Morgunblaðið - 22.01.1972, Qupperneq 5
MORGUINIBLÁðÍÐ, LAUGARDAGUR 22. JÁNOÁR 1972
5
Fimmtugur í gær:
Magnús Guðmundsson
f rá V or sabæ j arh j áleigu
TIMINN líður, trúðu mér: Og nú
er Maddi orðinn fiimmtugur.
Þegar litið er til baiia þá gerist
þetta allt svo hratt, að þetta og
hitt hefur gerzt áður en við er
litið.
Magnús Guðmundsson er
fædduj- í Vonsabæjarhjáleigu 21.
jari. 1922, soniur hjónanna, Guð-
mundar ívarssonar bónda þar og
Guðrúnar Magnúsdóttur. Magnús
var í bemsku, er faðir hans lézt,
og við mót bernsku og æsku varð
hann að sæta þeirri þungu raun
að missia móður síina. Enginn á
neitt betra í lífinu en góða móður.
Það er því þyngri raun æsku-
manni heldur en ég fái orðum
að komið að missa móður sáma,
en þá byrði axlaði Magnús með
myndugleik karlmennisins. Hann
tókst á við vandanm, sem við
blastl, með festu og hugrekki. Og
nú,, þegar staldrað er við merki-
leg tímamót í lífi þessa æskuvin-
ar míns, flýgur margt fram í
hugann frá görnlu, góðu dögun-
um, þegar við vorum ungir, órag-
ir og jafnvel ábyrgðarlausir.
Lengst minnist ég þá kenmslu-
stundar í skólanum í Gaulverja-
bæ hjá fröken Jónu Jónsdóttur.
Ef til vill er það bezti vottur um
hreinskilni þína og kjiark, hverju
þú hefir verið ríkur af í meira
mæli en margur annar.
Kallað var í kennslustund og
nú var það stíllinn frá deginum
áður, sem fara átti yfir. Fljótlega
kcxm að þínum stíl og stanzaði
kennarinn inokkuð við lestur
hans, þar til að hún segir: Ég
held að þér sé að fara aftur með
skriftina, Magnús minn. Er þér
þá bara ekki að fara aftur að
lesa, svaraðir þú að bragði, og
hlauzt geysilegar vinsældir skóla-
félaganna fyrir hugrekkið, því að
þá eins og nú, þótti það gott,
þegar einhver úr nároshópnum
þorði að segja eitthvað aninað en
venjulegt já við kennarann.
Svo hefir tíminn liðið með ógn-
vekjandi hraða, þegar litið er til
baka. Ekki vorum við Magnús
alltaf sáttir í þjóðmálunum, þegar
við vorum æskumenn. Át þá hvor
úr sínum poka og rifumst ofboðs-
lega, en Drottinn minin dýri,
hvort rökin voru öll upp á marga
fiisika, frá því verður ekki sagt
hér. Hitt vil ég segja, að Magnús
beitti greind sinni á sviði þjóð-
mála rétt eins og öðrum sviðum
og hneigðist, — án minnar for-
tölu — til fylgist við stefnu
sjálfstæðismanna. Hann hefir þar
sem annars staðar látið muna um
liðsstyrik sinn, og skulu honum
færðar þakkir fyrir það. Magnús
er og hæfileikamaður hinn mesti
til hvers sem vera skal. Völundur
af fyrstu gráðu til eins og annars.
Breytir þar engu, hvort um er
að ræða tré eða járn, og raunar
alla mögulega og ómögulega
hluti, það er, eins og ekkert sé
óleysanlegt fyrir Magnúsi. Það er
því hollt að hafa hann með í ráð-
urn og vebki, en óviturlegt að
hafna starfi hans. Magnús hefir
enda við margt starfað um ævina,
verið bóndi um nokkur ár, vöru-
flutningabílstjóri, ekið hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna, og nú starfar
hann hjá pósti og síma.
Ég ætla svo ekki að hafa þessa
afmæliskveðju lengri. Ég óska
Magnúsi heilla og farsældar í
hverju starfi, um leið og honusm
skulu færðar þakikir fyrir sam-
vinnu og samveru á liðnurn tírna.
Dóttur hans, Oddnýju, sendi ég
beztu kveðju og bið henini bless-
unar í störfum sínum.
Gunnar Sigurðsson.
Stúlkur óskast
hálfan eða allan daginn. Skriflegar umsóknir, er greini nafn,
heimilisfang, og aldur sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
28. þ m. merkt: ,,947" Þess skal getið að verksmiðjan mun
flytja á Seltjarnarnes í lok febrúar næstkomandi.
Sælgætisverksmiðjan VALA S.F.,
Dugguvogi 17—19.
Til leigu í
miðborginni
Skrifstofu- eða verzlunarhúsnæði
er til leigu nú þegar á bezta stað
í Miðborginni.
Húsnæðið er 90—100 ferin. á 2. hæð.
Unisóknir merktar ,.Aust.urstræti — 5576“
sendist afgT. Mbl. fyrir fimmtudags-
kvöld 27. þ.m.
FERÐABILL
LÚXUSBÍLL
TORFÆRUBILL
HRAÐAKSTURSBÍLL
ROVER
Með því að sameina orku og þægindi Rover fólksbílsins
og eiginleika hins sterka torfærubíls, LAND-ROVER, hefur
fengist ökutæki, sem í rauninni er fjórir bílar í einu.
Þegar ó allt er litið, eru möguleikar RANGE-ROVER stór-
kostlegir og notagildið víðtækt. Hann ó allstaðar jafn vel
við: Á hraðbrautum, ó bændabýlum, ó ,,rúntinum“ í stór-
borqinni oq inn í öræfum.
laugavegi 170—172
TT', ' * v :>• Q £