Morgunblaðið - 12.11.1971, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1971
HÚSMÆÐUR
Stórkostleg læklcun á stykkja
þvotti, 30 stk. á 300 kr. Þvott
ur, sem kemur í dag, tilbúinn
á morgun. Þvottahúsið Eimir
Síðumúla 12, sími 31460.
8—22 SÆTA
hópferðabifreiðir til leigu.
Einnig 5 manna „Citroen
G. S." leigður út en án bíl-
stjóra. Ferðabílar hf., sími
81260.
KENNSLA
Kenni stærðfræði, íslenzku og
dönsku til barna- og ungfinga-
prófs, Uppt. í síma 82009.
HJÚKRUIMARKONA
óskar eftir íbúð nálægt Land-
spítalanuim frá janúar til júlí.
Regfusemi, fyrirframgreiðsla.
Upplýsingar í síma 93-1349,
TIL SÖLU
Moskvitch, árgerð 1966. —
Selst ódýrt. Sími 2812
Keflavík.
ITÖLSK RÚMTEPPI
2,20x2,50 — 6 gerðir.
Litliskógur
ihorrvi Hverfisgötu og Snorra-
brautar.
BARNLAUST PAR
óskar eftir tveggja herbergja
íbúð, sem fyrst, í Rvík eða
Kópavogi. Algjör reglusemi,
örugg greiðsla. Uppl. í síma
25824 eftir kl. 5.
TVÆR REGLUSAMAR
stúlkuir utan af landi óska
eftir eins til tveggja herbergja
tbúð í Reykjavík. Einhver
húshjiálp kemur til greina.
Uppl. í s. 92-2591 Keflavík.
UNG HJÓN
með ársgemalt barn óska
erftir eins til tveggja herbergja
íbúð. Uppl. í síma 50956 e. h.
TIL LEIGU
Þriggja herbergja íbúð er til
leigu í Vesturbænum. Tilboð
óskast, tilgreini fjölskyldu-
stærð. Merkt Vesturbæ —
3471.
SEDIFERÐABlLL
Til sölu Taunus Trensit, árg.
1966. BíHinn er nýskoðaður.
Uppl. í síma 83829.
BASARINN OG KÖKUSALAN
verður að HaHveigarstöðum
kl. 2 á laugardag. Vinsamleg-
ast skilið kökum og munum
fyrir hádegi.
Húsmæðraféiag Reykjavikur.
SMELTI — HANDAVINNA
Tauþrykk, taumálun, haon-
yrðir. Nóvember-némskeiðið
að hefjast. Uppf. i síma
84223. Jóhanma Snorradóttir.
IBÚÐ ÖSKAST
Barnlaus, ung hjón óska eftir
snyrtifegri íbúð sem fyrst,
eða ekki síðar en 1. des-
ember. Vinna bæði úti. Reglu-
semi og góðri umgengni heít-
ið Uppl i s. 32371 á kvöfdin.
IESI0 \
3U1orj)»nþTíiö!>
DRSLEOn
Sérleyfishafar fortíðarinnar
Myndin hér að ofan átti að fylgja umsögrn um Dýraverndarann,
sem kom í hlaðtnu I gær, en hún villtist frá henni. Myndin
er af gömlum póstvögnum, einskonar sérleyfisbílum þeirra tíma,
og margt eldra fólk man enn eftir því að hafa ferðazt með elík-
um vögnum. Ritstjóri Dýravemdarans, Guðmimdur G. Hagalín,
skrifaði m.a. undir mynd þessa á þá leið: „þessi mynd er frá
þeim tíma, sem póstur og farþegar fearðuðust i hestvögnum, þar
sem til voru hér á landi svokailaðir „lagðir vegir“, sem þóttu þá
lithi ómesrkilegri framför en þotur nútímans.“
Pakistansöfnun á Akranesi
I»að muTiar ef til vill ekki mikið um þær krónur, sem þessar
fjórar ungu Akranesstúlkur söfnuðu í sjóðinn til hjálpar hungr-
uðum og þyrstum í Pakistan, þar sem það ilia rífur meira niður
en góðviljinn hyggir upp. En það gerist j>ví miður víða. — Samt
skal þess getið, að þær söfnuðu af frjálsum vilja kr. 15.000 i
þeirri góðu trú að þessir peningar hjálpuðu nokkrum bágstödd-
um börnum. — Meðfylgjandi mynd er af stúlkunum, talið frá
vinstri: — Sigrún Sigurðardóttir, Kristín Vilmundardóttir, Sigríð-
ur I.árusdóttir og Eiín Óladóttir.
Pú ert mikiil Drottinn Guð, þvi að enginn er sem þú.
(Sam. 7.2).
1 dag er föstudagur 12. nóvember og er það 316. dagur ársins
1971. Eítir lifa 49 dagar. Ardegisháflæði kl. 2.22. (Ur íslands
almanakinu).
Aimennar upplýsingar um lækna
þjónustu í Reykjavik
eru gefnar í símsvara 18888.
Lækningastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema á Klappar-
stíg 27 frá 9—12, símar 11360 og
11680.
Næturlæknir í Keflavík
12., 13. og 14. Jón K Jóhannss.
15.11. Kjartan Ólafsson.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74
er opið suminiudaiga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar
Cgengið inn frá Eiríksgötu) er
opið frá kl. 13.30—16. Á sunnu-
dögum
Náttúrusripasafnið Hverfisgötu 116,
Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og
sunnud. kl. 13.30—16.00.
náðsjafarþjónusta Geðverndarfélags-
ins er opin þriðjudaga kl. 4.30—6.30
slðdegis að Veltusundi 3, slmi 12139.
ÞJónusta er ókeypis og öllum heimil.
Sýning Handritastofunar fslands
1971, Konungsbók eddukvæða o*
Flateyjarbók, er opin á sunnudögum
kl. 1.30—4 e.h. i Árnagarði við Suður
götu. Aðgangur og gýninearskrá
ókeypis.
Blöð og tímarit
Dyrhólaey, rit byggðasam
bands Vestur-Skaftfellinga 1, er
nýkoimið út, sérstaklega útgefið
til kynmngar á hafnargerð við
Dyrhólaey, og er ritið prýtt fjöl
mörgum myndum. Af efni þess
má nefna: Inngangur eftir
Gunnar Stefánsson. Dyrhólaey
eftir Einar J. Eyjölfsson. Leit-
að svara eiftir Reyni Ragnarsson.
Höfn við Dyrhölaey er þjóð-
hagsleg nauð'syn eftir Einar
Oddsson. Mengun e'ftir Þórar
in Heligason. Hafnargerð við
Dyrhólaey eftir Einar H. Einars
son. Tiliboð Þjóðverjanna eftir
Ragnar Jónsson. Hafnargerð
við Dyrhólaey, hundrað ára gam
al't baráttumál eftir Einar Odds
son. Hvað næst? eftir Björgvin
Salómonsison. Byggðasamband
Vestur-Skaftfellinga eftir Jón
Helgason. Lög Byggðasambands
V-Sikaftfellinga. í ritnefnd eru
Gunnar Stefánsson og Reynir
Ragnarsson.
VÍSUK0RN
Ógieðsleg er auðarbrik,
ekkd er mér um garminn,
heldur vildi ég hafa tí'k
hjá mér upp í arrninn.
Páll Vídalín.
SÁ NÆST BEZTI
Gréta litla var fimm ára og hafði í fyrsta skipti farið með for-
eldrum sinum i kirkjiu um jóiin bæði á arlfangadag og jóladag.
Hún hafði dengt spurningunum yflr foreldra sina í tiLeifni af öll-
um þessum undahlegu hlutum i kirkjunni, og hún hafði femgið
skjót og greið svör.
Á annan í jólum tóku foreldrar hennar hana með sér í sjúkra
húsið, til þess að heimsækja frænda, seim þar lá. Strax oig
Gréta sá töJLu fyrir ofan rúm sjúkMngsms og töluna 37.6 á henni,
hrópaði hún upp yfir si,g:
— Ég véit líika hvaða sálm á að syngja núna, frændi. Það er
sálmurinn númer 37.6!
99
EKKERT JAFNAST A VIÐ AÐ EIGA G0Ð 0G HEILBRIGÐ B0RN“
„Enginn veit, hvenær sjúk-
dómar, örkuml og lömun ber
að dyrum hjá honum sjálfum
eða hans nánustu,“ sagði Jón
ina Þorfinnsdóttir, formaður
Kvennadeiidar styrktarfé-
iags lamaðra og fatlaðra,
þegar við hittum hana á förn
inn vegi, og hún var augrsýni-
lega að flýta sér, enda vafa-
laust mörg verkefnin hjá
kvennadeildinni.
„Stendur nokkuð sérstakt
tö, Jónina?"
„Já, ég held nú það, við ætl
um að halda basar á laugar-
daginn kl. 2 í Æfingastöðinni
að Háaleitísbraut 13 til ágóða
fyrir starfsemi okkar, og þar
verður margt á boðstöLum.
Við köHum þetta raunar jóla
basar, enda selt þar mikið af
jölavörum, og það á þvi vel
við, að þeir sem vilja rétta
hinum mátíarminni hjálpar-
hönd, prýði heimiti sin á jól-
um, þeirri mikliu kærleikshá-
tið, að það sé bæðj táknrænn
og raunverulegur stuðningur
við líknarstarfsemi."
„Hvenær var þessi kvenna
deiLd stofnuð?"
„Hún var stofnuð 1966, og
er tilgangur hermar að
styrkja Sryrktarfélag lam-
aðra og fatiaðra með ráðum
og dáð. Við erum núna 160
konur í deildinni, og höldum
föndurfundi hálfsmánaðar-
Jónína Þorfinnsdóttir, for-
maðnr kvennadeildar Styrkt-
arfélags lamaðra og fatJaðra.
lega að jafnaði, og reynum sí
fellt að hafa þá opnari og
ræða meir um almenn mál á
þeim, en oít hefur verið. Og
þeigar líður að basiamum, þá
fjölgurn við fundunum, enda
verður þá sífellf meira að
gera.“
„Hver hafa verið helztu
verkefni ykkar að undan-
förnu ?“
„Megináherzluna leggjum
við auðvitað á styrk við Æf-
ingastöðina á Háaleitistoraut
13, og til hennar höfum við
keypt ýmis æfingatælki, og
núna rétt nýverið lögðum við
fram 150.000 krónur til
kaupa á hreinsitækjum, í
nýju sundlaugina í Æfinga-
stöðinni, sem er verið að taka
í notkun, og jafnfram erum
við að kaupa tæki til notlcun
ar við endurhæfingu í stöð-
inni. Næstu verkefni er að
styrkja sjúkraþjálfara til
náms, annað hvort einhvern,
sem er að hefja nám, eða sem
er í námi þegar. Einnig er
hugimyndin að sityrkja iðju-
þjáltfara til náms, ef mögu-
leiki reynist. Fyrir utan æf-
ingaistöðina, berum við mjög
fyrir brjósti skólann í Reykja
dal í Mosfellssveit. 1 þeim
skóla eru börn, sem vegna
bæktanar, lömunar eða af öðr
um sökum eiga ekki samleið
með öðrum börnum.“
„ESga konurnar i kvenna-
deildinni allar um sárt að
binda vegna lömunar barna
sinna?“
„Nei, alls ekki, en um mang
ar er samt svo farið, eða
þá, að þetta hefur hent eín-
hvern nákominn ættingja.
Annars starfa með okkur
mangar konur, sem hugsa á
þann veg, að með starfinu
séu þær að þakka fyrir það
að eiga heilbrigð börn, því að
ekkert jafnast á við það. Æ
fiLeiri einstakLinigar, sem áð
ur hefðu verið dauðadæmdir,
vegna meðíæddra galla,
verða að heyja sína lifsbar-
áttu í heimi hinna heilbrigðu,
einnig þeir, sem verða fyrir
örkuml af völdum sjúkdóma
og slysa, og þessu fólki ber
að hjálpa.
Og enginn veit, hvenær
slíkt ber að garði hjá honum
sjállfum eða hans nánustu. Það
er þvi brýn nauðsiyn á, að
basarinn ökkar á morgun,
laugardag, verði vel sóttur,
og eins og ég sagði áður, er
þar á boðstólum falleg handa
vinna, matvara, kökur, arls
kyns jólavörur, og síðast en
ekki sízt alls kyns lukkupott
ar, sem hafa verið mjög vin-
sælir.“
Og með það felldum við
Jónína talið, og ég vona, að
fólk sjái af þessu samtali,
hve brýn nauðsyn er á að
styðja við bakið á þessum
fórnfúsu konum. Það vita
a.m.k. þeir, sem þurft hafa að
leita til Æfingastöðvarinnar
að Háaieitisbraut 13 — Fr.S.
A
förnum
vegi