Morgunblaðið - 04.03.1972, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.03.1972, Blaðsíða 24
24 MORGUNELAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1972 ► ' félK í fréttum 13* d. H Kappakstnrshetjan •Taekie Ste wart sést hér í ffóAnm félagsskap, skrýddur kúrekafötnm. Myndin var tekin á kaupstefnu í Lon- d«n, jjar sem sýndur er tízku fatnaAur dresngja ogr herra. Hubert Humphrey. HTJMPHKEY KOMINN Á STÚFANA Hubert Humpihrey, sem var varaforseti Bandarikjanna í stjórnartíð Lyndons B. John- sons er löngu farinn að hugsa sér til hreyfings eina ferðina enn. Hann stefnir að því að ná útnefnimgu demókrata og verða frambjóðandi i kosningunum í haust. Hann virðist ekki iáta ósigurinn fyrir fjórum árum hafa áhrif á sig. Þó er hæít við því, að róðurinn verði Hump- hrey þungur. Fallframbjóðandi er aldrei sérflega vinsæll hjá kjósendum, enda þótt Nixon fbrseti yrði sjálfur að ganga í gegnum þó reynsiu, áður en hann kumst í Hvíta húsið. Og Humphrey býst kannski við að hið sama endurtaki sig nú. Klísabet Bretadrottning, létt- klædd og brosmild í sól og hita í Kuala Lumpur. Hin árlega Keflavíkur giíma er í fullum gangi. Nixon Bandaríkjaforseti horfir fiillur athygli á Chou En-lai for- sjvtisráðÍK-rra Kína, í matarveizlu, einni af mörgrum, sem J>ar vom híildnar framáfólki, meöan á heimsókn handarísku gest- anna sióð. Sjálfur heldur Nixon á kínverskum prjónum og það þótti einmitt í fránögur færandi, hversu leikinn liann hefði ver- ið að snæða með þeim. ENN UM AFMJET.TO Stöðugt berast myndir úr af- mælisveiziu Elísabetar Taylor. Við höfum ekki enn birt mynd af afmæ>lisbarnin.u á afmælis- daginn. Hér er úr því bætt og er eiginmaðurinn Richard Burf- on með á myndinni. H.IÓNABANDSMÁL GRIKKJAKONUNGS Á ALLRA VÖRUM Við sögðum frá því á dögun- um, að Konstantín Grikkjakon- ungur hefði séð ástæðu til að' gefa út yfirlýsin.gu, þar sem þær sögur voru sagðar rógur og iilmælgi, að konungur ætl- aði að skilja við konu sína, Önmu Mariu. En hvassyrt yfir- lýsing konungs hefur þó ekki orðið til að stöðva umtalið. Bent er á að undanfarna tvo mán- uði hafi konungvr búið í Lond- on. Hanm hóf þar nám í stjórn- víisindum og í fyrstu flaug hann tvisvar í viku frá Rómaborg til að sækja tíima. En fljótlega breytti hann því fyrirkomulagi og tók sér fasta bólfestiu í Lond- on. 1 Rómaborg var Anna María áfram með börnin þrjú. Það er einnig haft fyrir satt, að erfiðlega hafi gengið að hafa upp á konungi, þegar tengdafað ir hans Friðrik Danakonungur veiktist. Fylgdi það sögunni, að Anna María hatfi ekki vitað heimilisfang Konstantins manns síns. Þá segir ennfremur að Friðrikka ekkjudrottning, móð- ir Konstantins hafi reynt að tala um fyriir syni símum áður en hann fiuttist til London og haifi þá siegið I brýnu milli þeirra mæðginanna. Margir frétjtamenn og fróðleiksþyrstir áhiugamenn hafa reynt að ná tali af drottningiu tii að fá svör hennar, en hún er þögul sem gröifin. Svo að nú er að taka á þcflinmæðinni og sjá hverju fram vindur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.