennda af þjóðféíaginu, en
þeim sé ekkl gleymt, og þeirra
hagur fyrir borð borinn. En
það er mikill misskilningur,
að það eigi að hefja launabar-
áttu húsmóðurinnar með því
að miða við efstu launaflokka,
eins og fram kom í útvarps-
þætti um þessi mál. Það verð-
ur að byrja á byrjuninni, það
er að fá stöðuna viðurkennda
og fá þjóðfélagið til að skilja
þýðingu þá, sem heimilin hafa,
og þar með talin konan sem
stjórnandi innan þess. Það
væri góð byrjun að breyta
nafninu á fjölskyldubótunum,
(sem margir telja óþarfar, sér-
staklega með einu barni), en
því þá ekki að nefna þetta
húsmæðrabætur, eða hús-
mæðralaun, sem kæmu til
með að aukast því fleiri börn
sem hún elur? Og hver er
svo réttur konunnar, að hún
skuli ekki geta fengið þessar
bætur út á sitt eigið nafn-
númer, heldur verður nafn-
númer eiginmannsins að koma
til, svo 'að hún fái þær greidd-
ar? Þessu þarf að breytá, og
láta svo orlof húsmæðra
fylgja á eftir, því að það er
sagt, að allar stéttir eigi heimt
ingu á orlofspeningum, — eru
húmæður ekki stétt í þjóð-
félaginu? Hvar eru öll þessi
húsmæðrafélög og kvenfélaga-
samtök? Jú, þau hafa komið
á orlofsheimiladvölum fyrir
konur, sem vissulega er spor
í rétta átt, en það þarf að taka
konuna frá heimilinu, svo að
hún geti notið þess. Því ekki
að koma til móts við konuna
til að gera haná ánægðari ímni
á heimilinu? Og svo, að lokum
þetta umtalaða rótleysi æsk-
unnar, skyldi ekki mega að
einhverju leyti rekja það til
upplausnar heimilanna, og þar
af leiðandi jafnvægisleysiS í
þjóðfélaginu?
Þetta er nú mín skoðun á
málinu, Velvakandi góður, og
ég vona, að þú sjáir þér ffeert
að koma henni á framfæri.
Ein, sem hvorki er Rauð-
sokka, né hlynnt karlmanna-
þjóðfélagi.“
0 Þurfa tollverðír
úrskurð til að mega
afklæða fólk?
Maður, sem biður um það
af sérstökum ástæðum, að
nafn hans verði ekki birt,
skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Viltu vinsamlegast koma
eftirfarandi fyrirspurn á frám-
færi við lögreglustjórann á
Keflavíkurflugvelli eða dóms-
málaráðuneytið, ef það á bet-
ur við?
Hefur toilvörður heimild til
þess að afklæða farþega við
komu til landsins að eigin
geðþótta? Þarf tollvörður ekki
úrskurð dómara til að afklæða
farþega, jafnvel þótt leit
fíknilyfja sé átylla til slíkrar
meðferðar?
Loks þetta: Hvaða viðurlög
getur farþegi treyst á til áð
koma í veg fyrir, að tollverðir
noti aðstöðu sína til slíkrar
leitar án rökstudds gruns um
smygl?
B.“
Til sölu við
H áaleitisbraut
3ja herb. íbúð á 1. hæð ! blokk. íbúð og sameign í mjög góðu
ástandi. Hlutdeild ! fullkomnu vélaþvottahúsi, fundaherbergi
og húsvarðaríbúð m. m. Þá fylgir góður bílskúr. Lóð fullfrá-
gengin.
Upplýsingar um þessa íbúð verða ekki veittar í síma.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN.
Austurstræti 17,
(Silli & Valdi) 3. hæð.