Morgunblaðið - 04.02.1972, Blaðsíða 2
MORGUNIBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1972
Hannibal til
Bandaríkjanna
Heimsækir NATO-stöðvar í
Norfolk og ræðir við ráða-
menn í Washington
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt eftirfbrandi fréttatilkynning:
frá ríkisstjórninni um boð Hanni
bals Valdimarssonar, félags- og
samgöngumálaráðherra til Banda
ríkjanna:
í ágústmánuði 1971 barst
Hannibal Valdirrtairssyni, fétags-
og gamgönguráðherra, boð frá
Bandarií'kjastiórn um að koma í
opinbera heimsó’km til Bandairíkj-
anna. Hefur nú verið ákveðið að
hetmsóknin fari fram dagama 5,-
14. febrúar n.k.
Tilhögun ferðarinnar verður i
aðalatriðum þamndg, að félags-
og samgönguráðherra mun fara
frá Keflavík til Norfolk og eiga
þá m.a. viðræður við Charles K.
Dumean, flotaforingja, og yfir-
rruenn dömsku og norisku NATO-
sendinefndanna í Norfolk.
Frá Norfolk mun ráðlherra
fara trl Washington þriðjudag-
irtn 8. febrúar og eiga þar ma.
viðræður við formann banda-
ríska þingmannasaimbaindsins,
Edward J. Derwinsky, og fleiri
þimigmenn; Emst Lee, aðstoðar-
framkvæmdastjóra bandairís&a
Alþýðusambandsims (AFL/CIO),
auk ýmissa annarra opiinberra
embættismianna og stjórnmála-
mamna, þeirra á meðal U. Alexis
Johnsom, aðstoða<rutanrúkisráð-
heirra. Einnig verður móttaka í
íslenzka sendiráðinu 1 Washing-
ton, þar sem Hannibal Valdimairs
syni gefst tækifæri til að kynnia
islenzk sjónarmið, m.a. í land-
hielgismálinu, fyrir ýmsum framá
Skilafrestur
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við fjármálaráðlherra,
Oalidór E. Sigurðsson, og spurð-
ist fyrir um hvort nokkrar breyt
imgar hefðu verið gerðar á fyrir-
komul. skattheimtu í ár eftir fund
hams með rikis-skattstjóra i gær.
Fjármáiaráðherra krvað svo ekki
hafa verið, m. a. hefði eklci ver-
ið talin ástæða til að framlengja
slaitefrest á framtalssfkýrsilum.
mönnum í bandairísku þjóðlífí.
Frá Washiinigton fer félags- og
samgönguráðlherra til New York
föstudagimn 11. febrúar, þar sem
hainn mun m.a. heimsækja aðal-
stöðvar Sameinuðu þjóðanna i
fylgd með fulltrúum íslands hjá
samtökunum.
Ráðgeri er að Hajimibal Valdi-
marsson, félags- og samgöngu-
ráðherira, komi aftur tál íslamds
mánudaginin 14. febrúajr.
í fylgd með ráðherra verður
Hallgrímur Dalberg, skrifstofu-
stjóri í félag9málaráðuneytinu.
Innflutningur:
Erlendur greiðslu-
frestur afnuminn á
ýmsum vöruflokkum
— Nýjar reglur um gjaldfrest bitna á hinum
— efnaminni húsbyggjendum — segir Félag
— ísl. byggingaref nakaupmanna
VIÐSKIPTARAÐUNEYTIÐ hef-
ur sett nýjar reglur um erlend-
an greiðslufrest á innfiuttum
vörum. Eru nú aðeins 70% inn-
flutnings landsmanna leyfð
gegn erlendum greiðslufresti mið
að við árið 1970, en var fyrir
breytinguna 83% miðað við sama
ár. Reglur þessar, seni settar em
í samráði við Seðlabanka íslands
og viðskiptabankana, eiga að
taka gildi 1. april næstkomandi,
en nokkrar vörutegundir munu
fá lengri umþóttunartíma, t.d.
helztu tegundir byggingarvara
og skóf atnaðar.
f fréttatilkynning'u ráðuneytis-
ins, sem Mbl. barst í gær, er sagt
að innflutningur sé nú frjáls á
nær öllum vörum, en einnig hafi
verið heiimilt að flytja inn meg-
inhluta innfluttra vara með 3ja
mánaða greiðslufresti. Segir i
fréttatilkynningunni að ekki sé
ætlunin að skerða innflutnings-
frelsið, en hins vegar sé ætlunin
að draga úr hinum stuttu er-
lendu vörukaupalánum, en þau
hafi aukizt miikið undanfarin ár
og nenii nú uim tveimur milljörð-
um króna.
„Samkvæmt hinum nýju regl-
Lúövík Jósefss. um neitun á viðræðum viö BSRB:|
„Kom yfir mig eins
og vatnsgusa66
— Kannast ekki við slíka neitun
A BORGARAFUNDI BSRB á
miðvikudagakvöld í Háslkóla-
bíói (kvaddi Lúðvfk Jósefsson
sér hljóðs utan dagsikrár og
eftir að hún var tæimd. Þar
gaf hann m. a. þessa eftirtekt-
arverðu yfirlýsingu:
„Það hefur hreiniega komið
yfir mig eins og vatnsgusa, að
rikisstjómin hafi neitað BSRB
ttm viðræður" og sagðist
hann ekkert kamnast við það,
en hims vegar hefði ríkisstjóm
in ekki talið grundvöll til end-
urskoðunar á kjarasamning-
um BSRB. Hann kvaðst enn-
fremur hafa haft áhyggjur af
því síðustu daga, að upp
skyldi komm þessi deila milli
ríkisstjórnarhmair og BSRB og
sagði sáðam:
,. Saimn ing agerð in fellur
ekki undir mig og ég játa, að
ég hef ekki fylgzt með máíinu
eins og ef til vill hefði verið
rétt að ég gerði. í starfi eins
og mínu er við ýmislegt að
fást.“ Þá sagði hanm: „Ég vona
það, að þær samningaviðræð-
ur, sem raunverulega eru nú
í gangi undir forystu sátta-
semjara, geti borið ár-
angur“ og kvaðst hainn hafa
sannfærzt um það á fundin,-
um, að það hiyti að vera grund
völlur til þess að hægt væri að
ná sammhngum, „ef gengið er
að slíkum saminingum með
fullum vilja af beggja hálfu“.
Hann tók það sérstaklega
fram, að í þeasu sambandi
væri hamm emgam veginn að
undanskilja ríikisstjórnina.
Þessar yfirlýsingar Lúðvíks
Jósefssomar eru þeian mun at-
hyglisverðari, þegar þess er
gætt, að á þessum sama fumdi
hafði Halldór E. Sigurðssom
fjármálaráðherra skýrt frá
því, að sáttasemjari hefði ekki
kallað saman sáttafund und-
anfarna daga, þaT sem hann
hefði „ekki talið til neinis að
halda sáttafumdi“ eftir þau
bréfaskipti, sem gemgið hefðu
á milli ríkisstjámarinmar og
BSRB. Þá hafði fjármálaráð-
heirra lýst þvt yfir í lök máis
síns, að ríkisstjórnin mundi
taka til athugunar allar „breyt
ingatillögur", sem koma
kynnu frá BSRB.
Það var greinilegt á Krist-
jáni Thorlacius, formanmi
BSRB, að honum kom boðskap
ur Lúðvíks Jósefssamar mjög
á óvart. Þannig hafði Kristján
látið sér nægja að hafa svo-
felld uimmæli um ræðu íjár-
málaráðherra, að í heruni hefði
komið „lítið fram ammað en
það, sem hefur staðið í Tím-
anum, blaði okkar flokks-
bræðranma, undamfarnia daga“.
Eftix að Lúðvík Jósefsson
hafði lokið máli siímu kvaddi
Kristján Thorlacius sér aftur
hljóðs og sagðist ekki mundu
fara í kappræður við ráðherr-
airun. Siðan sagði hanm:
„Ég fagna því, ef ríkisstjórn
in vildi breyta afstöðu sinmi og
taka upp viðræður. Það er það,
sem við höfum verið að biðja
um. Það hefur ekki staðið á og
mun ekíki standa_ á forystu-
mönnum BSRB. Ég vona, að
yfirlýsing Lúðvíks Jósefssonar
verði til þess, að þessi fundur
beri þanm árangur, að við setj-
umst að samningaborði og ger-
um þessa samnimga.“
um verður nú bannaður erlend-
ur greiðslufrestur á ýitisum ful-1-
unnum neyzfluvörum, sem áður
hefur verið leyfður greiðslufrest
ur á. En áfram verður leyfður
greiðslufrestur á hráefnum til
iðnaðar, hálfunnum vörum, ýms-
um rekstrarvörum landbúnaðar
og sjávarútvegs, vélum og tækj-
um," segir í fréttatilkynningu
ráðuneytisins.
Meðal vara, sem óheimiJt verð-
ur að flytja inn gegn erlenduip
greiðslufresti samtovæmt nýju
reglunum, eru þeissar:
Ýmsar bygigimgavörur, þó ekki
timbur og steypustyrktarjérn,
rafmagnsvörur, þar á meðal
ljósaperur, ýmsar matvörur, þar
a meðal kex, skófatnaður að und
anteknum gúmskófatnaði, ýmsar
pappírsvörur.
Þá gera hinar nýju reglur ráð
fyrir því, að greiðslufrestur um-
fram 3 rreánuði, sem leyfður er
við innflutning margra vöruteg-
unda, verði styttur á nokkrum
vörutegundum.
Morgunblaðið leitaði eftir því
í gær að fá uppgefinn listann
yfir þær vörutegumdir, sema
greiðslufrestshömlur væru nú
settar á, en þær fengust ekki.
Fást þær ekki birtar, fyrr en
þær hafa komið í stjórnartiðind-
um.
í viðtali, sem Mbl. átti í gær
við Leif ísleifsson, formamm Fé-
lags islenzkra byggingaefnakaup
Framhald á bls. 21
j l>að pusar oft hressileg-a I j
innsiglingrunni i Vestmanna-1
I eyjahöfn. Þessa mynd tók Sig- ’
I urgeir í Eyjnm af mb. Frið- i
I riki Sigurðssyni, þegar bann I
komst inn í Vestmannaeyja-1
höfn eftir að hafa beðið í tvo .
I sólarhringa í vari við Eyjar í
| fárviðrinu, sem gekk yfir þar I
í vikunni. Friðrik slitnaði upp |
í Þorlákshöfn og varð að flýja ,
úr höfninni. Sigldi hann þá til 1
| Eyja, en varð að halda sjó þar '
eins og fyrr getur.
Hlíf 65 ára
UM ÞESSAR mundir á Verka-
mannafélagið Hiíf i Hafnarfirði
65 ára afmæli, ekki er vitað ná-
kvæmlega mri stofndaginn þar
sem fyrsta fundagerðariiók fér
lagsins er löngu glötuð.
En samkvæmt ritúðum heim-
ildum er öruggt að félagið var
stofnað u,m mánaðamótin jan.—
febrúar 1907, enda geta tvö blöð
urn félagsstofnunina, Alþýðu-
blaðið (17. marz 1907) og Þjóð-
viljinn, blað Skúla Thoroddsen,
sem gefið var út á Bessastöðum.
Á stofnfundi félagsins gengu
40 manns í félagið, karlar og
konur og fyrsti formaður var
fsak Bj arnason á Óseyri, síðar
bóndi í Fíifuhvammi í Kópavogi.
17. marz 1907 Skýrir Alþýðu-
blaðið frá því að félagar i Hlíf
séu orðnir 230 að tölu, þar af
80 kvenmenn. Félagar Hlífar í
dag eru rösMega 700.
Þessara tímamóta í sögu Hlíf-
ar verður minnzt með kaffiaaim-
sæti í Skiphóil, laugardaginn 5.
febrúar kl. 3.00 e.h. Þar verða
flutt ávörp, karlatkórinn Þrestir
syngur, Karl Einarsson verður
með eftirhermur og trióið Lítóð
eitt syng'ur.
Félagsfundur
B.I. á mánudag
BLAÐAMANNAFÉLAG Islands
boðar til áríðandi fundar mánu-
daginn 7. febrúar í Tjarnarbúð
uppi og hefst fundnrinn kl. 15.
Fundarefni: Samningamál.
Piltar ræna konu
— otuðu að henni hnífi
TVEIR 16—17 ára piltar réðust
að 63 ára konu á Bergþómgötu
á þriðjndagskvöld, otuðu að
henni hnífi og hrifsuðu af henni
innkaupanet með fatnaði og
veski konunnar í. Veskið fannst
svo i húsagarði morguninn eft-
ir með öllu í, nema peningum,
sem voru lítið fé, og gömlum
erfðagrip, sem konunui þykir
verra að missa. Hér er um að
ræða skeifu úr íslenzkum rauða
og er taUð, að skeifan sé frá lun
1300.
Konan hafði farið í hedmsókn
til fóiks og tekið erfðagripiiui
með sér til að sýna þvi. Á heim-
leiðinní veittusit tveir piltar að
henni og tók anmar þeirra á
henni og otaði að henrd eldhús-
hniíf. Hrifsaði hann svo innkaupa
netið af konunni, em á meðain
stóð félagi hans tilbúinn að baikl
henni. Piiitamir hlupu svo burt
og veitti konam þeim niokkra eft-
irför, em missti af þeim.
Piltamir voru ófundnir í gssr-
kvöldi, en ástæða er til að skora
á þá að skila kommni aftur
erfðagripreum, sem henni er
persónulega dýrmætur.