Morgunblaðið - 27.11.1971, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVBMBER 1971
31
*í
MlHETÍ'iIDB^org-u/jWadsyns
ísland Sví-
þ j óð 14:14
Júgfóslav'neska Iandsliðið í handknattleik, sem leikur tvo landsleiki við íslending-a í Laugrardalshöll-
inni, dagana L og 2. desember.
Tveir landsleikir við Júgóslava;
Eitt sterkasta lands-
lið í heimi
— leikur hérlendis í næstu viku
JÚGÓSLAVNESKA landsliðið,
sem hefur að undanfömu staðið
sig með afbrigðum vel í keppni
Flóð-
lýsing
í Kópavogi
1 DAG kl. 4:30 taka Breiðabliks-
menn formlega í notkun nýupp-
sett æfingaljós á malarvelli
Kópavogsmanna við Kópavogs-
braut. Er hér um mjög góð æf-
ingaljós að ræða, en hægt er að
bæta ljósum á staurana og gera
lýsinguna enn betri siðar meir.
Vígsluleikurinn í dag verður á
milli liða úr Austurbæ og Vestur-
bæ í Kópavogi.
Að leik loknum verður fagn-
aður í félagsheimilinu, þar sem
Breiðabliksmenn fagna góðum
árangri í sumar -— og nýju ljós-
unum og aðstöðunni sem þau
skapa.
í Sviþjóð, er væntanlegt hingað
til lands á inánudagskvöld og
leikur tvo landsleiki við íslenzka
landsliðið í næstu viku, 1. og 2.
desember. Er mikUl fengur að
komu þessa liðs hingað tU lands,
ekki sízt nú, þegar það virðist
vera sterkara en nokkrti sinni
fyrr.
Á blaðamannafundi, sem HSI
hélt í gær, var skýrt frá heim-
sókn þessa liðs. Júgóslavneska
liðið telur fimmtán leikmenn á
aldrinum 21-29 ára, en meðalald-
ur leikmanna er rúm 25 ár. Hafa
þeir allir leikið I landsliði áður
og flestir mjög oft, t.d. eru lands-
leikir nokkurra leikmannanna að
nálgast hundraðið. Júgóslavar
urðu í þriðja sæti í síðustu heims
meistarakeppni í handknattleik
og var það mál margra, sem
liðið sáu, að þar hefði verið á
ferðinni eitt bezta lið keppninn-
ar. 1 þeirri keppni unnu Júgó-
slavar Dani með 29 mörkum
gegn 12 og segir það sína sögu
um styrkleika liðsins, en margir
þeirra, sem skipuðu liðið þá,
koma nú hingað til lands. Meðal
þeirra er markvörðurinn Arslana
FH held-
ur áfram
— Sigrudu Finnana 17:11 í gær
gic, sem stóð sig frábærlega vel
í keppninni, einkum þó í leikn-
um við Dani, þar sem hann varði
öll 6 vítaköst Dananna og f jöl-
mörg önnur. Islendingar hafa að-
eins leikið einn landsleik i hand-
knattleik við Júgóslava, en það
var fyrir ári síðan í Tiblisi í Rúss
landi, og lauk þeim leik með
sigri Júgóslava, sem skoruðu 24
mörk gegn 15.
Islenzka landsliðið, sem leikur
fyrri leikinn gegn Júgósiövunum,
hefur þegar verið valið, að und-
anskildum markvörðunum, og er
það þannig skipað (landsleikja-
f jöldi leikmanna innan sviga):
Ólafur H. Jónsson, fyrirL (30)
Geir Hallsteinsson (48)
Viðar SLmonarson (26)
Stefán Jónsson (29)
Sigurbergur Sigsteinsson (34)
Björgvin Björgvinsson (20)
Gísli Blöndal (7)
Stefán Gunnarsson (4)
Gunnsteinn Skúlason (9)
Sigfús Guðmundsson (1)
Auk þess hafa verið valdir
fjórir markverðir, þeir Birgir
Finnbogason (15) og Hjalti Ein-
arsson (50) og þeir Ólaifur Bene-
diktsson (2) og Guðjón Erlends-
son (0), sem nú eru ytra. End-
anlegt val markvarða verður lát-
ið bíða.
Leikirnir hef jast bæði kvöldin
kl. 20:30 í Laugardalshöllinm og
verður forsala aðgöngumiða þar
frá kl. 17 báða dagana. Verð að-
göngumiða verður 250 krónur í
sæti, 180 krónur i stæði og 75
krónur fyrir böm. Unglingalið
HSÍ leika forleiki fyrir báðum
lanclsleikjunum. Norskir dómar-
ar dæma landsleikina, þeir Övind
Bolstad og Jhon Hugo Larsen.
FH hefur tryggt sér rétt tll þátt-
tokii í 8-Iiða Evrópukeppnl
meistaraliða, en í gærkvöMH
sigraðl FH finnsku meistarana
— UK-51, með sex marka mun,
eða 17—11. Þetta er bezti árang-
ur sem íslenzkt handknattleiks-
lið hefur náð í þessari keppnni,
en því miður verður ekki sagt að
neinn glæsibragur hafi verið yf-
tr þessum tveimur síðustu leikj-
um FH við Finnana. Þó var leik-
urinn í gærkvöldi heldur skárri,
en hinn fyrri, eins og markatal-
ann gefur til kynna.
FH-ingar byrjuðu vel í gær-
kvöldi með tveimur ágætum
mörkum Viðars, og eftir um
fimm mínútna leik höfðu þeir
náð 3—1. Síðan liðu nær tíu mín
útur án þesa að mark væri skor-
að, en þá skoraði Geir fjórða
mark FH. Finnum tókst að saxa
á forskotið og í hálfleik var stað
an 7—6. En í síðari hálfleik náðu
FH-ingar fljótlega tveggja
marka forskoti, og tókst þeim
lengst að halda 2—3 marka for-
skoti, en undir leikin komst rót
á lið Finnanna, vörnin tvístrað-
ist og FH-ingar gerðu fjögur síð-
ustu mörkin, þannig að lokatöl-
Ur urðu 17—11.
Geir lék enn aðalhlutverkið í
liði FH, og skoraði enn sjö mörk.
En nú naut hann góðrar aðstoðar
Viðars, og það gerði gæfumun-
inn. Viðar skoraði einnig sjö
mörk í leiknum, Ólafur, Kristján
og Birgir allir 1 hver. Hjá Fiim-
unum var Klinga drýgstur eins
og fyrri daginn ásamt Österberg
og Ravander.
Körfu-
bolti
um helgina
REYKJAVlKURMÖTIÐ í körfu-
knattleik hefst kl. 2 í dag í Laug-
ardalshöllinni og verða fyrst
leiknir fimm leikir i yngri flokk-
unum, en tveir í meistaraflokki.
Mætast þar iR og Ármann og IS
og KR. Á sunnudagskvöld hefst
mótið kl. 19 og verða þá þrír
leikir i yngri flokkunum, en I
meistaraflokki leika iR og Val-
ur og Ármann og IS.
Aðalfundur ÍR
AÐALFUNDUR handknattleiks
deildar ÍR verður haldinn í Átt-
hagasal Hótel Sögu sunnudaginn
5. des. kl. 2 e.h.
Frá Steinari J. Lúðvikssyni
í Danmörku.
ÍSLENDINGAB og Sviar
léku i gærkvöldl á Norður-
landamóti landsliða, sem skip-
uð eru liðsmönnum 23 ára og
yngri. Jafntefli var, 14 mörk
gegn 11. I'yrirfram var talið
að Svíar væru sterkastir llða
á mótinu og frammistaða Is-
Iendinganna vekur athygli,
einkum þó síðari liálfleikur-
inn, en þá áttu þeir glæsilega
leikkafla.
Leikurinn var jafn framan af,
en í síðari hluta fyrri hálf-
ieiks áttu Islendingamir sinn
slakasta kafla. Komust þá
Svíar í 9:6 og var það staðan
í hléi.
Sviar skoruðu fyrsta mark-
ið eftir hlé, 10:6. En síðan áttu
Islendingar sinn glæsilegasta
kafla og skoruðu 5 mörk í röð
og náðu forystu, 11:10.
— Ófær5
Framhald af bls. 32
Bkki var þó fasrð farin að
þyngjast að ráði á leiðinni mtHi
Akuneynar og Reyikjavíkur, og
uim miðjain daginn var enn fært
yfiir Hoilttavörðiuheiði og Öxna-
dalisheiði. Snjóikoiman virðist því
hafa verið minni inn ti4 landsins,
en á ölluim annesjum var iðulaus
stórhríð, og ófeant á öUum veg-
um þar — svo siem til Sigliuf jarð-
ar og ÓlaÆsf jarðar. Eins vair gert
ráð fyrir ófærð í Þiongeyjarsýsl-
um.
Á hton bógton vair ástand vega
á Austurlandi með ágætum og í
giær var fært um flesta fjaililveigi
þar. Sömu sögu var að segja um
Suðuriandið — þar var einnig veil
fært.
— Innrás
Framhald af bls. 1
varnarráðuneytisms, „gripu
sveitir okkar til vamaraðgerða
fyrir norðan Hili.“ „Er þetta í
annað skiptið, sem Indverjar
viðurkenna að hafa sent sveitir
yfir landamærin inn í Austur-
Pakistan. Á sunnudag var ind-
versk skriðdrekasveit send yfir
Landamærin, og segjast Indverj
ar hafa eyðilagt 13 pakistanska
skriðdreka í þeirri árás.
í frétt frá Calcutta segir að
þessi átök á landamærunum, og
vígbúnaður Pakistana þar, hafi
auðveldað austur-pakistönskum
skæruliðum aðgerðir i Austur-
Pakistan. Segja fréttirnar að
skæruliðar ha£i náð á sitt vald
víðáttumiklum landsvæðum ein-
mitt vegna þess að setulið Pak-
istana var kallað þaðan og flutt
til landamæranna. Herma þess-
ar sömu heimildir að agaleysi riki
í hersveitum Pákistana. Her-
mennimk' hafi óáreittir farið
nauðgandi og rænandi um landa-
mærahéruðin, og erfitt sé að
hafa hemil á þeim. Þá ríkir einn
ig mikil óánægja meðal hermann
anna að sögn. Flestir eru þeir
frá Vestur-Pakistan, og var þeim
sagt að þeir ættu aðeins að
dveljast stuttan tíma í Austur-
Pakistan. Nú sjá þeir hins vegar
fram á að heimferðin getur dreg-
izt.
★
Frá Nýju Delhi bárust í dag
fréttir um mikla vopnaflutninga
til Indlands frá Austur-Evrópu.
Er hér um að ræða hluta af
vopnakaupum frá Tékkósló-
vakíu, sem um var samið í sept-
ember. Samkvæmt þeim samn-
ingi eiga Indverjax að fá 100
tékkneska skriðdreka og 100
brynvarðar bifreiðir. Berast þessi
Svíar jöfnuðu, 11:11, en aft-
ur náðu Islendingar forystu,
en Sviar jöfnuðu, 12:12. En
Ájcel skoraði 13. markið — en
Sviutm tóttaat enn að jafm. Þá
voru 5 min eftir af leik.
Sviar náðu htlu siðar að
skora 14:13, en minútu síðar
jafnaði Vilberg fyrir Island.
Nú var Svia vikið af velli,
en Sviar töfðu og er að því
var komið að dæma leiktöí,
hnoðuðu þeir sér inn í vöm
Islendtoga og kræktu sér í
aukakasL Og kluklkan tifaði
og Islendtogum tókst ekki að
ná góðu færi eða rnarki.
Mörk Islands skoruðu: Axel
7, Páll 2 (bæði úr víti), Ólaf-
ur H. Jónsson 2, Stefán Gunin-
arsson 1, Sigfús Guðmunds-
son 1 og Vilberg 1.
Mörk Svia: Engström 8, Bo
Strindh 4, Göran Jonsson 1
og Bergqvist 1. — Nánar síð-
flutningatæki nú til Indlands
ýmist með skipum eða sovézkum
flutningaflugvélum.
— Trúfrelsi
Framhald af bls. 1
þar sem þau fordæmdu störf
prestsins. Mörg barnanna urðu
sjúk eftir þennan atburð.
Handtaka föður Zdebskis
vakti mikla mótmælaöldu á
meðal kaþólskra manna í Lit-
hauen. Mörg bænaskjöi voru
látin ganga manna á meðal
með beiðni um, að presturinn
handtekni yrði látinn laus og
krafizt trúfrelsis handa ka-
þólskum mönmum. Mörg þús-
und undirskriftir söfnuðust.
Er Lithauen var innlimað í
Sovétríkto 1940 var meirihluti
íbúanna kaþólskur. í dag eru
ekki fyrir hendi neinar skýrsl
ur um, hve margir þeir Lit-
hauar eru, sem játa kaþólska
trú.
— Frakkland
Framhald af bls. 1
hægri, sagði nýlega í útvarpsvið-
taili, að leyniþjónustan „færi ekki
lengur eftir lögum lýðveldisins."
Billotte var eton af nánustu
ráðgjöfum de Gaulles og Pom-
pidou forseti útnefndi hann sem
samstarfsmann Alexandre de
Marenches, er sá síðarnefndi var
skipaður yfirmaður SDECE og
fékk honum það verkefni að
kanna ásakanir um, hvort starfs-
menn leyniþjónustunnar tækju
þátt í lögbrotum.
Hinn stjómmálamaðurinn, sem
krafðist þess, að SDECE yrði
leyst upp, er Jacques Soustelle,
sem átti etonig sæti í stjóm de
Gaulles, en sagði skilið við hers-
höfðingjann í Alsírstríðinu.
Soustelle heldur því fram, að
stjórnin verði að leysa SDECE
upp og byggja upp nýtt leyni-
þjónustukerfi. SousteUe var eitt
ston yfirmaður leyniþjónustu de
Gaulles í Alsír.
Gagnrýni á SDECE nú á rót
sína að xekja til þess, að fyrr-
verandi njósnari hennar, Roger
de Louette, var handtekinn fyrir
skömmu í Bandaríkjunum ákærð
ur um eiturlyfjaismygl og að of-
ursti í SDECE, Paul Fournier,
hefur verið ákærður af dómstóli
fyrir að hafa verið foringi smygl
araflokksins.
Það er varnarmálaráðuneytið,
sem fer með yfirstjóm SDECE
og Michel Debre hefur lýst
smyglmáilinu sem „skáldsögu —
Ixar sem öllu hugsanlegu hefuil
verið blandað saman."