Morgunblaðið - 30.09.1971, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.09.1971, Blaðsíða 4
UL ■Tf híl.a lr.n. i v MJALURr 22*0*22- IRAUÐARÁRSTÍG 31 T'vílSI \mm BILALEIGA HVERFISGÖTU103 VW SoodrMwfreií-VW 5 mnmi-YWjwfnvasn VW 9m«ma-ljnlrovgr 7maima ffKSI ' f /TffTpry /*&&$>. ^LJo^ IITTfl BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13 Sími 14970 Eftir tokun 81748 eða 14970. BÍLALEIGA CAR REIMTAL TX 21190 21188 Hópferðir ~"í( leigu í lengrí og skemmri ferðir 8—?0 farþega bílar. Kjartan Ingimarsson simi 32716. Ódýrari en adrir! Shooh IBCAN AUÐBREKKU 44-4«. SiMt 42600. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1971 • Sveitaviana og sfldarvinna Jón Eiriksson, loftskeytaxnað ur, Bárugötu 36, Reykjavík, akrifar: „Reykjavik, 27. sept. 1971. Heiðraði Velvakandi! Meðfylgjandi er bragur, sem lýst var eftir í dálkum Velvak anda í Morgunblaðinu. Þeninan brag lærði ég fyrir um það bil fimmtíu árum og held, að hiann sé réttur, svo langt sem það nær, en jafnframt held ég, að það vanti endinn, en sé svo, þá hef ég aldrei kunnað harm. Vinsamlegast, Jón Eiríksson“. ÍBÍLALEIGAN UMFERD [42104 ^ In1 ■SENDUMl Ég mætti hérna um morguninn manni ofan úr sveit, og viltu vita, vinur minn, hann var í kvenmannsleit, á kúskimnsskóm var karlinn sá og kurfslegur að sjá, og á skinnsokkum upp að knjá var aulabárður sá. Svo fór hann mig að fala brátt og fimmtán krónur bauð, hann sagðist bjóða svona hátt í sinni miklu nauð. En andsvar honum gaf ég greitt, og gumann sagði ég við, ég kalla þetta kaup ei neitt, sem konum bjóðið þið. Það er svo voða vemmilegt að vera upp í sveit, ekkert verra eg hef þekkt, né ógeðslegra veit, að mjólka kýr og hirða hey og hreykja sauðataS, það hæfir ekki heldri mey að hugsa neitt um það. Bílaleigan SKÚLATÚNI 4 SÍMI15808 (10937) í síldina á Siglufjörð í sumar ætla ég mér, því vinnan þar er vart svo hörð, sem vera mun hjá þér, og sízt ég mundi súta par á sjóstígvélum hám, þó vilsu og slor ég verði þar að vaða upp að hnjám. Skipstjóri óskast á bát um áramót sem gerður verður út frá Grindavík á komandi vertíð. Tilboðum sé skilað á afgr. Mbl. fyrir 10. október merkt: „Skipstjóri — 3066". Nýkomið! Höfum tekið upp feikilegt litaúrval af SÖNDERBORG-garni. Hjá okkur getið þér valið um margar tegundir og jafnframt fengið prjónamynstur sem hentar. Verzlunin DALUR Framnesvegi 2. Og þegar sumarsólin skia á sunmudögum þar, þá uppdubbuð ég er og fím, þar út um götumar, í damssalinn svo drif ég mig, þá dimma tekur að, þar hugsi hver um sjálfan sig. ég segi ei meir um það. Sviar em sjentilmenn, sjást þeir stundum þar, fremri eru en frónskir menn þar fríðir norsarar, meyjarnar þeir mikið þrá, og mjög sú ást er heit, eg vil heldur eiga þá en aulabárð úr sveit. — Velvakandi þakkar Jóni kærlega fyrir braginn og býst við, að ýmsir hafi gaman af að rifja hann upp. 0 Samkeppni vi3 ríkis- spítalana á sviði heila- ritunarvélar-reksturs Friðþjófur Þórðarson skrifar: „Með línum þessum vil ég biðja þig, Velvakandi góður, að vekja athygli fólks á máli, sem snertir svið heilsugæzlunnar og að því er virðist harðnandi samkeppni nokkurra einstakl- inga við ríkisspítalana. Hér er um að ræða fólk, sem þarf að fara til svonefndrar heilaritun ar. Heilaritun er nú beitt í vax andi mæli, og er orðinn liður í rannsóknum læknanna á alls konar sjúkdómum. Ríkisspítalarnir eiga tvær slík ar heilaritunarvélar, og eru þær í Landspítalcinum og á Kleppi. Mér er sagt, að þetta sé góður vélakostur og eigi auðveldlega að geta annað allri þörf lands- manna á þessu sviði og það ekki aðeiins í dag heldur langt fram í tímann. Þeir, sem fara þurfa til heilaritunarmeðferðar greiða nú sjálfir aðeins litlar 175 krónur, hvort heldur farið er inm að Kleppi eða í Landspítal ann. Meðferðin mun alla kosta 690 krónur, og þennan mismun greiðir sjúkrasamlagið. En nú mun það hafa gerzt fyrir nokkru, að starfandi lækn ar við Landspítalann — þar sem önnur heilaritunarvélin er og atjórnandi hennar — hafa stofn að sína eigin heilaritunar-klín- ik, að sjálfsögðu í hörkusam- keppni við þann spítala, sem þeir starfa við og Klepp, og þar verður fólk að greiða hvorki meira né minna en krónur 2.000 — þannig hafa margir orðið fyrir miklum og óþörfum fjárút látum, vegna þess að hinir sömu höfðu ekki fengið vitneskju um að rikisspítalamir framkvæma slíka heilaritunarmeðferð fyrir fólk almennt sem hvern annan þátt í læknishj álpinni, sem sjúkrasamlögm veita almenin- ingi og allir eiga tilkall til. Ég hef heyrt, að forráðamenn sjúkrasamlagsins og yfirmenn heilbrigðisþjónustunnar hafi ekki viljað endurgreiða fólki heilaritunar-reikninga frá þess ari stöð læknanna. Augljóst er, að hér er á ferð inni mál, sem almenning snert ir, og vissar hliðar þess eru næsta furðulegar. En vonamdi sjá þeir þessar línur, sem hér verða að gera grein fyrir þessu dularfulla máli, og skiptir þá mestu, að hið rétta komi fram, ef hér væri, — óviljandi, — hall að réttu máli. Með vinsemd og virðingu, Friðþjófur Þórðarson“. Hjúkrunarkona ósknst Hjúkrunarkonu vantar að Geðdeild Barnaspítala Hríngsins, Dalbraut 12. Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan í sima 84611. Reykjavík, 28. september 1971 Skrifstofa rikisspítaianna. Fóstra óskast Fóstru vantar að Geðdeild Barnaspitala Hringsins. Dalbraut 12. Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan í síma 84611. Reykjavík, 28. september 1971 Skrifstofa ríkisspítalanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.