Morgunblaðið - 04.06.1971, Síða 32
JMórgunMi&ib
RUGivsmcnR
#^-»22480
FÖSTUDAGUR 4. JUNl 1971
Skuttogararn-
ir mokfiska
SKUTTOGARAR þeirra Eskfirð
inga og Norðfirðinga, Hólmatind
nr og Barði, hafa aflað mjög vel
þann tíma, sem þeir hafa verið
að veiðum; Hólmatindur fékk
1200 lestir á háifum fjórða mán
uði og Barði 1015 tonn frá 12.
febrúar til 20. maí sl.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér hjá Aðalsteini
Jónssyni, framkvæmdastjóra
Hraðfrystihúss Eskifj arðar, sem
er eigandi Hólmatinds, er hráefn
isverðmæti aflans 12,1 milljón
króna og útflutningsverðmæti
um 23 milljónir, en kaupverð
togarans var 53 milljónir króna.
Jóhann K. Sigurðsson, útgerð
arstjóri Síldarvinnslunnar í Nes
kaupstað, tjáði Morgunblaðinu,
að afli Barða gerði í peningum
Agnar Kristinsrson.
11,8 milljónir króna og að há
setahluturinn þessa 90 daga
næmi um 230 þúsund krónum.
Meðalafli á dag er 10,5 tonn.
Herðubreið milli
*
Islands og Færeyja
NORÐURSKIP h.f., sem keypti
Herðubreið fyrir skömmu, hef-
úr ákveðið að hiefja siigiliinigar
mil'li Islands oig Færeyja og verð
ur fyrsta ferðin milli Reykjavík
ur og Þórshafnar farin 11. júní
n.k. Að sögn Bjöms Haraldsson-
ar, stjómarmanns i Norðurskip
hJ, hafa Færeyimgar sýnt
þessu máli mjög mákinn áhuga
og gerðu undintektir þeirra út-
slagið á að tilraum yrði gerð.
Spánverjar bjóða
490 tonna skutskip
— fyrir 78 milljónir króna
TVEIR fulitrúar Sambands
spænskra skipasmiðja hafa dval-
izt hér á landi að undanförnu
og leitað eftir samningum við
islenzka útgerðarmenn um
smíði 490 tonna skuttogara, sem
Spánverjar bjóða á 78 mUljónir
króna. Innifalin í þessu verði eru
lán á 80% kaupverðsins til 8 ára,
lántökugjald, vextir á smíðatím-
anum og tryggingar.
20 ára sjómað
ur drukknar
— féll fyrir borð
Akureyri, 3. júni.
ÞAÐ slys varð klukkan 18:30 í
gærkvöldi, lað skipverji af tog-
aranum Kaldbak féli fyrir borð
og drukknaði. Hamn hét Agnar
Kristinsson, fæddur 25. ja/núar
1951, til heimUis að AðaJatræti
23, Akureiyri.
Kaldbakur hafði farið frá Ak-
ureyri klukkam 14:30 í gær og
var staddur út af Gjögrum, er
slysið vildi til. Skipverjar leituðu
Agnars i sex klukkustundir, en
hann fannst aldrei. Kaldbakur
kom til Akureyrar í nótt og sjó
próf fóru fram í morgun.
Agnar heitinn l'ætur eftir sig
tvö böm. — Sv. P.
Margir Islendingar hafa sýnt
tilboðum Spánverjanna áhuga,
t.d. Eskfirðingar og Norðfirðing
ar, sem hafa fyrir góða reynslu
af rekstri skuttogara, eins og
önnur frétt í blaðinu í dag grein-
ir frá. Einnig hafa Vestfirðingar
rætt við spænsku fulltrúana, en
óskir Vestfirðinga hníga að
lengri skipum en tilboð Spán-
verjanna hljóðaði upp á, og er
annar sendimannanna nú farinn
heim aftur til að útbúa nýtt til-
boð í samræmi við óskir Vest-
firðinga.
Sem kunnugt er, eru fjórir
1200 tonna skuttogarar nú í
smíðum á Spáni fyrir skuttogara
nefndina íslenzku.
ÞETTA hvitingjafolald fædd-
ist á aiiuian i hvítasimnu og
er að sögn eigandans, Hiauks
Claosisen flugvaMarstjóra, hið
frískasta, éhís og mynd
Sveáns Þormóðssonar reynd-
ar ber með sér. Haiikur
kvaðst ætla aið láta folaldið
lifa, enda er það af góðum
ættum. Móðir þess, setn hleyp
ur með því á myndinni, er
Gufa frá Gufiinesi, dóttir
Féla,gs-Brúns og Perlu-Iarpar,
og faðiríim er Geysir frá
Fossi í Grímsnosd, sonur
Hjairranda frá Garðsauka.
I Haukur kwnð litleysið efkkert
há folaldinu, nema hvað því
' gæti hætt til að sólbrenna á
I snoppimni.
Afgreiðslutímamálið
lagt fyrir borgarstjórn
1 GÆR var lögð fram til íyrri
lunræðu í borgarstjóm tUlaga
borgairráðs lun afgredðsiutíma
verzlana í Reykjavík. Geár Hall-
grímsson, borgarstjóri, mælti
fyrir tniögunni og sagði m.a.,
að þær reglur, sem í gildi tiafa
verið um þetta eftii, hetfðu ekki
verið framkvæmdar f rairn, er
leitt hetfði til óvlsisii og öryggis-
ieysis.
Á fundi borgarstjórnar í gær
var einnig löigð fram tillaga um
afgreiðslutíma rakarastofa i
Reykjavik. Eins og áður hiefur
verið greint frá eru heiztu ný-
Vegir opnast
allra átta
— nýir möguleikar til
ferðalaga um landið
til
„ÞAÐ eru nokkrar nýjungar
á ferðaskránni hjá okkur i
sumar; bæði nýjar ferðir og
viðaukar við gamlar, sagði
Einar Þ. Guðjohnsen, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags ís-
lands, þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann í
gær. Sagði Einar, að nýir veg
ir og brýr opnuðu nú aðra og
fjölbreyttari möguleika til
ferðalaga en fyrir voru.
Fyrst nefndi Einar nýjan
veg að húsi Ferðafélagsins
í Landmiannalaugum, en á
þeirri leið þurfti áður að fara
yfir Jökulgilskvísl, sem var
mjög varasöm yfirferðar og
hefur oft legið við slysum í
kvíslinni. í sumar verður far
ið í Landmannalaugar og gist
í Ferðafélagshúsinu þar, en
síðan ekið í ýmsar áttir þar
út frá
Kverkfjöll eru viðbót við
hinar vinsaelu 12 daga Mið-
landsöræfaferðir félagsins, en
í fyrrahaust kom brú á
Kreppu þannig að nú má aka
í Hvannalindir og þannig bæt
ast Kverkfjöll við ferðaáætl
unina. Miðlandsöræfaferðin
verður farin 4.—15. ágúst.
Sex daga ferð norður Kjöl
og suður Sprengisand er á
ferðaáætluninni, en nú með
þeirri breytingu, að farið
verður upp úr Skagafirði í
stað Bárðardals áður. Þetta
er unnt vegna nýrrar brúar,
sem komin er á austari Jök
ulsá, og geta nú þeir, sem
norður Sprengisand fara, val
ið um fjórar leiðir í byggð
norðanlands; í Skagafjörð um
Framh. á bls. 21
mæli þessara tillagna þau, að á-
kvæði eru um heimild til þess
að hafa sölustaði opna til kl.
22.00 á þriðjudögum og föstudöig
um. Einniig eru ákvaeði um það,
að borgarráð setji sérstakan
vörulista, þar sem tilgreint er,
hvaða vörur megi selja í söl<u-
tumium. Lagt er tiil að rakara-
stofur verði optnar frá kl. 9.00
tii M. 18.00 nema á föstudögum
til kl. 19.00. Á lauigardögum
verði opið frá kl. 8.30 til kL
12.00
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, sagði, að borgarráð, hefði
haft þetta mál til meðferðar um
langan tíma. Borgarráð hefði
skipað sérstaka undimefnd, er
m.a. hefði haft samiband við alla
Framh. á bls. 21
Dauðaslys:
Reytnir Tryggvason.
19 ára stýrimaður
festist í togvír
Isafirði, 3. júnL
NÍTJÁN ára stýriinaður, Reyn-
ir Tryggvason Sél|alaíndsvegi
28, ísatfirði, lézt nim borð 1 Guð-
rúnu Guðleifsidóttur IS 102 frá
Hnífsdal eftir a0 hainn ihatfði orð-
ið fyrir slysi, er bátnrínn var nð
togveiðum út af istafjarðardjúpi
í fyrriinótt. Reynir var ókvæntnr
og bínrtilaus.
Slysið varð með þeim hætti,
að Reynir var við spii aftur á
bátapaffli oig festist i vír, sem
stórslasaði hann. Varðskipið Þór
fór á móti Guðrúnu GuðleifS-
dóttur með lækni frá Isafirði,
en Reynir reyndist láitilnn, þeg-
ar læknirinn komist um borð í
Guðrúnu Guðieifsdóttur IS 102.
Reynir Tryigigvason var sem
fyrr segir stýrimaður á Guð-
rúnu og lauk hann prófi frá
Stýrimiannaskólanum í Reykja-
viik i vor. — Fréttaritari.