Morgunblaðið - 02.11.1971, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.11.1971, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1971 11 - Tillaga Sjálf- stæðismanna Framli. af bls. 28 Guðlaugur Gíslason, Jón Arnason, Pétur Sigurðsson, Matthías Bjarnason, Jóhann- es Guðmundsson, Lárus Jóns- son, Sverrir Hermannsson, Matthías Á. Mathiesen og Jóhann Hafstein. TILLÖGUGREININ Þingsályktunartillagaii hljóðar svo í heild: „Alþingi ályktar að lýsa yfir: 1. Fiskveiðilögsaga Islands nær yfir allt landgrunnið umhverfis landið. Ytri mörk landgrunnsins skulu vera 400 metra jafndýpislina, þangað til mörk þess verða ákveðin með lögum, en þó hvergi nær landi en 50 sjómilur frá grunnlinum. Alþingi felur nefnd þeirri, sem kosin var á síðasta þingi tii þess að semja frum- vairp til laga uim réitit Ísílendiin'ga til liandgrumnsiiins og hagnýtingar auðæfa þess, að ljúka störfum sem fyrst, svo að Alþingi það, er nú situr, geti fengið slikt frumvarp til meðferðar og £if- greiðslu. 1 næstu 3 ár er erlendum fiski- skipum heimilt að stunda veiðar upp að 50 mílna mörkum frá grunnliniun, nema þar sem sér- sitök friðunarsvæði kymmu að vera ákveðin utan þeirra marka. Ályktun þessi kemur til fram- kvæmda þann dag, sem ákveð- •inn verður af yfirstandandi Al- iþingi. ' 2. Ákveðin skulu friðunar- Svæði á mikilvægum uppeldis- stöðvum ungfisks á landgrunn- inu út að ytri mörkum þess. Heimilt er að miða aðgerðir þessar við tiltekinn tíma árs, við ,'akveðim veiðiitæki og veiðiað- 'ferðir og við stærð fiskiskipa. Friðunaraðgerðir þessar skulu gamga í gildi 1. marz 1972. 3. Settar skulu reglur um ..tímabundna friðun ákveðinna ’hrygningarsvæða innan núgild- ándi fiskveiðimarka, m. a. hluta af Selvögsbánka og tiltekinna svæða við Vestmannaeyjar. Reglur þessar skulu gilda frá 1. marz 1972. 4. Ríkisstjóminni er íalið að halda áfram og auka þátttöku í samstarfi þjóða til þess að hindra ofveiði og tryggja íslend- ingum eðlilega hlutdeild í fisk- veiðum á úthöfum, þar sem ís- lenzldr fiskveiðihagsmunir ná til. 5. Rikisstjórnin skal gera nauð- synlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir skaðlega meng- un sjávar við strendur landsins og á hafinu umhverfis það og eiga samstarf við aðrar þjóðir í því efni, eftir því sem þörf krefur. Við framkvæmdir samkvæmt þingsályktun þessari skal ríkis- stjórnin hafa samráð við Haf- rannsóknastofnunina og Fiskifé- lag Islands." GREINARGERÐ 1 greinargerð segir svo: Það er yfirlýst markmið Is- lendinga í landhelgismálinu, að íslenzk fiskveiðilandhelgi nái yf- ir allt landgrunnið umhverfis landið. Lögin frá 1948 um vís- indalega verndun fiskimiða landgrunnsins byggjast á þvi, að Island hafi rétt til þess að láta íslenzk lög og reglur gilda á landgrunnssvæðinu. 1 ályktun Alþingis 5. maí 1959 var ákveðið að afla viðurkenningar á rétti Islands til landgrunnsins alls. Ályktun Alþingis frá 7. apríl 1971 kvað svo á, að samið skyldi og lagt fyrir þetta þing frum- varp, þar sem m. a. væru „á- kvæði um óskertan rétt Islend- inga til fiskveiða í hafinu yfir landgrunninu." Þegar íslendingar leggja nú út í örlagaríka baráttu fyrir fjör- eggi sínu, finnst flutningsmönn- um hyggiíegt að stíiga skrefið tíl fulls og lýsa yfir fiskveiðilög- sögu á landgrunninu öllu. Þessi afstaða er í beztu samræmi við starf okkar og stefnu undan- farna tvo áratugi, og hún er rök- rétt afleiðing þess, að landgrunn ið er landfræðilegur hlutí lands- ins. Nú er viðurkennt órðið, að hvert land eigi allar auðlindir á og i sjávarbotni á öllu land- grunni sínu. Sú röksemd íslend- inga hlýtur að vera þung á met- unum á alþjóðavettvangi, að með sama réttí eigum við fiski- miðin á og yfir þessu sama land- grunni. Nefnd var kosin á síðasta þingi til þess að semja frv. til laga um „skilgreiningu á land- grunni Islands miðað við sem næst 400 metra jafndýpislínu, möguleg hagnýtingarmörk eða 50 mílur eða meira frá grimn- línum umhverfis landið, eftir þvi sem frekari rannsóknir segja til um að hagstæðust þyki“. Þang- að til þessi lög verða sett, þykir rétt að miða ytri mörkin við 400 metra jafndýpisliinu, þó svo, að hvergi komi nær landi en 50 sjó- mílur frá grunnlínum. En jafn- framt er lögð áherzla á það í til- lögunni, að nefnd þessi hraði störfum, svo að Alþingi það, er nú situr, fái frumvarp hennar til meðferðar og afgreiðslu. Um leið og tillagan ákveður, að allt landgrunnið skuli vera fiskveiðilandhelgi íslands, er gert ráð fyrir þvi til bráðabirgða, að erlend fiskiskip megi stunda veiðar upp að 50 milna mörkum í næstu 3 ár, nema þar sem frið- unarsvæði á landgrunninu ná út fyrir þau mörk. Með hliðsjón af þvi, að rikis- stjórnin hefur samið við Breta og Vestur-Þjóðverja um að hefja viðræður við þá um landhelgis- málið í nóvember, þykir ekki ástæða tíl að tiltaka nú þann dag, sem útfærsla landhelginnar gangi í gildi. Er lagt til, að hún komi til framkvæmda þann dag, sem yfirstandandi Alþingi ákveð- ur. FRIÐUNARSVÆÐI I 2. lið tillögunnar segir, að ákveða skuli friðunarsvæði á mikilvægum uppeldisstöðvum ungfisks. Er hér fyrst og fremst átt við svæði utan 12 milna út að ytri mörkum landgrunnsins. Þessar friðunaraðgerðir skulu ganga í gildi 1. marz 1972. Hér getur verið um algera friðun að ræða eða friðun á tilteknum árs- tíma. Einnig mætti banna til- teknar veiðiaðferðir og veiði- tæki eða banna veiðar fiskiskipa yfir ákveðna stærð. Friðunarað- gerðir hafa oft verið ræddar á alþjóðafunidum. Norður-Atlanits- hafsnefndin hefur t.d. árum sam an rætt um friðun fyrir Norð- Á FUNDI sameinaðs þings í gær var Kristinar L. Sigurðardóttnr minnzt af forseta þess, Eysteini Jónssyni. Að loknum minningar- orðum hans minntust alþingis- menn hinnar látnu með því að rísa úr sætum. Orð forseta sameinaðs þings fara hér á eftir. Kristín L. Sigurðairdótitir fyrr- verandi alþin'gismaður andaðisit í gær, 31. október, i sjúkrahúsi hér í borg efttr lanigvarandi van- heilsu, 73 ára að aldri. Vil ég leyfa mér að mimmasit hennar með noikkrum orðuim, áður ein gengið verður til dagskrár. austurlandi. Með þingsályktun- inni frá 7. april sl. fól Alþingi ríkisstjórninni „að undirbúa nú þegatr friðunaraðigerðir fyrir öllum veiðum tíl vemdar ung- fiski á landgrunnssvæðinu utan 12 mílna markanna, þar sem við- Uirkennit er, að um helztu uipp- eldisstöðvar ungfisks sé að ræða“. Með þessari tillögu, sem hér liggur fyirir, er lagt til, að nú sé látíð tíl skarar skríða, slík friðunarsvæði ákvörðuð og gangi í gildi strax í vetur. Líklegt er, að friðunaraðgerðir mæti skitningi og samúð hjá mörgum þjóðum, svo mikinn og góðan hljómgrunn eiga um þess- ar mundir náttúruvemd, friðun og barátta gegn rányrkju og of- veiði. FRIÐUN HRYGNINGAR- SVÆÐA 3. liður segir, að settar skuli reglur um tímabundna friðun ákveðinna hrygningarsvæða inn- an núgildandi fiskveiðimarka, m.a. hluta af Selvogsbanka og tiilitiekmna svæða við Vestmamna- eyjar. Vitað er, að á þessu svæði eru helztu hrygningarstöðvar að- alnytjafisks okkar, þorsksins. Hefur ásókn með veiðar i net farið vaxandi ár frá ári á þessu svæði, auk þess sem mun meiri tækni er farið að beita við veið- amar en áður þekktist. Er þvi ekki óeðlilegt, þó að nokkurs uggs sé farið að gæta hjá mörg- um sjómönnum, sem veiðar stunda á þessu svæði, að um ofveiði getí verið að ræða. Þeg- ar á árinu 1957 gerði Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi í Vestmannaeyjum einróma ályktun, þar sem bent var á nauð syn þess að friða ákveðin hrygn- ingarsvæði á þeim tíma, sem vitað er, að hrygningin fer fram. Ályktun þesisi vair send sjávar- útvegsráðuneytínu, ásamt sjó- kortum, sem tilgreind hrygning- arsvæði voru færð inn á. Á Alþingi 1961 var flutt tillaga um verndun hrygningarsvæða við strendur landsins, og náði sú til- laga samþykki Alþingis hinn 11. apríl 1962, en nokkuð breytt að efni til. Af framkvæmdum hef- ur enn ekki orðið, en ástandið er þannig, að vegna stóraukinn- ar tækni við veiðarnar á fiskur- inn nú orðið bókstaflega hvergi griðland, þegar hann sækir inn á umrætt svæði til hrygningar, Með góðum árangri er verið að stórauka lax- og silungsveiði í ám og vötnum með auknu klaki. Enn meiri nauðsyn er að gera vemdunarráðstafanir á helztu hrygingarsvæðum aðalnytjafisks okkar. Nú eru í gildi ýmsar verndar- ráðstafanir við strendur lands- ins. Má þar meðal annars nefna friðun Faxaflóa og Breiðafjarð- ar fyrir togveiðum, takmarkanir á dragnótaveiðum og tímabund- ið bann við síldveiðum. Með 2. og 3. lið þessarar til- Kristin L. Sigurðardóttir var fædd í Reykjavik 23. marz 1898. Foreldrar heninar voru Sigutrður, síðar stofnandi og skólastjóri lýðháskólans að Hvíitárbakka i Borgarörði, Þóró3ifisison bónda á Holtí og síðar Skriðnafelli á Barðaströnd Eimarssomair og fyrri kona hans Anna Guðmiundsdóttir skipstjóra i Hafinarfirði Ólafs- sonar. Kristín stundaði bama- skólamám í Reykjavík og fram- haldsnám í Hvítárbakkasikóla tvo vetur og var síðan við verzlunar- og skriifstofustörf í Reykjavík á árunum 1915—1918. Framhald á bls. 27. lögu er lagt til, að Islendingar stígi stór skref til vemdar fiski- stofnanna. Flm. telja það styrkja stórum málstað þjóðarinnar á al- þjóðavettvangi, þegar hún sjálf sýnir í verki eindreginn vilja til að vemda og friða hrygnimgar- og uppeldisstöðvar nytjafiska og leggur sjálf hart að sér í því efni. ÞÁTTTAKA I SAMSTARFI ÞJÓÐA Samkvæmt 4. lið skal rikis- stjórnin halda áfram að auka þátttöku í samstarfi þjóða tíl þess annars vegar að koma í veg fyrir ofveiði og hins vegar til að tryggja eðlilega hlutdeild Islendinga í fiskveiðum utan landgrunnsins, á úthöfum, hvar sem íslenzkir fiskveiðihagsmun- ir 'ná tU. Islendingar hafa hagsmuna að gæta á f jarlægum veiðisvæð- um t. d. í Norðursjó og við aust- urströnd Norður-Ameriku. Is- lenzk stjórnvöld verða því að fylgjast vandlega með allri þró- un mála á þessum fiskimiðum og öðrum, sem oft hafa verið drjúg íslenzkri útgerð. Eigi þarf siður að gæta hagsmuna lands- ins að því er snertir fiskveiðar í nánd við ísland, utan laind- grunns, t.d. við Grænland og á hafinu milli Islands og Noregs. Allt varðar þetta bæði ofveiði- hættu og skömmtun eða kvóta- kerfi, ef til slíks ættí að grípa. Ekki má það heldur gleymast, að göngur fiskistöfna breytast frá ári tíl árs, eins og daamiin sanna. Verður hér að vera vel á verði. MENGUN SJÁVAR Með 5. lið tillögunnar er rikis- stjórninni falið að gera nauðsyn- legar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir skaðiega meng- un sjávar við strendur landsins og á hafinu umhverfis það og eiga samstarf við aðrar þjóðiri í því efni. Af hinni síauknu óhreinkuh sjávar stafar ekki aðeins hvim- leiður óþrifnaður, heldur og stórfelldur háski fyrir fiskistofn- ana. Ráðstafanir gegn þessari geigvænlegu hættu þurfa að vera margþættar. Fyrst þurfum við að lita í eig* in þairm. I höfnum á Islandi Qg með ströndum fram brestur víða á æskilegt hreinlæti. Olínr og úrgangsefni menga sjóinn aílt of víða. Við þurfum sjálf að gera hreint fyrir okkar dyrum. Við þurfum að setja strangar reglur fyrir íslenzk Skip og erlend, er hingað koma, og framfylgja þeim. 1 annan stað þarf meng- unarlögsaga að ná langt á haf -út. En jafnvel þótt hún yrði ákveðin 100—200 mílur, nægir það engan veginn. Úrgangsefni, sem hleypt er í hafið mörg hundruð sjómílur frá íslandi, geta borizt með hafstraumum upp að ströndum landsins, á fiskimið, hrygningar- og uppeld- isstöðvar, og valdið óbætanleg- um usla. Samstarf þarf við aðr- ar þjóðir til þess að fyrirbyggja sjik skaðaverk. Helzt þyrfti hvert riki að bera ábyrgð á þeim skípum, sem þar eru skráð, og hafa virka umsjón með þvi, að varúðarreglum sé fylgt. Merk- ur atburður á þessu sviði var ráðstefna, sem haldin var nú í októbcrmánuði í Osló með þátt- töku 12 ríkja. Að lokum er lagt tíl, að ríkis- stjómiim skuli hafa samráð við Hafraninsóknaistiofnuhina og Fiskifélag Islands um fram- kvæmdir samkvæmt þessarí þingsáiyktun. Einn bolli og annar bolli - aftur í bollann - og einn bolla enn - því kaffið er frd 0.J0HNS0N &KAABER HF Kristínar L. Sigurðar- dóttur minnzt á Alþingi í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.