Morgunblaðið - 18.09.1971, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 18.09.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1971 17 Kosningarnar í Danmörku: Fylgi litlu flokkanna skipt miklu um úrslit Eftir Gunnar Rytgaard 0 Búizt er við, að meiri- hluti borgaralegu stjórnar flokkanna minnki verulega við kosningarnar til danska þjóðþingsins, sem frant eiga að fara þriðjudaginn 21. septemher n.k. Þó gera flestir stjórnmálasér- fræðingar ráð fyrir því, að þeir haldi meirihluta, enda þótt niðurstöður skoðana- kannana bendi til annars. Forsætisráðíterrann, Hilm ar Baunsgaard, viðurkenn ir, að jafnvægið milli stjórnarflokka og stjórn- arandstöðu geti orðið mjög svo viðkvæmt á kom andi þingi. Mikilvægt atriði verður, hvort þeir tveir flokkar, sem nú eiga sæti á þingi, en teljast tilheyra borgara- lega arminum, korna mönn um inn á Þjóðþingið. Það eru Réttarsamhandið, sem er nú orðið 52 ára, en hef- ur ekki haft fulltrúa á Þjóðþinginu frá því árið 1960 og Kristilegi þjóðar- flokkurinn, sem stofnaður var á síðasta ári. Hvorugur hessara flokka hefur fyrir fram látið uppi hvernig stjórn þeir mundu styðja. Stjórnarflokkarnir þrír, íhaldsflokkurinn, Vinstri- flokkurinn og Róttæki vinstri flokkurinn hafa haft öflugan meirihluta á Þjóðþinginu, 98 sæti af 179. Andspænis stjórn arflokkunum stóðu Sósíal- demókratar, Sósíalski þjóðar ig meirihlutann. En þéssi skoð anakönnun, sem frá var skýrt 5. september, var gerð í ág- úst, áður en forsætisráðherr- ann hafði tilkynnt hvenær kosningarnar yrðu. Skoðana- könnun, sem dagblaðið Poli- tiken gekkst fyrir 9. septem- ber, benti hins vegar líka til getur stjórnmálaflokkar verði að fá minnst 2 prósent af heildar- atkvæðamagni atkvæðis- bærra kjósenda til þess að komast inn á Þjóðþingið. Þetta þýðir að flokkur kemur minnst fjórum mönnum inn eða engum. Þó e.r önnur leið inn í Þjóð- þíngið. Fái flokkur í einmenn ingskjördæmi nægilegt at- kvæðamagn til þess að fá mann kjördæmakosinn, er honum tryggður aðgangur að Jacob Christensen flokkurinn og Vinstri sósíalist a,r með 75 þingsæti, að við- bættum tveimur klofnings- mönnum frá Vinstri sósíalist- um. Annar þeirra hefur nú gengið inn í Kommúnistaflokk inn, sem ekki hefur fengið mann kjörinn á Þjóðþingið frá því í kosningunum 1957. Síðasta Gallupskoðanakönn un, sem frá hefur verið skýrt opinberlega bendir til að stjórna-rflokkarnir missi þrett án þingsæti til stjórnarand- stöðuflokkanna og missi þann Jens Otto Krag þess, að st j órnarf lokkarnir mundu missa meirihlutann. FJÓRIR FLOKKAR VIO 2% MÖRKIN En skoðanakannanirna,r gefa engar ljósar upplýsingar um möguleika litlu flokkanna í kosningunum. Annars vegar eru prósentutölur skoðana- kannana alltaf mjög óvissar, þegar minnstu flokkarnir eiga í hlut og hins vegar er gild- andi í Danmörku hindrunar- regla, sem kveður svo á, að Hilmar Baunsgaard Þjóðþinginu. En minnstu flokkarnir fá næstum aldrei kjördæmakosna menn. Þeir komast inn á uppbótarþing- sætum. Nú eru hvorki meira né minna en fjórir flokkar við 2% mörkin. Það eru Réttar- sambandið, Kristilegi þjóðar- flokkurinn Vinstri sósíalistar og Kommúnistaflokkurinn. í Gallupskoðuninni frá ágúst voru einungis Vinstri sósíalist ar yfir 2% marki hindfunar- reglunnar. En verið getur að í kosningabaráttunni hafi at- hyglin beinzt meira að hinum flokkunum, svo að þeir eigi nú sina möguleika. Sérstak- lega á þetta við borgaralegu smáflokkana tvo. Kristilegi þjóðarflokkurinn var stofnaður í mótmæla- skyni, einkum við afstöðu íhaldsflokksins og Vinstri- flokksins til fóstureyðinga- málsins og klámmyndamáls- ins, sem mörgum fannst allt of f rj álslynt. Stjórn borgara- flokkanna hefur fengið fóstur eyðingarlögin rýmkuð þannig að nú þarf ekki að liggja ann- að til grundvalla.r fóstureyð- ingu en félagslegar ástæður, ef 1 hlut eiga mjög ungar kon ur eða konur yfir 38 ára aldri, sem eiga mörg börn fyrir. Stjórnin hefur einnig fengið afnumin ákvæði hegningar- laganna um bann við útgáfu klámmynda. Stofnendur Kristilega þjóð- arflokksins litu svo á, að bæði þessi lög stríddu gegn venju- legum siðaskoðunum krist- inna manna. Flokkurinn hef- ur á sinni skömmu ævi átt sína erfiðleika vegna þess, að sterkur armur biblíutrúar- manna, sem naut stuðnings afla úr Hvítasunnuhreyfing- unni, Postulakirkjunni og einnig hópa, er teljast til hinnar almennu þjóðkirkju, leit svo á, að mek'ihluti stjórnar flokksins legði of litla áherzlu á, að flokkurinn væri kristileg hreyfing en vildi þess í stað auka hreina pólitíska atorku flokksins og möguleika hans til pólitískra áhrifa. Þótt margir telji, að það hafi veikt flokkinn, að hann hefur orðið „venjulegur stjómmálaflokkuir“, kann vel að vera, að hann fái tækifæri til að safna að sér óánægðum borgaralegum kjósendum. og jafnvel einnig til að taka eitt hvað frá Sósíaldemókrötum. í röðum beggia eru kjósendur Framhald á bls. 19. Ingólfur Jónsson: Miklar framfarir í fiskirækt Á FYRSTU öldum Islandsbyggð- ar var mikill fiskur í ám og vötnum landsins. Þannig var það fram eftir öldum, að veiði var talsverð i mörgum stöðuvötnum og flestum ám landsins. Af eðli- legum ástæðum fór veiðin minnkandi, þegar tímar liðu. Fiskirækt var óþekkt en veiði alltaf stunduð af þeim, sem veiði- rétt höfðu. Það, sem bjargaði vötnunum frá auðn, var sú fyrir- hyggja og skilningur, sem sýnd- ur var í því að takmarka veiðina að nokkru leyti. Voru settar reglur sem sýndu, að menn skildu það fyrr á tímum að hverju takmarkalaus veiði stefn- ir. Saga fiskiræktar hér á landi á sér ekki langan aldur. Árið 1884 fékk Tryggvi Gunnarsson danskan kunnáttumann til þess að athuga, hvort mögulegt væri að koma á hér á landi lax- og silungsklaki. Einhver árangur mun hafa af þvi orðið. Sérstak- lega að því leyti, að áhugi margra var vakinn á málinu. Á öðrum áratug þessárar aldar starfaði Þórður Flóventsson frá Svartakoti að þvi að koma á lax- og silungsklaki viða um land. Ferðaðist hann mikið og glæddi áhuga manna á málinu. Mun hann hafa fengið nokkum styrk af opi-nberu fé til starfsins. Árið 1932 eru sett lög um lax- og silungsveiði. í þeim lögum er ákvæði um veiðimálastofnun og skipun veiðimálastjóra. Ólafur Sigurðsson, bóndi á Hellulandi í Skagafirði, kynnti sér laxaklak og fiskirækt í Noregi árið 1929 og var hann ráðunautur í laxa- og fiskiræktarmálum til ársins 1946. Það ár kom Þór Guðjóns- son, fiskifræðingur, til starfs og var hann skipaður veiðimála- stjóri. Með því komst föst skip- an á málin og gerðu margir sér vonir um góðan árangur, þai sem ungur, áhugasamur og sér- menntaður maður var tekinn við starfinu. AUKNAR FJÁRVEITINGAR Vissulega hefur mikill árangur orðið af starfi veiðimálastjóra og Veiðimálastofnunarinnar. Veiði- málastjóri hefur starfað að fiski- ræktarmálum í aldarfjórðung. Fyrri hluta þess tíma voru litl- ar fjárveitingar til Veiðimála- stofnunarinnar. Ef flett er upp í fjárlögum og fjárveitingar born- ar saman frá ári til árs, er aug- ljóst, að ekki hefur mikið verið unnt að gera með þeim fjárveit- ingum fyrir veiðimál landsins. Fjárveiting fyrir árið 1951 var aðeins 60 þús. kr. og 1952 70 þús. kr. til veiðimálanna, Árið 1956 er fjárveitingin 261 þús. kr., 1958 271 þús. kr., en 1960 809 þús. kr. 1964 hefst vinna við tilraunastöð- ina í Kollafirði og hækkar fjár- veitingin fyrir það ár í 2 millj. 216 þús. kr. Árið 1970 er varið til veiðamála 8 millj. 800 þús. kr. Á yfirstandandi ári verður til ráðstöfunar nokkuð á tólftu millj. kr., og er þá með talinn fiskiræktarsjóður. Tekjur fiski- ræktarsjóðs fara vaxandi og ráð- stöfunarfé til veiðimála eykst með þeim hætti. Eftir að fjárveit- ingar hækkuðu til veiðimálanna hefur laxveiðin stöðugt farið vax- andi. VAXANDI VEIÐI Árið 1970 var metveiði og er líklegt talið, að veiðin í ár verði talsvert meiri en var i fyrra. Fullnaðartölur liggja ekki enn fyrir um það. Veiðileigur hafa hækkað mikið og eftirspurn eft- ir veiðileyfum vaxið, ekki sízt erlendis frá. Margar íslenzkar laxveiðiár eru nú metnar í veiði- leigu, eins og beztu ár erlendis. Árið 1958 voru veiddir i íslenzk- um ám 21 þúsund laxar, en tíu árum síðar, 1968, 41 þúsund. Árið 1970 veiddust 56 þúsund laxar og eins og áður var sagt mun veiðin verða meiri á þessu ári. Vegna aukins fjármagns hafa margvíslegar ræktunarfram kvæmdir verið gerðar síðustu ár- in. Með fiskvegagerð hafa ný ársvæði opnazt um 300 km að lengd. Stíflur til vatnsmiðlunar og aðrar endurbætur í ánum hafa gert mikið gagn. Göngu- seiðum, sem sleppt er í árnar, hefur stöðugt fjölgað. SAMSTARF VEIÐIEIGENDA OG STANGVEIÐIFÉLAGA Föst stjórn og skipulag á veiði- málunum hefur ýtt undir þá þró- un, sem orðin er. Veiðieftirlit, starfsemi veiðifélaga og stang- veiðimanna er mikilvægur þáttur í allri starfsemi veiðimálanna. Er gott til þess að vita, að veiðirétt- areigendur og stangveiðimenn hafa gert sér fulla grein fyrir þvi, að þeir eru ekki andstæðing- ar heldur samherjar, sem eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta og geta helzt ekki hvor án ann- ars verið. Stangveiðifélögin eru góðir viðskiptavinir veiðieigenda og heppilegur dreifingaraðili veiðileyfa. Hér á landi eru 80—90 laxveiðiár, fjöldi silungsveiðiáa, einnig eru hér á landi 83 stöðu- vötn, einn ferkílómetri að flatar- máli eða stærri. Tólf þeiira eru stærri en 10 ferkílómetrar, en flest vatnanna eru 1—5 ferkíló- metrar að stærð. 1 mörgum vötn- um er nokkur veiði, en litil og jafnvel engin veiði í ýmsum vötnum, sem góð skilyrði virðast hafa. Verkefnin eru mörg og mikil framundan í veiðimálum landsins. Stefna ber að þvi að fylla árnar og stöðuvötnin af laxi og silungi. Mikið hefur áunn- izt síðustu árin i þessum málum. II FISKELDISSTÖÐVAR Fiskeldisstöðin i Kollafirði hef- ur haft mikil áhrif og miðlað fróðleik til margra af þeirri reynslu, sem fengizt hefur. Starf- andi eru nú 11 fiskeldisstöðvar í landinu, en 14 aðilar reka klak- hús. Framleiðsla gönguseiða var árið 1970 um 300 þús., þar af 160 þús. í Kollafjarðarstöðinni. Brautin i fiskeldis- og fiskirækt- armálum er mörkuð. Unnið er nú að stofnun veiðifélaga og hafa 20 félög verið stofnuð siðan nýju laxveiðilögin voru afgreidd árið 1970. Leiðbeiningarstarfið hefur aukizt með tilkomu fleiri sér- fræðinga á vegum Veiðimála- Ingólfur Jónsson stofnunarinnar. Halda þarf áfram gerð fiskvega og fá þannig ný ársvæði til veiðanna. Með því mætti fjölga stangveiðidög- um og auka veiðina mjög mikið á fáum árum. Með því verður einnig unnt að veita öllum veiði- leyfi, þótt eftirspurn vaxi. Halda þarf áfram að vinna að bættri nýtingu stöðuvatnanna og stofna veiðifélög þar sem þau eru ekki fyrir hendi. Veiðimálin eru á réttri leið og því nauðsynlegt að slaka ekki á í þeirri sókn, sem hafin er. Verkefnið er mikilvægt og ánægjulegt. Með fiskirækt- inni er stofnað til atvinnugrein- ar, sem gefur mikinn arð i þjóð- arbúið og bætir stöðu margra byggðarlaga. Með stórauknum og nýjum ársvæðum, sem koma við gerð fiskvega, ásamt vaxandi veiðimöguleikum i stöðuvötnum landsins, ættu allir, sem sækjast eftir veiðileyfum, að geta fengið leyfi til veiða sér til ánægju og heilsubótar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.