Morgunblaðið - 12.11.1971, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1971
I
16
Otgafandi hf. Arvakur, Fsykjavík.
Framkveamdaatjóri Heraldur Svainsaon.
Rilrtjórar Matthías Johanneasan.
Eyjóifur KonráS Jónsson.
Aðatoðarritatjóri Styrmir Gunnarsson.
RitatjómarfuHtrúi Þorbjðrn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýa'mgastjóri Ami Garðar Kristinsson.
Ritatjórn og afgraiðsla Aðalstrsati 6, sími 10-100
Augiýsingar Aðalstresti 6, simi 22-4-80.
Askriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlsnda.
I leueasðlu 12,00 kr. eintakið.
ORKUVEITUR
Tt/fikil leynd virðist hvíla yf-
ir fyrirætlunum ríkis-
stjórnarinnar í raforkumál-
um landshlutanna. En af
þeim fregnum, sem borizt
hafa af lokuðum fundum, sem
ráðherrar hafa átt með full-
trúum byggðarlaga, virðist
augljóst, að ríkisstjórnin hafi
ákveðið að hætta við virkjan-
ir á Norðurlandi, hverfa
alveg frá áformum um virkj-
un í Svartá í Skagafirði og
jafnframt að ákveðið verði,
að um frekari virkjunarfram-
kvæmdir í Laxá verði ekki
að ræða. Þessar fyrirætlanir
ríkisstjórnarinnar hafa vald-
ið mikilli ólgu á Norðurlandi
og meðal þeirra þingmanna
stjórnarflokkanna, sem Norð-
lendingar hafa sent til Al-
þingis.
í tilefni af þessum áform-
um ríkisstjórnarinnar er
ástæða til að minna á þings-
ályktunartillögu, sem níu
þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins úr öllum kjördæmum
landsins utan Reykjavíkur
hafa flutt á Alþingi og Jón
Árnason er fyrsti flutnings-
maður að, þess efnis, að kom-
ið verði á sérstökum orku-
veitum landshluta, er taki
við verkefnum Rafmagns-
veitna ríkisins. í tillögunni er
gert ráð fyrir, að rafveitur,
sem fyrir eru á hverju svæði,
geti orðið aðilar að þessum
landshlutavirkjunum.
í greinargerð fyrir til-
lögu sinni segja þingmenn
Sjálfstæðisflokksins m.a.:
„Skömmu áður en orkulög-
in voru sett hafði Alþingi
samþykkt lög um Lands-
virkjun og Laxárvirkjun,
tvö raforkusvæði í sameign
ríkis- og sveitarfélaga fyrir
tiltekin svæði í landinu. Lít-
um við flutningsmenn svo
á, að með því hafi verið
mörkuð sú stefna, er fylgja
beri í raforkumálum, þ.e. að
skipta landinu í orkuveitu-
svæði eftir hagkvæmum land-
fræðilegum mörkum og
stjórnunarlegum, t.d. í sam-
ræmi við núverandi kjör-
dæmi. Fyrir þessu er mjög
vaxandi áhugi um byggðir
landsins. í öllum landshlutum
eru risin eða að rísa orkuver,
sem byggja grunninn undir
þessa skipan mála. Viður-
kennt er, að í vatnsorkunni
er ein mesta auðlind lands
okkar, sem með látlausum
tækniframförum verður auð-
LANDSHLUTA
nýttari og jafnframt kalla
tækniframfarirnar á síaukna
orkunotkun, sem í senn
tryggir fjárhagsgrunn orku-
veitnanna og kallar fram
vilja íbúanna á hverju svæði
til valds yfir þessum verð-
mætum, stjórn þeirra og
ábyrgð allri.“
Sú skoðun er nú mjög ríkj-
andi úti um hinar dreifðu
byggðir landsins, að forsenda
fyrir því, að byggð haldist
úti um land og uppvaxandi
kynslóðir fáist til að festa
þar rætur, sé sú, að dreifbýl-
ið búi ekki við lakari hlut en
þéttbýlið að því er varðar
félagslega aðstöðu, heilbrigð-
isþjónustu og menntunarað-
stöðu og að sjálfstjórn hérað-
anna og sveitarfélaganna auk-
ist mjög frá því, sem nú er,
þannig að dreifbýlið verði
ekki að leita til opinberra að-
ila í Reykjavík um ákvarðan-
ir í smáum málum og stór-
um.
Stefnan í raforkumálum
hlýtur að vera í mjög nán-
um tengslum við þessa af-
stöðu dreifbýlisins. Sjálfstæð-
ar orkuveitur í einstökum
landshlutum auka á sjálf-
ræði byggðanna og sveitar-
félaganna og laða að tækni-
menntað fólk. Þess vegna er
ekki aðeins um það að ræða,
hvort tryggja eigi orkuþörf
einstakra landshluta eins og
t.d. Norðurlands með virkj-
unum fyrir norðan eða streng
að sunnan, heldur er hér
einnig um að ræða kjarnann
í þeirri dreifbýlisstefnu, sem
við hljótum að byggja á
næstu áratugi.
Afstaða ríkisstjórnarinnar
til raforkumála dreifbýlisins
bendir eindregið til þess, að
vinstri stjórnin stefni að því,
að efla miðstjórnarvald á
suðvesturhorni landsins og
draga þar með enn úr áhrif-
um þeim, sem heimamenn
hafa á hverjum stað í málefn-
um sinna byggðarlaga. Gegn
þessari eflingu miðstjórnar-
valds er nauðsynlegt að
bregðast af fullri einurð og
festu. Viðbrögð Norðlend-
inga, Fjórðungsráðs þeirra
og annarra málsvara benda
eindregið til þess, að þeir
hyggist ekki fallast á þessa
stefnu ríkisstjórnarinnar þegj
andi og hljóðalaust heldur
berjast ákveðið fyrir hags-
mUnum sinna héraða.
0BSERVER >f OBSERVER
Namibia veldur
ágreiningi...
— milli Bretlands og USA
1 ÖRYGGISRÁÐI Sameinuðu
þjóðanna hefur komið upp al-
varleg-ur ágreiningur milli rík
isstjórna Bretlands og Banda-
ríkjanna um yfirráð Suður-
Afríkustjórnar yfir Suð-
Vestur-Afríku, sem nú er
venjulega talað um á vett-
vangl SÞ undir nafninu
Namibia.
Ágreiningur þessi, sem
veldur áhyggjum í stjórnar-
búðum beggja ríkjanna, hef-
ur haft áhrif á umræðumar í
öryggisráðinu um þær sakir
sem stjóm Zambíu ber á for-
sætisráðherra Suður-Afríku,
að hann hafi sent herlið yfir
landamæri Zambíu til þess
að elta uppi skæruliða, sem
höfðu sprengt upp lögreglu-
bifreið í nágrenni Katima
Mulilo, mikilvægs flugvallar
flughers S-Afríku í Namibiu.
Það vekur mikla athygli í
þessu máli, að sendiherra
Bretlands hjá Sameinuðu
þjóðunum hefur lýst því yfir
á Allsherjarþinginu, að Bret-
ar vísi á bug þeim lagalegu
röksemdum sem liggi til grund
vallar þeim úrskurði Alþjóða-
dómstólsins í Haag, að stjórn
Suður-Afríku haldi yfirráðum
yfir Namibiu ólöglega og að
Sameinuðu þjóðirnar hafi
vald til þess að taka af Suður-
Afríku umboð til að stjórna
þessu landsvæði, en það hefur
Suður-Afríka gert frá því
Þjóðabandalagið ákvað þá
skipan mála árið 1923.
Með því að hafna úrskurði
Alþjóðadómstólsins í Haag á
lagalegum grundvelli hefur
brezka stjómin skipað sér í
lið með stjórnum Portúgals
og Suður-Afríku.
Bandaríkjastjórn hefur hins
vegar lýst þvi yfir á Alls-
herjarþinginu, að hún viður-
kenni úrskurð Alþjóðadóm-
stólsins.
Afstaða brezku stjórnarinn-
ar er skrifuð á reikning Sir
Alecs Douglas Home, utanrík-
isráðherra. Hann ferðaðist
um Namibiu fyrir þremur ár-
um og kvaðst, er heim kom,
ekki sjá neitt betra fyrirkomu
lag fyrir Namibiu en að land-
ið tilheyrði áfram Suður-
Afríku. Hann hefur hins
vegar sagzt gera sér ljóst hve
alvarleg alþjóðleg vandamál
það hefur í för með sér, að
Suður-Afríkustjórn skuli
virða að vettugi samþykktir
Sameinuðu þjóðanna um
þetta mál. Hefur hann lagt til
að reynt verði að koma á
samningaviðræðum með það
fyrir augum að láta fara fram
meðal íbúanna í Namibiu ails
herjaratkvæðagreiðslu um
framtíð landssvæðisins. Þar
búa nú 240.000 blökkumenn
og 35.000 hvítir.
Síðan hefur það gerzt og
komið nokkuð á óvart, að einn
af helztu ættbálkahöfðingjum
í Namibiu, Clemens Kapuuo,
foringi Herero-manna, hefur
fengið brezkt lögfræðifyrir-
tæki til þess að móta lögfræði
lega kröfur um réttindi lands
manna hans og búa málið i
hendur fulltrúa þeirra, sem
leggur það fyrir Sameinuðu
þjóðimar. Kapuuo kvartar sér
staklega um rányrkju Suður-
Afríkustjormair á imiálminiámum
landssvæðisins og gerir þá
kröfu, að öll erlend fyrirtæki
hætti þar starfsemi sinni. Þar
á meðal eru nokkur brezk fyr
irtæki. Ennfremur krefat hann
þess, að afrískir íbúar Nami
biu fái sanngjarnari skerf af
auðlindum landssvæðisims og
vill, að ráðgazt sé um það við
ibúana með hverjum hætti
því verði helzt komið í fram
kvæmd.
Innan þessa Umdeilda land
svæðis hefur ólga farið vax-
andi á síðustu árum. Skærulið
ar neðanjarðarhreyfingar, sem
kallast Þjóðarsamtök Suð-
Vestur-Afríku (South West
African People’s Organization
— skammstafað SWAPO) —
hafa látið til sín taka í vax-
andi mæli og eru raunar einu
þjóðfrelsissamtök Namibiu
sem stjórn Suður-Afríku hef
ur ekki tekizt að kveða niður.
Hins vegar hefur stjórn S-
Afríku verið treg að viður-
kenna tilvist þessara skæru-
liðasamtaka og jafnan skýrt
aðgerðir þeirra sem „slys“. En
nú virðist vera að ganga á þol
inmæði stjórnarinnar, því þeg
ar skæruliðar sprengdu upp
lögreglubílinn á dögunum, lét
hún hermenn sína elta þá inn
fyrir landamæri Zambiu: Eða
svo segir stjórn Zambiu — og
Vorster, forsætisráðherra S-
Afríku staðfesti það í harð-
orðri ræðu, er hann hélt á
fundi með flokksmönmum sín
um, en eftir að málið hafði
komið til umræðu á vettvangi
S.Þ., neitaði hann með öllu að
hafa sagt nokkuð í þá átt.
(Observer — Colin Legum,
þýtt og endursagt. — Öll rétt
indi áskilin).
OBSERVER >f OBSERVER
^%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%$l
UR
HAND-
RAÐANUM
AÐ STJÓRNA UNDIR
ANNARLEGUM ÁHRIFUM
Ólafur Jóhannesson hefur mælzt til
þess að harðar verði tekið á þeim mönn
um sem sekir verða fundnir um að aka
bifreið undir áhrifuim áfengis. Þetta er
veL Ölium er ljósit hvílík vá er þá öfeu-
maður reynir að stýra ökutseki síniu
undir annarlegum áhrifum. Af slíku
framferði getur hlotizt mikil óhamingja
— bæði fyrir aðra en þann seka og
einnig hann sjálfan. Það er ágæfct að
Ólafur Jóhannession genir sér þetta
ljóst, en forsætisráðherrann ætti að sjá
i hendi sér, að teljist það alvartegt að
menn reyni þannig að stjórna ökutæki
sinu undir annarlegum áhrifum, hversiu
býður það þá ekki mikiLli hættu heim
að ætla sér að stjóma landinu undtír
„annarlegum áhrifum". Betur væri ef
forsætisráðherrainn hefði leitt hugann
að þessu áður en hann leiddi kommún-
ista til æðstu valda á Islandi.
DAGBÓKIN MfN
Svo sem kunnugt er hafa dagblöðin
oft uppi tilburði til að auka fjölbreytni
í efnisvali sínu og framsetninigu til að
gleðja lesendur. Þannig gera blöð oft
til hátíðabrigða sunnudagsblöð — eða
jólablöð og páskablöð og ekki sízt tes-
bækur og senda heim til fól'ks og eru
þessi aukablöð sjálfsagt vel þegin.
Þannig reyna þau sifellt að finna upp
á einhverju tii að rækja það sem
þeim finnst vera sitt hlutverk. Því er
þetta nefnt að einmitt um þessar mundir
eru að gerast róttækar breytingar á
einu da'gblaðanna. Eftir miklar haust-
hreingerningar á Þjóðviljanum virðist
nú sem blaðinu hafi verið breytt í pers-
ónulega dagbók Magnúsar Kjartansson
ar iðnaðarráðherra. Má ráðherrann nú
vart bjóða manni góðan daginn eða
geispa án þess að frá þvi sé sagt feit-
tetrað á forsíðu Þjóðviljans ásamt mynd
af goðintu og útmálun á mikilvægi þess-
ara atburða fyrir land og þjóð. Þó
þetfca virðist heldur dapurleg örlög fyr-
ir dagblað, gefcur vel verið að ýmsLr
vilji fylgjast með dagbðkinni, því fróð-
legt verður að fá fréttir af því jafn-
harðan er ráðherrann tekur tiil við að
koma á stóriðju í landinu með því að
teiða rafmagn í hús oig hita þau upp.
KJói.
n%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%% %%%%%%%%%%%%ú