Morgunblaðið - 23.02.1972, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.02.1972, Blaðsíða 12
c. 12 MORGtXNBLAÐIÐ, MlÐVTKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1972 Áhöfnin cnn i gíslingu: að Joseph Kennedy, sem er 19 ára, væri í lífshættu. Talsmenn utanríkisráðuneytisins sögðu að- spurðir að ekkert benti til þess að flugvélarræningjarnir mundu Paasio tekur við Helsingfors, 22. febrúar. NTB RAFAEL Paasio, þingforseti, myndaði í dag minnihlutastjórn jafnaðarmanna í stað bráða- birgðastjörnar Teuvo Auras, og hafa sjö af 17 ráðherrum stjórn- arinnar áður gegnt ráðherra- embættum. Knnnasti ráðherrann auk Paasios er hinn nýi innan- ríkisráðherra, Martti Vivtanen, landshöfðingi, en utanríkisráð- herra er Kalevi Sorsa, flokksrit- ari, sem hefur ekki verið ráð- herra áður. Mauno Koivisto, landsbanka- stjóri, verður fjármálaráðherra, Veikko Helle, þingmaður, verður verkamáiaráðherra og Jussi Linnamo, forstjóri, verður við- skiptamálaráðherra. Alit eru þetta kunnir stjórnmálamenn, en meðal þeirra, sem hafa ekki ver- ið ráðherrar áður eru Leo Happ- onen, landbúnaðarráðherra, Sapp Lindblom, iðnaðarráðíherra, Sulo Hostila, landvarnaráðherra og Pekka Paavola, dómsmálaráð- herra. irnar um laxveiði.sam'kom'U'l agi ð séu í aðaiatriðum réttar. Aðalatriði samningsins auk þeirra, sem áður eru nefind, eru þau að heimilað verður þeim sem stunda veiðarnar að veiða allt að 1100 lestir á ári. Danskir fiskimenn, aðallega frá Borgund- arhólmi og færeyskir fiskimenn eiga smátt og smátt að draga úr veiðunum, en þær nema nú 800 lestum á ári og 1975 á afl- inn að vera kominn í 500 lestir en siðan skal hætta veiðunum alveg. Heildaraflinn við Græn- land er nú 2000 lestir. Samningurinn gerir að engu hótanir Bandaríkjamanna um efnahagslegar refsiaðgerðir gagn vart fiskinnflutningi Dana til Bandarikjanna, en búizt er við harðorðum mótmælum danskra fiskimanna og vilja þeir sér- stök lög frá þjóðþinginu ef hrekja eigi þá frá Grænlandi. Samband danskra fiskimanna hafa beðið um stuðning samtaka fiskimanna i öðrum Evrópulönd- um við þá afstöðu að ekki megi taka ákvarðanir í máli sem þessu vegna hótana um viðskiptabann. Bann samþykkt á fundi í Washington Framvegis verður aðeins Grænlendingum og fiskimönn- um búsettum á Grænlandi leyft að stunda laxveiðarnar, segir blaðið. Bannlnu verður fram- fylgt í áföngum og það verður sett samkvæmt samkomulagi þeirra sem áður eru nefnd, eru sem hefur náðst í viðræðum Dana og Bandarikjamanna um málið í Washington. DANSKA stjórnin virðist hafa tekið þá afstöðu að banna dönsk- tim og færeyskum sjómönnum að stnnda laxveiðar við Græn- iand frá og með árslokum 1975 til þess að fá frið í máii sem hefur komið af stað hótiinum um alþjóðlegt viðskiptabann gegn Dönum, að sögn danska blaðsins .Tyllandsposten. ekkert sagt. Fréttaritari danska útvarpsins hefur hins vegar simað frá Washington að frétt- Danir hafa verið mjög þögulir um árangur viðræðnanna, og segir Knud Hertling, Grænlands- málaráðherra, að hann sé bund- inn þagnarskyldu og geti þvi Knnd Hertling Norræn eldfjalla- miðstöð Helsinki, 22. febrúar. — Frá Birni Jóhannssyni. Menntamálaráðherrar Norður landa liéldu fund í morgun til að ræða ýmis menningarmál, »g m.a. var fjallaff á rá#- berrafundinum uhi að koma app eldfjallarannsóknastöð á íslandi, en tillaga þar að lút- »ndi hefur áður verið sam- bykkt á þingi Norðurlanda- •áðs. Komust ráðherrarnir að samkomulagi um grundvöll fyrir starfsemi stöðvarinnar, og Magnús Torfi Ólafsson, menntamálaráðherra sagði Mbl. að næsta skrefið væri það að menntamálaráðuneyt- ið íslenzka tæki upp viðræður við menntamálaráðuneyti hinna Norðurlandanna um endanlega skipnlagningu og starfsreglur fyrir eldfjallamið stöðina, Ráðherrann kvaðst ekki geta sagt um hvenær stöð in gæti tekið til starfa, en hún verður í tengslum við Há- skóla fslands. Joseph Kennedy sleppt ásamt öðrum farþegum Sprengiefni var komið fyrir í Lufthansa-þotunni SÍÐUSTU FRÉTTIR Enn í haldi SEINT í kvöld sagði tals- maður Lufthansa í Frank- furt að samkvænit frétt frá Aden hefðu þrír arabískir skæruliðar enn alla karl- menn sem voru með þot- unni og áhöfnina á valdi sínu þrátt fyrir yfirlýsing- ar jemenskra yfirvalda um að öllum hefði verið sleppt nema áhöfninni. krefjast þess að Sirhan Sirhan, sem dæmdur var fyrir morðið á Robert Kennedy, yrði látinn laus. Seinna kallaði Edward Kennedy blaðamenn á sinn fund og kvaðst hafa rætt við flugmálastjórann í Aden siem hefði skýrt frá því að adlir farþegarnir yrðu látnir laus ir. Aden, 22. febrúar. — NTB-AP PALESTÍNSKIR skæruliðar slepptu í dag úr haldi 172 far- þegiun vestur-þýzkrar far- þegaþotu, sem þeir rændu í nótt í Nýju Delhi og neyddu til að lenda í Aden. Joseph Kennedy, elzti sonur Roherts heitins Kennedys, var ineðal farþeganna í flugvélinni. Skæruliðarnir hafa enn á valdi sínu 16 manns af áhöfn þotunnar, sem er frá flugfé- laginu Lufthansa. Flugvélarræningj arnir komu fyrir sprengiefni í þotunni á flug vellinum í Aden, og slepptu fyrst 36 konum, 15 börnum og öldruð um manni, en neituðu að sleppa 120 karlmönnum. Þeir urðu að bíða milli vonar og ótta í margar klukkustundir í steikjandi hita eyðimerkurinnar þamgað til flug vélarræningjarnir ákváðu að sleppa þeim einnig, en halda á- höfninni áfram í gíslingu. Joseph Kennedy hefur verið á viku ferðalagi í Indlandi, en var áður á ferðalagi í Bangladesh á- samt frænda sínum Edward Kennedy öldungadeildarmanni og konu hans. Edward Kennedy sagði skömmu eftir ránið að hann teldi ekki ástæðu til að ætla fyrirmælum herstjóra samtaka sinna, bæði hvað snertir flugvél ina og gíslana. Samkvæmt áreið anlegum heimildum krefjast flug vélarræningjarnir þess að fjórir Palestínumenn sem eru fyrir rétti í Karíó, ákærðir fyrir tilræð ið við Wasfi Tell, forsætisráð- herra Jórdaníu, verði látnir laus ir úr haldi. Farseðill Joseph Kennedys var pantaður fyrirfram, en pöntunin var staðfest skömmu fyrir brott förina, sennilega til þegs að vekja sem minnsta athygli á ferðalagi hans. Kennedy kom svo á síð- ustu stundu til flugvallarins í Nýju Delhi. Fjölskylda hans safn aðist saman á heimili Edward Kennedys til þess að fylgjast með fréttum af flugvélarráninu. Joseph er elzti sonur Roberts heitins Kennedys, og næstelztur bama hans og Ethel Kennedys, sem hefur dvalizt að undanförnu í New Hampshire. Joseph Kennedy á hestbaki. Flugmálastjórinn, Mohammed Nasser, gaf síðan út opinbera yfir lýsingu þess efnis að flugvélar- ræningjarnir mundu halda áhöfn inni í gíslingu þangað til gengið hefði verið að kröfum ræningj- anna. Farþegarnir voru sendir til gistihúsa í miðborg Aden og verða síðan fluttir flugleiðis til Beirút. Meðal farþeganna var Per Tob iasen, skrifstofustjóri þróunar- hjálpar Norðmamna og 16 blaða- menn og tæknimenn finnska út- varpsins, sem voru að koma frá Sapporo þar sem þeir höfðu fylgzt með vetrarolympiuleikun- um. Samkvæmt fréttum frá írak eru flugvélarræningjarnir félag- ar í „Fylkingunni til baráttu gegn ofsóknum zíonista“. Foringi ræningjanna kallar sig Yousisef A1 Khatib og segist fylgja Svetlana og William Peters í Taliesen West. Svetlana er farin frá manni sínum Kann ekki að meta „kommúnubúskap 66 Paradise Valley, Arizona, 22. febr. — NTB. AP. „KONAN mín er farin frá mér og tók með sér tíu mán- aða gamalt barn okkar,“ sagði William Peters arkitekt, eigin maður Svetlönu, dóttur Stal- ins, í dag. Hann sagði að skiln aður virtist óumflýjanlegiir vegna þess að Svetlana hafn- aði „raunverulegum lögmál- uni lýðra-óis í reynd“. „Hingað kom hún og vildi giftast mér fljótt, en Svetlana kann ekki að aðilaga sig og þess vegna virðist s'kilnaður næstum því óumflýjanlegur," sagði Peters. Ekki hefur reynzt unnt að fá athugasemdir frá Svetlönu, sem flúði til Bandarikjanna’67, en vinur hennar hefur eftir henni að hún hafi farið frá eiginmanni sínum vegna þess að hún felldi sig ekki við „kommúnubúskap" og að það hafi einnig verið ástæðan til þess að hún fór frá Sovétríkj- unum. Hjónin hafa verið búsett í Taliesen West, sem er um 30 km norðaustur af Phoenix í Arizona og hefur Frank Lloyd Wright stofnunin byggt upp þann bæ að miklu leyti. Stofn unin menntar arkitekta og rekur arkitektaþjónustu, en stofnandinn, sem var frægur arkitekt, var tengdafaðir Pet ers. „Ég trúi á eignarrétt einstakl ingsins,“ er sagt að dóttir Stal íns hafi sagt vinum sínum þeg ar hún tjáði þeim að hjóna- bandið væri farið út um þúf- ur. „En hér lifið þið „kommún isku þjóðfélagsllfi" við stofnunina. Þið skiptið með ykkur tekjum ykkar, matn- um, lifnaðarháttum og allri vinnu og meira að segja börn unum,“ er haft eftir Svetlönu. „Hún hefur hafnað lifnaðar háttum sem ég hef tekið þátt í að skapa og trúi á,“ segir Peters eiginmaður hennar. Þau hafa búið í Taliesen West síðan þau giftust árið 1970. — Nú hefur Svetlana keypt sér hús í Scotsdale í Arizona og þax hefur hún búið síðan í des ember í fyrra ásamt barninu. Hún er fjárhagslega sjálfstæð vegna ritstarfa sinna. Peters er tvígiftur, Svetlana fjórgift. Laxveiðum Dana við Grænland verður hætt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.