Morgunblaðið - 18.12.1971, Page 17

Morgunblaðið - 18.12.1971, Page 17
MORGUNBLAÐH), LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1971 17 Nils Ringset hlýtur „Frændatréð“ Á FUNDI Norsk-íslenzka félags- his í Osló fyrir nokkru var Nils E. Ringset bónda í Liabygda á Sunnmæri afhent styttan „Frændatréð" fyrir stuðning við norsk-íslenzk skógræktarmál. Styttuna „Frændatréð" gerði myndhöggvarinn Per Ung á veg- um skógræktarsjóðs, sem kennd- ur er við Torgeir Andersen- Rysst fyrrum sendiherra Noregs á Islandi og konu hans frú Ruth. Er styttan veitt til skiptis Is- lendingi og Norðmanni. Fyrsta úthlutun var árið 1968, og hlaut þá Hákon Bjarnason styttuna. Nils Ringset er íslenzkum skóg ræktarmönnum að góðu kunnur, og hefur að minnsta kosti þrisv- ar komið til Isiands. Þá hefur hann einnig gengizt fyrir því að íslenzkt skógræktarfólk fái tæki- færi til að kynna sér skógrækt í NoregL Nýi tónninn í hýbýlaprýði. Gamalt og nýtt sameinað. Satún Hvar eru gömlu rokkarnir, sem rykféllu í geymslunni fyrir örfáum árum? Þeir eru komnir í gagnið á ný, sem stofuprýði. Hvers vegna? Nýi tónn- inn í hýbýlaprýði er samröðun gamalla, sigildra muna og nýtízku hús- gagna á smekklegan hátt. Vitað er að Salún vefnaður var til í landinu þegar árið 1352. Álafoss h.f. hefur nú hafið vefnað á Salúni. Það er eiris líkt hinum upphaflega vefnaði eins og næst verður komist, samkvæmt þeim heimildum sem til eru. Húsgagnaarkitektar og bólstrarar hafa klætt nýtízku húsgögn. þessum vefnaði og árangurinn sjáið þér svart á hvítu hér á síðunni. Salún setur svipinn á stofuna. Litina, munstrin og gæðin vildum við gjarnan fá að sýna yður. Lítið því inn til okkar í Þingholtsstræti, eða talið við bólstrarann yðar. „Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékkst hann“. ÁLAFOSS ÞINGHOLTSSTRÆTI 2, REYKJAVÍK, SÍM113404 Andstæðingar Sovétstjórnar í gcdsjúkrahúsum: Sálarlíf i þeir ra brey tt með misbeitingu ly f j a Um næstu mánaöaniöt verð- iu- haldið í Mexico alþjóðlegt þing sálfræðinga, þar sem bú- izt er við, að f jallað verði um þær aðferðir, sem sovézk yfir völd hafa beitt og beita æ meira í baráttu sinni við þá einstaklinga þjóðfélagsins, sem gerast svo djarfir að láta í ljós óánægju sína með skip an mála síns samfélags og stjórnarfarið í landinu. Hafa samtök sálfræðinga, aðallega brezkra, reifað mál þessi að undanförnu og samtök kanadískra sálfræðinga einn- ig beint þeim tilmæliun til starfsbræðra sinna í öllum lönduni, að þeir reyni að beita áhrifum sinum á sov- ézka sálfræðinga tU þess að þeir hætti að láta nota sig til þess að meðhöndla pólitíska „sjúklinga“. Er búizt við nokkrum sovézkum sálfræð ingum á þingið í Mexico og beðið með eftirvæntingu eftir framlagi þeirra þar. Það hefur öMum saman táðkazt í Rússlandi, að yfir- völd litu á þá, sem eitthvað meira en li'tiið „undarlega“, sem gagrarýndu stjórnarfarið og yfirvöldin opinberlega og þeir hafa jafnan verið for- smáðir. Er þessi aldagamla erfðavenja meðal þeirra fáu, sem kommúnisitastjórnir aust- ur þar hafa fylgt dyggilega og „bætt um bstur“. Sovét- stjórnir síðustu áratuga hafa ekiki látið við það eitt sitja að „lýsa“ menn geðveika, ef þeir báru fram opinbera gagn rýni; — þær hafa lokað þá innl á geðveilkrahælum og beitt þá ýmiss konar lyf jameð ferð, sem hefur þau áhrif að eyðifeggja heilastarfsemina og andlegt líf mannanna. Með þessu móti geta vaidhafamir breytt sálarilífi fólks að eigin geðþótta. AÐEINS SAMKVÆMT LÆKNISRÁÐI Síðustu árin hafa smám saman borizt skjöl til Vestur- landa, sem sýna ótvírætt hversu víðtæk og skelfileg þessi meðhöndlun sovézkra yfirvalda á gagnrýnendum þeirra hefur verið. Um víða veröld hafa menn fordæmt sl'íkar aðferðir. Er ekki til þess vitað, að Sovétstjórnin iáiti það hafa þau áhritf á sig að hún taki upp aðra stefnu, en henni hefur þó sýnilega fundizt ástæða til þess að bera fram einhverja vöm í málinu, því að 23. október sl. var um það skrifað í stjórnar blaðinu IZVESTIA og sagt þar, að enginn væri lagður % ■ ifl ‘ ÉHHMHju wmmm H ■ ■ Vladimir Bukovsky inn á sovézkan spitala, hvers eðlis sem hann væri, nema samíkvæmt læknisráði. Er um heiimimum sennilega ætlað að trúa því, að það sé einhver trygging gegn misbeitingu valdis. Sovézka mannréttinda- nefndin, sem skipuð er þrem- ur kunnum visindamönmum, Andrei Sakharov, Valeirí Tsjaladze og Andrei Tverdok hlebov, hefur komið þeim til- mælum áleiðis til vestrænna sálfræðinga, að mál þetta verið réifað ítarlega í Mexico. 1 orðsendingu þeirra segir meðal annars, að menn geti beðið af þvi vaæanfegt and- legt og sálarlegt tjón, sé þeim haldið innilokuðum á sjúkra- húsi án þess fyrir hendi séu nægar Jæknisfræðilegar ásitæður, — ef þeir einangriisit tímum saman frá samfélaginu, — ef þeir hafi stöðugit sam- neyti við geðsjúka og — ef þeim sé haldið undir áhrifum lyfja, sem getii vaMið breyt- ingum á hugarástandi manna. SJÚKLEG ENDURBÖTAÞÖRF Bréf, sem borizt hafa eftir leynilegum leiðum til Vestur- landa, um meðferð manna á geðsj úkrahúsum, sýna, að pólitískum andstæðingum stjórnvaMa eru miiskunnar- laust gefin lyf, er hafa áhrif á heilastarfsemi þeiirra og sljóvga þá andfega og lákam- lega. Einna kunnast er tilfelli Pjotrs Grigorenkos, stríðshetj unnar og hershöfðingjans fyrrverandi, sem handtekinn var í apníl 1964. Hann gekkst undir „læknisrannsókn", sem Pjotr Grigorenko leiddi í Ijós, samkvæmt skýrslum geðlækna, að „pers ónuleiki hans væri að þróast í átt tdi ranghugmynda og of- sóknarhugmynda". Hann hefði „umbótaíhUigmyndir, sem kæmu fram í geðveikistegum eðliseinkennum“ og fundizt hefði „vottur heiiarým'Uinar“. I skýnslum sovézku lækn- anna er stundum talað um „sjúklega endurbótaþörf" og orðið „sjúklegur“ yfirteiitt not að um ótrúlegustu hluti. Tii dæmis má taka Gyðing nokkum sem hafði óskað eft- ir feyfi til að flytjast til Isra- els. 1 læknaskýrslu um hann var talað um „sjúklega ósk uim að fara til ísraels". Eitt af málum þeim, sem bú izt er við, að sálfræðingaráð- stefnan í Mexico f jalli um, er mál Sovétmannsins Vladimirs Bukovskys. Þess er skemnist að minnast, er Leonid Brezh- nev, leiðtogi sovézka kommún istaflokksáns, var í Paris í iok síðasta mánaðar, að móðir Bukhovskys sneri sér til for- seta Frakklands, George Pompidous, og bað hann að tala máiM sonar síns. Buikovsky var handtekinn í marz §1. og hefur síðan verið á Serbskí stofnuninni i Moskvu, stöðugt undir rann- sókn og eftirliti sálfræðinga og geðlækna. Fyrir tæpu ári var ráðizt hart að Buikovsky í grein flokksblaðsins PRAVDA — og sú árás var pólitísk — og engir vina eða kunmingja Bukovskys hafa ef azt um, að sj úkrahú slegan væri einniig af póMtískum toga. En áður en Bukovsky var handtekinn hafði honurn tekizt að smygla til Vestur- landa margs kyns sönnunar- gögn um og efni um pólitíska beitingu sálfræðinnar og „geð lækningar" í Sovétrikjunum. VILDI HELDUR VERÐA SKOTINN Yskov, er einn af mörgum, sem lokaðir hafa verið inni á geðsjúkrahúsi í Leningrad. f bréfi frá honum, sem borizt hefur vestur fyrir jámtjaM segir hann: „Ég óititasit dauð- arm en heldur en þetta vildi ég verða skotinn til bana. Það er andstyggileigt að hugsa itil þess, að þeir skuli geta brotið niður sálarlif mitt eða af- myndað það. Maður er sljóvg aður, tilfinningailífið eyðilagt og minnið daprast. En það hræðilegasta af öllu við þess- ar aðferðir er, að þær svipta mann öllum fíngerðari geð- brigðum, eiginfeifcum, sem eiga svo stóran þátt i að ein- kenna persónuleika manns. Skapandi hæfileikar deyja. Sá, sem fær aminazinmeðférð hættir að geta tesið, hugsun hans takmarkast og hann verður æ frumstæðari mann- eskja.“ Fanginn Vladimir Gersjuni, sem hefur verið í haldi í geð- sjúkrahúsi í Orjol um 300 km suðVestur af Moskvu segir einniig frá reynslu sinni af am Framh. á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.