Morgunblaðið - 23.02.1972, Side 10

Morgunblaðið - 23.02.1972, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1972 Það væri óbúandi í Álftaveri væru menn hræddir við Kötlugos Spjaliað við Jón í Norður -Hjáieigu VIÐ hittum Jón Gíslason í Norður-Hjáleigu í Alfta- veri að máli, þegar hann var í borginni nýlega. Hann átti erindi á Búnað- arþing, þar sem hann er einn elzti fulltrúinn, hefur átt þar sæti síðan 1954. Jón er orðinn 75 ára gamall og á mikil störf að baki við margvísleg málefni. Hann var m.a. alþingismaður Vestur-Skaftfellinga 1947- 1953 og enn er hann hrepp- stjóri og oddviti Álftavers- hrepps, sýslunefndarmað- ur og margt fleira. Jón hætti búskap, lét tveim ur sonum sínum eftir jörðina til félagsbús 1967. En þau hjónin hafa heimili í Norður- Hjáleigu og búa út af fyrir sig. Og Jón hefur nægum störfum að sinna í félagsmál- um. Norður-Hjáleiga er eigin- lega hálft land Þykkvabæj- arklausturs, segir Jón okkur, þegar við spyrjum um jörð- ina. Þangað til eftir aldamót- in var tvíbýli á Þykkvabæj- arklaustri. Það skiptist þann - ig að ein jörðin náði yfir helminginn af gamla land- inu, önnur, er nefndist Þykkvabæjarklaustur 2, yfir fjórðung og Norður-Hjáleiga var svo fjórði parturinn af þessu landi. En 1944 fluttist fólkið frá Þykkvabæjar- klaustri 2 og keyptu þeir á Norður-Hjáleigu þá þann hlutann. Því er Norður-Hjá- leiga nú hálft Þykkvabæjar- klaustur, eins og það var. 1 Þykkvabæjarklaustri var forðum Katla sú, sem átti að hafa komið fyrsta Kötlu- gosinu af stað með því að hlaupa upp í jökulinn og kasta sér í sprunguna, sem vildi hana ekki, og gubbaði henni svona rösklega. En eitt hefur alltaf þvælzt fyrir okkur í þessari sögu og það er hvers vegna Katla var í munkaklaustri. Jón kann skýringu á þvi. — Þetta er þjóðsaga og sögnin göm- ul, frá því áður en klaustrið var stofnað. Enda mátti ekki kvenmaður vera í munka- klaustrinu. Og til að tímatal sé rétt, þyrfti líka svo að vera, því Katla byrjaðí að gjósa áður en klaustrið var stofnað. Þetta leiðir talið að Kötlugosum. Við spyrjum hvort búendur í Álftaveri séu hræddir við Kötlugos, sem samkvæmt fyrri reynsiu á nú löngu að vera komið. — Ég held að flestir hugsi ekk- ert um það, segir hann. Ef svo væri, væri raunar óger- legt að búa í Álftaveri. Ekk- ert hefur staðið á mönnum að rækta og byggja þarna upp, ef þeir hafa haft tök á því. Væri alltaf verið að hugsa um að þetta eða hitt þýddi ekki, því gos gæti kömið á morgun, þá væri þar ekki byggilegt. Eflaust dettur sumum það i hug. En þeim fækkar, sem muna eftir síð- asta gosi og upplifðu það. —- Hvað er mikil byggð í Álftaverinu? — Við erum fáir. 11 býli eru í hreppnum og 65 íbúar. Af þeim 65 eru 15 manns 67 ára og eldri. Á sumum heim- ilum eru ekki aðrir en elli- lífeyrisþegar. Mér sýnist lít- il framtíð í búskapnum á sum um af þessum býlum og býð ekki í að þau byggist aftur. Menn eru almennt tregir til að byrja búskap. Það er dýrt að setja upp bú og þetta er erfitt starf . — Heldurðu að byggð legg ist þarna alveg niður? — Nei, ekki nema ef Katla rumskar. En hún hefur nú gosið upp undir 20 sinnum og Jón Gíslason, bóndi í Norður-Hjáleigu. alltaf hefur haldizt byggð I Álftaveri. Þó hefur hún i hvert sinn höggvið skarð í landið. — Þú sagðir að þeim fækk- aði, sem muna síðasta gos. Einn af þeim, sem það gera, ert samt þú. — Já, ég hefi nú vist sagt frá þvi áður. Ég var í smala- mennsku þegar gosið byrjaði 1918 og náði ekki heim. Slapp með naumindum und- an. Við, sem vorum að koma með safnið, skildum það eftir beint fyrir kjaftinum á hlaupinu og hleyptum und- an. Við komumst í Skálma- bæjarhraun. — En þetta var stórfeng- legt hlaup. Var það ekki? — Jú, jökulhlaupið í Kötlugosinu 1918 var svo stórfenglegt að það er ekki hægt að lýsa því. Að sjá þessi ísbákn — þið hafið séð þau á myndum — ryðjast á flugferð í flaumnum. Norð- austan við Hjörleifshöfða er enn móbergsklettur, sem gizk að er á að vegi á fjórða hundrað tonn. Hann hefur komið með hlaupinu innan úr jökli, líklega fastur í ís- jaka. Það er eitt, sem ég hefi ver ið að hugsa um í sam- bandi við Kötlugos og sem ég vona að flugmenn gæti sín á, þegar gos verður. Það er einkennandi við öskuna úr Kötlu að hún er svo hlaðin rafmagni að eldingarnar slitna varla. Gosinu fylgja fá dæma þrumur og eldingar og mikið myrkur. Ég hafði heyrt að svo dimmt gæti orðið í gos mekki' að þó maður setti fing urinn upp að nefinu á sér, sæi maður hann ekki. Þarna reyndi ég að þetta er satt. — Hvernig er útlitið núna. Heldurðu að fari að gjósa? — Jökullinn er mikið breyttur. Hann er lægri. Dal- urinn, þar sem gígarnir eru, hefur haldið sér lengi, þar til síðustu tvö árin að hlaðizt hefur í hann. Nú hefi ég ver- ið að velta því fyrir mér, hvort það stafi af því að jök ullinn hafi skriðið meira nið- ur eða hvort Katla er farin að hitna og safna vatni of- an við gíginn, sem lyftir ísn- Framh. á bls. 19 „Þessi milda tíð á þorra er einstök“ — spjailaö viö Pál Guðmunds son á Breiðdalsvík „ÞAÐ, sem vekur mesta undr- un hér, er hin milda tíð og frostlaus jörð,“ sagði Páll Guðmundsson, fréttaritari Morgunblaðsins i Breiðdals- vík, þegar við hringdum í hann i lok þorra. Hann kvað menn innan úr Breiðdalnum FRETTIR ÚR BREIÐDAL Samtal við • .Pál Guðmundsson, Breiðdalsvik, fréttaritara ^Morgunblaðsins hafa sagt sér að nærri léti að jörð væri þar frosttaus og sagðist hann ekld muna slikt fyrr á þorra. Snjóföl kvað Páll hins vegar til fjalla og Breiðdalsheiðin er ófær. Skot- færi er hins vegar um Fjarð- arheiði, enda er hún allt að því auð. „Vegirnir teljast því í mjög góðu Iagi,“ sagði Páll, „enda tíðin einstök.“ Mjög mikil atvinna er á Breiðdalsvik, en þar leggja nú upp tveir bátar, báðir tæp 200 tonn. Eru þeir báðir með net og hafa til jafnaðar land- að 14—18 tonnum af tveggja nátta fiski. Þriðji Breiðdals- víkurbáturinn, Árni Magnús- son, stundar nú loðnuveiðar fyrir Vesturlandi. 1 afla netabátanna hefur verið talsvert miikið af ýsu og er hún öll fryst í frystihús- inu, en afli bátanna tveggja er verkaður hjá frystihúsinu og Braga hf. Einnig kvað Páll unnið við að frysta loðnu, sem ekið væri til Breiðdalsvíkur frá Stöðvarfirði. 30—40 manns vinna I landi við fiskvinnsl- una og að undanförnu hefur bætzt við vinnukraftur ofan af Héraði. Nokkuð er um það að fólk þaðan komi til fisk- vinnu á Breiðdalsvik, en bæði frystihúsið og Bragi hf. hafa mötuneyti og verbúðaaðstöðu. Einnig er nokkuð um það að aðkomufólk búi hjá vanda- mönnum. Páll kvað engin sérstök til- þrif hafa verið í félagslifinu að undanförnu umfram það, sem venjulegt er. Síðasti skemmtifagnaðurinn var hald- inn i Beruneshreppi, en þar var þorrablótið haldið í ár. Hefur verið talað um það að halda þorrablót þar þriðja hvert ár, en hin tvö árin í Breiðdalsvik. Þegar við spurðum Pál um sjóveðrið, sagði hann að ekki örlaði við hlein, hvorki við Gunnhildarey eða Hafnarey, sem væru nú reyndar inni á vikinni, en gæftir kvað hann hafa verið ágætar. Og úr því að við vorum að minnast á Hafnarey má geta þess, að hún er öll grasi vax- in og þar voru áður fyrr naut- gripir. Heydalaprestar nýttu þessa eyju og reyndar er hún að nokkru nýtt enn þar sem um er að ræða æðarvarp og selveiði. Páll Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.