Morgunblaðið - 04.02.1972, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRUAR 1972
5
„Gæði íslenzks iðn-
varnings einstökéé
'CELANDIC Products •
Sýning-arstúkan á skozku hoiniilissýningiinni i lok okt. sl. Gestir lirifust svo mjög af íslenzk
um ffieruskinnum, að }>oir keyptu öll þau skinu, sem }Hiktn veggi stiikunnar.
segir Corrie McGibhon,
sem rekur íslenzka
viðskiptamiðstöð í Glasgow
„ÞESSI liátlur í starfsemi fyr-
irtækisins hófst. eiginlega í
lok október á sl. ári, með því
að við settnm upp sýningar-
stúku á heimssýningunni
„Scottisli modern homes ex-
hibition“ og þar sýndum við
islenzkar vörur, einkum |ió
iillar- og skinnavörur. Þessa
sýningu sóttii um 180 þúsund
gestir og sýningarstúkan okk
ar vakti langmesta atliygli af
öllum stúkiinum. Þarna var
stöðugt stór hópur fólks að
skoða og spyrja og allir vildu
líka kaupa. Við höfðum þak-
ið veggi stúkunnar með ís-
lenzkuin gæriiskinnum og urð
um að selja þau líka, þvi að
lólk benti á þau og sagði: „Ég
vil kaupa þetta skinn.“
Corrie MeGiblnin.
Þetta eru orð Corrie Mc
Gibbon, en hann er heildsali
í Glasgow, rekur þar fyrir-
tækið Nord Agericies Ltd. o.g
hyggst nú eingöngu flytja inn
islenzikan varnin.g, sem hann
telur hafa góða sölumögu-
leika í Skotlandi og reyndar í
Bretlandi öllu. Mbl. ræddi ný-
lega við hann um starf 'hans að
innflutningi islenzks iðnvarn-
ings og spurði m.a. um verð-
mæti þess varnings sem hann
hefur seit í Slkotlandi.
„Þessa fyrstu tvo mánuði
eftir sýninguna, nóvember og
desember, seldum við vörur
fyrir um 15.000- pund, þannig
að við höfum farið áigætlega
af stað. Við vorum fyrst eink
um með vörur frá Sláturfélagi
Suðurlands, ullar- og skinna-
vörur, en Síðan fórum við að
selja vörur frá Stáliðjunni og
Álafossi. Ég hef í þessari heim
sókn minni til íslands leitað
eftir umboðum fyrir fleiri fyr-
irtæiki og Útfiutningsskrif-
stofa iðnaðarins hefur veitt
mér mjög góða aðstoð í því
sambandi. í apríl nk. mun ég
taka þátt i alþjóðlegri mat-
vælasýningu í Glasgow og þeg
ar hafa þrjú fyrirtæki ákveð-
ið að sýna vörur sínar þar,
ORA — með niðursuðuvörur,
Vilko-súpuverksmiðja og Ós-
eyri — með þorskahrogn. Önn
ur fyrirtæki hafa einnig sýnt
áhuga á þátttoku, þ. á m.. Sam
bandið, Linda, Norðurstjarn-
an og Sana, að ógleymdri
Áfengis- og tóbaksverzlun rík
isins, sem hefur áhuga á að
kynna brennivínið íslenzka.
1 ágúst nk. mun fyrirtækið
skipta um nafn og taka upp
nafnið Icelandic Trade Cent-
er og um það leyti hefst einn-
ig aðalsöiutími ullar- og
skinnavöru. Fyrirtækið mun
þá flytjast í nýtt húsnæði, þar
sem m.a. verður sérstakur sýn
ingarsalur fyrir islenzku vör-
urnar, til að kaupmenn geti
haft betri aðstöðu til að skoða
þær. Viðskiptavinir fyrirtæk-
isins eru aðallega stórverzlan-
ir í ölium helztu borgum og
bæjum Skotlands og einnig
feldskerar, sem nota islenzku
skinnavörurnar til klæðagerð-
ar. Við höfum einnig selt beint
til almennings, en þó í smáum
mæli. Nú í marz nk. erum við
hins vegar að fara af stað
með auglýsinga- og söiuher-
ferð í skozku blaði, Daily Rec-
ord, og ef hún gefur góðan
árangur, mun einnig verða
gerð sMk herferð i blaðinu
Daily Mirror, sem er stærsta
dagblað Bretlands og eitt það
stærsta í öllum heiminum.
Að mínum dómi er Glasg-
ow tilvalin miðstöð fyrir inn-
flutning frá íslandi til Bret-
lands. Samgöngur þaðan til
allira hluta Bretlandis eru mjög
góðar.
En svo ég snúi mér aftur að
augiýsingaherferðinni. Við
munum þar auglýsa sérstaka
gjafapakka með íslenzikum
gæruskinnum, sem við höfum
látið útbúa, og einnig er ætl-
unin að bjóða síðar upp á
gjafapakka með íslenzkum
fiskréttum.
— En þú ætlar ekki að setja
upp íslenzkt veitingahús, eins
og á sínum tima var gert i
London?
— Nei„ ég hef ekki efni á
að tapa 80 þúsund pundum.
En hins vegar er, að öllu
gamni slepptu, mjög góður
grundvöllur fyrir rekstri sliks
veitingahúss í Glasgow, því að
íslenzkur matur er mjög góð-
ur og Skotum þy'kir hann ákaf
lega bragðgóður. ©g er hins
vegar reiðubúinn að veita alla
mögulega aðstoð i þessu sam
bandi og einnig öllum þeim
fyrirtækjum á íslandi, sem
óska að kynna vörur sínar í
Skotlandi. Fyrirtækið hefur
aðsetur sitt í 49 Queen Street,
Glasgow, C.l.
— Hverjar heldurðu að séu
framtíiðarhoríurnar i sam-
bandi við innflutning frá ís-
landi tii Skotlands ?
— Framtíðarhorfurnar fyr-
ir íslenzkar ullar- og skinna-
vörur eru mjög góðar. Við get
um að vísu átt í einhverjum
smávægilegum erfiðleikum, ef
nýtt „Þorskastrið“ skeliur á,
en ég býst ekki við að það
verði. Einnig gæti innganga
Breta í Efnahagsbandalagið
valdið einhverjum erfiðleik-
um, en ég held að það muni
ekki verða n.sma í mjög litl-
um mæli. Hin einstöku gæði
íslenzks iðnvarnings sjá til
þess.