Morgunblaðið - 22.09.1971, Síða 14

Morgunblaðið - 22.09.1971, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMRER 1971 JllWgtCltWflfrÍfr Útgafandi hf. Árvakur, Reykjavik. Framkvwmdastjóri Hsraidur Sveinsson. Rilstjórar Matthías Johannossan. Eyjóifur KonráS Jónsson. Aöstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgraiðsla Aðalstrasti 6, simi 10-100 Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22-4-80. Áskriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 12,00 kr. eintakið. SKIPASMÍÐAIÐNAÐURINN OG ERFIÐLEIKAR SLIPPSTÖÐVARINNAR Jj^ Iðnþingi, sem nýlega er lokið, var frá því skýrt, að sérfræðingur, sem hingað hefði komið á vegum Iðnþró- unarstofnunar Sameinuðu þjóðanna til þess að athuga stöðu skipasmíðaiðnaðarins, hefði m.a. komizt að þeirri niðurstöðu að tvöfalda mætti framleiðsluafköst skipasmíða sböðvanna án aukinnar fjár- festingar og með lítilli vinnu- aflsaukningu. Hefur sérfræð- ingur þessi lagt til að komið verði upp tæknimiðstöð fyrir skipasmíðaiðnaðinn er starfi í a.m.k. 5 ár og hafi á að skipa erlendum tæknimönn- um í skipasmíði. Þetta álit hins erlenda sér- fræðings er einkar eftirtekt- arvert vegna þess, að einmitt um þessar mimdir hafa kom- ið fram í dagsljósið nýir erfiðleikar hjá stærstu skipa- smíðastöð landsins, Slipp- stöðinni h.f. á Akureyri. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu sl. sunnudag varð 20 milljóna króna tap á smíði strandferðaskipanna tveggja og hallarekstur á árinu 1970 nam um 13 milljónum króna. Það sem af er þessu ári hef- ur einnig orðið tap á rekstri fyrirtækisins og forstjóri þess telur að verja þurfi um 20 milljónum króna til kaupa á nýjum vélum og tækjum. Alls er talið, að Slippstöðina vanti nær 100 milljónir kr. til þess að rekstrinum verði komið á skaplegan grundvöll. Þetta eru athyglisverð tíð- indi, ekki sízt í ljósi þess, að skammt er um liðið síðan gerð var endurskipulagning á rekstri og uppbyggingu Slipp- stöðvarinnar og gerðist ríkið þá m. a. hluthafi í fyrirtæk- inu, svo og Akureyrarbær. íslenzki skipasmíðaiðnaður- inin er ungur að árum. Hann hefur byggzt upp á örfáum árum fyrst og fremst fyrir dugnað nokkurra einstakl- inga og með stuðningi fyrr- verandi ríkisistjórnar og iðn- aðarráðherra. Engum þarf að koma á óvart, þótt erfiðleik- ar hafi orðið í skipasmíðaiðn- aðinum, þótt þeir séu mun stærri í sniðum hjá Slippstöð- inni h.f. en öðrum skipasmíða stöðvum. Ekki hefur komið til opinberra afskipta af mál- efnum annarra skipasmíða- stöðva eins og kunnugt er. Skipasmíðaiðnaður hefur í mörgum löndum reynzt erfið- ur viðureignar og eru mörg dæmi þess í nálægum löndum að jafnvel grónar og gamlar skipasmíðastöðvar hafi orðið gjaldþrota á seinni árum. Hins vegar er skipasmíðaiðn- aðurinn mjög mikilvæg iðn- grein og fyrir okkur íslend- inga er höfuðnauðsyn að efla þann skipasmíðaiðnað, sem hér hefur risið upp. En óneit- anlega vekur það athygli, að sú skipasmíðastöð, sem mest tækifæri hefur fengið, þ. e. Slippstöðin á Akureyri, hefur lent í mestum vandræðum. Slippstöðin fékk tækifæri til að byggja strandferðaskipin og nú hefur hún eihnig feng- ið tækifæri til að smíða skut- togara. ftrekaðir erfiðleikar Slipp- stöðvarinnar gefa tilefni til þess að vandamál skipasmíða- iðnaðarins í heild verði tekin til sérstakrar athugunar og í þeim efnum hlýtur álit sér- fræðings Sameinuðu þjóð- anna að koma til meðferðar. Bygging fiskiskipa og ann- arra skipa innanlands hefur slíka þýðingu fyrir þjóðar- búskap okkar að ekkert má til spara til þess að efla þessa iðngrein og skapa henni traustan grundvöll. „Blöðin eru slæm.. ...en sjónvarpið Rætt við John Osborne, — ekki reiðan U Nýlega birtist í brezka blaðinu „The Guardian“ við tal sem Terry Coleman átti við John Osborne leikrita- skáld og hinn upprunalega „reiða unga mann“ brezkra bókmennta. Fara glefsur úr viðtalinu hér á eftir. Síðan „Horfðu reiður um öxl“ var frumsýmt fyrir 15 ár um hefur Osbome sent frá sér revíu, tvö kvikmyinda- héindrit og 10 leikrit í við- bót, — og eitt þeirra „The Hotel in Amsterdam" er senmilega bezta enska leikrit ið á undanfömum 11 árum. Nú fyrir skömmu var svo nýj asta leikrit hans sett á svið í Royaíl Court. Hann hefur því verið afikastamikill. Fjór- ar blaðsíður leggur hann uindir sig í bókalista British Museum. En bann hefur ekki ritað nándar nærri eins mikið og ritað hefur verið um hann. Spekingslegair bókmennta- rannsóknir á verkum hans eru gefnar út hvað eftir ann- að, einkum (af ókunnuim ástæðum) í Edinborg, þar sem leitað er logandi Ij'ósi að merkilegum hlutum, og mynd líkingarnar (metafior) eru taldar óspart; í „Horfðu reiður um öxl“ eru 45 mjynd- likingar og í „The Entertain- er“ 53. Fyrir 10 árum síðan skrif- aði hann ritgerð, tileinkaða löndum sínum, sem sagði: „England, far þú til fjand- ans.“ Hann hefiur oft kallað blaðamenn lygara og svika- hrappa. En hann lítur sak- leysislega út. Hann er græn- metisæta. í samkvasmum að frumsýmngum loknum, virð- ist hann hengilmænast þögull í hornum, þá sj'aldan hann lætur sjá sig. Hann hefur ekki mikið álit á gildi blaða- viðtala, og efast um að þar sé unnt að komast nærri sannleikanum, jafnvel þótt vilji sé fyrir hendi, — og hann hefur rétt fyrir sér. Hann er lika feiminn. Þeg- ar við hittumst um daginn á heimili hans í Chelsea, byrj- uðum við því að rölta sinn meðfram hvoruim veggnuim í hinni stóru setustofu og horfðum hvor á annan, og settumst síðan eins langt hvor frá öðrum og unnt var. Hann sýndi mér teikningu af persónunum 26 sem minnzt er á í „Horfðu reiður um öxl“, en sem aldrei koma fram. Ég sagði honum frá myndlíking- unum 45 og 53. Hann sagði ömmu sina hafa orðið hundr- að ára um daginn, og svo tal- aði hann um föður sinn sem honum þótti mjög vænt um. Hann minnist þess, þegar hann beið eftir föður sinuim utan við bjórkrárnar og hafði gaman af hinum eggj- andi þef og kátinunni sem lagði út. Faðir hans var teiknari, sem lézt um fertugt úr berklum, eins og raunar margir fjölskylduimeðlimir. Sjálfur þjáðist Osborne af nokkrum sjúkdómsótta í æsku. Hann var sendur í leiðin- legan skóla í Barnstaple um tíma, þar sem skólastjórkm sló hann; Osbome sparkaði manninum út í hom í stað- inn og var umsvi falaiust rek- inn. 15 ára gamall gerðist hann blaðamaðuir. Blaðamaður? Hann ? „Ég hef alltaf haft áhuga á blaðamennsku . . . (þögn) ... — eins og þér vitið." Fyrir 45 shillinga á viku, vann á ýmsum minni háttar blöðum og timaritum. Svo að hann hefði eftir allt saman getað orðið fréttamaður sjálf ur? „Ég geri ráð fyrir því, ef þannig hefði legið á mér. En þá þegar fannst mér það ruddalegt starf.“ Um þetta leyti var hann að læra að dansa í leiklistar- og dansskóla einum í North John Osborne. Cheam. Skólastýrunni fannst hann likur Leslie Howard og var stöðugt að senda hann á prufuæfingar, og ým- iss kona,r leilkhússtúss; hann hafði sjö pund á viku og við það var hann meir og minna í sjö ár, þangað til hann skrif- aði „Horfðu reiður um öxl“. Royal Court tók leikritið til sýninga og gaf Osborne 12 pund á viku sem leikara og auk þess 30 shililnga fyrir að lesa yfir leikrit annars fólks. Bókmenntafræðingar telja 8. maí 1956 vera heilaga dag- setningu í leikhússögunni. Hvaða þýðingu hefur hún fyrir hr. Osbome? I fyrsta lagi er þetta afmælisdagur föður hans, sagði hann; I öðru lagi lauk þá heimsstyrj- öldinni siðari; og loks í þriðja lagi var „Horfðu reið- ur um öxl“ frumsýnt þennan dag. í upphafi var aðeins gert ráð fyrir þremur sýn- ingum, en þegar viðtökumar urðu jafn frábærar og raun bar vitni, varð að halda sýn- ingum áfram. Varð hann ekki reiður þeg ar blöðin kiölluðu hann reið- an ungan mann“? „Humm, ég bauð því kannski dálítið heim,“ segir hann. Þegar hér var komið sögu, sat hr. Osborne sallarólegur í sófanum, og var orðinn mjög blíður á manninn. „Dag blöðin eru ekki nærri því eins slæm og þau voru. Nú geyma þau illkvitni sína handa stjómmálamönnum en ekki mér.“ En hvað um gagnrýnend- ur? Hvers vegna lætur hann stöðugt eldi og brennisteini rigna yfir þá? Hafa einhverj ir þeirra ekki einhvern tíma rétt fyrir sér? Hvað um þeg ar hann skrifaði öllum helztu dagblöðum landsinis ár ið 1966 og sagði gagnrýnend- um opLnbert stríð á hendur? „Það var heWur tilgangslít ið atfhæfi. (Hrossahllátur) Ég hafði giaman af því að koma þessu af stað, þér skilj- ið. Það er gaman að leggja snörur fyrir igangrýnendur, en þeir virtust taka þetta með meiri alvöru en ég.“ Þannig er Osbome sáttur við gagnrýnendur í bili. Hann benti á að aldrei hefði gagnrýnanda verið reistur minnisvarði, og hann bankaði þrisvar í furugólfið, til von- ar og vara, og síðan hélt hann áfram að vorkenna gagnrýnenduim. „Greyskinn- in. Ein dapurliegasta sjón í leikhúsum, eru gagnrýnend- ur, — sérstaklega þegar þeir eru með þessa blyspenna sem lýsa þeim við skriftir. Maður sér þá grúfa sig yfir blöð sín og manni dettur í hug að benda þeim á að þeir séu að fara á mis við það sem er að gerast á sviðinu, og á meðan þaiufast þeir pár- andi á blöð sín. Auðvitað verða þeir að gera þetta, en það er mjög dapurleg sjón að sjá. Þetta er eins og að sjá dýr (og þegar hr. Osbome talar um dýr er hann að vera góður) önnum kafinn við að éta upp úr trogum sínum og missa af þvi sem fram fer í krinigum þau.“ Reyndar er álit Osbornes á gagnrýnendum hrein ölmusa, samanborið við álit hans á enska Þjóðleikhúsinu, og hann segist frekar vilja sitja heima og spjalla við hund- ana sina en fylgjast með þeim vinnubrögðum sem þar tíðkast. Nýja leikritið hans heitir „West of Suez“, en hann vill ekki um það ræða á þessu stigi. Svo verður útgáfa hams af „Heddu Gabler" sett á svið í desember. Og í tólf ár hefur hann langað til að skrifa lei’krit um Júdas, og það ætiar hann einhvem tíma að gera, vegna þess að huig- myndimar um svik og hefind ir hafa alla tið hrifið hann. Hvers vegna svik? „Vegna þess að ég hef oft orðið fyr- ir tilfinningu svika i lífi mínu, á einn eða annan hátt.“ Sveik hann, eða var hann svikinn? Hvort tveggja.“ Smá- eða stórsvik? „Mest stór, held ég.“ Dæmi? „Nei, það held ég ekki. Jú annars, en ég þekki yður ekki nógu vel.“ En hefndin er einkennilegt fyrirbæri? „Já, mjög svo.“ Hefiur hann einhvem tima hefnt sin á einhverjum? „Ekki á neinn tilkomumikinn hátt (hlátur), en ég heif svona gutlað við það.“ T.d. á gagnrýnendum? „Þannig já, auðvitað . . . Ég man eftir því að Tony Rich- ardson spurði mig einhverju sinni að þvi hvort við gætum drepið Kenneth Tynam \ (þekktur brezkur gagnrýn andi og rithöfundur). Ég sagði nei, en við gætum þó alla vega barið hann í Messu (glaðklakkalegur hlát 1 ur).“ Hr. Osbome var orðið sér- lega vel við blaðamenn, og bætti því við að endingu, að milljónir manna kyminu að horfa á sjónvarp, en hins veg ar „var sjónvarpið í gær- kvölidi enn ómerkilegra en dagblaðið 1 gær, vegna þess að það var ekki einu sinni hægt að noba það utan um fisk.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.