Morgunblaðið - 22.09.1971, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1971
*
® 22*0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
mmim
BÍLALEIGA
HVERFISGÖTU103
YW JtndifciÍiWreiJ-VW 5 mmw -VW rnlm&
VW9mmw-Linlr«« 7mma
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sím/14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TP 21190 21188
BÍLALEIGA
Keflavík, sími 92-2210
Reykjavík — Lúkasþjónustan
Su^ij.'lanrisbraut 10, s. 83330.
LEIGUFLUG
FLUGKENNSLA
Bilaleigan
SKULATUNI 4 SÍMI15808 (10937)
Maleigan
AKBRAUT
car rental service
r 8-23-4?
sendum
0 Eskja
Ámi Helgason I Stykkis-
hólmi skrifar:
„Ég hefi undanfarið verið að
fletta og lesa bókina Eskju, sem
kom út á afmæli Eskifjarðar
sem verzlunarstaðar, og er ég
sem gamall Eskfirðingur mjög
ánægður eftir þann lestur.
Vinna Einars Braga, svo og frá-
gangur allur, er þannig, að á
betra verður ekki kosið, og er
þetta óbrotgjarn minnisvarði og
gaman fyrir Eskfirðinga að
eiga þarna í einni bók bæði
gnægð ömefna, sem óðum eru
að falla í gleymskunnar haf,
myndir, sem eru mjög sjald-
gæfar, svo og sagnir, sem
tengja fortíð og nútíð saman,
í senn skemmtilegar og fróð-
legar. Það fer ekki á milli mála,
að mikið verk og vinna er að
baki svona góðu og vönduðu
riti, og virðist ekkert til sparað
að gera bókina sem bezt úr
garði, enda á þetta að vera
hverjum Eskfirðing varanleg
eign.
Þetta á ekki að vera neinn
dómur um bókina, heldur þakk-
lætisvottur fyrir vel unnið verk.
Tiorðurbraut U1
Uafnarfirði
SfMl 52001
EFTIR LOKUN 50046
Lausir bílar í dag
Bókin mælir með sér sjálf, enda
hefir sala hennar sýnt það.
Þó er mér kunnugt um, að
ekki muni allir Eskfirðingar
hafa notað sér að bókin er
ódýrari nú en hún verður eftir
að hún verður sett í bókabúðir,
og vil ég hvetja alla til að
neyta þessara hlunninda, um
leið og þess skal getið, að Frí-
merkjasalan í Lækjargötu 6A
hefir með höndum útsölu bók-
arinnar fram til þess tíma, er
hún verður afhent til sölu í
bókabúðir.
Ég fagna þvi, að þetta verk
hefir verið unnið og endurtek
ánægju mína yfir þvi, hve vel
hefur tekizt til.
Stykkishólmi, 10. sept. 1971,
Árni Helgason."
0 Skrítnar auglýsingar
Blaðamaður spyr um það,
hver semji auglýsingar Norr-
æna hússins. Hvort það sé
blaðafulltrúi stofnunarinnar, og
sé hann til, hver hann sé þá.
Lengi hafi verið skrifað Norr-
æna Húsið, þ.e. bæði orðin með
upphafsstaf, sem sé rangt sam-
kvæmt íslenzkum reglum, en
nú sé farið að skrifa alla stafi
beggja orðanna með stórum
stöfum. Fyrirsögn seinustu
auglýsingarinnar sé hvorki
Odýrari
en aárir!
SH0DR
LEIGAH
44-46.
SfMI 42600.
Vélrifun
Stúlka, sem starfað hefur erlendis (Bandaríkin) si. 4 ár, við
vélritun og önnur skrifstofustörf, óskar eftir vinnu.
Tilboð, merkt: „Vélritun — 5897" leggist inn á afgr. blaðsins.
meira né minna en: „Stór, mjög
skemmtileg og heiilandi um-
ræðudagskrá." „Umræðudag-
skrá“ geti ef til vill orðið
skemmtileg, þótt enginn viti
það fyrirfram, en hvemig hægt
sé að auglýsa hana „stóra“ og
„heillandi“ á íslenzku, sé of-
vaxið sínum skilningi. Með
„stór“ eigi auglýsandi e.t.v. við
„efnismikil", en ekki bendi neitt
til þess í nánari skýringum, og
sízt af öllu sé tunræðuefnið
„heillandi" (þ.e. sósíaldemókrat-
ismi í Skandinavíu).
— Velvakandi getur bætt þvl
við þetta illgirnisnart kunn-
ingja sins, að auglýsandinn hef-
ur greinilega ekki hugmynd um
það, hvort „umræðudagskráin"
sé „stór, mjög skemmtileg og
heillandi" eða ekki. Hann veit
nefnilega ekki einu sinni um
hvað hún er. Samkvæmt aug-
lýsingunni verður „aðaluppi-
staða umræðnanna" „senni-
lega“ „jafnaðarstefnan í Skand-
inavíu“. Er hægt að kveða öllu
óljósara og loðnara að orði?
— En það er náttúrlega í stíl
við hið „sennilega" umræðu-
efni.
Var Norræna húsið virkilega
reist til þess að láta afdankaða
og forneskjulega kratakarla úr
myrkviðum skandinavískra
barrskóga stiga út úr pólitísku
þungviðri og rauðamyrkri til
þess að boða oss Mörlöndum
sanna trú á hið nöturlega fyrir-
bæri, sem siðaðar þjóðir kalla
„le scandicratisme", „dér
Skandikratismus" ? Geta karl-
uglurnar ekki valið sér neitt
skárra og skemmtilegra til að
tala um? Eða bað framkvæmda-
stjórinn um þetta?
0 Áfengismagn
í blóði ökumanns
Hæstaréttarlögmaður nokk-
ur hefur haft samband við Vel-
vakanda vegna umferðarþáttar
í útvarpinu laugardaginn 11.
sept. Hann segir þáttinn
(,,Stanz!“) stundum fróðlegan
að ýmsu leyti, en þegar fjallað
sé um lög og rétt, „er þátturinn
fljótfærnislega unninn og á
stundum fyrir neðan allar hell-
ur“, segir hæstaréttarmála-
flutningsmaðurinn.
Hann segir síðan:
„Það, sem gefur mér ástæðu
til að stinga niður penna, er
þátturinn sl. laugardag 11. þ.m.
Spyrjandi spyr þáttinn, hve
mikils áfengis hann megi neyta
til þess að hann sé í rétti til
að stýra bifreið.
Stjórnandinn dró þá fram úr
pússi sínu einn af „sérfræðing-
um“ sínum. „Sérfræðingurinn"
taldi ómögulegt að svara spurn-
ingunni. Áfengismagn í bióði
væri komið undir svo mörgum
þáttum, svo sem þreytu, svefh-
leysi, vera ilia fyrirkallaður
o.s.frv.
Hér fer „sérfræðingurinn" al-
gerlega villur vegar. Þessi
atriði, sem hann nefndi, hafa
engin áhrif á áfengismagn í
blóði. 1 þvi sambandi skiptir
einungis máli, hve mikils áfeng-
is hefur verið neytt, styrkleiki
áfengisins, líkamsþungi neyt-
andans og kyn hans.
Stjórnandi þáttarins og/eða
„sérfræðingurinn" fóru vitlaust
með hámark áfengis í blóði eft-
ir neðri takmörkum. Þau eru
60%. (ekki 50%.) — sextíu próm-
ill — samkvæmt dómi Hæsta-
réttar.
Þá vii ég gefa fyrirspyrjand-
anum svar við spurningunni:
Ef þú ert 75 kg. að þyngd,
máttu drekka einn og hálfan
sjúss af íslenzku ákavíti án
þess að ná 60%. við blóðrann-
sókn.
— Ég hef hér að framan
stuðzt við ‘ Widmarks-formúl-
una, sem allir dómendur og aðr-
ir lögfræðingar þekkja."
0 Til bréfritara
Bréfritarar eru enn minnt-
ir vinsamlega á það að skrifa
aðeins í aðra hverja línu og
hafa breiða spássiu. Pappírinn
er ekki svo dýr á vorum dög-
um, að það taki því að skrifa
í hvern auðan reit, þegar það
verður á kostnað skýrleika og
snyrtimennsku, og erfitt er að
búa þéttritaðar arkir til prent-
unar. — Annars mun þetta
gamall, islenzkur siður, þ.é. að
nýta pappírinn sem bezt, og al-
gengt er enn, að skrifað sé aft-
an á hvers konar pappír, sem
áður hefur verið prentað eða
skrifað á hinum megin.
Þá biður Velvakandi bréfrit-
ara að minnast þess, að fullt
nafn og heimilisfang höfundar
þarf að fylgja hverju bréfi, eða
símanúmer hans eða stöðuheití
a.m.k. svo að hægt sé að sanna
tilvist hans eða sannreyna, að
nafn sé ekki misnotað.
0 Til „kirkjuvina“
Velvakandi hefur fengið
bæði bréf ykkar og myndi birta
annað þeirra, fylgdu nöfn ykk-
ar.
0 Til „Minnu og Gunnu“
Bréf ykkar er því aðeins
hægt að birta, að nöfn ykkar
megi fylgja.
TIL ALLRA ATTA
NEW YORK
Alla daga
REYKJAVÍK
OSLÓ
Mánudaga
Miðvikudaga
Laugardaga
KAUPMANNAHÖFN
Mánudaga
Miövikudaga
Laugardaga
L0FTICIBIR
*