Morgunblaðið - 26.11.1971, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1971
21
70 ára:
Jón Þ. Stefánsson
1 DAG leitar hugur minn á
fornar slóðir, norður í Blöndu-
hlið, til sveitarinnar minnar
kœru. Mér koma i hug ljóðlín-
ur skagfirzka skáldsins:
„Hver gleymir, bjarta Blöndu-
hlið,
blámanum þinna fjalla?
Hver man ekki og þráir á
sumrin síð
sólskinsblettina alla?
Hver vill ekki eiga vorin fríð
þar sern vötn þín að bökkum
falla ?
1 dag leitar hugur minn norð-
ur og vill flytja með sér heilla-
óskir til afmælisbarnsins, Jóns
f>. Stefánssonar fyrrum bónda í
Grænumýri í Blönduhlíð, en
hann er sjötugur i dag.
Jón er fæddur á Þverá í
Blönduhlíð 26. nóv. 1901, sonur
merkishjónanna Hjörtínu Hann-
esdöttur og Stefáns Sigurðsson-
ar, sem þá voru búendur þar.
Hann er næstelztur af sjö barna
hópi. Bernskuheimilið var eitt af
ágætustu heimilum sveitarinnar
og var heimilisbragur þar allur
til fyrirmyndar. Hjörtína móðir
hans var mikil gáfukona og
vandaði uppeldi barna sinna.
Faðir hans var hlýr og um-
hyggjusamur um sinn stóra
barnahóp og mannmarga heim-
ili. 1 þessu góða og fagra um-
hverfi ólst Jón upp. Bemskuárin
hafa áreiðanlega orðið honum
hinn ágætasti skóli. Á ungum
aldri lá leið hans á bændaskól-
ann á Hólum í Hjaltadal. Þá var
þar skólastjóri Páll Zophanías-
son. Hann var hinn mikli áhrifa-
maður og mótaði sveininn unga
fyrir lífið. Veit ég, að Jón hefir
ætíð litið á hann sem sinn ágæt-
asta leiðsögumann.
Eftir að búfræðinámi var lok-
íð sinnti Jón búnaðarstörfum í
sveit sinni. Árið 1926 geklt hann
að eiga Gunnhildi Björnsdóttur
frá Miklabæ. Hófu þau búskap
á Þverá og bjuggu á móti for-
eldrum Jóns. Nokkru síðar
keyptu þau fremur litla jörð,
Hjaltastaðakot og fiuttust þang-
að. Með þesísum ráðahag byi’jaði
nýtt tímabil í lífi þeirra. Hér
hófst uppbyggingarstarfið. Húsa-
kostur var lélegur, ræktun lítil.
Þarna uxu úr grasi synir þeirra
tveir, báðir góðir synir þjóðar
sinnar, séra Björn prestur í
Keflavík og Stefán, sem nú sit-
ur jörðina.
Timinn var notaður vel og
ekki lágu þau hjónin á liði sínu.
Jón er með allra beztu verk-
mönnum, léttur í hreyfingum og
hvert verk hefir leikið í hönd-
um hans. Með þrautseigju og
dugnaði tókst þeim að gera litla
jörð stóra. Nú er þetta býli orð-
ið eitt með beztu býlum sveitar-
innar, litla þýfða túnið orðið að
stórum og vel ræktuðum töðu-
velli. Og þar eru risin af grunni
ágæt hús, ibúðarhús og penings-
hús. Og nýtt nafn hæfir betur,
enda heitir jörðin nú Græna-
mýri.
Það má segja að allt grói í
kringum Jón, enda er hann
ræktunarmaður í bezta skilnimgi.
Hann er sannur sonur sveitar
sinnar og hefir aldrei verið grip-
inn þeirri þrá að yfirgefa æsku-
stöðvarnar og hverfa í þéttbýlið.
Gestrisin hafa þau hjón verið og
glaðzt af gestakomu, jafnvel í
litla bænum, við erfiðu aðstæð-
urnar. Oft hafa verið hjá þeim
hjónum léttadrengir og þar var
gott fyrir slíka að vera. Jóni er
sérstaklega tamt að umgangast
börn og umglinga. Öll -afabörn-
in hafa notið hlýjunnar og gleð-
innar þar og oft hlustað á vel
samið ævintýri, sem alltaf hefir
verið handbært, ef á hefir þurft
að halda. Jón er gleðimaður á
góðri stund, gamansamur og
léttur i skapi, en þéttur fyrir og
heldur vel á sínu.
Þau hjónin hafa stutt kirkju
og kristindóm í sveit sinni.
Lítilmagnanum hefir hann rétt
hjálparhönd og ýmsum góðum
málum lagt lið sitt.
Tíminn líður, árin • verða að
áratugum og nú eru þau hjónin
Jón og Gunnhildur komin út úr
hita og þunga dagsins, síðdegis-
svalinn leikur um vanga þeirra
og brátt er komið kvöld. Þau
hafa nú dregið sig í hlé og eru
í skjóli sonar síns Stefáns og
konu hans, Ingu Ingólfsdóttur.
Nú hafa þau búsforráð í Grænu-
mýri og gera það af mesta
myndarbrag, svo enn vex þar
allt og blómgast.
Heillaóskir mínar eru ykkur
öllum sendar á þessum timamót-
um og ég veit að afmælisbarnið
gengur glatt í lund og með
léttum skrefum inn á nýjan
áratug.
Jensína Björnsdóttir.
•
Rú. •
■■
' :
'7-
r
’
I
r ‘
• • •
_
Cluggatjöld hf
LAUGAVEGI 66 (2. HÆÐ),
SÍMI 1 74 50
mggmmm
■Kl
■
HAGKAUP AUGLÝSIR:
IDAG STÆKKUM VID VERZLUN UKKAR
I SKEIFUNNI 15 UM HELMING
☆ Leikfangamarkaður ☆ Fatamarkaður
☆ Matvörumarkaður ☆ Glœsilegt vöruúrval
á 1100 fermetra gólffleti
☆ Allt á einni hœð
Opið til klukkan 10 í kvöld