Morgunblaðið - 12.11.1971, Síða 4

Morgunblaðið - 12.11.1971, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1971 * ■—-25555 a®JÍ4444 iirnm 13ILALEIGA IIVERFISGÖTU 103 VW Sendifefðabifreií-VW 5 manna -VW sveínvagn VW 9manna-Landrovef 7manna ® 22*0-22* BÍLALEIGA CAR RENTAL n 21190 21188 Bílaleigan SKÚLATÚNI 4SÍMI15808 (10937) Ódýrari en aárir! Shodr LEIGAH AUÐBREKKU 44-46. SfMI 42600. bilaleigan AKBBATJT car rental service r8-23-tf sendum Tiorðurbraut H1 Hafnarfirði SÍMI 52001 EFTIR LOKUN 50046 Lausir bílar í dag Fasteigna- og skipasalan hf. Strandgötu 45 Hafnarfirði. Opið atta virka daga kl. 1—5. Simi 52040. Q Um sjónvarpsþátt Heiðraði VelvakandL Nú fyrir stuttu var mér aS berast Morgunblaðið frá laug- ardegi 30. 10. 1 þínum dáiki sá ég bréf frá Robert Valdimars- syni, sem ber yfirskriftina Um sjónvarpsþátt. Þar sem mér finnst bréfritari ráðast heldur ómaklega að einum þátttak- enda þessa sjónvarpsþáttar, finnst mér ég mega til með að rétta hlut fómardýrsins og koma í veg fyrir eins og mér er unnt að hann sæti röngum ákúrum. R. V. er óánægður með sjón- varpsþátt sem útvarpað var 4. okt. sl., og þar er ég honum sammála eins og margir fleiri eru eflaust. Ástæða óánægju R. V. er að hann telur að Óm- ar Valdimarsson hafi verið mest til einráður. R. V. gerir sér grein fyrir að þátturinn hafi haft þann tilgang að koma á framfæri skoðunum þátttak- enda, en segir svo „að hann (Ó.V.) legði mest í að koma sínum eigin háfleygu skoðun- um á framfæri“. Burt séð frá því hvað hver og einn kallar háfleygar skoðanir var Ó.V. aðeins að gera það sem til var ætlazt af honum. Og svo ræöst R. V. á Ómar og segir að „hann hafi viljað láta athyglina bein- ast að sér“, — „með þessu mótí urðu þessar viðræður of einræðislegar". Og þar að auki heldur R. V. því fram að Ömar hafi ekíki gefið Ástu og Jó- hanni tíma til að tala og „þú beinlínis eyðilagðir þennan um- ræðuþátt með því að leyfa ekki Ástu og Jöhanni að eiga meiri þátt i umræðunum“. Þvilík ósvifni að skella allri skuldinni á einn þátttakendanna, finnst mér fram úr hófi ósanngjöm og á engan rétt á sér. Það er hlutverk stjómanda að skipta tíma niður á milli umræðenda, en þvl miður, sá sem átti að stjóma var alls óhæfur til þess arna og ástæðan fyrir að þessi þáttur fór út um þúfur liggja hjá Agli. Og til að kóróna vit- leysuna í bréfi sínu, heldur R. V. því fram að Egill eigi að stjórna fyrsta þættinum. Það væri svo vissulega í anda stefnu sjónvarpsins ef svoleiðis heimska yrði að veruleika. O. B. Schram, Cambridge. 0 Strætisvagnarnir Þegar hið nýja leiðakerfi S. V.R. kom til framkvæmda var sagt að nú myndu strætisvagn- arnir ekki aka í halarófu um miðborgina, en það hefur því miður ekki staðizt, því nú koma oft tveir, þrír og jafnvel fjórir vagnar í röð inn Hverfisgötu, niður Laugaveg og Austur- Hjúkrunarkonur óskust Fjórar stöður hjúkrunarkvenoa við bæklunarsjúkdómadeild Landspítalans eru lausar til umsóknar. Stöðumar veitast frá 1. janúar 1972. Umsóknarfrestur er tit 1. desember 1971 og skulu umsóknir sendar til Stjórnarnefndar ríkisspítalanna, Eiríksgötu 5, Reykjavík. Umsóknareyðublöð fást á Skrifstofu ríkisspítalanna. Nánari upplýsingar veitir forstöðukona Landspítalans. Reykjavík 11. nóvember 1971. Skrifstofa ríkisspítalanna. Sölumonno- deild V.R. Hádegisverðarfundur verð- ur haldinn í Átthagasal Hótel Sögu laugardaginn 13. nóvember kl. 12,15. Gestur fundarins verður hr. viðskiptamátaráðherra LÚOVÍK JÓSEPSSON. Hver hefur ekki áhuga á því að vita hvað er fram- undan í viðskiptamálum þjóðarinnar? Allir fétagar i V. R. ásamt gestum eru velkomnir á fundinn. Athugið! Skýrt verður frá gangi samníngaviðræðna. STJÓRNIN. stræti. Erfitt er þá að komast yfir götuna, svo ekM sé talað um hávaðaum, rykið og út- 0108111111111, og oft leiðir þetta líka af sér umferðartruflanir og hættur. Nú þegar verið er að smíða nýja strætisvagna, leyfi ég mér að koma með þá uppá- stungu, f.h. margra, t. d. barna, gamalmenna og eiginlega allra „strætó“jnotenda, að númera gluggamir verði gerðir helm- ingi stærri og hafðir á öllum fjórum hliðum vagnsins, og að hið óþarfa og ruglingslega núll, t.d. 03, 09, hverfi, og að nöfn leiðanna verði ekki skrif- uð með upphafsstöfum heldur með litlum stöfum, sem greini- legra er að lesa, t.d. ekki SKERJAFJÖRÐUR-LAUGAR- ÁS, heldur Skerjafjörður-Laug- aréis o. s. frv. Ég ferðast oft með strætis- vögnum og er reynsla min af fyrirtækinu góð og langflestir vagnstjóranna eiga hrós skilið, en stundum taka þeir þó krapp- ar beygjur og hringakstur með of miklum hraða til óþæginda öllum farþegum. (T. d. datt kona úr sæti sínu og meiddist). „ROLLÓ". 0 Bréf að norðan Kæri Velvakandi. Þú ert orðinn nokkurs konar samvizka þjóðarinnar, þarf sem öllum er heimilt að leggja orð í belg og koma með aðfinnsl- ur sínar og kvartanir. Nú lang- ar mig til að slást í för með því fólki, sem áður hefur látið í Ijós skoðanir sínar á ýmsum málefnum hér í dálkum þínum og vona, að mér verði ekki út- hýst. Fyrirfram veit ég, að nöld- urs- og afturhaldsseggur muni ég kallaður verða, en læt mér það í léttu rúmi liggja. Það hefur mikið gengið á bæði í höfuðstaðnum og úti á landsbyggðinni undanfarnar vik ur, við að safna fé til handa sveltandi fólki i Pakistan. Það er auðvitað sjálfsagt að rétta hjálparvana bræðrum og systr- um hjálparhönd, en hefur ekki verið gengið dáiítið of langt í þessum fjársöfnunum undan- farið. Við erum alltaf fljótir að bregðast við þegar svona stend- ur á, en er nú ekki mál til kom- ið að hinkra við og skoða að- stæður allar. í fyrsta lagi: Höfum við nokkrar sannanir fyrir að þetta fé komist til þeirrEi, sem það er ætlað og sem mesta þörf hafa fyrir hjálpina? í öðru lagi: Eru ekki óþrjót- andi verkefni að vinna hér hjá okkur sjálfum, sem þurfa mik- ið fjármagn og sem okkur er bráðnauðsynlegt að leysa sem fyrst? 1 þriðja og síðasta lagi: Er ekki dáiítið varasamt að verð- launa böm og ungmenni fyrir að ganga í hús, stofna til skemmtana og hlutavelta, til þess eins að hafa sem mest fé út úr náunganum, jafnvel þó að tilgangurinn eigi að helga meðalið. Stundum hefur slikt verið misnotað og munu þess enn dæmi. 1 gærkvöldi horfði ég á sjón- varpið og sá þá og heyrði með- al annars norskan prest, sem mér skilst að sé hér á vegum kirkjunnar í tilefni Pakistan- söfnunarinnar. Mér fannst þessi prestur vægast sagt mjög ógeðfelldur, þrátt fyrir hið blíða bros, sem hann lét á sig öðru hverju. Fyrst undraðist hann að eigin sögn, það fyrir- bæri að Islendingar, sem byggju hér við yztu takmörk heimsins, að mér skildist, hefðu lagt svo rausnarlegan skerf til Pakistanbúa og ætluðu að senda það alla leið til Indlands, og I næstu andrá sagði hann Islendinga skylduga til þess að láta fé af hendi rakna. Jæja, þetta er nú . orðið of langt mál og sjálfsagt búið að hneyksla marga, svo ég slæ botninn í. Jón Magnússon, AkureyrL Stationbílar t i 1 s ö 1 u Volvo 144 station árg. ’70, ekinn 21 þús. km., nýinnfluttir Opel og Taunus ’68, ’69. GUÐMUNDAR Bergþóruqötu 3 Slmar: 19032 — 20070 Höfum opið til klukkon 10 eftir húdegi í kvöld HERRADEILD Austurstræti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.