Morgunblaðið - 27.11.1971, Síða 1

Morgunblaðið - 27.11.1971, Síða 1
32 SÍÐUR OG L.ESBÖK 270. tbl. 58. árg. LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mikill halli í viðskiptum Bandaríkjanna Washington, 26. nóv. AP—NTB. VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR Banda- ríkjanna við útlönd var óhag- stæður um 821.4 milljónir doll- ara, og er það mesti viðskipta- lballi, sem skráður hefur verið þar í landi í áratugi. Til saman- bnrðar má geta þess að viðskipta jjöfnuðurinn var hagstæður í sept ember um 265.4 milljónir dollara. Ulbricht forseti A-í»ýzkal. Austur-Berlín. 26. nóv. NTB. WALTER Ulbrieht, fyrrum leið- togi austur-þýzka kommúnista- fiokksins var í dag endurkjör- inn formaður svonefnds ríkisráðs og þar með forseti Austur-Þýzka liands. Ulbricht hefur verið for- maður ríkisráðsins i 11 ár. Ulbricht var endurkjöririn einróma. Það var Erich Honeck- er flokksieiðtogi, sem bar fram tiilöguna um endurkjör Ul- brichts sem forseta og þingfull- trúamir, 500 að töluðu, svöruðu með samfelldu lófaklappi. Þá var Willi Stoph einróma endurkjörinn forsætisráðherra. ■ Mynd þessi var tekin um síðustu helgi þegar sókn Suður-Viet- nama var að hefjast í Kambódíu. Sjást þarna tveir ungir flótta- menn á þjóðveginum fyrir vest.in borgina Krek i Kambódiu, cn þar í nágrenninu kom til nokkurra árekstra milli innrásarsveit- anna og kommúnista. Harold Wilson: Endursamein- ing írskra ríkja — eina framtíðarlausnin London, 26. nóvemiber — NTB HAROLD Wilson, fyrrimi for- sætisráðherra, flutti ávarp S neðri málstofu brezka þingsins í gærkvöldi, þar sem hann skýrði frá tillögmm sinum til lausnar deilti kaþólskra og niótmælenda á Norður-lrlandi. í tiUögimum segir Wilson meðal annars, að eina httgsanlega lattsnin sé end- nrsameining Norðnr- og Suður- írlands einhvern tima f fram- tíðinni með sameiginlegri stjórn- arskrá fyrir nýtt írskt Jýðveldi. Hins vegar verði brezkir her- menn áfram á Norður-lrlandi næstu árin og nauðsyniegt sé að halda áfram baráttiinni gegn skæruliðum írska lýðveldishers- ins, IRA. Þegar Wilson hafði lokið máli sinu var hann hylltur með lang- varandi lófataki þingmanna, og tóku þátt í þvi bæði flokksbræð- ur hans úr Verkamannaflokkn- um og þingmenn íhaldsflokksins. Wilson er nýkominn heim til London úr kynnisferð til Irlands. Heimsótti hann bæði Norður-lr- land og Irska lýðveldið til að kynna sér ástandið og deilumái- in. I ávarpi sínu í neðri málstof- unni sagði Wilson, að tillögur hans gætu ekki miðað að neinni skyndilausn, er bundið gæti enda á átökin á Norður-Irlandi, heldur væri þar um framtíðarlausn að ræða. Lagði hann til að leiðtog- ar alira stjómmálaflokka Bret- lands, Norður-lrlands og Irska lýðveldisins kæmu sem fyrst saman til ráðstefnu til að ræða ástandið. Væri það fyrst og fremst verkefni þessarar ráð- stefnu að gera drög að sameigin- legri stjórnarskrá fyrir bæði írsku rikin. Tæikist það, gæti stjórnarskráin tekið gildi eftir um 15 ár, sagði Wilson. Eftir stofnun nýs írsks lýðveldis gæti það sótt um aðild að Brezka samveldinu, ef leiðtogarnir ósk- uðu þess. Hins vegar væri ljóst, að nauðsynlegt yrði að hafa brezkar hersveitir á Iriandi við friðargæzlu að minnsta kosti í tíu ár eftir að þessi hugsanlega stjórnarskrá tæki gildi. Ný innrás Indverja — „til að þagga niður í stórskotaliði Pakistana44 Nýju Deihi, 26. nóv. AP. INDVERSK yfirvöld skýrðu frá því í dag að indverskt herlið hcfði á ný ráðizt inn í Aiistur- Pakistan „í varnarskyni“ t.il að þagga niður í stórskotaliði Pak- iwtana, sem haldið hefði uppi skothríð á indvcrskt landsvæði. Varnarmáiaráðuneytið ind- verska segir að í átökum þessum hafi 80 hermenn fallið úr liði Pakistana, og einn skriðdreki þeirra verið eyðilagður. Sjálfir segjast Indverjar hafa orðið fyr- ir litlu tjóni. Ekki er þess getið í frétt ráðu- neytisins hvenær þessi nýja inn- rás var gerð, en a)lt bendir til þess að það hafi verið í gær eða dag. Fregnir frá Pakistan herma að Indverjar hafi gert árás á varðstöð Pakistana í kvöld, föstu dag, og henni hafi verið hrundið. Er þarna sennilega um sama at- vikið að ræða. Átökin urðu í nánd við ind- versku borgina Balurghat, um 300 km fyrir norðan Calcutta, og við þorpið Hili, um 25 km fyrix austan Balurghat. Segja Ind- verjar að sveitir úr her Pakist- ana hafi hafið skothríð yfir landa mærin á miðvikudagskvöld, og beitt fallbyssum, sprengjuvörp- um og vélbyssum. Beindist skot- hríðin aðallega að Baluirghat, en einnig réðust Pakistanar á ind- verska varðsveit við Hili. Varð taisvert mannfall í þessum áráa- um, og féllu þæði indverskir her menn og óbreyttir borgarar. Á fimmtudag, að sögn Ind- verja, sendu Pakistanir skrið- dreka af Chaffe-gerð að landa- mærunum við Hili, og þá um kvöldið eininig sveitir hermanna yfir iandamærin til skyndiárása. „Til að mæta þessum árásum," segir í tiikynningu indverska Framhald á bls. 31. Harold Wilson Þótt Wilson hafi verið fagnað í þinginu, eru ekki allir á eitt sáttir varðandi tillögur hans. Þannig lýsti Brian Faulkner for- sætisráðherra Norður-írlands því yfir í Belfast í dag að hann væri algjörlega andvigur sameiningu irsku ríkjanna i sérhverri mynd. Hanin gaf þó í skyn að nánara samstarf væri hugsanlegt mi'lli ríkjanna, ekki hvað sízt eftir að Bretland og írska lýðveldið ger- ast aðilar að Efnahagsbandalagi Evrópu. Trúfrelsi í Lithauen: Frakkland: Leyniþjónustan verði lögð niður Starfsmennirnir ásakaðir um eiturlyfjasmygl Bjuggu börnin undir fermingu Dæmdir í eins árs fangelsi París, 26. nóvember. NTB. TVEIR kunnir franskir stjórn- málamenn báru i dag fram þá kröfu, að Pompidou forseti léti leysia upp frönsku leyniþjónust- una (SDECE) og koma síðan nýrri á laggirnar. Kemur þessi krafft í kjölfar þess, að margir starfsmenn SDECE hafa verið ákærðir um hlutdelid í eitur- lyfjasmygli. Pierre Biliotte, sem eitt sinn átti sæti í ríkisstjórninni og nú er foringi þess arms gaullista- hreyfingarinnar, sem er yzt til Framhald á tols. 31. Moskvu, 26. nóv. NTB-AP. DÓMSTÓLL í Lithauen hefur dæmt tvo kaþólska presta i eins árs fangelsi fyrir að hafa undirbúið börn unðir ferm- ingu og altarisgöngu. Annar þeirra, faðir Jouzas Zdebskis, var handtekinn í ágúst sl. í yfirheyrslu var hann barinn og yfirleitt farið svo illa með hann, að andlit hans var nær óþekkjanlegt frá þvi áður. Þannig átti móðir hans erfitt með að þekkja hann. Er rétt- arhöldin hófust yfir föður Zdebskis, 11. nóvember héldu 600 kaþólskir menn mótmæla fund fyrir utan réttarsalinn vegna ofsóknanna gegn hon- um. Lögreglumenn dreifðu hópnum og handtóku 20 manns. Hinn presturinn, faðir P. Bubnis, var dreginn fyrir rétt daginn eftir. Ákæran gegn prestunum báðum var á þann veg, að þeir hefðu veitt ófull- ráðabörnum tilsögn án leyfis, en slíkt er bannað samkv. sov ézkum lögum. í réttarhöldunum sagði fað- ir Zdebskis, að hann liti á það sem skyldu sína að veita börnum kristindómsfræðs-lu, er foreldrar þeirra bæðu hann um það. Mörg börn voru lát- in koma fyrir rétt sem vitni gegn Zdebskis. Sum þeirra grétu í vitnastúkunni, en önnur þeirra neituðu að segja nokkuð. Faðir Bubnis var handtek- inn, er lögreglan uppgötvaði, að hann hafði safnað saman hóp 30 barna til þess að hlýða þeim yfir í kirkjunni, áður en þau skyldu fermd. Voru börn- in flutt í brunaliðsstöð í ná- grenninu, þar sem þeim var sagt að undirrita yfirlýsingu, Franihald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.