Morgunblaðið - 18.12.1971, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.12.1971, Blaðsíða 31
MORGUNBL.AÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1D71 31 einn stór vinahópur Við erum — Við erum öll einn stór vinahópur, sagði Darleae Souligny, sem er útvarpsama- tör, eða HAM, eins og þeir kalLa sig. Hún var stödd á heimili Sigrúnar Gísladóttur og Halilgríms Steinarssonar að Unnarbraut 18 á Seltjarn- arnesi í gærkvöldi (Sigrún er líka útvarpskona), og vildi gjarnan segja nokkur orð um ferðir sínar. — Ég bý i Kaliforníu, og vonast til að vera komin heim fyrir jól. Ég lagði af stað í ferðalagið í febrúar sl. og er búin að ferðast víða. Við höfum oftast einhvem vissan tíma, sem við erum „í lofitinu", og auðvitað okkar eigið kallmerki. Við notum alltaf skírnar- nafn á bylgjunum, og hefst alls konar vináttusamband fyrir þessar sakir. Maður kynnist ýmiss konar fólki, af öllum stéttum og á öllum aldri. .Við hjónin stunduðum þetta bæði af kappi, en hann dó í fyrra, þegar við vorum niðri á Tongaeyjum. Foreldrar mínir hvöttu mig til að fara í þessa_ för, og ég sé ekki eftir því. Ég fór til Tonga, Maur- itius, Nýja Sjálands, Rodrigu- es-eyjar, og var fyrsta kon- an, sem sendi þar á leikmanna vísu. Svo fór ég til Reunion, Malagasi, Tanzaníu, Uganda, Kenýa, Eþíópíu, Egyptalands og Jórdaníu. Þegar ég var á Mauritíus hitti ég Hussein konung og Munu prinsessu í loftinu (í útvarpinu minu), og þau buðu mér að koma til Jórdaníu og heimsækja sig. Þegar ég var i Kenýu, ítrekuðu þau boðið, og mér fannst að ef ég ekki þekktist það í þetta skipti, væri sennilega útséð um, að ég færi þangað. Svo að ég lét verða af því. Þar bjó ég í gestahöllinni þeirra, og ha/fði það mjög gott. Þau voru lát- laust og gott fólk, og börnin þeirra fimm gera alveg sömu hluti og önnur börn, borða ís og horfa á sjónvarpið, og eru líka óþekk, ef því er að skipta, geri ég ráð fyrir. Þegar ég var hjá þeim, reyndum við stöðina þeirra, og þá hitti ég Öddu frá ís^ landi, sem búsett er í Stutt- gart ásamt mamni sínum, sem er í bandaríska hernum. Þau buðu mér heim. Ég þáði það og er nú að koma þaðan. Meðan ég var hjá þeim í Stuttgart, hitti ég í loftinu Sigrúnu húsfreyju hérna, og hún og Haddi, maður hennar, buðu rnér að koma í heim- sókn. Ég er að stíga út úr flug vélinní, svo að segj|i, en íer héðan aftur á morgun til Kanada,- og vonast til að koma heim á Þorláksmessu. Þetta er ævimtýralegt líf, því ber ekki að neita, en af því að við kynnumst við svo óvenjulegar aðstæður, þá er- um við miklu nákomnari hvort öðru en við venjuleg kynni. Loftskeytaheimurinn er að mestu leyti heimur karlmanns ins, minna en 5% af öllum hópnum éru konur, og minna en 3% starfa að .þesisu að stað aldri. En þetta er allt i bezta lagi frá mínum bæjardyrum séð, ég er engin rauðsokka, og uni hag mínum hið bezta, og met vini mína í loftinu mjog mikils. Ríkisfyrirtæki gangi úr V.V.S.Í. — áskorun félagsfundar Iðju Á almennum félagsfundi í Iðju, félagi verksmiðjufólks i Reykjavík hinn 17. nóv. s.l. voru eftirtaldar tillögur sam- þvk'ktar: Fundur í Iðju, félagi verk- smiðjufólks í Reykjavik, hald- inn þriðjudaginn 16. nóv. 1971, samþykkir að heimila stjóm og trúnaSarmannaráði félagsins að boða til vinnustöðvunar á þann 'hátt og á þeim tíma, er stjóm og trúnaðarmannaráð telja nauðsyn legt til að knýja fram samninga. Félagsfundur Iðju, félags verk smiðjufólks Reyfkjavik, haídinn 16. nóv. 1971 í Reykjaviik sam- þykkir að skora á ríkisstjóm- ina að hraða sem mest má verða framkvæmd allra þeirra atriða í málefnasamningi núverandi stjómarflokka, sem greitt gætu fyrir lausn yfirstandandi kjara- deilu. FélagsÆundur Iðju, félags verk smiðjufóiks, Reykjavík, haldinn 16. nóv. 1971 í Reykjavík sam- þytkkir að skora á ríkisstjórn- ina að sjá um að ríkisfyrirtæki segi sig úr Vinnuveitendasam- bandi ís'lands nú þegar og semji við verkalýðshreyfinguna. Einnig skorar fundurinn á samvinnuhreyfinguna að ganga nú þegar að kröfum verkafólks. LE5ID DRCLEGfl Það gengur þvi fljótar með FBGBBffliMWt Gjf O Stórt hitaelement, valfrjáls hitastilling 0-80°C og "turbo" loftdreifarinn tryggja fljóta og þægilega þurrkun. Vegg- hengja. borðstandur eða einstaklega lipur gólffótur, sem auðvitað má leggja saman, eins og sjálfan hjálminn. Veljið um tvær gerðir og fallegar litasamstæður. FLAMINGO er vönduð vara. Kynnið yður einnig verðið. Saga dæmalauss Þetta er saga vegfræSings, sem var engum Itkur. Ueiðarljós hans I Iffinu var: ORÐ SKULU STANDA. Hann gat aldrel kvænzt. Hann hafði heitið sjálfum sér því að eiga stulku, sem hann sá I svip yfsyidhorf Bók huásandi fólks i bók þessari hugleiða tíu höfundar efnl, sem alla varðar, höfundar, sem skipa ýmsar stöður og stéttir, með mis- munandi áhugamál, og næsta ólik við- horf tíl lifsins. En öilum er þeim sam- eiglnlegt að kryfja til mergjar sömu spurninguna: Hvert er lífsviðhorf mitt. Svörin eru mismunandl og vekja menn til margvfslegrar umhugsunar. Litsviðhorf mitt er bók hugsandi fólks á öllum aldri. Einstætt sýnishorn at hugs- unarhætti íslendinga á ofanverðri tuttug- ustu öld. Líf skálda og listamanna Þetta er þriðja bókin, þar sem Jón Óskar rekur minningar sínar um líf skáida og listamanna í Reykjavik á styrjaldarárun- um og næstu árum þar á eftir. Bækur þessar verða ekki íleiri að sinni. Þær hafa hlotið hina lofsamiegustu dóma: ,,Allar lýsingar eru yljaðar hófsamlegrl kimni . . . ísmeygilega og stórvel skrif- uð . . . borin uppi af hinum beztu höf- undarkostum.“ Andrés Kristjánsson. IflUNN Skeggjagötu 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.