Morgunblaðið - 12.11.1971, Síða 17

Morgunblaðið - 12.11.1971, Síða 17
MORGUNBCAÐtÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1971 17 George C. Marshall. — Höfundur hugmyndarinnar um aðstoð Bandaríkjanna við erlend ríki. forseti hefur þega<r látið í ljós miklar efasemdir um ágæti þessa nýja frumvarps. Því má skipta i tvennt. Felur annar hlutinn í sér framlög til efna hags- og mannúðarmála á er- lendum vettvangi að upphæð 1144 millj. dollara, en hinn hlutinn er um hernaðaraðstoð við önnur ríki að upphæð 1185 millj. dollara. Frumv. þessu er aðeins ætlað að ná til eins fjárhagsárs. Upphaflega hafði rikisstjórn Beriín 1948 — Engum blöðum er um það að fletta, hver orðið hefðu örlög Vestur-Berlínar og ef til vill Vestur-Evróiiu allrar án aðstoðar Bandaríkjamanna eftir stríð. Myndin sýnir banda ríska flugvél vera að lenda í Vestur-Berlín, er lofflbðúin þangað var í algleymingi. ________ Bandaríkin og aðstoð þeirra við önnur ríki Ákvörðun öldungadeildarinnar getur haft örlagarík áhrif Utanríkismálanefnd banda- ríska þingsinis hefur tekið af skarið og borið fram nýjar til lögur um efnahagsaðstoð við erlend ríki i stað frumvarps þess, sem fellt var í öldunga- deildinni í síðustu viku. Nýja frumvarpið er þó ekki annað en bráðabirgðalausm og Nixon in farið fram á 3,6 milljarða dollara heildarfjárveitingu fyr ir öll áform sín um efnahags- og heimaðaraðstoð. Þesaa upp hæð hafði fulltrúadeildin lækk að fyrst niður í 3,4 milljarða dollara og öldungadeildin síð an niður í 2,9 milljarða. En þegar lokaatkvæðagreiðsla fór fram um frumvarpið í öldunga deildinni var það fellt, raunar öllum á óvart. í þeim tillög- um, sem utanríkismálanefndin hefpr nú borið fram, er gert ráð fyrir, að heildarframlögin bæði í efnahags- cg hernaðar skyni verði ekki nema rúml. 2,3 milljarðar dollara samkv. framansögðu. Af þeirri upp- hæð, sem felld hefur verið nið ur, frá því að fjárveitinga- beiðni ríkisstjómarinnar kom fyrst fram, átti mesti hlutinn að fara til hernaðaraðstoðar. Eitt helzta nýmælið í tillög um utanríkismálanefndarinn- ar nú er aðgreining milli efnahagsaðstoðarinnar' annars vegar og hernaðaraðstoðarinn ar hins vegar. Svo kann vel að fara, að svonefndir frjáls- lyndir þingmenn öildungadeild arinnar felli tillögurnar um hernaðaraðstoðina að veru- legu leyti, að fráskilinni hern aðaraðstoðinni við ísrael, en samþykki aftur á móti tillögur utanríkismálanefndairinnar um efnahagsaðstoð. UMDEILD AÐSTOÐ Efnahagsaðstoð við erlend riki hefur alltaf verið þrætu- epli í bandaríska þinginu og oft orðið tilefni til ásakana um misferli, bruðl og spillingu. Mörgum hefur þótt sem þessi aðstoð aflaði Bandairíkjunum jafn mikillar óvináttu erlend- is frá sem vináttu, og margir öldungadeildarþingmenn hafa efazt um, hvort hún hafi náð takmarki sínu. Of hefur þing ið stórlækkað aðstoð við önn ur ríki, sem-Bandarikjaforset ar hafa verið búnir að biðja um. Sem dæmi má nefna, er þingið skar niður fjárveitinga beiðni Johnsons forseta í þessu skyni um 1/3 á fjárhagsárinu 1964 og um 2/5 fyrir fjárhags- árið 1969. Kröfur hafa komið fram um aukið eftirlit með því, hvernig þessari aðstoð væri varið. Við atkvæða- greiðsluna um frumvarpið í síðustu viku lagði Mike Man3 field, leiðtogi meirihlútans í öldungadeildinni til, að nýju skipulagi yrði komið á efna- Matvæli handa flóttafólki í Austur-Pakistan hagsaðstoðina við önnur ríki og kvartaði yfir, að þar væri ekki lengur um neinar ákveðn ar reglur að styðjast. Hann og fleiri lögðu til, að fé yrði veitt til alþjóðlegra stofnana, sem síðan veittu því aftur til þurfandi aðila. Þetta myndi koma í veg fyrir alla andúð í garð Bandaríkj anna og stemma stigu við þeim áróðri, að Bandartíkj amenn legðu efna hagsaðstoð sína fram i misjöfn um tilgangi. Það kom einmitt fram við atkvæðagreiðsluna, að margir öldungadeildarþingmenn kváð ust myndu styðja frumvarp um efnahagsaðstoð við önnur riki, sem væri betur skipu- lögð en nú væri og styddist við ákveðnar reglur um með- ferð. Engu að síður gaf niður staða atkvæðagreiðslunnar, þar sem frumvarpið var fellt með 41 atkvæði gegn 27 til kynna, að um vaxandi þjóðern ishyggju og einangrunarstefnu er að ræða innan öldunga- deildarinnsir. Miðað við þessi Framh. á bls. 20 Hugleiðing sveitamanns 1 dag er fyrsti vetrardagur. Gott og gjöfult sumar er Liðið. Margir verða til — eða ættu að verða til — að vegsama og þakka þá árgæzku, sem verið hefur, hvað tíðarfar, jarðargróð ur, sjávarfang og atvinnuöryggi snertir. Hér er þó aðéins á þetta drepið, því það hlýtur að vera öllum huigstœtt, siem reynt hafa og glímt hafa við erfiðlei'kaár, á liðinni ævi. En sumarsins verður minnzt, einnig á öðrum sviðum. Eitt alvarlegasta fyrirbærið eru hin geigvænlegu slys á landi, sem verða æ tíðari, og sú eyðilegging verðmæta, sem verð ur í umferðinni. í þessu efni, sem öðrum, blasa við vettlinga- tökin, sem viðhöfð eru á afbrota- mönnum í okkar fámenna þjóð- félagi, og kæruleysi hins al- menna borgara, sem aðgerðalaus horfir á ölvaða menn setjast undir stýri, hefur skotvopn með tilheyrandi, þaf sem börn geta itekið þau, með þeim af'leiðing- um sem margan hryllir við að nefna. Þá er margbent á kæru- Leysi varðandi geymslu hættu- legra liyfja, og afleiðingar þess kæruleysis. Það er engu ldkara en fólik telji þetta fylgifiska hins svonefnda veliferðarþjóðfé- lags. En er ekki kominn timi til að taka upp gagnráðstafanir, og svipta þetta fólk réttindum, til að hafa þá hluti undir höndunrL sem það greinilega vantar hæfi leika til að fara með? Má okk- ar litla þjóð við þeim geigvæn- liegu mannfórnum, sem óðum færast I vöxt, og mest er tak- markalausu tililUsleysi að kenna, og hirðuLeysi. Þetta er orðið þjóðfélagsvandamál, seni krefst skjótra aðgerða. Þá mun margur minnast sum- arsins fyrir það, að þá tók við ný rikisstjórn. Menn, sem heil an áratug, eða meir, höfðu vart haldið vatni, vegna ákafans að komast i ríkisstjóm. Hin nýja stjórn tók við miklum ráðstöf- unarfjármunum, og eindæma góðæri ríkti, á öllum sviðum þjóðlífsins. En fjölmörgum sýr,- ist byrjunin vægast sagt ákaf- lega hæpin. Ennþá hefur ekkert reynt á kappana nema í raunninum, en fjárlagafrumvarpið nýja, — sein bendir til hallareksturs og hækkandi skatta, — virðist ekki í samræmi við loforðin og fyrir- heitin. Ekki verður sagt, að fjárlaga- ræðan væri traustvekjandi. Öðru nær, því miður. En loforð in um stytta.ii vinnutinia og hærra kaup — jafnvel vald- bjóða það — eru fjarstæðu- kennd og liáskaleg þjóðinni, eins og Steingrímur Davíðsson hefur rækilega bent á i Mbl. grein 8. þ.m. og ekki þarf að endurtaka hér, svo vel sem hann rökstyður það mál. Hugsum okkur hr. ÓLaf Jó- hannesson fræðandi bændur um 34 stunda vinnuviku. Eða hr. Lúðvík Jósefsson ráðandi sjó- menn á alla nýju skuttogarana. Aðeins 34 stundir á viku, takk, til hafnai-. Þá yrði efeki lengi verið að vinna úr öLLum aflan- u;m í frystihúsiunum, og nýting hinna dýru og góðu véla yrði dájsaimteg. Néi, herrar mínir. Hér er vegið aftan að því fól'ki, sem enn vinnur að framleiðslustörf unum. Hert á straumnum, sem liggur frá framleiðsliustörfum til þjónustustarfa, mlsjafnlega þarfra. Hvort gera þeir þetta vitandi vits, eða skilja þeir ekki þarfir undirstöðuatvitmuveg- anna? ÆtLast þeir til, að eftir sem áður vdnni sjómaðurinn og bóndinn 60 til 80 stundir á viku, eða meir, þegar á liggur? Auðvitað dettur þeim ekki í hug að svara röddum fólksins, en í lengstú lög verður að vona, að fulltrúar áðurnefnda stétta á A1 þingi taki upp harða baráttu gegn þessari villukenningu. Öll um ætti að skiljast, að ekki á sama við hér, og í háþróuðum i ðna ðarþ j óðfélögu m. Læknas'kortur er umtalað efni, en ekki sjáum við úti á landi að sú stétt sé þunnskipuð i Reykjavík. Sönnu nær væri að ætla, að sá fjöldi, sem þar starf ar nýttist ver en efni standa tii. Væri ekki reynandi að gera hér á skipulags'breytingu, og leggja þær skyldur á læknafélag Is- lands, að það ráðstafi lækna- þjónustunni um land alilt, til endurgjalds fyrir veitta mennt- un, sem þjóðin hefur kostað. Valdboð ráðuneytis er ekki heppileg lausn. SjáLfsagt þarf lika að sérmennta heimilisLækna því ef þeirra fag bæri ekki sér- menntunarstimpilinn, mætti svo fara, að þeir téldu sig annars flokks menn, sem þó er fráleitt, því einmitt héraðs- og heimilis- læknar tileinka sér miklu fjöt- þættara svið, en hinir einstöku sérfræðingar. Hér duga ekki sí- felldar vangaveltur, og íækna- stéttinni er bezt trúandi til að ráða bót á því ófremdarástandi, sem rilkir nú. í rabbi sem þessu verður að drepa lítillega á útvarp og sjón- varp. Yfir höfuð að tala má segja að þjónusta þessara fyrir tækja sé batnandi. Sú breyting hjá útvairpi að krydda frétta- flutninginn með viðtölum, er mjög til bóta, því satt að segja er fréttaöflun þess ekki viðtæk. Verst er að sætta sig við glæpamyndir og heimskulegar auglýsingar sjónvarpsins. Aug- lýsingarnar í okkar fámenni, enu kafli fyrir sig, sem er rannsóknarefni, einkum varð- andi áhrif þeirra á börn og ungl inga. Innlendir þættir i sjón- varpi eru yfirleitt góðir, með undantekningum þó, t.d. þættir unga fólksins, sem bera vott um sára andlega fátækt. Þá var þátt ur þingmanna stórlega mis- heppnaður, m.a. fyrir lélega stjórn. Spurningar þurfa að vera ákveðnar og Ijósar, og svörin mega ekki verða mævðar vela, þar sem þeir máLglöðustu taka óeðililega langan tíma svo himr hLédrægu komast lítið að. Frá sjónarmiði leikmanns virð ist augljóst, úr þvi fjárlög eru afgreidd í sameinuðu þingi, að þingið á að vera ein inálstofa. Þingmönnum verði fækkað, t.d niður í 49. Gæti það verið byrj un að sparnaði, sem oft er látið skína í að þörf sé á, en ennþá er orðagjáltfur eitt. Þá sparaðist bygging þinghúss næstu áratug- ina o.fL i þessu sambandL Ai- þingi verði aðeins háð í okt- des. og febrúar-imaí. Fjóðungs- fundir verði árlega, með fulttrú um aliira s'tétta, og þátttöku þingmanna. Þaðan kæmu marg- visleg málefni, til úrvinnslu fyr ir þingmenn, sem undirbúnings þyrftu áður en þau væru flutt á Alþingi. Sjálfsagt er að greiða þing- mönnum sómasamleg laun, enda verji. þeir tíma sínum í starfið, eða fái aðstoðarmenn fyrir slg, vilji þeir sjálfir leggja starfs- krafta sína, utan þingtimans til annarra hugðarefna. Eysteins hugmyndin um látlaust þing- hald, er fráleit, og gegnir furðu, að maður með hans reynslu skuli berjast fyrir henni. Leggja á niður þann ósið, sem þingmenn sjálfir hafa innleitt, að alls konar fólk sé með erind rekstur við þá á þingfundatíma. SjáLfir kvarta þeir lika um, að ekki sé húsrúm í þinghúsinu tii allra þessara einkafunda. Hvað þyrfti að byggja stórt, til þess að allir flokkar fengju slíka að stöðu? Viðtalstíma eiga þing- menn auðvitað að hafa, en bara ekki á fundartíma Alþingis. Það er óhentugt báðum málsað- ilum. Oft er talað um nauð- syn þjóðaratkvæðagreiðslu um ákveðin mál. Þetta mál er kjör ið til að leggja undir þjóðarat- kvæði: Telur þú að Alþingi eigi að vera ein málstofa? Telur þú að þingmenn séu of margir miðað við skipan Alþing- is nú? Telur þú rétt að stytta þing- tímann frá því sem nú er? Einni spurningu ætti raunar að bæta við, ef þjóðin verður spurð: Vilt þú að þ.jóðkjörinn forsett verði jafnframt forsætisráð- herra, og fái váld tll að sktpa ráðherra, og veita þeim lausn? PáU Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.