Morgunblaðið - 13.07.1971, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.07.1971, Blaðsíða 24
IHtfrguttfelðbUk nucLVsmcnR ^-«22480 mnftttnflrlafrtfe ÞBIÐJUDAGUR 13. JULÍ 1971 800 laxar ganga í Lárós GÍFURLEG laxagengd er nú í Lárós á Snæfellsnesi og nú ný- lega hafa gengið i ósinn á að- eins tveimnr dögum um 800 fimm og sex punda laxar og miklar torfur eru fyrir utan ós- inn. Fyrir nokkrum árum var hafin þar vestra fiskirækt og í fyrra voru sett i ósinn 550 þús- und kviðpokaseiði og i ár 400 þúsund. Fréttaritari Mbl. í Grundarfirði, Emil Magnússon, sendi í gær eftirfarandi frétt: Grundarfirði, 12. júlí. JÓN heitir maður Sveinsson. Hann er rafvirkjameistari að iðn og á heima í Reykjavík. Jón er fæddur undir þeirri gæfustjörnu að sjá drauma sína rætast, en þær draumsýnir eru fiskirækt í stórum stíl. Fyrir þeim hefur hann eldlegan áhuga og hefur þegar unnið merkilegt afrek í þessum efnum. Núna um helgina var Jón staddur hér í Grundarfirði, sem oft áður að huga að búfénaði sínum í Lárós, en svo heitir fiski- ræktarstöðin. Hann hringdi til min og bað mig að skjóta skjóls- húsi yfir nokkra fiska, sem hann væri með. Þegar hann svo kom, reyndust þetta var 300 nýrunnir laxar, sem settir voru inn í klef- ann og var þetta vissulega falleg aflahrúga. Alls mun Jón nú þeg- ar hafa heimt á milli 700 til 800 laxa á tveimur dögum. Þegar er farið að senda þennan afla á markað í Reykjavík. Þetta eru 5 og 6 punda fiskar, sem verið hafa eitt til tvö ár í sjó og sézt hafa fyrir utan garðinn í lóninu fiski- torfur með allt að 500 löxum. Sl. ár settu Jón og félagar hans 550.000 kviðpokaseiði í stöð- ina og 400.000 í ár. 1 stuttu sam- tali við Jón sagði hann mér að sér sýndist sem björtustu vonir sinar um starfsemina myndu nú senn rætast og svo bætti hann við kankvís og brosandi: „Ef þú verður lifandi, vinur minn, munu barnabarnabörnin þín leggja fyr- ir þig þá spumingu, hvað þið Fi-amhald á bls. 23. Gjaldeyri stolið BROTINN var upp fataskáp-1 ur í Laugardalssimdhöllinni i , um helgina og stolið andvirði ( um 30 þúsund króna í gjald- eyri frá belgískum ferða-! manni. Auk gjaldeyrislns voru ( á þriðja þúsimd krónur ís-, lenzkar í veskinu. Þjófurinn' var ófundinn í gærkvöldi. Mikill hluti gjaldeyrisins ( Framhald á bls. 23. Síldarsölur fyrir 33,9 milljónir i Danmörku síðastliðna viku ALLMARGAR síldarsölur voru f Danmörku á tímabilinu frá 5. til 10. júlí og seldu skipin sam tals fyrir kr. 33.888.379,00 og var meðaiverð 14,12 krónur. — Samtals var aflinn 2.399,6 smá- lestir. Af þessum afla fóru 207,9 lestir í gúanó og fékkst fyrir það 709.793,00 krónur. Þá voru seldar 3 lestir af makril fyrir Ólafur gengur á fund forseta í dag ÓLAFUR Jóhannesson, formað- ur Framsóknarflokksi ns, mun ganga á fund forseta Islands kl. 11 árdegis í dag og skýra hon- um frá samkomulagi flokkanna þriggja um myndun nýrrar rík- isstjómar. Búizt er við því, að ríkisstjómin taki formlega við völdum á morgun. Framsóknarflokkurmn, Alþýðu bandalagið Samtök frjálsliyndra og vinstrimanna náðu samkomu lagi um stjórnarmyndun s.L laug ardag og þá sendi Ólafur Jóhann esson frá sér svohl'jóðandi frétta tilkynningu: „Þeir þrír flokkar, sem tekið hafa þátt í viðræðum um stjórnarmyndun, hafa náð samkomulagi um málefnasamn- ing og verkaskiptingu. Frá þess- ari niðurstöðu hefi ég skýrt for- seta Islands og frá stjórnarmynd un verður ekki gengið formlega fyrr en í næstu vifcu." Engin yfirlýsing hefur enn ver ið gefin út um málefnasamning ríkisstjórnarinnar, en nokkurn veginn er ljóst að verkefnaskipt ingin milli flokkana 3ja verður þessi: Framsóknarflokkurinn fær forsætisráðuneytið, dóms- og kirkjumálaráðuneytið, fjáirmála- ráðuneytið, landbúnaðarráðuneyt ið og utanrikisráðuneytið. Al- þýðubandalagið fœr sjávarútvegs ráðuneytið, viðskiptaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, heilbrigðis- ráðuneytið og tryggingaráðuneyt ið. Samtök frjálslyndra og vinstri manna fá menntamálaráðuneyt- ið, félagsmálaráðuneytið, sam- göngumálaráðuneytið og Hag- stofu íslands. Talið er fullvist, að rikisstjórn Framhald á bls. 23. 48.661,00 krónu og var meðal- verð þar 16,22 krónur. Hæsta ealan var hjá Jóni Kjartanssyni SU, sem seldi 5. júlí 93,4 lestir fyrir 1.979.288,00 krónur, meðalverð 21,20, sem þó var aðeins næst hæsta meðal verð. Hæsta meðalverð fékk Ljósfari ÞH hinn 6. júlí, en seldi þá lítið magn af makril aðeins 0,9 lestir fyrir 21.538,00 kr. og var meðalverð 24,35 kr. Skýrsla L.Í.Ú. um síldarsölur er á bls. 23. 14. Iandsmót UMFÍ fór fram á Sauðárkróki um helgina. Mjög margir þátttakendur voru í hinum ýmsu íþróttagreinum og voru þeir víðsvegar að af landinu. Þessi mynd er frá úrslitum í 100 metra hlaupi, en sigurvegari varð Sigurður Jónsson, HSK, en síðan koma Jón Benónýsson, HSÞ, Sævar Larsen, HSK og Guðmundur Jónsson, HSK. 1 íþróttafréttum Mbl. er ítarleg frásögn af landsmótinu. (Ljósm. Friðþjófur. 510 milljón króna endurbæt- ur á flugbraut Flugmenn gagnrýna að framkvæmdir hafa tafizt FYRIRHUGAÐAR eru á Kefla- víkurflugvelli umfangsmiklar end urbætur á flugveUinum, lenging þverbrautarlnnar og endurbót á ljósaútbúnaði við hana. Fyrsti áfangi þessara framkvæmda, sem kosta mun um 510 milljón- ir króna hefur þegar verið hann aður og er unnt að hefja fram- Gjaldeyrisforðinn yfir 4000 milljónir Hefur aukizt um 800 milljónir króna frá áramótum í LOK júnímánaðar nam gjaldeyrisforði landsmanna um 4075 milljónum króna og er það um 800 milljón króna hækkun frá sl. áramótum. 1 júnímánuði einum jókst gjaldeyrisforðinn um 400 milljónir króna. Þessar upp- lýsingar koma fram í greinar- gerð, sem Morgunblaðinu barst í gær frá ráðuneyti Jó- hanns Hafstein, um stöðu þjóðarbúsins. Þar kemur einnig fram, að í lok maímánaðar námu heild arinnlán banka og sparisjóða um 18,9 milljörðum króna og höfðu aukizt um nær 2,2 milljarða eða um 13,2% frá áramótum. Á sama tíma juk- ust útlán bankanna um 2000 milljónir eða 12,8%. Á árinu 1970 námu ný útlán fjárfest- ingarsjóða nær 2000 milljón- um króna. Hér fara á eftir þeir kaflar í greinargerðinni, sem fjalla um ofangreind efni. (Sjá að öðru leyti mið- síðu). GREIÐSLUJÖFNUDUR OG GJALDEYRISSTAÐA Eiixs og nú horfir, er úflit fyrir, að greiðslujöfnuðurinn verði í heild hagsitæðuir á árinu 1971. Að visu er reiknað mieð verulegum viðsikiptahaUa, en hann er meira en veginn upp af eðMIegum erlendum lántökum vegna framkvaamda. Samkvæmt bráðabirgðatölum hefur gjaid- Framhald á bls. 23. kvæmdir, fljótlega eða um leið og fjármagn er tryggt tll fram- kvæmdanna. Hafa flugmenn mjög gagnrýnt, að endurbætum- ar hafa ekki verið gerðar. 1 Viðtali, sem MbL átti við Emid Jónsson, utanrikisráðherra í gær, sagði hann að ítarfegar viiðræður hefðu átt sér stað við bandarisk stjórnvöld um þessa framkvæmd og aðrar á KefiavíkurflugvelM. Leiddu þær viðræður til þess að Bandarikjastj órn lagði fram fjár veitingarbeiðní að upphæð 5.8 miljóniir dollara, þ.e. 510 milljón ir króna og hefur mál þetta hlot ið venjuiega afgreiðslu fyrir Bandaríkjaþingi. Fjárhagsárið þar vestra er frá 1. júM til 30. júní, en afgreiðsla fjiárlaganna hefur dregizt á íanginn að þessu siinni o.g þvl hefur fjárveitingin ékki hlotið samþykki enn. Lenging sú, sem um er að ræða er þannig að brautin verð- ur eftir framkvæmdimar 10 þús- und fet, en er nú 6560 fiet. Þá hefur Bandarikjastjóm og á- kiveðið að kosta ýmsar endurbæt ur á tækjabúnaði við aðalflug- brautina að upphæð 26,5 millj. kr. Þá kvað Em.il Jónsson á síðasta ári hafa farið íram ýmsar aðrar viðræður um framkvæmdir á Keflavlkurflugvelli, en ekiki hef- ur endaniega verið gengið frá þeim samningum. Ökuför á hemlalitlum bíl: Konan datt út neðarlega í Kömbum LÖGREGLAN á Selfossi tók 6 ökumenn fyrir meinta ölvun við akstur um helgina, þar af var einn bilstjóranna næstnm búinn að fara sér að voða í Kömbum, er hann réð ekkert eða lítið við hemlalítinn bO sinn, sem þar að auki var framrúðiilaus. Var hrað inn orðinn æði mikill, neðarlega í Kömbum og datt þá kona, sem var farþegi í bílnum út úr hon- um. Hún mtin þó ekki hafa slas- azt alvarlega. Fraimrúðan brotnaði á Hellis- heiði. Það var þó ekki látið aftra för. Þegar bíllinn var síðan skoð aður á Seifossi kom ýmislegt fleira athugavert i Ijós. Ljós voru t.d. engin á bíinum og hurðalæsingar lélegar. Þá valt bifreið um helgina á Hellisheiði og ónýttist að sögn Selfosslögreglunnar. Ekki urðu slys á mönnum. ökumaður í þvi tiiviiki var al'lsgáður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.