Morgunblaðið - 27.11.1971, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.11.1971, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1971 Guðmundur Njáls son — Minning GUÐMUNDUR Njálsson bóndi á Böðmóðsstöðum í Laugardal er látinn, 77 ára að aldri. Eftir langa og harða glimu var öld- ungurinn lagður að velli af „þeim slynga sláttumanni". Guðmundur fæddist að Efsta- dal i Laugardal 10. júli 1894. Hann var sonur hjónanna Njáls Jónssonar frá Apavatni og Ólafíu Guðmundsdóttur frá Hólabrekku. Þau Njáll og Ólafía fluttust á næstu krossmessu að Snorra- stöðum með sveininn með sér á fyrsta ári, og á Snorrastöðum ólst hann upp til fullorðins ára. Það hlýtur að hafa ríkt hinn mesti menningarbragur á gamla Snorrastaðaheimilinu, ef dæma má af fólki þvi, sem þar ólst upp á þeirri tíð. Visast hafa því lærzt þeir umgengnishættir hvert við annað sem og við aðra sam- ferðamenn sína, að það hlaut vináttu og virðingu flestra, sem kynntust. Guðmundur var maður fríður sýnum, í hærra meðallagi og samsvaraði sér vel, enda talinn sterkur. Hann var dökkur á hár og skegg og allra manna bezt eygur. Augun voru dimmblá, fremur djúplæg og geisluðu jafnan af hýrlegri hlýju. Til ailra starfa var Guðmundur hinn liðtækasti, þrekmikill og ósérhlífinn, og talinn vinnufélagi slikur, sem beztur verður fund- inn. Haustið 1918 gekk Guðmundur t Jónas Benediktsson, Oddstiiðum, andaðist að Sjúkrahúsi Akra- ness fimmtudaginn 25. nóv. Vandamenn. t Maðurinn mirm, Sigmundur M. Símonarson, lézt í Landspítalanum 25. þ.m. Sigríður Eiríksdóttir. að eiga unga og fallega grann- konu sina, Karólínu Árnadóttur, og sannaði það spor, sem þá var stigið, að þau hafa bæði verið fædd undir heillastjörnum, þvi ekki hef ég haft spumir af betra hjónabandi. Hafa kunnugir fyrir satt, að í 53 ára hjúskap hafi þeim aldrei farið styggðaryrði á milli og bjuggu þó lengst af við harla litinn munað. Ungu hjónin bjuggu með for- eldrum hennar að Miðdalskoti til vorsins 1919, en þó hófu þau bú- skap á Kringlu í Grímsnesi. Á Kringlu bjuggu þau eitt ár, en það ár er og verður lengi frægt að endemum fyrir harðindi og aðra óáran. Það hefur því ekki blásið gizka byrlega fyrir eigna- litlum frumbýlingum, enda komu þessi harðindi og illa við þá, sem grónari voru í búskapn- um. Vorið 1920 losnaði jörðin Ket- ilvellir í Laugardal, fluttust þau hjón þá þangað og bjuggu þar til ársins 1924. Það vor fluttust þau að Böðmóðsstöðum og bjuggu þar æ siðan. Þegar þau Guðmundur og Karólina fluttust að Böðmóðsstöð um, fluttu þau með sér 4 böm, hið elzta 4ra ára en hið yngsta nokkurra vikna, svo ómegðin var þegar orðin nokkur. Með þeim var einnig Ólafía móðir Guðmundar, hin merkasta kona, en Njáll maður hennar hafði látizt meðan þau bjuggu á Ket- ilvöllum. Millistríðsárin vom ekki ör- lát á lífsins gæði við islenzka alþýðu, hvorki til sjávar né sveita. Á Böðmóðsstöðum varð brátt barnmergð mikil og sjálf- sagt ekki úr of miklu að spila. Það þótti því með ólíkindum, að þeim hjónum tókst, ekki aðeins að koma fram sínum stóra bama hópi hjálparlaust og með prýði, heldur og að ná eignarhaldi á ábýlisjörð sinni og hýsa hana vel á þess tima vísu. En vel hefur þurft á að halda, enda flest nýtt til hins ýtrasta, sem til bjargar horfði. Guðmundur var slyngur veiðimaður, Brúará nærri, hún var gjöful þeim, sem t Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og útför Þorgeirs Sturlu Jósefssonar. Aðstandendur. t Móðir mín, EYGERÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR. Týsgötu 5, lézt á hjúkrunardeild Borgarspítalans 25. þessa mánaðar. Fyrir hönd aðstandenda Magnús Ásmundsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu SIGRlÐAR SIGURÐARDÓTTUR, Rafstöðinni Engidal. Sérstakar þakkir færum við organista og söngfólki Isa- fjarðarkirkju. Ingvar Jónsson, Sigrún Stella Ingvarsdóttir, Agúst Haraldsson, Sigurður T.H. Ingvarsson, Amdís Ólafsdóttir, og barnaböm. við hana þreytti kapp. Hann stundaði líka mikið rjúpnaveið- ar á vetrum og var lengi grenja- skytta Laugdælinga. Við allar tegundir veiðiskapar var hann mjög heppinn, enda var veiði- hneigð rik í hans eðli. Allt þetta drýgði annars takmarkaðar tekj- ur þeirra, en til afreka þeirra, sem þau hjón leystu af höndum á þessum árum, þurfti meiri at- orku, þrek og sjálfsafneitun en líklegt er að fólk aimennt geri sér grein fyrir nú. En ungu hjónin voru bæði sterk og sam- hent og að auki þannig skapi farin, að þau létu ekki baslið smækka sig. Þar við bættist, að þau áttu óskipta vináttu og traust nágranna sinna. Guð- mundur heitinn sagði mér sjálfur þá sögu, að þegar hann réðst í að kaupa jörðina, peningalaus og fátækur af flestum áþreifan- legum auði öðrum en ungum börnum, þá brá einn nágranninn við, sem gagnstætt flestum hafði einhver auraráð, og bauð hon- um peningalán, sem nægði til þess að hann gat fest kaup á jörðinni. Liklega hefur það num- ið u.þ.b. helmingi kaupverðsins. En sagan er ekki öll, granninn kærði sig hvorki um veð né að heldur kvittun fyrir peningun- um, kynni hans af Guðmundi voru honum ærin trygging fyr- ir greiðslu. Sá, sem þetta dreng- skaparbragð framdi, var Guð- mundur Magnússon í Haga í Grímsnesi. Það hefur ekki ríkt úlfúð eða tortryggni milli þeirra nafnanna. Guðmundur í Haga þykir hygginn maður og gætinn og laus við glannaskap. En sag- an þótti undirrituðum gefa góða lýsingu á þeim báðum Guð- mundum. Þau Guðmundur og Karólína bjuggu síðan allan sinn búskap á Böðmóðsstöðum. Kreppan reyndist ýmsum þung i skauti, ekki sizt bammörgum fjölskyld- um. En þeim hjónum var annað tamara en að láta bugast af erflðleikunum. Þau héldu reisn sinni og hjartahlýju. Og mikið var gott að koma að Böðmóðs- stöðum. Gestrisni húsbændanna var af þvi tagi að komumanni fannst hann sérstakur aufúsu- gestur, manni fór strax að líða vel á bæjardyrahellunni. Ég þekki nokkra menrt, sem á ungl- ingsárum sínum voru vinnu- eða vikadrengir hjá þeim hjónum, og ég trúi það sé engin tilvilj- un, að þessir drengir urðu alda- vinir þeirra ævilangt upp frá því. Þetta kann að segja nokk- uð um atlæti það og viðmót, sem þeir mættu af húsbændum sín- ura, þótt efnin væru naumast slík, að þeir sætu við sífelldan veizlukost. Árið 1954 létu þau hjónin jörðina í hendur bama sinna og lögðu sjálf niður búskap að miklu leyti. Þau byggðu sér nýtt hús, fremur lítið, en hlýlegt og vandað, við það nutu þau að sjálfsögðu drengUegs stuðnings barna sinna. í nýja húsið fluttust þau haustið 1957. Alls eignuðust þau 15 böm og eru 14 þeirra á lífi, eitt, það elzta, dó á fyrsta ári. Engum, sem þekkt hefur foreldrana, þarf að koma á óvart, að þar fer hið mesta mannval, sem þau systkini eru. Fer í þeim saman mann- dómur af flestu tagi. Afkom- endahópur þeirra Guðmundar og Karólínu er þegar orðinn býsa stór. Mér þykir trúlegt hann fylli vel hundraðið. Virðist sem bamalánið haldi áfram í þá þrjá ættliði, sem ég að nokkru þekki. Á þekn árum, sem Guðmund- ur Njálsson var að alast upp í Laugardalnum, hlutu ungling- amir litla sem enga skóla- menntun. En mikið væri það gott, ef ekkert af nútíma skóla- æskunni slyppi frá sínu námi menningarsnauðara en kynslóð Guðmundar Njálssonar var, er hún upp úr fermingunni hleypti heimdraganum venjulegast í vinnumennsku á aðra bæi, elleg- ar til sjóróðra i næstu verstöð. En þótt Guðmundur nyti ekki bóklegra mennta, vógu greind hans og jákvæð gerð þar á móti. Athygli átti hann næmari en gerðist og sívökula. Dómgreind hans var traust og minni gott. Góðvild hcins og virðing fyrir öðru fóiki, ásamt græzkulausri kirnni og öðrum persónutöfrum gerðu samvistir við hann einkar þægilegar, já, eftirsóknarverðar. Hann var að eðlisfari hlédrægur og gaf sig lítt að félagsmálum, hann hefði þó getað orðið vel hlutgengur þar, svo ráðhoilur og traustur sem hann var. En stolt hans beindist ekki í þær áttir. Ég held, að framhleypni hafi ver- ið honum ógeðfelld, og lítill var hann hetjudýrkandi. Honum þótti meira til um manneskjuna en ofurmennið. Hann lagði þó aldrei illt til þeirra, sem reyndu að láta bera mikið á sér, fremur en til annarra manna, I hasta lagi dró hanrt fram í dagsljósið það spaugilega við tilburði þeirra. Ekki minnist ég þess, að hafa heyrt Guðmund hallmæla öðrum, en manna fundvísastur var hann á það, sem orðið gat breyzkum syndasel til afbötunar, og tók vægt á annarra yflrsjón- um. Kurteisi hans var ekki lærð, heldur vsir hún þáttur í hans eðli, sanngirni hans var með- fædd, hann kunni ekki mann- greinaálit, en kom eins fram við valdsmanninn og þann auðnu- lausa. Enginn skilji þó orð min svo, að Guðmundur væri jábróð- ir allra, sem við hann ræddu, þvert á móti hafði hann ákveðn- ar skoðanir og hélt á þeim af fullri einurð. En hann reyndi ekki að troða þeim upp á aðra, til þess var hann of siðprúður. Þeir voru vildarvinir foreldr- ar mánir og Guðmundur, enda voru þau móðir mín uppeldis- systkin. Hann var því allt frá þvi ég fyrst man til mín tíður gestur á mínu æskuheimili og var svo alla tíð. Kynni mtn af honum eru þvi orðin hátt í fimm áratugi. Mér kom hann fyrir sjónir sem hæglátur maður og yflrlætisiaus, þrekmikiU í öll- um skilningi þess orðs, hrein- skilinn og vandaður, enda var hann mest virtur af þeim, sem þekktu hann bezt. Þótt lund hans væri bæði viðkvæm og stór, hétt hann sifellt sínu sálarjafnvægi. Mótlæti tók hann af æðruleysi, sem var af sama toga og yfir- lætisleysi hans að unnum sigr- um. Að fráteknu því eina ári, sem þau Guðmundur og Karólína bjuggu á Kringlu, áttu þau alla ævi heima í Laugardalnum. Frá Böðmóðsstöðum blasa við aug- um þrjár eða fjórar af blómleg- ustu sveitum þessa lands. Sjón- hringurinn markast af fjöllum, svo sem Heklu, Kerlingarfjöll- um, Bláfelli, Jarihettum og áfram í svipuðum dúr. Brúará streymir með túnjaðrinum blá- tær, fersk og gjöful, með breiða bakka og sjóðandi hveri á báðar hendur. I slíku umhverfl lifði og starfaði Guðmundur heitinn I hér um bil átta áratugi, og þar sem hann var maður skyggn á töfra og tign náttúrunnar, lif- andi og dauðrar, gáfust honum margar unaðsstundir, sem því miður margir verða að fara á mis. Sé það rétt, sem margir halda fram, að skaphöfn manns mótist að miklum hluta af um- hverfi þvi, sem hann lifir og hræri'st í, er sizt að furða, þótt þama færi valmenni. Hann var líka mikill gæfumaður. Hann eignaðist fjölda góðra vina, sem mátu kosti hans og manndóm að verðleikum. Ungur kvæntist hann sérstakri ágætiskonu, sem stóð honum þétt við hlið í Framhald á bls. 19 Minning: Guðlaug Einarsdóttir Fædd 26. nóvember 1886. Dáin 10. október 1971. Frú Guðlaug Einarsdóttir frá Norður-Gröf á Kjalamesi var aiin upp á mannmöirgu heimi'.i í glaðværum systkinahópi. Hún giftist Markúsi Sigurðssyni ætt- uðum úr Ámessýslu. Þótt ekki væri kornin skóla- skyida, þegar Guðlaug var innan við fermingu, naut hún þó nokk- urrar fræðslu hjá kennara, því að í Norður-Gröf var fenginn kennari á heknilið og þangað sóttu einnig böm af næstu bæj- um kennsliustundir. Systumar vom þrjár, og er þær uxu upp, fóru þær til skiptis að heiman til Reykjavítour til náms. Bræðumir vom tveir. Guðlaug lærði kiæðskerasaum, og einnig var hún í kvöldskóla, þar sem kennt var bóknám og hannyrðir. Hún var lika í hús- mœðraskóla. Þau Marfcús og Guðlaug reistu sjálfstætt bú í Hlaðgerðarkoti i Mosfellssveit öðru nafni Reykja- hlíð. Þar eignuðust þau fimrn böm, sem öll eru á lífi nema eitt, stúlka, er dó ung. Elzta systirin, Guðrún, er gift úti 1 Kalifomíu mikilhæfum og góðum skrif- stofumanni. Þau eiga fjögur vel menntuð böm. Næst er Helga, gift í Reykjavík. Hennar maður er vélstjóri. Hún á eina dóttur, sem er gift í Svíþjóð, en þar er maður hennar við nám. (Hún Ólst að nokkru leyti upp hjá ömmu sinni, vegna þess að móðir hennar varð að vinna ut- an síns heimilis). Einar, sem er bílasmiður, er kvæntur konu frá Norðflrði. Þau eiga þrjú böm og búa í Grænu- hlíð. Ynigsta dóttirin Jóhanna er igift málarameistara. Þau búa i Græmuhlíð og eiga f jögur böm, tvær dætur við framhaldsnám. Guðlaug og Mankús bjuggu um tima i Haga í Rvik og höfðu þá jörð, fluttust þaðan í Kópavog og reistu nýbýli, er þau nefndu Grænulhlíð, og byggðu slðar tveimur barnanna úr því landi. Guðlaug var mikilhæf hús- móðir enda álin upp við reglu- semi, nœrgastni og myndarskap, og gott stjómskipulag var á heimili þeirra hjóna, Margrétar og Einars í Norður-Gröf. Guð- laug var gestrishi og góð heirn að sækja, og allt, sem hún veitti öðrum eða gerði, var gert af góðum hug. Þessar fáu línur eiiga að vera kveðja og þakklæti fyrir margar góðar og ánægjulegar samveru- srtundir frá nokkrum ættingjum. Bjamfr. Kinarsd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.